Morgunblaðið - 25.01.1990, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1990
30
Dr. Páll Skúlason
heldur fyrirlestur
DR. PÁLL Skúlason prófessor í heimspeki við Háskóla íslands flytur
fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri við Þórunnarstræti laugardag-
inn, 27. janúar. Hefst fyrirlesturinn kl. 14.
Fyrirlesturinn nefnist „Verkefni
siðfræðinnar — réttlætið, ástin og
frelsið". í fyrirlestrinum verður
fjallað um siðferðið í ljósi þriggja
spurninga: Hvað er okkur skylt að
gera? hverskonar líf er þess virði
að því sé lifað? og hvernig eigum
við að standa á eigin fótum og tak-
Flosi setti
Islandsmet
FLOSI Jónsson setti nýtt íslands-
met í flokki öldunga 35-40 ára á
móti í langstökki án atrennu sem
haldið var í íþróttahöllinni á
Akureyri um helgina, en Flosi
stökk 3,21 metra og bætti þar
með íslandsmet Aðalsteins Bern-
harðssonar sem var 3,18 metrar.
ast á við spillingu mannanna?
Páll Skúlason fæddist á Akureyri
árið 1945. Að loknu stúdentsprófi
frá MA vorið 1965 stundaði hann
heimspekinám í Louvain í Belgíu
og tók þar doktorspróf. Páll hefur
haldið fjölmarga fyrirlestra, flutt
erindi í útvarp og ritað greinar í
bækur og tímarit bæði hér á landi
og erlendis. Nýlega kom út bókin
Pælingar 11, en í henni birtist safn
fyrirlestra og greina.
Fyrirlesturinn á laugardaginn er
skipulagður í samvinnu Félags
áhugafólks um heimspeki á Akur-
eyri og Háskólans á Akureyri, en
í framhaldi af fyrirlestrinum verður
fundur haldinn í félaginu þar sem
fjallað verður um næstu verkefni
þess. Fyrirlesturinn og þátttaka í
félaginu stendur öllum til boða.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sóknarprestar Akureyrarkirkju hafa tekið í notkun skrifstofur í nýja safnaðarheimilinu við kirkjuna,
en stefiit er að því að taka safhaðarheimilið fullbúið í notkun á 50 ára afmæli kirkjunnar í nóvember á
þessu ári. Á myndinni eru firá vinstri séra Birgir Snæbjörnsson, Ragnheiður Árnadóttir formaður sóknar-
nefhdar og séra Þórhallur Höskuldsson.
Mótið bar yfirskriftina Krafthopp
1990 og var Kristinn Kristinsson'
úr UMSE verndari mótsins og aðal-
skipuleggjandi. Keppendur voru
átta talsins, kraftlyftinga- og júdó-
menn. Að Flosa undanskildum voru
allir keppendur að keppa á slíku
móti í fyrsta sinn. Kári Elísson kom
á óvart og vakti mikla athygli fyrir
sérstæðan stökkstíl. Þeir Tryggvi
Heimisson, Snorri Óttarsson og
Helgi Jónsson komu einnig vel út
úr mótinu.
Flosi mun keppa á íslandsmóti
sem haldið verður í atrennulausum
stökkum í beinni útsendingu úr
sjónvarpssal Ríkissjónvarpsins á
laugardag og hefur hann þar titil
að veija fyrir hönd Akureyringa.
Úrslit á mótinu urðu þau að Flosi
Jónsson stökk 3,21 metra, Kári
Elísson stökk 2,80 metra og
Tryggvi Heimisson stökk 2,69
metra.
Akureyrarkirkja 50 ára á þessu ári:
Páll Þór ráð-
inn vöruhús-
stjóri KEA
PÁLL Þór Ármann hefiir verið
ráðinn vöruhússtjóri KEA og
hefúr hann störf næstkomandi
mánudag.
Páll Þór fæddist árið 1962. Hann
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Kópavogi og varð viðskipta-
fræðingur frá Háskóla íslands árið
1986. Páll Þór lauk fyrir skömmu
prófi í rekstrarhagfræði frá Versl-
unarháskólanum í Kaupmannahöfn.
steinsteypu.
Oóð v«f»hKiUÞ)óou»U.
I ». ÞORGRlMSSON & CO 2».
FTiaiKdiK Wfatmíui - irm wsrra - um
iinmiai nuiríiu uumH - ium irMutu.
Stefint að vígslu safiiaðar-
heimilis á afinælisdaginn
SÓKNARPRESTAR Akureyrarprestakalls tóku nýlega í notkun
skrifstofur í hinu nýja safhaðarheimili sem verið hefur í byggingu
síðustu ár. Með tilkomu safhaðarheimilisins bætist mjög aðstaða
prestanna og annars starfsfólks kirkjunnar. Akureyrarkirkja á 50
ára afinæli á þessu ári og af því tilefhi hefiir kirkjan og umhverfi
hennar verið fegrað. Stefht er að því að vígja safhaðarheimilið á
aftnælisdegi kirkjunnar, sem er 17. nóvember.
í þeim hluta safnaðarheimilisins
sem nú hefur verið tekin í notkun
eru auk skrifstofa prestanna að-
staða fyrir organista og umsjónar-
mann kirkjunnar, tveir fundarsalir,
eldhús og geymslur. Fundarsalina
hafa ýmis félög kirkjunnar til af-
nota fyrir sína starfsemi og félag
um sorg og sorgarviðbrögð hefur
þar einnig aðstöðu og þar fara
einnig fram biblíulestrar vikulega.
Þá eru fundarsalirnir einnig opnir
félagasamtökum og líknarfélög-
um.
„Það hafa orðið miklar breyting-
ar á þeirri aðstöðu sem okkur er
búin, það má ségja að áður höfum
við haft skrifstofuaðstöðu í
gluggakistu skrúðhússins, en þetta
húsnæði hér gjörbreytir okkar
starfsaðstöðu," sagði séra Birgir
Snæbjömsson.
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju
hefur markað þá stefnu að vinnu
við safnaðarheimilið verði lokið að
fullu 17. nóvember næstkomandi,
á 50 ára afmælisdegi kirkjunnar.
Um 20 milljónir króna vantar upp
á svo Ijúka megi verkinu, en mikl-
ar og kostnaðarsamar endurbætur
hafa verið gerðar á kirkjunni allt
frá árinu 1986 og ytra umhverfi
Aðalfundur
Akureyrardeildar Norræna félagsins
verður haldinn mánudaginn 29. janúar
20.30 í Dynheimum, Hafnarstræti 73.
Allir velkomnir.
kl.
Stjórnin.
hennar hefur verið fegrað mjög.
Að sögn Ragnheiðar Árnadóttur
formanns sóknarnefndar verður
leitað til einstaklinga, félaga og
stofnana með stuðning og einnig
verða ýmiskonar munir er tengjast
afmæli Akureyrarkirkju seldir til
fjáröflunar.
Séra Þórhallur Höskuldsson
sagði að fyrirhugað væri að minn-
ast afmælisins með ýmsum hætti
á árinu, kirkjuvika verður haldin í
marsmánuði og í upphafi hennar
verður safnaðarheimilið til sýnis.
Þá er Sverrir Pálsson, fyrrverandi
skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Akureyri, að rita sögu kirkna í
bænum og kemur hún væntanlega
út í nóvember.
Sóknarprestarnir sögðust afar
þakklátir öllum þeim fjölmörgn
sem stuðlað hafa a§ uppbyggingu
safnaðarheimilisins, bæði með
vinnu og gjöfum og einnig fyrir
þá aðstöðu sem þeim væri sköpuð
í safnaðarheimilinu. Viðtalstímar
séra Birgis í safnaðarheimilinu eru
á þriðjudögum og fimmtudögum
frá kl. 11-12, en séra Þórhallur
er með viðtalstíma á miðvikudög-
um og föstudögum á sama tíma.
Saga Akureyrar:
Fyrsta bindið að mestu tilbúið
og stefiit að útgáfu þess í haust
FYRSTA bindi af sögu Akureyrar er nú að mestu tilbúið og er
að því stefiit að það komi út næsta haust. Akureyrarbær mun sjá
um útgáfú bókarinnar, en fyrir liggur tilboð frá POB um prentun
bókarinnar. Samþykkti bæjarstjórn Akureyrar á fundi sínum i
gær að gengið yrði til samninga við fyrirtækið á grundvelli til-
boðsins. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár er gert ráð
fyrir að veija 1,7 milljónum króna í útgáfú bókarinnar. Saga
Ákureyrar verður gefín út í þremur bindum.
Jón Hjaltason sagnfræðingur
var ráðinn til að rita sögu Akur-
eyrar haustið 1987. Fyrsta bindið
nær frá upphafi byggðar í Eyja-
firði og fram til ársins 1862.
„Þetta hefur gengið ljómandi vel
og þessi jtími hefur verið skemmti-
legur. Ég hef haft aðstöðu á
Amtsbókasafninu þar sem ég hef
notið mikillar velvildar starfs-
fólks, sem hefur sýnt mér mikla
þolinmæði og umburðarlyndi,“
sagði Jón.
í fyrsta bindinu er áhersla lögð
á að gera grein fyrir lifnaðar-
háttum fólks og til að mynda er
sérstakur kafli um stöðu ógiftra
kvenna í akureyrsku samfélagi
þessa tíma. Þá er og fjallað um
aðdraganda þess að stofnuð var
prentsmiðja á Akureyri og segir
Jón að sér hafi komið á óvart
hversu fjölmenn hreyfing stóð að
baki stofnun prentsmiðjunnar.
„Þetta er gott dæmi um þá þjóð-
ernisvakningu sem varð um miðja
19. öldina, efnt var til samskota
og lagði mikill fjöldi fólks fram
fé til prentsmiðjunnar,“ sagði Jón.
Einnig er í bókinni gerð grein
fyrir kaupmönnum í bænum,
stofnun kirkju og margvíslegum
málum öðrum.
Heimildir eru að langmestu
leyti fengnar utan Akureyrar,
m.a. á Þjóðskjalasafni og fleiri
skjalasöfnum bæði í Reykjavík og
Kaupmannahöfn. Lítið er til af
myndum frá þessum tíma, en Jón
sagði að reynt yrði að koma inn
einhverjum myndum sem tengjast
efni bókarinnar.
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r
Jón Hjaltason söguritari Akur-
eyrarbæjar er nú að mestu bú-
inn með fyrsta bindi sögunnar,
sem nær frá upphafi byggðar
í Eyjafirði og fram til ársins
1862.
Annað bindi af sögu Akureyrar
mun ná frá árinu 1863-1940 og
lokabindið frá 1941 til vorra daga.