Morgunblaðið - 25.01.1990, Blaðsíða 44
44
:u;uatrrt/.un aiaAjiawjDíKfo
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1990
fclk í
fréttum
FRAMI
Nýjasta kynbomban
af ólíklegnm toga
POPPTONLIST
Reuter
Zappa ræðir við Vaclav Havel
Þekktir vestrænir tónlistarmenn flykkjast nú til
ríkja Austur-Evrópu eftir að slakað var á alræð
isvaldi kommúnista í löndum þessum. Vitað er að
alþýða manna í Austur-Evrópu hefur löngum verið
áhugasöm um vestræna popptónlist en hljómplötur
hafa yfirleitt ekki verið fáanlegar nema á svarta
markaðnum. Er almennt búist við því að breyting
verði þar á til batnaðar og víst er að vestrænir hljóm-
plötuframleiðendur gera sér vonir um að ná umtals-
verðum markaði í ríkjum þessum. Nýverið var banda-
ríski tónlistarmaðurinn og furðufuglinn Frank Zappa
(t.v) á ferð í Tékkóslóvakíu og var myndin tekin er
hann ræddi við leikskáldið þekkta Vaclav Havel,
forseta landsins, en líkt og fram hefur komið í frétt-
um er líklegt talið að Havel komi hingað til lands
síðar á þessu ári.
JA, FORSÆTISRAÐHERRA
Komíð fram við
Eddington sem
forsætisráðherra!
Góðkunningi sjónvarpsglápara
víða um lönd, Paul Eddington,
sem hefur leikið hinn óviðjafnan-
lega forstæisráðherra Breta Jim
Hakker í þáttunum „Já, forsætis-
ráðherra“, hefur nú horfið frá því
hlutverki, í bili að minnsta kosti.
Hann leikur nú stórt hlutverk í
leikritinn „London Assurance".
Hann segir að gaman sé að líta
yfir farinn veg og sérstaklega hafi
oft verið skemmtilegt í hversu
miklum vafa gestgjafar hans í ýms-
um löndum hafi verið um hvernig
ætti að koma fram við hann. „Eg
var iðulega borinn á höndum eins
og ég væri í raun forsætisráð-
herra,“ segir Eddington.
Eddington segist ýta undir óvissu
gestgjafa sinna sem leiði oft til
þess að þeir fari hjá sér og verði
vandræðalegir. Svo langt hefur
þetta glens hans gengið að eitt sinn
ræddi hann við Turgut Ozal forseta
Tyrkja í beinni sjónvarpsútsendingu
og spurði forsetinn Eddington í
þaula um skoðanir hans á mannrétt-
indum í Tyrklandi og tillögur um
úrbætur. Yitzhak Shamir hefur
einnig spurt hann álits á vandanum
fyrir botni Miðjarðarhafs í sjón-
varpsviðtali og segir Eddington að
þegar gamanið sé gengið svo langt
taki hann sig á og reyni að koma
fram sem ábyrgur fulltrúi þjóðar
sinnar. En þrátt fyrir þetta er
Eddington eftirsóttur gestur og oft
á ári berast honum farmiðar hingað
Eddington í sjónvarpsþáttunum
„Já, forsætisráðherra" með
meðleikurum sínum þar, Nigel
Hawthorne og Derek Fowlds.
Fyrir skömmu var greint frá
upprennandi leikkonu sem sló
ný verið í gegn í hátt skrifaðri
mynd; Meg Ryan í „When Harry
met Sally“. En
ungfrú Ryan er
ekki eina unga
leikkonan sem
hefur komið
séð og sigrað
að undanförnu.
Það hefur Ell-
en Barkin gert
með glæsibrag
ef marka má
gagnrýnendur
sem lýsa leik
hennar og
kvikmyndinni
„Sea of love“
þar sem hún
leikur á móti
A1 Pacino í
miklum tauga-
trylli.
Barkin þykir
frekar ólíkleg í
kynbombuhlut-
verkið sem hún
þarf að sam-
ræma við áta-
kamikinn leik í
umræddri
kvikmynd, því
álitamál er
hversu falleg
hún raunveru-
lega er og sjálf
segir hún að
hún hafi oft
fengið að heyra það i æsku er hún
viðraði drauma sína um leiklistar-
frama, að hún gæti gleymt því, hún
væri svo ófríð að engu tali tæki!
Hún er því e.t.v. gott dæmi um
konu sem ber kynþokka sinn hið
Ellen Barkin.
innra, því ummæli um hana eru á
þá leið að Barkin sé þokkafyllri en
þær flestar kynbombur aðrar. „Sea
of love“ er nú sýnd í einu kvik-
myndahúsanna í Reykjavík og geta
lesendur því einnig dæmt um það
sjálfir.
Barkin þykir endurspegla erfiða
æsku í hörkulegu fátækrahverfi í
New York. Það veður enginn ofan
í hana og mestu hörkutól kikna
undan fúkyrðaflaumnum er henni
er misboðið. Og henni er oft mis-
boðið meðan á kvikmyndatökum
stendur. Þó segja megi að hún hafi
ekki slegið í gegn fyrr en í mynd-
inni „The Big Easy“ árið 1987, er
hún svo eftirsótt að framleiðendur
og tæknimenn sitja á sér að svara
henni fullum hálsi og mótleikurum
er fyrirskipað að hafa sig hæga og
draga sig fremur í hlé en að standa
uppi í hárinu á Barkin.
Hún segir afurðir handritahöf-
unda í Hollywood „ýmist meiri hátt-
ar sorp eða bara sorp“ og hún
neitar að leika á móti leikurum sem
hún „ber ekki virðingu fyrir“.
Hjónin Patricia og Paul Edding-
ton.
og þangað með loforðum um himin-
háar greiðslur fyrir það eitt að koma^
í heimsókn og segja nokkur orð.
Eiginkonan, Patricia segir þetta
mikinn bónus við það að eiga þenn-
an annars ágæta karl, því hennar
helsta áhugamál hefur ævinlega
verið ferðalög og hafi sá áhugi
jaðrað við ástríðu.
COSPER
'V.
lU'bb
COSPER
- Eigum við að taka eina skák?