Morgunblaðið - 25.01.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞROTTIR FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1990
51
SKOTLAND || KNATTSPYRNA
i
I
i
i
i
i
i
i
I
(
i
i
V-ÞYSKALAND
Þórður
skoraði
gegn
Dortmund
Þórður Bogason og Baldur
Bjamason, úr Val, æfa nú
með vestur-þýska knattspyrnu-
liðinu Parderborn Neuehaus sem
leikur í 3. deild. í gær léku þeir
æfingaleik gegn úrvalsdeiidar-
liðinu Dortmund og töpuðu 1:3
en Þórður gerði eina mark Pad-
erbom.
Baldur lék allan leikinn en
Þórður kom inná f leikhléi og
gerði markið á 70. mínútu.
Andreas Möller gerði tvö mörk
fyrir Dortmund.
„Það var skrítið að leika gegn
þessum mönnum sem maður
hefur bara séð í sjónvarpinu,
Michael Rumenigge, Andreas
Möller, Wegmann og Mill. Dort-
mund var með sterkasta lið sitt
en samt náðum við að hanga í
þeim og ég held að við höfum
komist ágætlega frá leiknum,"
sagði Baldur.
Þetta var fyrsti leikur Baldurs
og Þórðar með liðinu en keppni
í 3. deild hefst að nýju um miðj-
an febrúar. Paderborn er í 2.
sæti í deildinni, tveimur stigum
á eftir Armenia Bielefeld en eitt
lið kemst upp úr deildinni.
faém
FOI_K
■ GEORGE Weah, knattspyrnu-
maður frá Líbíu sem leikur með
franska 1. deildarliðinu Mónakó,
hefur verið útnefndur knattspyrnu-
maður ársins í Afríku. Weah, sem
er 23 ára útherji, var fyrsti knatt-
spyrnumaður Líbana sem hlýtur
þessa heiðursnafnbót í 20 ára sögu
útnefningarinnar. Weah, sem hefur
verið frá keppni vegna uppskurðar
vegna hnémeiðsla, getur farið að
leika eftir tvær vikur.
■ STEFAN Rehn, sænski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu sem
gekk til liðs við Everton í sumar,
hefur yfirgefið Everton og samið
við IFK Gautaborg. Ástæðan er
sú að Rehn komst ekki f aðallið
Everton og var orðinn þreyttur á
að vera á bekknum. Hann hefur
aðeins fengið að spila einn leik með
Everton í vetur. Gautaborg
greiddi 275 þúsund pund fyrir
Rehn, en Everton borgaði sænska
liðinu Djurgáden 400 þúsund fyrir
hann í sumar.
■ MIDDLESBROUGH keypti í
gær sóknarmanninn Ian Baird frá
Leeds fyrir hálfa milljón punda.
■ SÍÐUSTU daga hefur verið
mikið að gera í veðbönkum í Eng-
landi. Hæst ber óvenju slæmt hlut-
fall Manchester United en líkurnar
á að liðið falli eru 5 gegn 2, sam-
kvæmt breskum veðbönkum.
■ KERRY Dixon skrifaði í gær
undir fjögurra ára samning við
Chelsea sem færir honum um hálfa
milljón punda.
Guðmundur Torfason fékk rautt
spjald gegn Ayr.
Guðmundur
rekinn útaf
St Mirren, lið Guðmundar Torfa-
sonar, sigraði Ayr United, 2:1,
í 3. umferð skosku bikarkeppninnar
í gær. Guðmundur lék reyndar ekki
■■■■■ nema hluta leiksins
Frá bíii því hann fékk rauða
Melvilleí spjaldið á 42.
Skotlandi mínútu, er staðan
var 1:0, St Mirren í
vil, fyrir að sýna stuðningsmönnum
Ayr United ósæmilegt látbragð.
Hann hafði skömmu áður fengið
gult spjald fyrir handalögmál. St
Mirren fékk þó aukaspyrnu og úr
henni kom sigurmarkið.
St Mirren mætir Clydebank í 4.
umferð en aðal leikurinn í umferð-
inni er viðureign Glasgow-liðanna
Celtic og Rangers.
Um næstu helgi mætir St Mirren
Aberdeen en ólíklegt er að Guð-
mundur verði með vegna rauða
spjaldsins.
PÉTRI Arnþórssyni, lands-
liðsmanni úr Fram, hefur ver-
ið boðið að koma til spænska
1. deildarliðsins Real
Zaragoza, og æfa með liðinu.
Samningstilboð gæti fylgt í
kjölfarið.
Þetta er freistandi tilboð, en
málið er á algjöru byijunar-
stigi. Mér hefur verið boðið að koma
í tíu daga og „sýna mig“, æfa og
væntanlega spila æfingaleik,“ sagði
Pétur í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Þjálfari Zaragoza er Júgóslavinn
Raddy Antic, sem lék á sínum tíma
með Luton í ensku 1. deildinni. Það
er Júgóslavi búsettur hér á landi,
Uros Ivanovic, sem benti landa
sínum á Pétur og vildi sá fá lands-
liðsmanninn til æfinga. „Mér skilst
að þeir séu að leita sér að framliggj-
andi miðvallarleikmanni,“ sagði
Pétur.
Lið Zaragoza er í 10. sæti í deild-
inni, en í henni eru 20 lið.
Pétur er 24 ára. Hann á 38 leiki
að baki í 1. deild fyrir Þrótt og 91
fyrir Fram. Hann skoraði á sínum
tíma 4 mörk í deildinni fyrir Þrótt
en hefur gert 12 mörk í deildarleikj-
um með Fram. Þá hefur Pétur leik-
ið 25 sinnum í A-landsliði íslands.
GLIMA / IÞROTTAHATIÐ ISI
Fimmtíu eriendir
keppendur í glímu
UM fimmtíu erlendir keppendur verða meðal þátttakenda í
glímu á sumaríþróttahátíð ÍSÍ, sem fram fer í lok júní f sum-
ar. Þetta verður jafnframt ífyrsta sinn sem útlendingar keppa
i fslenskri glímu.
Keltneska fangbragðasambandið tók íslensku glímuna upp sem
keppnisgrein á þingi sínu í nóvember, en hingað til hefur samband-
ið haft tvær keppnisgreinar á stefnuskrá sinni, skosk axlartök og bret-
ons fangbrögð „gouren". Fimm þjóðir eru aðilar keltneska fangbragða-
sambandinu, ísland, Skotlandi, England, Frakkland og Holland.
Jón ívarsson, stjómarmaður Glímusambandsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að gert væri ráð fyrir að um 50 erlendir þátttakendur
kæmu hingað til að keppni í glímu á íþrótthátíð ÍSÍ í sumar. Keltn-
eksa meistaramótið verður þá haldið í fimmta sinn og glíman í fyrsta
sinn meðal keppnigreina. Keppt verður í þremur greinum; axlartökum,
gouren og glímu og gildir samanlagður árangur í keppni milli þjóðanna.
Pétur Arnþórsson virðir knöttinn fyrir sér í einum þeirra tuttugu og fimm
landsleikja sem hann á að baki.
URSLIT
Ítalía
Bikarkeppnin - fjórðungsúrslit, seinni leikir:
Inter Mílanú - Kúma..................3:1
Aldo Serena 2, L. Matthaus - Di Mauro.
Fiorentína - Napolí..................1:1
Dunga - Diego Maradona.
Atalanta - AC Mílanó.................1:1
Giorgio Bresciani - Franco Baresi.
■luventus - Sampdoria ........''.....2:1
Marocchi, De Agostini - Srecko Katanec.
® Inter Mílanó eða Róma leikur gegn Ju-
ventus og Napolí leikur gegn AC Mílanó í
undanúrslitum, tvo leiki, 31. janúar og 14.
febrúar.
Vináttulandsleikur
Frakkland - A-l'ýskniand.............3:0
Eric Cantona 2 (2., 24. mín.), Didier Desc-
hatnps (75.)
B 1.000 áhorfendur sáu leikinn, sem fór
fram í Kuwait.
Leikir i NBA-deildinni á þiðjudag:
Atlanta Hawks - Charlotte........106:101
Phoenix Suns - Miami Heat........118: 99
Philadelphia - Cleveland.........103: 88
L.A. Lakers - New YorkNets......118: 97
Detroit - Chicago Bulls.........107: 95
Dallas - Washington.............129:105
IJtah Jazz - Houston............102: 94
Golden State - Minnesota........109:102
Portland - Milwaukee............119: 90
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Þon/aldur á Wembley?
Forest vann Tottenham og mætir Coventry í undanúrslitum
Nottingham Forest tryggði sér
sæti f undanúrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar í gær er lið-
ið sigraði Tottenham, 2:3, á White
Hart Lane. Þorvaldur Örlygsson lék
allan leikinn með Nottingham For-
est og stóð sig nokkuð vel, einkum
í fyrri hálfleik.
Steve Hodge var maðurinn á bak
við sigur Forest en hann gerði tvö
mörk gegn gömlu félögum sínum.
Þorvaldur Örlygsson var reyndar
nálægt því að skora, komst einn í
gegn, en brást skotfimin. Trevor
Brookinjg, þulur BBC, sagði að þar
hefði „Ismanninum“ ekki veitt af
kælingu!
Ekki náðist í Þorvald í gær-
kvöldi. Guðni Bergsson var ekki í
hópnum hjá Tottenham, en „var vel
staðsettur í stúkunni og fylgdist vel
með öllu,“ eins og hann orðaði það
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. „Þetta var svekkjandi fyrir
okkur vegna þess að það var farið
að hylla í Wembley..." sagði hann.
„Sigurinn var naumur, en þeir áttu
alveg eins skilið að vinna,“ sagði
Guðni.
Nayim skoraði fyrir Tottenham
strax á 1. mín. en Steve Hodge
jafnaði á þeirri 36. Nigel Gemson
kom Forest yfir á 43. mín., Paul'
Walsh jafnaði eftir 67 mín. og
Hodge gerði annað mark sitt tveim-
•ur mín. síðar.
Steve Livingstone, leikmaður
Coventry, hafði aldrei skorað í leik
með aðalliðinu, þar til í gær. Þá
gerði hann fjögur mörk er Coventry
sigraði Sunderland 5:0. Micky Gynn
gerði eitt mark.
Derby og West Ham gerðu jafn-
tefli, 0:0, í framlengdum leik. Peter
Shilton lék ekki með Derby en hann
hafði leikið 124 leiki í röð með lið-
inu eða alla leiki liðsins síðan hann
kom frá Southampton.
Oldham hélt jöfnu gegn Sout-
hampton, á útivelli, með tveimur
mörkum á lokamínútunum. Matt-
hew Le Tissier kom Southampton
tvívegis yfír en Andy Ritchie jafn-
aði í bæði skiptin.
■ Búið er að draga í undanúrslit
og þar mætast: Nottingham For-
est-Coventry og Southampton/Old-
ham-West Ham/Derby.
Pétri Amþórssyni
boðið til Real Zaragoza
Freistandi boð en málið á byrjunarstigi, segir Pétur Arnþórsson Framari