Morgunblaðið - 20.12.1989, Page 33

Morgunblaðið - 20.12.1989, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 33 Núverandi stjórn Eyverja. F.v.: Þórunn Gísladóttir, Tryggvi Kr. Olafsson, Sigxirjón Birg-isson, formaður, Bjarnhéðinn Grétarsson, Stefán Agnarsson og Harpa Gísladóttir. Á myndina vantar Siguijón Þorkelsson. V estmannaeyjar; Eyverjar 60 ára Vestmannaeyjum. EYVERJAR, félag ungra Sjálf- stæðismanna, er 60 ára í dag. I tilefni af þessum tímamótum bauð félagið til kaffisamsætis í Akóges- húsinu í Eyjum sl. sunnudag. Það var 20. desember 1929, sem hópur ungra manna kom saman í Goodtemplarahúsinu í Eyjum, til að stofna stjómmálafélag ungs fólks sem vildi fylkja sér um stefnu Sjálf- stæðisflokksins. Á stofnfundinum var Páll Eyjólfsson kjörinn fyrsti for- maður félagsins. Félagið gekk undir nafninu Félag ungra sjálfstæðis- manna til ársins 1961, en þá var samþykkt að taka upp nafnið Eyveij- ar. Eyveijar hafa í gegnum árin verið atkvæðamiklir í flokksstarfi Sjálf- stæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Félagið hefur haldið uppi öflugri fé- lagsstarfsemi og staðið fyrir skemmtiferðum fyrir félaga sína bæði innanlands og utan. Eyveijar buðu öllum velunnurum sínum til kaffisamsætis í Akóges- húsinu í Eyjum til að fagna þessum tímamótum í sögu félagsins, Margir gestir komu til að fagna þessum áfanga og meðal gesta voru Þor- steinn Pálsson, formaður Sjálfstæð- Morgunblaðid/Sigurgeir Jónasson Páll Scheving, einn ötulasti starfsmaður Sjálfstæðisilokksins í Eyjum í áratugi. maður og fyrrverandi formaður SUS, Árni Sigfússon, borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður SUS, og Eg- gert Haukdal, alþingismaður. Avörp voru flutt og félaginu færðar margar gjafir. Formaður Eyveija sæmdi nokkra félaga gullmerki fyrir vel unnin störf í þágu Eyvetja. Gest- um var boðið upp á kaffihlaðborð, hlaðið kræsingum. isflokksins, Geir H. Haarde, þing- Grímur FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 19. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 80,00 65,00 76,73 3,858 296.000 Ýsa 130,00 90,00 93,88 8,288 778.063 Karfi 36,50 29,00 35,97 67,069 2.412.759 Ufsi 43,00 43,00 43,00 5,775 248.319 Langa 35,00 34,00 , 34,84 1,650 57.476 Lúða 500,00 190,00 291,35 0,918 267.315 Sieinbítur 43,00 32,00 39,64 0,947 37.538 Keila 10,00 10,00 10,00 0,438 4.380 Gellur 215,00 215,00 215,00 0,072 15.480 Samtals 46,28 89,046 4.120.779 í dag verða meðal annars seld um 55 tonn af þorski, 12 tonn af ýsu, 15 tonn af karfa, 8 tonn af ufsa, 2 tonn af kola og óákveðið magn af lúðu og fleiri tegundum úr Sigurey BA. Einnig verður selt óákveðið magn úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 87,00 70,00 73,03 20,710 1.512.490 Ýsa 102,00 47,00 90,18 46,072 4.154.649 Karfi 38,00 29,00 34,67 5,007 173.568 Ufsi 47,00 39,00 44,47 47,998 2.134.609 Hlýri+steinb. 50,00 50,00 50,00 2,076 103.800 Langa 41,00 41,00 41,00 3,933 161.265 Lúða 210,00 200,00 203,08 0,117 23.760 . Grálúða 20,00 20,00 20,00' 0,149 2.980 Keila 12,00 12,00 12,00 0,461 5.532 Samtals 65,39 126,583 8.276.793 í dag veröa meðal annars seld 10 tonn af ýsu, löngu, steinbít og fleiri tegundum úr Ásbirni RE og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 91,00 40,00 76,42 19,190 1.466.536 Þorskur(umál) 39,00 31,00 37,65 0,594 22.366 Ýsa 131,00 60,00 89,24 8,217 733.266 Karfi 35,00 21,00 31,74 0,552 17.519 Ufsi 33,00 33,00 33,00 0,700 23.100 Steinbítur 34,00 34,00 34,00 0,591 20.077 Langa 41,00 34,50 38,55 1,345 51.853 Lúða 315,00 110,00 265,94 0,367 97.600 Keila 17,50 17,00 17,17 4,960 85.170 Samtals 68,69 36,832 2.530.057 í dag verður selt óákveðið magn úr dagróðrabátum. SKIPASÖLUR í Bretlandi 18. desember. Þorskur 132,32 17,950 2.375.082 Ýsa 118,08 19,690 2.324.914 Koli 151,59 1,445 219.041 Samtals 129,62 39,562 5.128.004 J Selt var úr Stapavík Sl í Grimsby 18. desember. Flugvélakaup Flugleiða: Nýjustu þoturnar af- hentar vorið 1991 Þegar nýju Boeing-þoturnar tvær, sem Flugleiðir hafa nú samið um kaup á, koina til landsins vorið 1991 mun félagið hafa yfir alls sjö flugvélum að ráða til millilandaflugs. Af þeim verða fjórar af gerð- inni Boeing 737-400 og tvær þeirra, Aldís og Eydís, eru þegar komn- ar í notkun. Þoturnar af þessari gerð eru einkum notaðar á Evrópu- leiðum Flugleiða. Hinar þijár þoturnar eru af gerðinni 757-200, taka nokkru fleiri farþega, og eru aðallega ætlaðar til að halda upþi áætlun í N-Atlantshafsflugi félagsins. Tvær Boeing 757-200 og ein 737-400 verða afhendar félaginu nú í vor, en fjórða 737-400 vélin og þriðja 757-200 vélin um það bil ári seinna. Að sögn Sigurður Helgasonar, for- stjóra Flugleiða er þessi ákvörðun lokaskrefið í stærstu íjárfestingar- áætlun félagsins til þessa dags, sem jafnframt er mesta íjárfesting sem íslenskt einkafyrirtæki hefur ráðist í. Verð fyrri vélana fimm er með fylgihlutum um 187 millj. dollara eða um 11,6 milljarðar en þoturnar tvær sem nú hefur verið samið um kaup á til viðbótar kosta ásamt varahlutum 82 millj. dollara eða um 5,1 milljarða króna. Sigurður segir að enda þótt fjár- festing í þessum nýja flugvélakosti sé mikil, þá telji bæði stjórn félags- ins og stjórnendur hana vel grun- daðan. Þrátt fyrir umtalsverðar skuldbindingar, hækkun vaxta- gjalda og aukningu útgjalda vegna afskrifta þá sparist þessir ijármunir fyllilega í hagkvæmari rekstri og vel það. Tækninýjungar hafi í för með sér að nýju vélarnar séu um 40% sparneytnari á eldsneyti miðað við hveija sætismílu heldur en eldri vélar og að í stjórnklefa nýju véi- anna þurfi nú tvo flugliða í stað þriggja áður. Viðhalda nýrra véla sé að sama skapi mun ódýrara en hinna eldri. Með þessum nýju tækj- um sé því verið að styrkja heildaraf- komu félagsins í framtíðinni. Sigurður segist gera ráð fyrir að vandalaust verði að tryggja fjár- mögnun þessara síðustu tveggja Boeing-þotna sem félagið hefur nú fest káup á, miðað við þá reynslu sem fengist hafi af fjármögnun fyrri 5 flugvélanna. Til kaupa á þeim voru tekin lán hjá evrópskum, bandarískum og japönskum bönk- um til 17 ára fyrir um 90% kaup- verðsins og þau tryggð með veði í vélunum sjálfum. Kjörin sem félag- ið naut þykja með því besta sem þekkist á þessum markaði, og segir Sigurður Helgason að það megi rekja til þeirra fyrirhyggju sem við- höfð var við fiugvélakaupin. Flug- vélarnar voru pantaðar snemma eða skömmu áður en sala og eftirspurn eftir þeim jókst til muna en það hefur aftur haft í för með sér að markaðsverð vélanna er nú veru- lega hærra heldur en kaupverð Flugleiða á vélunum. Sigurður Helgason segir að með þessari Ijárfestingu breytist milli- landaflugfloti Flugleiða á nokkrum mánuðum úr því að vera einn hinn elsti í Evrópu í einn hinn yngsta sem flugfélög álfunnar hafa yfir að ráða, og það gjörbreyti sam- keppnisstöðu félagsins. Jafnframt segir Sigurður að áfram sé haldið athugun á heppilegum flugvélakosti fyrir innanlandsflugið, en þessi at- hugun tengist þó nokkuð þeirra stefnumörkun stjórnar Flugleiða um að láta kanna hagkvæmni þess að stofna sérstakt flugfélag um innanlandsflugið með þáttöku landshlutaflugfélaganna. Stúdentar í Breiðholti Fjölbrautaskólinn í Breiðholti brautskráði í gær 51 nýstúdent úr dagskóla og sjö nýstúdenta úr kvöld- skóla. Auk þess voru brautskráðir sex snyrtifræðingar og fimm sjúkraliðar frá skólanum, og sex luku sveins- prófi úr dagskóla og tíu úr kvöldskóla. Nemendur í dagskóla á haustönn voru um 1400 og 900 stunduðu nám í kvöldskóla. Á innfelldu myndinni er dúxinn, Hjördís Björg Gunnarsdóttir, ásamt Kristínu Arnalds skólameistara. STÚDENTAR frá fjölbrautaskólanum Ármúla voru brautskráðir í gær, og voru þeir 34 talsins að þessu sinni. Fjórtán stúdentar voru brautskráðir af félagsfræðibraut, átta af viðskipta- og hagfræðibraut, fjórir af íþrótta- braut, fjórir af nýmálabraut og fjórir af náttúrufræðibraut. Alls stunduðu 743 nemendur nám í fjölbrautaskó- lanum Ármúla á haustönn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.