Morgunblaðið - 20.12.1989, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
59
Mm
FOLK
■ CRAIG McKenion gekk frá
félagskiptum í gær úr Mansfield í
Arsenal og leikur með varaliðinu í
dag gegn Oxford.„Hann er góður
sóknarbakvörður og
Frá styrkir hópinn mik-
Bob ið,“ sagði George
Hennessy Graham, stjóri
i Englandi
Arsenal.
I NEIL McNab óskaði í gær eft-
ir að vera settur á sölulista hjá
Manchester City. Félagið keypti
þennan örfætta, 32 ára miðjumann
frá Brighton 1983 fyrir 40.000
pund. Middlesborough og Luton
hafa þegar sýnt áhuga á leikmann-
ínum.
■ GARY Shaw, fyrrum miðherji
Aston Villa, hefur æft að undan-
förnu með Walsall og vill félagið
kaupa hann. Austurríska félagið
Klageníurt, sem Shaw lék síðast
með, vill hins vegar fá 40.000 pund
fyrir kappann og það þykir Walsall
frekar mikið.
■ MICKY Hazard er óánægður
hjá Chelsea og vill fara. New-
castle hafði samið við Chelsea um
að fá hann að láni, en Hazard hafði
ekki áhuga.
■ DA VE Bassett hefur gert góða
hluti með lið Sheffield United.
Stjórn félagsins er himinlifandi með
að vera í 2. sæti í 2. deild á eftir
Leeds og hefur boðið stjóranum
nýjan þriggja ára samning. Bassett
er einnig ánægður. „Mér líður vel
hér norður frá og ég kann jafnvel
betur við félagið en Wimbledon,“
sagði yfírþjálfarinn, sem var við
stjómvölinn hjá Wimldedon í níu
ár og kom liðinu úr ijórðu deild í
þá fyrstu.
■ LIAM Brady, sem hefur verið
í írska landsliðinu í 13 ár og leikið
72 landsleiki, fær ágóðaleik í
Dublin 20. maí og er Jack Charl-
ton að reyna að fá Frakka í heim-
sókn. írar hafa samið um að leika
við Dani 16. maí, við Sovétmenn
24. apríl, við Wales 28. mars —
og vilja fá fleiri upphitunarleiki fyr-
ir HM.
■ CELTIC greiddi á síðasta
keppnistímabili 209.129 pund fyrir
löggæsiu á heimaleikjum sínum.
Chelsea borgaði 166.929 pund á
sama tíma, en óttast að fara upp í
250.000 pund á yfirstandandi tíma-
bili, því til þessa hefur kostnaðurinn
verið 9.000 pund að meðaltali á
leik eða um 900.000 ísL kr. Arse-
nal hefur greitt 41.000 pund til
þessa og Tottenham 37.000 pund.
■ ENSKA knattspymusambandið
gerir ráð fyrir að þurfa að borga
100.000 pund fyrir sérstaka sveit
lögreglumanna, sem mun fylgja
landsliðinu í lokakeppni HM á It-
alíu.
■ WIMBLEDON og West Ham
verða hvort um sig að greiða 20.000
punda sekt fyrir ólæti, sem brutust
út á milli 17 leikmanna félaganna
í bikarleik þeirra í síðasta mánuði.
Liðin sluppu vel; Norwich þurfti
að greiða 50.000 pund fyrir
skömmu fyrir ámóta brot.
■ GRAHAM Kelly, fram-
kvæmdastjóri enska knattspymu-
sambandsins, sagði í gær að félög-
um yrði umsvifalaust vikið úr bikar-
keppninni, ef ólæti brytust út á
meðal leikmanna
■ BERNHAR McNally á yfir
höfði sér sekt frá félagi sínu, West
Bromwich Albion, fyrir að leggja
boltann í netið úr vítaspymu gegn
Swindon á sunnudag. Samhetja
hans tókst heldur ekki að skora,
negldi yfir úr vítaspymu, en sleppur
við sekt. Að sögn Brians Talbots,
yfirþjálfara WBA, var samþykkt
fyrir skömmu með samþykki allra
leikmanna að menn yrðu að „negla“
úr vítaspyrnum, en hljóta sekt ella.
Upphæð sektarinnar fékkst. ekki
uppgefín og eins lá ekki fyrir hvort
leikmaður, sem skoraði úr víta-
spyrnu með því að „leggjann“ í
netið, yrði sektaðurJ
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ
Morgunblaðið/Bjami
Guðjón Skúlason var frábær í gærkvöldi — skoraði 33 stig, sum úr ótrúle-
gustu færum.
Keflvíkingar
óárennilegir
Guðjón skoraði úr ótrúlegustu færum
Guðjón Skúlason sýndi afburða-
hittni, er Keflvíkingar unnu
Hauka 111:97 í gærkvöldi. Hann
var í stöðugri gæslu, en lét það
ekki á sig fá og
skoraði úr ótrú-
legustu fæmm.
Samheijar hans
vom einnig vel með
á nótunum eftir að rétti tónninn
var gefinn og em íslandsmeistar-
amir ekki árennilegir, er þeir sýna
slíkan leik.
Haukarmenn komu hins vegar
geysilega á óvart og byijuðu mjög
vel. Útlitið var ekki gott fyrir ÍBK,
en gestimir léku fast, lentu fljótlega
í villuvandræðum og gátu ekki beitt
sér eftir það. Keflvíkingar nýttu sér
aðstæður og gerðu nánast út um
leikinn, er þeir skomðu 14 stig í
röð undir lok fyrri hálfleik og
breyttu stöðunni úr 43:47 í 57:47.
Leikur kattarins að músinni
KR-ingar áttu ekki í erfiðleikum
með Reynismenn og unnu
84:55. Þetta var leikur kattarins
að músinni og gestimir nýttu viður-
■■■^■B eignina nánast sem
Frímann æfingaleik — Páll
Úlafsson Kolbeinsson sat á
sknfar bekknum allan
seinni hálfleik og sá
um tölfræðina!
KR-ingar höfðu mikla yfirburði,
einkum í vöminni með Kovtúm sem
yfirburðamann, enda með besta
vamarlið deildarinnar. Reynismenn
náðu aðeins þremur sóknarfráköst-
um og auk þess var hittni þeirra
mjög léleg.
Mjög kalt var í húsinu og var
Laslo Nemeth, þjálfari KR, í úlpu
á bekknum og hafði rennt upp í
háis allan tímann.
Reynir - KR 55:84
íþróttahúsið Sandgerði, úrvalsdeildm í
körfuknattieik, þríðjudaginn 19. desember
1989.
Gangur ieiksins: 9:4, 9:10, 14:28, 20:37,
20:42, 26:54, 35:60, 42:62, 50:72, 50:80,
55:84.
Stig Reynis: David Grisson 23, EUert
Magnússon 11, Jón Ben Einarsson 8. Einar
Skarphéðinsson 5, Sveinn Gísiason 3, An-
tony Stissi 3, Helgi Sigurðsson 2.
Stig KR: Anatolíj Kovtúm 28, Matlhías
Einarsson 18, Axel Nikulásson 11, Guðni
Guðnason 10, Birgir Mikaelsson 8, Harald-
ur Kristinsson 4, Lárus Ámason 4, Gauti
Gunnarsson 1.
Áhorfendur: 16.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Guðmund-
ur Stefán Maríasson.
ÍBK - Haukar 111:97
íþróttahúsið í Keflavík, úrvalsdeBdin í
körfuknattleik, þriðjudaginn 19. desember
1989.
Gangur leiksins: 0:4, 2:4, 4:15, 8:20,
12:27, 16:32, 23:34, 29:40, 37:44, 43:47,
57:47, 57:49, 66:51, 72:58, 82.-66. 91:72.
99:82,, 101:86, 111:97.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 33, Sandy
Anderson 19, Falur Harðarson 14, Magnús
Guðfinsson 11, Nökkvi Már Jónsson 10,
Albert Óskarsson 8, Einar Eínarsson 7,
Ólafur Gottskálksson 5, lngúlfur Haralds-
son 4.
Stig Hauka: Jonathan Bow 29, Henning
Henningsson 26, Ivar Webster 12, Pálmar
Sigurðsson 10, Ivar Asgrímsson 9, Reymr
Kristjánsson 6, Þorvaldur Henningsson 3.
Sigtryggur Asgrimsson 2.
Áhorfendur: Um 200.
Dómaran Jón Otti Ólafsson og Bergur
Steingrímsson.
Guðjón Skúlason, IBK.
David Grisson, Reyni. Anatolij Kovtúm,
KR. Sandy Anderson og Falur Harðarson.
ÍBK. Henning Henningsson og Jonathan
Bow, Haukum.
Ellert Magnússon, Reyni. Axei Nikuiásson,
Matthias Einarsson og Guðni Guðnason,
KR. Magnús Guðfinnsson, ÍBK. Páimar
Sigurðsson, Haukum.
Bjöm
Blöndal
skrífar
KNATTSPYRNA / BRETLAND
Arsenal meistari meistaranna
Arsenal varð í gærkvöidi
„meistari meistaranna“ í
Bretlandi. Láðið, sem er enskur
meistari, sigraði þá skosku meist-
arana Rangers, 2:1, í árlegum
leik um þennan óopinbera titil.
Leikið var á heimavelli Rangers.
Ibrox, í Glasgow.
Arsenal tók forvstuna er Paul
Davies skoraði á 27. mín. Þannig
var staðan í Ieíkhléi, en á 52.
mín. náði markaskorarinn mikli
„Mo“ Johnston að jafna f\TÍr
skoska liðið - skoraði af stuttu
færi eftir homspymu.
Sigurmarkið gerði svo Niall
Quinn, sem lék í stað Alans Smith
er meiddist á laugardaginn. Paul
Merson sendi fyrir markið og
Quinn kom knettinum yfir línuna.
, Áhorfendur á leiknum voru
31.000. Sigurður Jónsson lék ekki
með Arsenal að þessu sinni.
Forráðamenn Arsenal höfðu
látið koma fyrir breiðljaldi á leik-
vangi sínum, Highbury I London,
þar sem leikurinn var sýndur
beint. Búist var við allt að 8.000
áhorfendum, en adeins 1.200 létu
sjá sig. Veður í London i gær-
kvöldi var enda ákaflega leiðin-
íegl, rigning og kuldi.
KNATTSPYRNA / U-18 LANDSLIÐIÐ
Sólheimamenn sigruðu í boccia
Piltalandslið Islands í knattspymu, undirbýr sig nú fyrir sterkt mót, sem verður í ísrael fyrir og eftir áramót. Auk
hefðbundinna æfinga taka strákamir þátt í ýmsum góðgerðannálum og á mánudag kepptu þeir við heimamenn á Sól-
heimum í Grímsnesi í boccia. Sólheimamenn sigruðu, en á myndinni er hópurinn að lokinni keppni. t ,, .
Mm
FOLK
■ ROY Hodgson, þjálfari
sænsku meistaranna í Malmö FF,
hefiir gert fimm ára samning \dð
Neuchatel Xamax í Sviss. Hann
tekur við liðinu í júli á næsta ári.
Malmö hefur orðið meistari síðustu
fimm ár undir stjóm Bretans.
■ BRASILÍSKI knatisp\-mumað-
urinn Romario á nú að baki 51
leik með hollenska stóriiðinu PSV
Eindhoven, og skorað í þeitn 50
mörk!
■ SVEINBJORN Sigurðsson,
sem leikið hefur með úrvalsdeildar-
liði Grindvíkinga í körfuknattleik,
hefur skipt j’fir í Val.
■ ÞRÍR leikmenn Stjörnunnar í
knattspymu fara til enska liðsins
Aston Villa eftir jól og æfa með
liðinu í eina viku. Leikmennimir eru
V:ilgeir Baldursson, Egill Einars-
son og Eyþór Sigfússon.