Morgunblaðið - 20.12.1989, Qupperneq 60
Hornafjörður:
Sækir um leyfi
'til hrefiiuveiða
AXEL Jónsson, skipstjóri á Haukafellinu frá Hornafirði, hefur sótt til
sjávarútvegsráðuneytisins um leyfi til hrefnuveiða. Hann segist aldrei
hafa séð jafnmikið af hreftiu fyrir austan og um þessar mundir og telji
sjálfsagt að nýta sér þennan möguleika, verði hrefnuveiðar leyfðar á
ný eins og margir vonist til.
hefðu enga fyrir umsóknir af þessu
tagi, enda væru þær sjaldgæfar,"
sagði Axel.
Nú er verið að smíða nýtt Hauka-
fell í Portúgal og segir Axel að skipa-
smíðastöðin stefni að afhendingu
þess þann 21. marz á næsta ári.
Miðað við að það takizt, hafi af-
hendingu seinkað um 5 mánuði og
sé það auðvitað afar slæmt. Nú hef-
ur gamla Haukafellið verið selt
kvótalaust til Stakkholts í Ólafsvík.
Á móti kemur báturinn Halldór Jóns-
son, sem verður úreltur á móti nýja
skipinu og 20 milljónir króna í milli.
„Eg á nú reyndar tæpast von á
jákvæðu svari,“ sagði Axel í samtali
við Morgunblaðið. „Þeim kom þessi
umsókn mín greinilega töluvert á
óvart og sögðust ekki vita í hvaða
skúffu þeir ættu að setja hana. Þeir
Flugvél snú-
ið við vegna
hreyfílbilunar
PIPER Navajo, tveggja hreyfla
flugvél frá Flugskóla Ilelga Jóns-
sonar, lenti í erfiðleikum á leið frá
Reykjavík til Kulusuk á Grænlandi
í gær. Vélin missti út annan hreyf-
ilinn og varð að snúa henni aftur
til Reykjavíkur er hún var komin
hálfa leið.
Olíuþrýstingur á öðrum hreyflin-
um minnkaði og datt síðan út. Farið
var niður í 400 feta hæð til áð fá
mótstöðu þannig að skrúfublöðin
næðu að vinna. Eftir það var flogið
til Reykjavíkur í um þúsund feta
hæð. Tveir flugmenn og fjórir far-
þegar voru í vélinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, Páll Pétursson, formaður þingflokks framsóknarmanna
og Anna Olafsdóttir Björnsson, ritari sameinaðs þings, bera saman bækur sínar á þingi í gærkveldi.
Afsökunarbeiðni krafist vegna ummæla forseta sameinaðs þings í fréttatíma:
Þingflokksformenn telja fúlla
ástæðu til afsökunarbeiðni
- segir Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks sjálfstæðismanna
DAGAR
TIL JÓLA
Á FUNDI sameinaðs þings í gærkvöldi kröfðust þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins þess, að Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings bæðist
afsökunar á ummælum í kvöldfréttatíma ríkisútvarpsins þess efnis að
sjálfstæðismcnn tefðu fyrir þingstörfúm og borgarstjórinn í Reykjavík
stjórnaði þeim aðgerðum. Ólafúr G. Einarsson formaður þingflokks
sjálfstæðismanna, segir að á fundi þingflokksformanna í gærkvöldi
hefðu þeir allir verið sammála um að full ástæða væri til þess að Guð-
rún bæðist afsökunar. Ólafúr lýsti því síðan yfir að sjálfstæðismenn
myndu ekki sitja samráðsfúndi með þingforsetum, fyrr en Guðrún
bæðist afsökunar á ummælum sínum.
Krafan um afsökunarbeiðni kom
fram í umræðum um þingsköp í
gærkvöldi. Guðrún Helgadóttir sagði
þá, að tveir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar hefðu fyrr um daginn hót-
að málþófi um þingsköp, áður en
viðtalið við hana var sent út. Tilefni
þingskapaumræðunnar væri því yf ir-
skyn. Eftir tveggja tíma umræðu var
þingfundi frestað en boðaður fundur
þingforseta og þingflokksformanna.
Forseta sameinaðs þings var þá til-
kynnt að þingflokksformennirnir
hefðu ákveðið að hittast án hennar.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ólafur G. Einarsson formaður þing-
flokxs Sjálfstæðisflokksins að þing-
flokksformenn hefðu farið yfir viðtal
ríkisútvarpsins við Guðrúnu. Hefðu
þeir allir verið sammála um að forset-
inn ætti að biðjast afsökunar. Var
forseta sameinaðs þings greint frá
því, að ekki gæti orðið af fundi með
henni fyrr en afsökunarbeiðni hefði
komið fram.
Undir miðnættið var settur fundur
í sameinuðu þingi á ný, en honum
slitið samstundis. Einnig voru settir
fundir í deild'um og þeim slitið. Að
sögn Ólafs ætluðu þingflokksfor-
menn þá að reyna að ná samkomu-
lagi um þau deilumál sem nú eru
Flugleiðir:
Festa kaup á 2 nýjum
Boeingþotum til viðbótar
Flugflotinn verður þá 7 þotur og heiídarQárfesting- nærri 17 milljarðar
FLUGLEIÐIR hafa gengið frá samningum við Boeing-verksmiðjurn-
ar í Bandaríkjunum um kaup á tveimur þotum til viðbótar þeim fimni
flugvélum sem félagið hefúr þegar fest kaup á. Tvær þeirra, Aldís
w^og Eydís, af gerðinni Boeing 737-400 eru þegar komnar í notkun
en þijár eru væntanlegar næsta vor — ein 737-400 vél og tvær Bo-
eing 757-200 sem einkum verða notaðar í N-Atlantshafsflugi félagsins.
Þoturnar tvær sem nú hefur ver-
ið samið um, eru væntanlegar vorið
1991 og er önnur þeirra af gerðinni
737-400 en hin af gerðinni
757-200. Heildaríjárfesting Flug-
■^leiða í þotunum sjö og varahlutum
með þeim er um 269 milljónir doll-
ara eða 16,7 mílljárðar króná,' sérri
er mesta fjárfesting sem íslenskt
einkafyrirtæki hefur ráðist í.
Að sögn Sigurðar Helgasonar
forstjóra Flugleiða er Ijóst að ijórða
737-400 þotan sem nú hefur verið
samið um kaup á, mun fara strax
vorið 1991 í áætlunarflug á vegum
féiagsins en ekki hefur endanlega
verið afráðið með notkun á 757-200
vélinni. Sigurður segir að hún kunni
fyrst í stað að verða leigð, en það
ráðist þó nokkuð af því hvernig
þróunin verður í N-Atlantshafsflugi
Flugleiða á næstu misserum. Einnig
sé með kaupunum á þessari vél
verið að horfa til lengri tíma, m.a.
til hugsanlegs Asíuflugs á vegum
Flugleiða og hugsanlegs áætlunar-
flugs milli Moskvu og Banda-
ríkjanna, þar sem félagið hefur
nýverið endurnýjað lendingaleyfi
sín til 5 borga.
Sjá frásögn á bls. 33.
uppi á Alþingi.
Samkomulag um þingstörfin, sem
talið var að náðst hefði á mánudags-
kvöld, reyndist ekki vera fyrir hendi
þegar til kom. Eftir ríkisstjórnarfund
í gær sendi forsætisráðherra Davíð
Oddssyni borgarstjóra bréf, þar sem
óskað er svara hans fyrir fimmtu-
dag, hvort hann vilji frekar að borg-
in taki þátt í rekstrarkostnaði spítal-
ans eða samþykki þær breytingar á
stjóm hans sem lagafrumvarp um
heilbrigðisþjónustu gerir ráð fyrir.
Davíð Öddsson vildi ekki í gær-
kvöldi tjá sig um bréf forsætisráð-
herra og sagðist telja eðlilegt að
hann ræddi málið við við forsætisráð-
herra áður.
Sjá viðtal við Guðrúnu Helgadótt-
ur á bls. 35 og frásögn á miðopnu.
Húsbréfakerfið:
Fyrsti kaupsamn-
ingurinn undirritaður
Selfossi.
FYRSTI endanlegi kaupsamningurinn samkvæmt húsbréfakerfinu
var undirritaður hjá Fasteignasölunni Bakka á Selfossi í gær,
rúmum mánuði eftir að nýja húsbréfakerfið tók gildi.
Samkvæmt húsbréfakerfinu tek- mánuði síðar, samkvæmt húsbréfa-
ur nokkurn tíma að ganga frá kerf- kerfinu. Að sögn Hlöðvers Arnars
inu endanlega. Við þennan fyrsta Rafnssonar, fasteignasala hjá
kaupleigusamning var kauptilboð Bakka, hafa fyrirspurnir um hús-
samþykkt 5. desember. Síðan var bréfakerfið ekki verið miklar hing-
gengið frá kaupsamningnum og að til.
fasteignaveðtryggðu bréfi hálfum Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
Frá undirritun fyrsta kaupsamningsins samkvæmt húsbréfakerf-
inu. Frá vinstri eru kaupendurnir Kjartan Jónsson, með Garðar
Kjartansson tveggja ára og Rúna Garðarsdóttir, seljendurnir
Bryndís Sigurðardóttir og Jón Ingi Árnason. Fyrir aftan stend-
ur Hlöðver Orn Raínsson, fasteignasali.