Morgunblaðið - 20.12.1989, Síða 25

Morgunblaðið - 20.12.1989, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 25 Stofiiun Jóns Þorlákssonar: „Fjölmiðlar nútímans“ efltír Hannes Hólmstein ÚT er komin bókin Fjölmiðlar nútímans eftir dr. Hannes Hólm- stein Gissurarson, lektor í stjórn- málafræði í Félagsvísindadeild Háskóla íslands og gefiir Stofnun Jóns Þorlákssonar hana út. Bókin, sem er rúmar 350 blaðsíð- ur, skiptist í þijá hluta. í fyrsta hlutanum er greint frá sögu og eðli prentmiðlanna, bóka, blaða og tímarita og reynt að skýra þær leik- reglur, sem um þá hafa myndast hér á landi og annars staðar á Vest- urlöndum. Annar kaflinn fjallar um ljósvakann, þar á meðal Ríkisút- varpið og einkastöðvamar. í þriðja kaflanum er rætt um almenn við- horf fjölmiðlafólks, mál þess og hugsun og hvað betur mætti fara. I frétt um útgáfu bókarinnar segir, að nokkrar nýjar upplýsingar komi fram í bókinni. Höfundur upp- lýsi meðal annars, að útvarpslögin frá 1985 hafi hlotið samþykki, vegna þess að Steingrímur Her- mannsson hafi í miðju verkfalli opinberra starfsmanna 1984 orðið að lofa Þorsteini Pálssyni stuðningi við það til að afstýra stjórnarslitum. Þá sé greint frá því, að Steingrímur hafi árangurslaust reynt að útvega Hannes Hólmsteinn Gissurarson sér heimboð til Reagans Banda- ríkjaforseta í forsætisráðherratíð sinni og því þykkst við, er Þorsteini Pálssyni var boðið til Washington 1988. Þá séu hugleiðingar í bókinni um viðbrögð stjórnmálamanna við fjölmiðlabyltingunni og höfundur komist að þeirri niðurstöðu, að Steingrímur og Davíð Oddsson nái mestum árangri í fjölmiðlum. Nýársfagnaður; Með allt á Huldu á Hótel íslandi NÝÁRSFAGNAÐUR verður að vei\ju á Hótel íslandi fyrsta dag ársins 1990 og hafa Stuðmenn, Laddi og Flosi Ólafsson samið óperuna Með allt á Huldu sem flutt verður við þetta tækifæri í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar. Marteinn Mosdal flytur hátí- ðarræðu og Elsa Lund ávarp Fjallkonunnar. Veislustjóri verður FIosi Ólafsson. Æfingar hafa staðið yfir und- anfarnar 3 vikur fyrir nýársfagn- aðinn en auk Stuðmanna leikur fyrir dansi hljómsveitin Eldorado. Sveitin sérhæfir sig í flutningi suður-amerískrar tónlistar og má búast við að suðrænn andi svífi yfir vötnum þetta kvöld. Þá verður boðið upp á fjögurra rétta matseðil sem yfirmatreiðslu- maður Hótels íslands, Ólafur Reynisson, hefur útbúið. Sama verð verður á aðgöngumiðum og í fyrra, 7500 krónur og er forsala þegar hafin. A gamlaárskvöld leika fyrir dansi tvær hljómsveitir sem notið hafa vinsælda meðal yngri kyn- slóðarinnar en þær eru Sálin hans Jóns míns og Síðan skein sól. Stuðmenn leika fyrir dansi á skemmtistaðnum Hollywood á gamlaárskvöld og verður það loka- dansleikur sveitarinnar. Á Hótel Borg verður áramótadansleikur en lokað verður á nýárskvöld. í Sjallanum á Akureyri verður Spaugstofan með skemmtun á nýársfagnaði en veislustjóri vei'ður Rósa Ingólfsdóttir. í Sjallanum verður boðið upp á fjögurra rétta máltíð og aðgöngumiðaverð er kr. 4.900. A gamlaárskvöld leikur Stuðkompaníið fyrir dansi í Sjal- lanum en hljómsveitin kemur fram aðeins í þetta eina skipti. f Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúningur nýársfagnaðarins á Hótel íslandi hefur hvílt á herðum þeirra Harðar Sigurjónssonar aðstoðarhótelstjóra, Birgis Hrafnsson- ar markaðsstjóra og Ólafs Reynissonar matreiðslumeistara. FRÓÐLEGIR MANNLÍFSÞÆTTIR Bókaflokkurinn „Aldnir hafa oröiö" varðveitir hinar merkileg- ustu frásagnir eldra fólks af at- burðum löngu liðinna ára og um ,\" það sjálft, atvinnuhættiná, siðvenjumar og bregður upp myndum af þjóðlífinu, örum breytingum og stórstígum framförum, þótt ekki sé um samfelldar ævisögur að ræða. Þau sem segja frá eru: Bjami Jóhannesson, Einar Malmquist, Eiríkur Bjömsson, Guðný Pétursdóttir, Ketill Þórisson, Þorsteinn Guðmundsson og Þórður Oddsson. Þetta er síðasta bókin í þessum þekkta bókaflokki. s:!=r Brellur og bernskuminningar Bjössa bomm, höfundur: Björn Jónsson, læknir. Margir þekkja höfundinn undir nafninu Bjössi bomm. (bókinni lýsir Bjössi bernskuárum sínum og bommertum á Sauðárkróki, bæ alsælu og sólskins. Bjössi bomm erærslafullurdrengur, og uppátækin hans sum ótrú- leg, sumir myndu kannske segja hneykslanlega. Bjössi lýsir þeim og dregur ekkert undan. Jóhannes Geir listmálari bróðir höfundarins mynd- skreytti bókina. Mannlíf þessarar bókar er óvenju auðugt. Lesandinn kynnistfyrst þrem afbragðsskáldum, þeim Heiðreki Guðmundssyni, Ólafi Jóhanni Sigurðssyni og Þorsteini Valdimarssyni. Þá koma vísinda- mennimir Dr. Símon Jóh. Ágústsson, Bjöm Magnús- son prófessor og Dr. Sigurður Sigurðsson, fyrn/. berkla- yfirlæknir. Aðrir eru Guörún E. Jónsdóttir frá Reykja- hlíð og Jóhanna Bjöms- dóttir f Kópavogi, Eiríkur Guðmundsson frá Dröngum, Jóhann Péturs- son, vitavörður, Skjöldur Eiríksson, fyrrv. skóla- stjóri og Þórir Daníels- son fyrrum ritstjóri. 7 'ii? Skjaldborgt £)j ' ■ / t / / 1 IxikAiitgafa a í • / ý / Á '//// | Skjaldborg Ármúla 23-108 Reykjavík Símar: 67 24 00 67 24 01 315 99

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.