Morgunblaðið - 20.12.1989, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
41
'/? dags dvöl hjá dagmömmu, eða
reykingar tveggja foreldra með
einni frekar hófsamri bjórknæpu-
ferð í mánuði.
Einkaskólana inn í
ríkisskólana?
Nú er enginn af þessum kostum
einkaskólans þess eðlis að þeir geti
ekki átt við ríkisskóla. Á það benti
Helgi Skúli Kjartansson sagnfræð-
ingur í erindi sínu í Ríkisútvarpinu
um Daginn og veginn fyrir
skömmu. Kröfur um samfelldan og
langan skóladag, skólamáltíðir,
aukið íþrótta- og listnám og heima-
lærdóm í skólanum hafa reyndar
komið fram og verið allsterkar
gagnvart ríkisskólakerfinu. Það
sem allt hefur strandað á að er
peningaleysið. Það hefur ekki verið
sett ofarlega á forgangslistann að
búa almennilega að börnunum.
Þetta er auðvitað hið mesta
hneyksli. Það er bókstaflega troðið
á þeim. Þetta gengur alls ekki leng-
ur.
Það kemur mér óneitanlega dálít-
ið á óvart að Svavar Gestsson
menntamálaráðherra skuli sitja í
þessu embætti, horfa upp á ástand-
ið og koma svo -í veg fyrir tilraun
sem gæti bætt mjög aðstöðu þeirra
fáu sem þar gætu komist að. Slík
tilraun gæti meira að segja komið
ríkisskólakerfinu að gagni, því að
það sem þar tekst vel má síðar taka
upp í ríkisskólunum.
Sé Svavari hins vegar lífsins
ómögulegt að kreista meira fé út
úr flokksbróður sínum og besta vini,
Olafi Ragnari Grímssyni fjármála-
ráðherra, sé ég ekki annað ráð
vænna en að hann fari að tillögu
Helga Skúla Kjartanssonar og
heimili ríkisreknu skólunum að selja
þá viðbótarþjónustu sem hér hefur
verið rætt um, samfellt 8-9 klsL
skólastarf á dag, með heimalær-
dómi, list- og íþróttanámi og heitri
skólamáltíð með kennaranum. Eg
verð að játa að ég er dálítið hrifinn
af þessari hugmynd Helga Skúla.
Kæmist hún á, mundi hún eyða
a.m.k. sumum af þeim annmörícum
sem á einkaskólakerfinu eru, t.d.
þessu með aðskilnað frá öðrum
bömum í hverfinu, auk þess sem
þetta yrði þá undir sömu stjórn og
aðrir hlutar skólakerfisins á grunn-
skólastiginu.
Hamraskóli — tilraun sem
varð að hneyksli
Nú er það ekki svo að ég og
mínir líkar séum svo afskaplega
óþolinmóð, að við beygjum af við
fyrsta mótlæti. Ég get ósköp vel
sagt eina glænýja dæmisögu, sem
sýnir í hnotskurn hve litla ástæðu
venjulegt fólk hefur til að treysjta
á opinbera aðila í skólamálum. Ég
bý í Hamrahverfi í Grafarvogi.
Þetta hverfi er nær fullbyggt, en
samt er enginn skóli kominn þang-
að enn. Bömin eru keyrð í Folda-
skóla og heim aftur strax og skóla
lýkur. Sl. vetur og vor fóru svo að
berast fréttir af að nýr skóli ætti
að fara af stað í haust, Hamra-
skóli, en hann yrði fýrst um sinn
aðeins fyrir 3 yngstu árgangana.
Þama yrði gerð tilraun með sam-
felldan langan skóladag, kl. 9-4,
hugsanlega með mat. Hveijar eru
svo efndirnar? Nu er ein vika í að
skóli hefjist. Boðaðar framkvæmdir
við byggingu Hamraskóla hafa eng-
ar verið í allt sumar. En fyrir 10
dögum komu nokkrir vörubílar ak-
andi inn í hverfið í fylgd krana.
'Eftir nokkra leit staðnæmdust þeir
við óræktina og móana sem síðar
meir eiga víst að verða skólalóð
Hamraskóla. Þama tóku þeir af
bílunum forljóta skúra, myglaða og
útkrotaða af klámi og klúrheitum,
með brotnum rúðum, tröppulausa
en með 1 metra upp að hurð frá
jörðu, og allt eftir því. Ekki var
borið við að malbika blettinn sem
þeir voru settir niður á, heldur var
þeim fleygt þama niður í sandinn.
I kringum þá er engin lóð, engin
leiktæki, engin girðing. Þetta er
víst nýjasti skóli borgarinnár,
Hamraskólinn. Fimm skúrar, sem
ganga undir nafninu „færanlegar
kennslustofur". Það þarf auðvitað
ekki að spyija um aðstöðu kennara,
hún er engin. Ekkert hefur verið
unnið við þessa skúra síðan þeir
komu. Ekkert rafmagn virðist kom-
ið í þá, því síður hiti eða frárennsii
fyrir klósett eða annað slíkt. Að-
staða fyrir mat eða þess háttar er
auðvitað engin í svona kofum.
Tenging á milli kofanna er engin,
svo að svigrúm til að hnika frá
venjulegri bekkjakennslu er ekkert.
Mér sýnist einsýnt að tilraunin sem
búið var að lofa yngstu börnunum
í Hamrahverfi, sé úr sögunni,
a.m.k. þetta árið. Látum það vera
þótt loforð séu svikin, þótt auðvitað
sé bömunum sýnt vont fordæmi
með því. En ég spyr að öðru: Eru
foreidrar skyldugir til að skilja böm
sín á skyldunámsaldri eftir í svona
skúrræksnum? Andstæðingum
einkaskóla og misskildum .jafnrétt-
issinnum" finnst þetta auðvitað
fullgott fyrir mín börn, af því að
þúsund önnur böm verða að láta
sér svona lagað lynda. En ég er
ekki sáttur við þetta. Ég læt hvorki
bjóða mér né börnunum mínum
svona.
Svavar minn, mér finnst eins og
þér að skólakostnað bama okkar
eigi að greiða úr sameiginlegum
sjóði þjóðarinnar, en ég vil ekki að
drekanum sem situr á gullinu leyf-
ist að níðast á börnunum mínum.
Þá vil ég heldur kaupa þessa að-
stöðu handa mínum börnum — ert
þú til í að selja mér hana? Ef ekki
neyðir þú mig til að snúa mér að
einkaframtakinu, Miðskólanum eða
hvaða nafni sem það nú bregður
yfir sig næst. Við erum ekkert
hætt að beijast fyrir hag barnanna
okkar.
Höfundur er bókaútgcfandi og
einn þeirra sem skráðu bam sitt
í Miðskólann sem
menntamálarúðherra neitaði að
gefa startsleyli.
KÍNAPANNA (WOK),
glerlok og bókin ,
Kínversk matseld frá <5d
í gjafakassa
íslensk framleiðsla
Kínapanna fyrir snöggsteikingu, djúpsteikingu og gufusuðu.
Hentug fyrir pottrétti og alla fjölbreytta matargerð.
ölustaðir.
Heildsöludreifing
Amaro-heildverslun,
Akureyri.
A,
TOPPTILBOD
Stærðir: 40-46
Litur: Svart
Verð: 2.490,-
21212
Kringlunni,
sími 689212
LEADING EDGE
heimilis- og fjölskyldutölvan frá Banda-
ríkjunum, sem hlotið hefur frábæra dóma
fyrir öryggi og góða hönnun, er komin til
íslands. Leading Edge er nú boðin á sér-
stöku kynningarverði fram til áramóta.
Tæknilegar upplýsingar:
D D2 D3
Örgjörvi 8088 80286 80386
Klukkutíðni 8MHZ 8/12 MHZ 8/16 MHZ
Uppbygging XT AT AT
Minni (RAM) 512 kb 640 kb 640 kb
Diskettudrif 5,25“ 360 kb 1,2 Mb 1,2 Mb+ 360 kb
Harður diskur 30 Mb 65 Mb 65 Mb
Meðaisóknartími 65 ms 30 ms 30 ms
Skjár her. s/h VGA s/h VGA s/h
Fjöldi stækkunarraufa 4 6 6
Hlið/raðtengi 1/1 1/2 1/2
Stýrikerfi mS-DOS 3.2 3.3 3.3
Verð m. söluskatti . 149.900,- 219.900,- 295.900,-
Ármúla 1, sími 8-25-55,
108 Reykjavík.