Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 29
8£ 29 C8ei imat/ii'iaaa .os irjoAguhivqim aia/viHMu;)íioi/i MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKTJD‘AGUR '2IT. 'DESEMBER 1989 Samskipti Kína og Bandaríkjanna: Bush ákvað leynifimd mánuði eftir blóðbaðið Hafði áður lagt bann við samskiptum háttsettra embættismanna Washington, Peking. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa staðfest að þeir Brent Scowc- roft, öryggisráðgjafi George Bush Bandaríkjaforseta, og Lawrence Eagleburger, aðstoðarvarnarmálaráðherra, hafi haldið í leynilega fór til Kína í byrjun júlímánuðar en um mánuði áður höfðu kínversk sljórnvöld brotið á bak aftur með hervaldi mótmæli lýðræðissinna á Torgi hins himneska friðar í Peking. Mál þetta þykir álitshnekkir fyrir Bush forseta en þann 20. júní lagði hann bann við samskiptum háttsettra kínverskra og bandarískra embættismanna til að undir- strika fordæmingu Bandaríkjastjórnar á voðaverkum kínversku her- sveitanna í Peking. Réuter Manfred Wörner (t.h.), framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, heilsar Edúard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, í aðalstöðvum bandalagsins í Brussel í gær. Shevardnadze í heimsókn hjá Atlantshafsbandalaginu: Varnarbandalögin tvö tryggj a j afiivægi á breytingatímum Brussel. Reuter. MANFRED Wörner, fram- kvæmdasljóri Atlantshafsbanda- lagsins (NATO), segist hafa feng- ið óformlegt boð frá Edúard Shevardnadze, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, um að heimsækja Sovétríkin og muni hann hugleiða það. A hinn bóg- inn segist Wörner hafa hafiiað tillögu sovéska ráðherrans um reglubundna fúndi fulltrúa NATO og Varsjárbandalagsins. Shevardnadze heimsótti aðal- stöðvar NATO í Brussel í gær, fyrstur sovéskra ráðamanna, og voru hann og Wörner sammála um að horfúr á samningum um fækkun í hefðbundnum herafla í Evrópu og 50% fækkun lang- drægra kjarnavopna á næsta ári væru góðar. Shevardnadze sagði viðræðurnar hafa verið mj'ög nauðsynlegar og gagnlegar. „Eg hygg að að nú, þegar grundvallarbreytingar eiga sér stað í Evrópu, geti bandalögin tvö gegnt mjög mikilvægi hlutverki við að tryggja jafnvægi og öryggi," sagði ráðherrann. Wörner sagðist á blaðamannafundi hafa skýrt She- vardnadze frá því að yrðu áfram- haldandi breytingar í ríkjum Var- sjárbandalagsins kæmi til greina að taka upp formlegt samband milli bandalaganna en þad væri ekki tímabært enn þá. Vel kæmi til greina að ráðherrar frá öðrum Var- sjárbandalagslöndum kæmu í aðal- stöðvarnar en ekki sem fulltrúar hernaðarbandalags Austur-Evró- puríkjanna. Sovéski ráðherrann kom til aðal- stöðvanna í bíl sem bar veifu með mynd af hamri og sigð og tók Wörner á móti honum ásamt sendi- herrum bandalagsríkjanna 16. Á veggjum ganganna til skrifstofu eru skilti þar sem embættismenn og stjórnarerindrekar eru varaðir við lausmælgi_ um öryggismál Vest- urveldanna. Á leiðinni út heilsaði Shevardnadze nokkrum starfs- mönnum með handabandi og slógu menn á létta strengi. Ráðherrann sagði blöðin hafa sagt að hann ætlaði ofan í gíg eldfjalls en þetta hefði ekki verið svo hræðilegt. Wörner sagði í viðtali við frétta- mann Reuters-fréttastofunnar að Bandaríkjamenn myndu fækka meira í herliði sínu í Evrópu en áætlað hefði verið en það yrði gert í samráði við önnur bandalagsríki. Nauðsynlegt væri að endurmeta hernaðarógnina frá kommúnista- ríkjunum í ljósi atburða undanfar- inna mánaða í ríkjum Varsjárbanda- lagsins. Shevardnadze undirritaði á mánudag fyrsta viðskiptasamning Sovétríkjanna og Evrópubanda- lagsins (EB) ásamt Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakka og for- seta ráðherranefndar EB, og Frans Andriessen, sem annast utanríkis- mál bandalagsins. Aflagðir verða innflutningskvótar bandalagsins á vörur frá Sovétríkjunum frá 1995 og EB-ríki fá betri aðgang.að sov- éskum markaði. Samningurinn gildir í tíu ár og er gert ráð fyrir aukinni samvinnu í vísindum og tækni, landbúnaði, umhverfismál- um, fjármálaþjónustu og starfs- þjálfun. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN skýrði frá leyniförinni á mánudag og fáeinum klukkustundum síðar var það staðfest af hálfu forseta- embættisins að hún hefði verið far- in. Marlin Fitzwater, talsmaður Bush Bandaríkjaforseta, varði þá ákvörðun forsetans að skýra ekki frá för embættismannanna í júlí og sagði hugsanlegt að fleiri slíkum fundum yrði komið á. „Forsetinn telur að þær aðstæður geti skapast að rétt sé að skýra ekki opinberlega frá slíkum fundarhöldum." Sagði Fitzwater einnig að Bush teldi mik- ilvægt að rætt væri augliti til auglit- is við kínverska stjórnmálamenn. Slíkum stjórnmálasamskiptum væru þeir vanastir en Bush var sem kunnugt í eina tíð sendiherra Bandaríkjastjórnar í Kína og þykir búa yfir þekkingu og reynsíu af þjóðlífi öllu þar eystra. í yfirlýsingu forsetaembættisins sagði að ákveðið hefði verið að senda þá Scowcroft og Eagleburger til Kína í júlí til að koma þeim boð- um beint og milliliðalaust til kínver- skra ráðamanna að Bandaríkja- menn teldu blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar mikið alvörumál. Kínverska utanríkisráðuneytið birti tilkynningu í gær þar sem sagði að Bandaríkjamenn hefðu óskað eftir viðræðunum í júlí og hefðu þær verið gagnlegar. Hersveitum var sigað á óvopnaða stjórnarandstæðinga á torginu eftir að þeir höfðu haldið uppi andófi þar og krafist lýðræðisumbóta. Enn er ekki vitað með vissu hversu margir voru myrtir þann 4. júní en talið er að hundruð og jafnvel þús- Síðastliðinn föstudag varaði bandaríska utanríkisráðuneytið við árásum hryðjuverkamanna í Vestur-Evrópu og í Vestur-Afríku og daginn áður jók franska lög- reglan viðbúnað sinn vegna jóla- hátíðarinnar. Segja sérfræðingar, að íslamskir öfgamenn, sem hat- ast við allt, sem vestrænt er, telji jólin vera táknræn fyrir vestræna menningu og því sé árangursrík- ast að fremja hryðjuverkin þá. í yfirlýsingu bandariska ut- anríkisráðuneytisins var sérstak- lega varað við Hizbollah-samtök- unum í Líbanon en nokkur hætta er einnig talin á, að Rauðu her- deildirnar í Vestur-Þýskalandi og svipuð samtök í Belgíu, Frakklandi og á Ítalíu hafi eitthvað á prjónun- um. GLEÐILEG JOL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR Óska ég öllum ættingjum og vinum með þökk fyrir liðin ár. Karl Bjarnason, Minni-Grund. Hringbraut 50, Reykjavík undir maftna hafi fallið í árásinni. Þann 20: júní skýrði Bush forseti frá því að hann hefði afráðið að leggja bann við samskiptum hátt- settra bandarískra og kínverskra embættismanna til að undirstrika þá afstöðu stjórnvalda í Banda- ríkjunum að árásin hefði verið órétt- lætanlegt blóðbað. Það er einkum af þessum sökum sem frétt CNN vakti svo mikla at- hygli sem raun ber vitni og eins vegna þess að mörgum þótti för þeirra Scowcrofts og Eagleburgers til Kína í þessum mánuði gagnrýnis- verð. Þeir áttu viðræður við kínverska ráðamenn þann 9. og 10. þessa mánaðar og hefur talsmaður Demókrataflokksins t.a.m. líkt þeim George Bush fundahöldum við ólöglega vopna- sölu bandarískra embættismanna í tíð Ronalds Reagans, íran-contra- málið svonefnda. Opinbera skýring- in á viðræðunum nú í desember er sú að Bandaríkjamenn hafi viljað koma í veg fyrir'vaxandi einangrun Kínveija á alþjóðavettvangi en yfir- völd þar í landi kölluðu yfir sig fordæmingu víða um heim er herafl- inn var sendur á vettvang. Varað við hryðju- verkum um jólin Washington. Reuter. OTTAST er, að ýmis hryðjuverkasamtök, sem hatast við Banda- ríkin og önnur vestræn ríki, telji árangursríkara að láta til skarar skríða um jólaleytið en á öðrum árstíma. Er það haft eftir banda- rískum embættismönnum og öðrum sérfræðingum og á það bent, að fyrir ári var Pan Am-þota með 270 manns innanborðs sprengd yfír Lockerbie í Skotlandi. l^&l: Lítil raftæki frá Siemens Kaffivél sem er áferð- arfalleg og þægileg í notkun. Fyrir 10 bolla. .2990 kr. > Kaffivél með gullsíu. Gufan er skilin frá við lögun. F. 8 og 12 bolla. 3885/5990 kr. Brauðristar aí ýmsum gerðum, einfaldar og tvöfaldar. k Verð frá 1910 kr. Gufustrokjárn sem sér til þess að allt verði slétt og fellt. 3850 kr. Djúpsteikingarpottur fyrir 1,7 - 2,5 1. Fyrir alls kyns matvæli, sér- staklega góður til kleinu- baksturs. 9585 kr. Bílryksuga sem er lítil og handhæg. Tengd við kveikjaratengi. 1360 kr. SMITH&NORLAND __ NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 i jnMbi' | Bladh) sem þú vaknar vió!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.