Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 17
MQRGU NBLAÐID MIÐVIKUDAGUR 20, DESEMBER 1989 17 SKÝRIN G ARM YND Líkan af slagæð með staðbundnum þrengslum vegna fituútfelling- ar (kólesterols), flögnunar á æðaþeli og segamyndun. I = Blóðflögusegi. II = Blandaður segi af blóðflögum og fibrini. III = Fibrin-segi með rauðum blóðkornum. „Um æðasjúkdóma gildir þó sama megin reglan og um alla aðra sjúkdóma að betra er að fyrirbyggja en að lækna það sem sjúkt er orðið.“ sem notaðir eru, eru miklu minni en það sem gefið er til verkja- stiliandi áhrifa og þolast því vel í flestum tilfellum. Fara verður þó varlega hjá sjúklingum með sögu um magasár eða blæðingar frá meltingarvegi og sömuleiðis hjá sjúklingum með aspirin-ofnæmi. Vitað er um fleiri efni, sem hafa svipaða eiginleika, og eitt þeirra er lýsi, sem m.a. dregnr út kekkjun og viðloðun blóðflaga. Lengi hafa verið þekkt efni, sem leysa í sundur fibrin og þar með blóðsega. Það er þó ekki fyrr en á síðari hluta þessa ártugar að notkun þeiiTa hefur orðið almenn. Fyrst í stað var efninu sprautað beint í þá æð sem stífluð var og gerði það að verkum að aðstöðu þurfti til hjarta- þræðinga og varð til þess að notkun þeirra var takmörkuð. Eftir að ljóst var að hægt var að gefa þessi efni sem dreypilyf í bláæð hefur notkun þeirra orðið mjög almenn og er nú svo komið að þau eru talin sjálfsögð við meðferð bráðrar kransæðastíflu. Efni þau, sem hér er um að ræða, eru streptokinasi, APSAC (strept- okinasa-afbrigði), sem hvort tveggja eru eggjahvítuefni unnin úr bakteríum, og tPA, sem unnið er með líftækniaðferðúm úr frum- um eggjastokka hamstra. Fleiri efni eru til, en þessi eru einna mest notuð í dag. Óll þessi efni eru mjög virk segaleysandi efni en ókostir þeirra eru þeir, að þau geta einnig leyst upp sega, sem myndast hafa við eðlilega græðslu sára og ann- arra æðaskemmda, og hafa jafn- framt truflandi áhrif á storkukerfið og geta því valdið blæðingum ann- ars staðar í líkamanum. Það síðast- nefnda, tPA, hefur þó mun stað- bundnari verkun en hin tvö fyrr- nefndu. Þetta eru dýr lyf og kostar skammtur af streptokinasa í dag um 15.000 krónur og um 80-90.000 krónur af tPA. Árangurinn er þó ótvíræður og sýnt hefur verið fram á með stórum fjölþjóðarannsókn- um, sem íslendingar hafa m.a. tek- ið þátt í, að minnka má dánartíðni sjúklinga með kransæðastíflu um allt að 25-50% með þessari með- ferð. Árangurinn af meðferð er þó háður því hversu langur tími hefur liðið frá því æðin stíflast og bestur er hann ef meðferð er hafin innan fjögurra til sex klukkustunda frá upphafi einkenna. Þó takast megi að leysa upp blóð- sega í kransæðum er vandamálið ekki leyst. Erfitt getur verið að halda æðinni opinni áfram, því skemmd sú sem olli segamyndun er að sjálfsögðu áfram til staðár. Standa nú yfir víðtækar rannsóknir á því hvort og hvenær gera eigi aðgerðir í kjölfar segaleysandi með- ferðar og þarf þá oftast að fram- kvæma hjartaþræðingu og krans- æðamyndatöku til að meta slíkt. Hjarta- og æðasjúkdómar eru ennþá algengasta dánárorsök á ís- landi. Dánartíðni af völdum þeirra hefur farið vaxandi á undanfömum áratugum þó að heldur hafi dregið úr þeirri aukningu á síðustu árum. Miklar framfarir hafa orðið í með- ferð þeirra, sem hafa þennan sjúk- dóm, bæði í lyfjameðferð og aðgerð- um, æðaútvíkkunum og kranæða- skurðaðgerðum. Dánartölur síðustu tveggja ára sýna nú lægri dánar- tíðni en áður, en of snemmt er að fullyrða hvort hér sé um varanlegan árangur að ræða. Um æðasjúkdóma gildir þó sama megin reglan og um alla aðra sjúk- dóma að betra er að fyrirbyggja en að lækna það sem sjúkt er orð- ið. Til þess að slíkt megi takast þarf þó að vera fyrir hendi þekking á orsökum, eðli og útbreiðslu sjúk- dómsins. Á því sviði hefur Hjarta- vemd unnið brautryðjandastarf hér á landi á síðastliðnum 25 ámm. Höfundur er sérfræðingur á hjartadeild Landspítalans. Heimildarsaga eftir Guðmund Daníelsson IÐUNN heftir gefið út bók eftir Guðmund Daníelsson rithöfund. Bókin heitir Oskin er hættuleg — heimildarskáldsaga um Guð- mund Daníelsson, vini hans og fleira fólk. í kynningu útgefanda segir: „Þetta er heimildarskáldsaga, byggð á minningum skáldsins um vini og samferðarmenn, aldarmynd þar sem alvara og kímni haldast í hendur eins og lesendur Guðmund- ar þekkja úr bestu verkum hans. „Óskin er hættuleg, því að hún rætist. Það er hættulegt að unna, elska og óska, því að þú færð það allt saman,“ sagði skáldpresturinn Sigurður Einarsson í Holti við Guð- mund og þau orð kveða við eins og leiðsögustef í þessari skáldsögu- kenndu sjálfsmynd skáldsins. En máttur óskarinnar tekst líka á við ógnina og skelfinguna sem af því getur hlotist að mæta Úlfari sóða, jafnvel fyrir þann sem í bemsku bað: Jesús-guð, gerðu mig skáld! Kímnigáfa Guðmundar nýtur sín einkar vel þegar hann segir óborg- anlegar sögur af skáldvinum sínum og fleira fólki. Um leið gefur frá- sögn hans glögga mynd af mannin- um sem þrátt fyrir yfirþyrmandi amstur og eril missir aidrei sjónar á óskadraumnum, kölluninni til að skrifa.“ Guðmundur Daníelsson w RAYM0ND WEIL GENEVE Gæði og glæsileiki ofar öllu FRYSTIKISTUR SPAÐU I VERÐIÐ SPÁÐU í VERÐIÐ SPÁÐU í VERÐIÐ SPÁÐU í VERÐIÐ . 152 lítra uppseld 191 lítra kr. 33.900 230 lstra kr. 35.900 295 lítra kr. 39.900 A 342 lítra kr. 41.990 399 lítra kr. uppseld ® 489 lítra kr. 48.900 ® 587 litra kr. uppseld 0 FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 91-84670 ÞARABAKKA 3, SÍMI 670100 RAFBÚÐIN, ÁLFASKEIÐI 31, HAFNARFIRÐI, SÍMI 53020 Innrabyrði hömruðu élIí ---1 t Lok með ljósi, læsingu, jafn- veggjum ATH. 10% staðgreidsluafsláttur! vægisgormum og plastklætt Djúpfrystihólf Viðvörunarljós Kælistilling Körfur Botninn er auðvitað frysti- flötur ásamt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.