Morgunblaðið - 25.01.1990, Blaðsíða 22
ei
flUÍ
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANUAR 1990
Bretland:
Auka nútíma aðferðir við lestr-
arkennslu vanda lesblindra?
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari FVímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjóri Sambands lesblindra í Bretlandi hélt því fram
í síðustu viku að nútímaaðferðir við lestrarkennslu ykju vanda les-
blindra.
Michael Stern, framkvæmda-
stjóri Sambands lesblindra, lét þessi
orð falla við upphaf herferðar til
að auka skilning á vanda les-
blindra. Sú aðferð, sem beitt er í
langflestum brezkum ríkisskólum,
er þannig, að börnum er kennt að
bera kennsl á heil orð en ekki að
stafa og mynda síðan eina heild úr
stöfunum.
Stern sagði, að rök úr rannsókn-
um í Bretlandi, Bandaríkjunum og
Frakklandi bentu eindregið til þess
að lesblindir ættu í erfiðleikum
með að tengja hljóðið við táknið,
sem skrifað væri á blað. Með því
Geta farsímar skað-
að heilsu manna?
DANSKA símaeftirlitið telur að svo mikil óvissa ríki um áhrif
bílasíma á notendurna að stofnunin hefur lagt til að aðvörunar-
texti verði látinn fylgja hverju símtæki, að því er fram kemur í
danska blaðinu Ingcniercn.
Eftirlitið óttast að farsímarnir,
sem senda út á hátíðniörbylgjum,
kunni að hita upp hluta af heilan-
um. „Við vitum ekki hvort það
virkar svipað því að maður stingi
höfðinu inn í örbylgjuofn," segir
Tage Iversen, forstöðumaður stofn-
unarinnar.
Símaeftirlitið hefur skrifað heil-
brigðiseftirlitinu og varað við geisl-
unarhættu af farsímunum. Heil-
brigðiseftirlitið hefur þó hafnað
þeirri leið að vara notendurna við
þar sem ekki sé unnt að fylgja
slíku eftir með rökum enn sem
komið er. Það viil ekki taka afstöðu
í málinu fyrr en fleiri gögn liggja
fyrir í málinu.
Víða er verið að rannsaka áhrif
útvarpsbylgna á fólk og er lítið
vitað hverjar niðurstöðurnar verða.
Rafeindafyrirtækið Philips hefur
brugðið á það ráð að láta varnaðar-
orð fylgja í leiðbeiningarbækling-
um með farsímum. Þar er athygli
notenda vakin á því að „síminn
sendir frá sér útvarpsbylgjur sem
geta haft áhrif á önnur rafeinda-
tæki og enn fremur valdið heilsu-
tjóni“.
„Þetta er ef til vill of sterkt til
orða tekið, en við höfum þennan
fyrirvara á af lögfræðilegum
ástæðum, þar sem ekki hefur tek-
ist að sýna fram á skaðsemi tækj-
anna eða skaðleysi," segir Henning
Bjemo, upplýsingafulltrúi Philips.
að kenna að stafa væri hægt að
kenna 9 af hverjum 10 lesblindum
börnum að lesa og skrifa eðlilega.
Hann sagði sjálfsagt, að í lestrar-
kennslu væri áherzlan á að tengja
hljóð og staf. Hann sagðist ekki
vita um neinar rannsóknir, sem
bentu til þess, að ekki ætti að
kenna að stafa. Þvert á móti væru
yfirgnæfandi líkur á, að það ætti
að gera það. Flest börn, sem ættu
í erfiðleikum með lestur, væru í
vandræðum með að tengja saman
hljóð og orð.
Sambandið telur, að um 32 þús-
und börn hefji skólanám í Bretlandi
öllu á hverju ári, sem eru lesblind,
og að um 350 þúsund lesblindir séu
í brezka skólakerfinu.
Ýmsir þekktir menn úr brezku
þjóðlífi og eru lesblindir styðja
þessa herferð. Þeirra á meðal eru
Jackie Stewart, fyrrum ökuþór, og
Michael Heseltine, þingmaður
íhaldsflokksins og fyrrverandi ráð-
herra.
Reuter
Girðingar í stað múrsins
Austur-þýskir verkamenn hafa nú lokið við að rífa niður stóra hluta
Berlínarmúrsins. Samningar hafa verið gerðir um sölu á steypunni
og mun a.m.k. einn bandarískur kaupsýslumaður hafa í hyggju að
framleiða minjagripi sem tengdir verða falli múrsins. Líkt og sjá má
á myndinni hafa girðingar verið reistar þar sem skörð hafa verið rofin
{ Berlínarmúrinn.
Boðað til kosninga í Japan:
Ottast banatilræði
við George Bush
New York. Reuter.
Bandarískir leyniþjónustumenn hafa áhyggjur af, að eiturlyfjasalar
reyni að drepa George Bush Bandaríkjaforseta þegar hann fer í næsta
mánuði til Kólombíu á fund um eiturlyfjavandann. Kom það fram i
bandarískri sjónvarpsstöð á mánudagskvöld.
Flokki Toshiki Kaifus
spáð naimrnm meirihluta
Tókíó. Reuter.
TOSHIKI Kaifu, forsætisráðherra Japans, leysti I gær upp neðri deild
japanska þingsins og boðaði til kosninga þann 18. febrúar nk. Stjórn-
málaskýrendur kváðust í gær telja að flokkur forsætisráðherrans,
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, myndi ná naumum meirihluta á þingi
en flokkurinn hefur haldið um stjórnartaumana í Japan undanfarin 34
ár.
„Leyniþjónustan hefur fengið
ýmsar vísbendingar um, að eiturlyfj-
asalamir eða útsendarar þeirra muni
reyna að ráða Bush forseta af dög-
um,“ sagði í fréttum CBS-stöðv-
arinnar og þar kom fram, að eitursal-
amir hefðu hugsanlega undir hönd-
um flugskeyti ti! að granda flugvél-
um. Bush fer með forsetavélinni til
borgarinnar Cartagena í Kólombíu
til fundar við leiðtoga Kólombíu,
Perú og Bólivíu en þótt flugvélin sé
búin ýmsum tækjum til að veijast
flugskeytaárásum er ekkert öruggt
í þeim efnum.
Vegna þessa er leyniþjónustan að
velta fyrir sér öðrum ferðamáta en
Bush er staðráðinn í að koma til
fundarins í Kólombíu þótt margir
hafi latt hann fararinnar.
í neðri deild þingsins sitja 512
fulltrúar. í síðustu kosningum fékk
flokkur forsætisráðherrans 294
menn kjörna. Stjómmálaskýrendur
sögðu erfitt að segja til um úrslitin
en kváðust þó heldur hallast að því
að Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
héldi meirihluta sínum. I júlí í fyrra
gerðist það í fyrsta skipti að f lokkur-
inn lenti í minnihluta er kosið Var
til efri deildar þingsins, sem hefur
mun minni völd en hin þingdeildin.
Var helsta ástæða ósigursins talin
vera sú ákvörðun ríkisstjómarinnar
að innleiða söluskatt auk þess sem
margir helstu leiðtogar flokksins
voru bendlaðir við spillingarmál og
staðnir að siðleysi í einkalífinu.
Takao Doi, formaður Sósíalista-
flokksins, lýsti yfir því í gær að nú
væri lag til að binda enda á valda-
skeið hinna fijálslyndu og koma á
raunverulegum breytingum í jap-
önskum stjómmálum. Leiðtogi
kommúnista tók í sama streng en
almennt er búist við því að kommún-
istar tapi fylgi ekki síst í ljósi þeirra
breytinga sem orðið hafa í ríkjum
Austur-Evrópu. Kommúnistar hafa
nú 28 menn í neðri deild en flokkur
þeirra er ekki sagður hollur komm-
únistum í Sovétríkjunum eða Kína.
Leiðtogar Frjálslynda lýðræðis-
f lokksins hyggjast sýnilega færa sér
hrun kommúnismans í nyt og sögðu
talsmenn flokksins í gær að valið
stæði á milli fijálslyndis eða sósíal-
isma.
Kosningabaráttan hefst 3. febrú-
ar og búist við því stjórnarandstaðan
leggi einkum áherslu á söluskattinn
umdeilda, landbúnaðarmái og sið-
Toshiki Kaifu
ferði í japönskum stjómmálum líkt
og í kosningunum til efri deildarinn-
ar í fyrra. Frjálslyndi lýðræðisflokk-
urinn mun á hinn bóginn einkum
beina kröftum sínum að því að sann-
færa alþýðu manna í Japan um gildi
þess að hvergi verði hvikað frá
gmndvallarreglum hins fijálsa hag-
kerfis.
Flugslys í Venezúela
Reuter
Flugvél frá hernum í Venezúela fórst á þriðjudag og með henni 24 manns. Lenti vélin utan í skógivaxinni
fjallshlíð í mikilli þoku en talið er, að tækjabilun hafi einnig komið til. í gær var unnið að því að flytja lík
hinna látnu til byggða.
ísrael:
Ráðherra greinir á
um friðarumleitanir
Kaíró. Reuter.
ÁGREININGUR hefúr komið upp á milli stjórnarflokkanna, Verka-
mannaflokksins og Líkud-flokksins, í Israel um samningaumleitanir
fyrir botni Miðjarðarhafs. Shimon Peres, varaforsætisráðherra og leið-
togi Verkamannaflokksins, sem nú er í heimsókn í Egyptalandi, lét
svo ummælt við komuna til Kaíró í fyrrakvöld að friðarviðræður Pa-
lestínumanna og Israela gætu hafist innan skamms. Þvi vísaði talsmað-
ur Yitzhaks Shamirs forsætisráðhcrra algjörlega á bug.
Shimon Peres hitti Hosni Mubar-
ak, forseta Egyptalands, að máli í
Kaíró í gær. Hann sagði við blaða-
menn að innan ísraelsstjórnar væri
mikill stuðningur við þá hugmynd
að Palestínumenn, sem vísað hefur
verið af hernumdu svæðunum, tækju
þátt í viðræðum um frið fyrir botni
Miðjarðarhafs. Yossi Ahimeir, tals-
maður Shamirs, vísaði því á bug að
samkomulag væri í nánd um þetta
má! og slíkar hugmyndir samræmd-
ust ekki tillögum stjórnarinnar um
kosningar á Vesturbakka Jórdanár
og Gaza-svæðinu. „Fólk, sem vísað
hefur verið af hernumdu svæðunum,
var gert brottrækt vegna þess að
það hafði tekið þátt í and-
gyðinglegri starfsemi og hryðjuverk-
um,“ sagði talsmaðurinn. Shimon
Peres sagði að hægt væri að leysa
þennan ágreining á mjög skömmum
tíma.
Forsætisráðherrann er einnig
undir þiýstingi frá herskáum
hægrimönnum innan Líkud-flokks-
ins. Einn þeirra, Ariel Sharon atvinn-
umálaráðherra, sagði að ef efnt yrði
til kosninga á hernumdu svæðunum
brytist að nýju út stríð á milli araba
og ísraela.