Morgunblaðið - 20.12.1989, Qupperneq 12
fSLENSKA AUCLÝSINGASTOFAN HF.
eser aaaMagag os auoAauxivaiM GiQAuaxuoaoM
öi
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
Skyttur á
veiðislóð
Stórbrotnár mannlýsingar og
náttúrulýsingar fléttast saman við
fjörmiklar og lifandi frásagnir af
veiðum og veiðiferðum í þessari
bók. Hún flytur frásöguþætti af
níu skotveiðimönnum og lýsir
sérstæðri og margháttaðri
lífsreynslu sem tengist veiðum.
íslenskir skotveiðimenn eltast
við ýmsa bráð og því er á síðum
bókarinnar víða drepið niður
fæti í íslenskri náttúru. í orðum
veiðimannanna koma fram öll
helstu sérkenni veiðidýranna;
kænska og þrautseigja refsins
jafnt og varkárni gæsarinnar. Þar
má líka finna glögg merki um þá
virðingu sem veiðimaðurinn ber
fyrir bráð sinni og fýrir
náttúrunni allri.
IÐUNN
Tekjutrygging
eftir Kristján
Sturlaugsson
Við heildarendurskoðun almanna-
tryggingalaganna vorið 1971 kom
tekjutryggingarhugtakið inn. Næðu
lífeyrir og tekjur elli- og örorkulífeyr-
isþega ekki vissu marki skyldi hækka
hfeyri um þá fjárhæð sem á vantaði.
í lögunum frá 1947 var ákvæði um
skerðingu lífeyris. Þar segir að þeir,
sem við gildistöku laga þessara njóti
lífeyris eða eftirlauna af opinberu fé
eða úr opinberum sjóðum er sé að
minnsta kosti jafn mikill og ellilíf-
eyrir samkvæmt lögunum miðað við
töku lífeyris frá 67 ára aldri, eigi
ekki rétt á ellilífeyri. Hér er sem
sagt skerðingin bundin við lífeyri eða
eftirlaun af opinberu fé eða úr opin-
berum sjóðum _en ekki aðrar tekjur
lífeyrisþegans. í nýju heildarlöggjöf-
inni frá 1956 er forminu breytt nokk-
uð og skerðingin bundin við þá sem
rétt eiga til bóta frá lífeyrissjóðum,
sem starfa skv. sérstökum lögum eða
hlotið hafa viðurkenningu sam-
kvæmt ákveðnum lagaákvæðum, og
var iðgjald til Tryggingastofnunar-
innar miðað við þær bætur er þeir
gætu átt kröfu til frá Trygginga-
stofnun. Ilélst þetta ákvæði síðan,
þar til ný heildarlöggjöf var sett um
almannatryggingar árið 1963, að öll
slík skerðingarákvæði voru felld nið-
ur.
Upphaf tekjutryggingar
með lögum nr. 67/1971
Hækkun lífeyris samkvæmt lög-
unum frá 1971, ef tekjur að við-
bættum lífeyri ná ekki ákveðnu
marki, er að því leyti gjörólík gömlum
ákvæðum, að þar var um skerðingu
að ræða vegna vissra tekna eða
lífeyris, en hér er um hækkun áð'
ræða nái heildartekjur að lífeyri
meðtöldum ekki þessu tiltekna
marki. Var þetta því kallað tekju-
trygging þó lögin nefndu það uppbót.
Skerðing vegna tekna
Fljótlega bar á mikilli óánægju
með það, að uppbót þessi lækkaði
sem nam tekjum, ef einhverjar voru.
Áhrifamenn og ýmsir áhugasamir
brydduðu á þessu, en þó frekar hóg-
vært. Nýtt form komst svo á þetta
í lögum nr. 62, 21. maí 1974. Skerð-
ist þessi uppbót (tekjutrygging) um
helming annarra tekna en lífeyris
almannatrygginga umfram ákveðið
mark sem þá var 37.500 kr. á ári.
Við aðlögun að verðbólgu og öðrum
fjárhagsaðstæðum varð svo um tíma
aukning á skerðingarhlutfallinu.
Stafaði það af ófullnægjandi sam-
bandi milli aðila, sem unnu að efna-
hagsaðgerðum, framkvæmdum og
af orðalagi reglugerða. Frá 1. ágúst
1976 var svo skerðingin 55% af þeim
tekjum sem komu til skerðingar. Var
það hlutfall óbreytt til 1. mars 1984,
en þá var skerðingin lækkuð í 45%
af tekjum, eins og þær eru skil-
greindar við útreikning tekjutrygg-
ingar.
Tekjumarkið
Frá upphafi tekjutryggingar 1.
ágúst 1971, en gildistöku laga nr.
67/1971 var flýtt um 5 mánuði, var
tekjutryggingin skert um allar tekjur
og gilti það til maíloka 1974 er
frítekjumark var tekið upp og hefur
tekjutrygging ekki verið skert síðan,
nema vegna tekna yfir því marki.
Vegna verðbólgu og efnahagsþróun-
ar hefur þessu marki verið breytt
árlega 1. júlí í sambandi við nýjar
tekjuupplýsingar frá skattyfirvöldum
og hefur sú hækkun verið ákveðin
af heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu í samvinnu við Þjóð-
hagsstofnun.
Auk hækkana á frítekjumarkinu
1. júlí ár hvert var það hækkað úr
kr. 26.440 á ári fyrir einstakling í
kr. 29.084 eða um 10% frá 1. mars
1984 með lögum sem samþykkt voru
á Alþingi 28. mars 1984. Fyrir hjón
var hækkunin hliðstæð. Við saman-
burð á upphafféga frítekjumarkinu
þarf að taka tillit til, að ný myntein-
ing vartekin upp í ársbyijun 1981.
Tekjur sem koma til
skerðingar tekjutryggingar
í upphafi miðaðist tekjutryggingin
við að lífeyrir, uppbót og tekjur næðu
vissu marki. Þessi viðbót við lífeyr-
inn, sem fékk nafnið tekjutrygging,
skertist því um allar tekjur og lífeyri,
annan en lífeyri almannatrygginga.
Kristján Sturlaugsson
„Lífeyrir úr lífeyris-
sjóði er trygging sem
fólk hefiir keypt sér á
starfsævinni og sætir
fiirðu, að það skuli
sætta sig við skerðingu
bóta almannatrygginga
vegna slíkrar trygging-
ar sem það hefiir borg-
að fyrir.“
Þegar frítekjumarkið kom 1. júní
1974 var tekjutryggingin skert um
helminginn af öðrum tekjum og
lífeyri, öðrum en lífeyri almanna-
trygginga, umfram frítekjumarkið.
Með lögum nr. 13, 23. maí 1975
verður nokkur breyting á. Reiknaðar
tekjur af leigu af eigin húsnæði og
tekjur barna skyldu ekki teljast með
tekjum við útreikning tekjutrygging-
ar.
Breytingar verða á skilgreiningu
tekna við útreikning tekjutryggingar
með lögum nr. 25/1984 sem sam-
þykkt voru á Alþingi 28. mars. Sam-
kvæmt þeim teljast ekki til tekna,
sem skerða tekjutryggingu, lífeyrir
almannatrygginga og vextir, verð-
bætur eða gengishagnaður, sem frá-
dráttarbær er frá tekjum við ákvörð-
un tekjuskattstofns.
Á fundi sínum 3. nóvember 1989,
15. lið, samþykkti tryggingaráð eftir-
farandi varðandi arð af hlutabréfum
Faz 1 II 1 l H 1 ' i", r i rii ir | —I)—[S 1 II P sJjT ll'-Tli]!
if -1.;, ... if lliililllíi5 1 liiw mmm mm tfPI m '■ ■ ni'ii
' ■ :!>• ‘ « P A,- :
NÝ, GLJESILEG HESTHÚS
I hinni nýju hesthúsabyggð í landi
Vatnsenda, á milli Kjóavalla og
Víðidals, eru til sölu ný, glæsileg hesthús.
ATH.: Fesfið ykkur hús fyrir áramót.
Stórhækkun verður á húsunum með
tilkomu virðisaukaskattsins.
Leitió upplýsinga á
skrifstofu S.H. verktaka,
Stapahrauni 4,
Hafnarfirói, sími 652221.
S.H. VERKTAKAR HF.
STAPAHRAUN 4 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 652221