Morgunblaðið - 25.01.1990, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.01.1990, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1990 Mótmælendum dreift með hörku 1 Kosovo Belgrað. Reuter. LÖGREGLA í sjálfstjórnarhéraðinu Kosovo í Albaníu beitti táragasi og öflugum vatnsdælum til að dreifa tugþúsundum manna sem söfhuð- ust saman fyrir framan höfuðstöðvar kommúnistaflokksins í borg- inni Pristina í gær. Fólkið krafðist lýðræðis, fjölflokkakerFis og að neyðarlögum í héraðinu yrði aflétt. Einnig var lýst yfír stuðningi við þá ákvörðun kommúnista í Slóveníu að slíta tengsl við flokks- deildir í öðrum lýðveldum Júgóslavíu. Sjónarvottar sögðu að aðgerðir lögreglu í gær hefðu verið mjög harkalegar. Júgóslavneska sjón- varpið sagði að flokksforingjar í Kosovo hefðu haldið neyðarfund í gærkvöldi til að ræða hvernig ætti að bregðast við mótmælunum. Kommúnistar í Slóveníu hafa ákveðið að hætta formlegum tengslum við skoðanabræður í öðr- um lýðveldum Júgóslavíu. Var þessi ákvörðun tekin eftir að fulltrúar Slóveníu gengu af flokksþingi júgó- slavneskra kommúnista á þriðju- dagskvöld. Slóvenskir kommúnistar ætla að hittast í upphafi næsta mánaðar til að ákveða framhald málsins og er rætt um að breyta nafni flokks- deildarinnar í lýðveldinu. Tillaga Slóvena um að kommúnistaflokkur Júgóslavíu yrði lagður niður í nú- verandi mynd var felld á flokks- þinginu en þess í stað ákveðið að fella niður ákvæði í lögum um valdaeinokun kommúnista. Var flokksþinginu frestað um óákveð- inn tíma þegar Slóvenamir gengu af fundi. Verðfall á verð- bréfamörkuðum New York, Tókýó, London. Reuter. MIKIÐ verðfall varð á flestum verðbréfamörkuðum í gær og ástæðan sögð vera Htil viðbrögð við nýjasta ríkisskuldabréfaút- boði Bandaríkjastjórnar og hærri vextir víða um lönd. anfömu eigi kannski mestan þátt í verðfallinu og með þeim hafi gengi verðbréfanna verið leiðrétt og óeðli- legur hagnaður upp á síðkastið aft- ur tekinn. Ekki er allt sem sýnist Þessar ógnvænlegu beinagrindur sem komið hefur Þeim er ætlað að auglýsa sýningu á útdauðum verið fyrir á svölum safns í Frankfurt í Vestur- menningarsamfélögum. Þýskalandi era í raun uppblásnar plastbrúður. Bandarísku ríkisskuldabréfin, sem nú er verið að bjóða út, eru upp á fimm milljarða dollara og í fyrsta sinn frá því um miðjan sjötta áratuginn era þau til 40 ára. And- virðið ætla stjómvöld að nota til að tryggja hag sparifjáreigenda í gjaldþrota lánastofnunum. Eftir- spurnin eftir bréfunum hefur verið lítil og vegna óttans við áhrif þess á markaðinn lækkuðu verðbréf í Tókýó í gærmorgnn. Ahyggjur manna af lág^u gengi jensins og hærri vöxtum höfðu einnig sitt að segja. I kjölfar verðfallsins í Tókýó lækkaði hlutabréfaverð á evrópsk- um fjármálamörkuðum og það sama varð uppi á teningnum þegar dagsbrúnin var komin tii New York. Féll Dow Jones-vísitalan um 61,04 stig fyrsta hálftímann. Margir segja raunar, að vaxtahækkanir að und- Doina Cornea segir sig úr Þjóðarráðinu í Rúmeníu: „Leiðtog'arnir eru enn komm- únistar - ég treysti þeim ekki“ Búkarest. Reuter. DOINA Cornea, er var einn af fáum andófsmönnum Rúmeníu á 24 ára valdatíma Nicolae Ceausescus, fyrrum einræðisherra, sagði í gær að sú ákvörðun Þjóðarráðsins að breyta ráðinu í flokk væri mikið áfall fyrir lýðræðissinna. Leiðtogar ráðsins væru enn kommúnistar og þeim væri ekki treystandi. Þjóðarráðið hefúr farið með völdin í landinu frá því Ceausescu var steypt af stóli skömmu fyrir jól og leiðtogar ráðsins höfðu lofað því að leysa það upp eftir fyrstu fijálsu kosningarnar í landinu í rúma fjóra áratugi. Framkvæmdanefnd Þjóðarráðs- ins samþykkti með miklum meiri- hluta atkvæða á þriðjudag að bjóða fram sem flokkur í kosningunum 20. maí. Doina Cornea átti sæti í framkvæmdanefndinni ásamt tíu öðrum og sagði sig úr Þjóðarráðinu til að mótmæla framboðsáformun- um. __ _ „Ég tel óréttlátt að breyta Þjóð- arráðinu í flokk, því það ræður yfir öllum valdastofnunum landsins og getur einn hafið öfluga kosninga- baráttu. Þessi ákvörðun verður til þess að hinir flokkarnir eiga mjög óhægt um vik,“ sagði Cornea í við- tali í franskri útVarpsstöð. Hún kvaðst ekki ætla að ganga í annan flokk heldur styðja Fijálslynda flokkinn og Bændaflokkinn, sem voru stofnaðir á nítjándu öld. „Leið- togar Þjóðarráðsins eru fyrram kommúnistar. Þeir era það reyndar ennþá þótt þeir viðurkenni það ekki lengur. Ég treysti þeim ekki,“ bætti hún við. Talsmaður Þjóðarráðsins sagði í gær að ráðið yrði ekki flokkur held- ur „óháð stjómmálahreyfing“. í augum margra Rúmena er enginn munur á þessu tvennu og einn þeirra, Anton Stefanescu, sagði að Þjóðarráðið beitti sömu brögðum til að hrifsa völdin í eigin hendur og kommúnistar í kosningunum árið 1947, er þeir bratust til valda. „Andrúmsloftið nú er alveg eins og þegar kommúnistar svindluðu í kosningunum 1947 - þeir mötuðu okkur á lygum og núna ætlar ráðið að gera það sama,“ sagði hann. Margir af nýju flokkunum fimm- tán, sem komið hafa fram frá bylt- ingunni í desember, vilja að allir þeir félagar í Þjóðarráðinu, sem bjóða sig fram, segi sig fýrst úr því. Talið er að um 200 manns séu í ráðinu. Bardagar brjótast út daglega í Kasmír Noregur: Deila við Sovétmenn um skammdrægar eldflaugar Norskir herforingjar segja sovésk lgamorkuvopn við norsku landamærin Ósló. Reuter. BJÖRN Nygaard, yfírmaður landhersveita Norðmanna í norðurhluta landsins ítrekaði í gær fyrri yfirlýsingar norskra hernaðaryfírvalda þess efiiis að Sovétmenn hefðu ekki fjarlægt skammdrægar kjarnorku- eldflaugar sínar á Kóla-skaga. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi lýsti yfír því i Helsinki í október að meðal- og skammdrægar eldflaugar væri ekki lengur að fínna á skaganum og hefúr talsmaður sovéska utanríkisráðuneystisins staðfest þessa yfírlýsingu. Nygaard sagði í viðtali við frétta- mann Reuters í Ósló í gær að norsk- ir hermenn hefðu séð eldflaugamar frá landamærastöðvum sínum í Norður-Noregi. Kvað hann eldflaug- ar þessar skammdrægar af gerðinni SS-21 en þær eru hreyfanlegar og draga um 100 kílómetra. Á mánudag sagði Dagfinn Danielsen, yfirmaður heraflans í Norður-Noregi, hið sama í viðtali við Reuíers-fréttastofuna. Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéska ■ utanríkisráðuneytisins, sagði í Moskvu á þriðjudag að full- yrðingar Dagfinns Danielsen ættu við engin rök að styðjast. Sagði hann að Sovétmenn réðu ekki lengur yfir skammdrægum eldflaugum sem unnt væri að skjóta á skotmörk í Norður-Evrópu. Björn Nyygard sagði hugsanlegt að kjamaoddamir hefðu verið teknir úr eldflaugunum en kvað það lítið verk að koma þeim fyrir að nýju. Hans sagði, líkt og starfsbróðir hans Danielsen, að hæpið væri að flaug- amar væru búnar hefðbundnum sprengjuhleðslum því miðunarbúnað- ur þeirra væri frumstæður og ná- kvæmnin því lítil. Myndu slíkar hleðslur því koma að takmörkuðum notum brytust út átök nærri norsku landamærunum. Nýju Delhí. Reuter. ÞÓTT svo eigi að heita að friður hafi ríkt á milli Indveija og Pak- istana í tæp átján ár eiga hermenn þessara þjóða nú í átökum nánast daglega í Kasmír-ríki. Indverjar og Pakistanar hafa háð tvær styrj- aldir um yfírráðin í ríkinu en þeir fyrrnefndu ráða tveimur þriðjung- um en hinir einum. Bardagar bijótast út á allt að sex stöðum á degi hveijum við 1.400 metra langa vopnahléslínu, sem eftir- litssveitir Sameinuðu þjóðanna fylgj- ast með. Aðeins tvö hundruð metrar skilja þar hermenn Indverja og Pak- istana. Eftirlitssveitir Sameinuðu þjóðanna telja að í fyrra hafi indver- skir hermenn 600 sinnum gerst brot- legir við vopnahléssamning, sem þeir gerðu við Pakistana árið 1972. Ekki hefur fengist leyfi til að kanna brot Pakistana en talið er að þau hafi verið litlu færri. Meira en 40 manns hafa beðið bana á undanfömum dögum í átök- um indverskra hermanna og mús- lima, sem mótmælt hafa yfirráðum Indveija í Kasmír. Krefjast þeir þess að ríkið verði sjálfstætt eða í nánum KRTN tengslum við Pakistan. Fjórir menn féllu í fyrradag þegar indverskir her- menn réðust gegn íslömskum upp- reisnarmönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.