Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
12
NÝ STÓRSENDING
Buxnapils, jakkar
glæsilegt úrval
Dragtin,
Klapparstíg 37, sími 12990
Eldurí
Bókmenntir
Jóhatma Kristjónsdóttir
Lifandi steinar — Afmælisrit
Sambands íslenskra kristniboðs-
félaga.
Ritstjóri: Þórarinn Björnsson.
Útgáfunefnd: Árni Siguijónsson,
Baldvin Steindórsson, Guðmund-
ur Oli Olafsson og Jóhannes
Tómasson.
Útg. Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga 1989.
Langflestir hafa ugglaust tak-
markaða þekkingu á starfi íslenskra
kristniboða hjá erlendum þjóðum
þó svo starf í Kína á árum áður,
og Konsó um langa hríð hljómi
kunnuglega. Því er fróðlegt að
blaða í þessu afmælisriti sem er
gefið út vegna afmælis Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga sem var
þann 27.september 1989.
Hafi menn verið á því að áhugi
á kristniboði íslenskra manna hafi
vart verið teljandi fyrr en Ólafur
Ólafsson kristniboði hélt til Kína
er fýsilegt að lesa grein Þórarins
Bjömssonar „Velferðarmál eða
húmbúgg" — fáeinir drættir í sögu
kristniboðsáþuga og áhugaleysis
íslendinga fram til ársins 1930. Þar
kemur meðál annars fram að þrír
Islendingar fóru sem kristniboðar
& Ármúla 29 símar 38640 - 686100
P. Þ0RGRÍMSS0N & C0
Armstrong LOFTAPLETrUR
KORKDPLAST GÓLFFLÍSAR
'^gflJMPLAST EINANGRUN
§ VIIMKLARÁTRÉ
- J|
[
I
, . i
&
1
I
K
NAMSMENN OG
ADRIR ÆVIN1ÝRAMINN
Víð kynnum
œvintýraferðir, máiaskóia,
námsmannafargjöld
um aiian heim 09 margt
fleira á „Opnu húsi‘É Háskólans
hjarta
til Grænlands á vegum konunglegs
trúboðsráðs Dana á síðasta hluta
átjándu aldar og af þeim telst fyrst-
ur Egill Þórhallason sem var prests-
sonur frá Borg á Mýrum. Hann
hafði lært til prests í Danmörku og
sat síðan í trúboðsskóla sem Hans
Egede kom á fót.
Af heimildum sem Þórarinn gerir
grein fyrir skilmerkilega má sjá að
áhugi á kristniboði hefur verið hér
á landi — kannski í nokkuð þröng-
um hópi þó — allar götur síðan þó
að sveiflur hafi nokkrar verið.
Minnst er á ýmsa sem sýndu málinu
áhuga og eftir lesturinn komst ég
að þeirri niðurstöðu að málflutning-
ur og hvatningar séra Gunnars
Gunnarssonar á Halldórsstöðum
hafi ef til vill markað nokkur þátta-
skil í að kynna og vekja áhuga
manna almennt á kristniboðsstarf-
inu. Birtir eru kaflar úr ræðum og
hugvekjum séra Gunnars sem sýnir
mikinn og einlægan áhuga og sann-
færingu.
. Guðmundur Óli Ólafsson skrifar
næstu grein, Samband íslenskra
kristniboðsfélaga, og rekur þar
þætti úr sextíu ára sögu og er þar
einnig að finna margháttaða vitn-
eskju, vel fram setta og aðgengi-
lega.
I ritinu eru ótal margar greinar
um starf frumherja og áhugamanna
um kristniboð og greinar eftir
nokkra sem hafa starfað við boðun
orðsins út um víða veröld og þótti
mér þær greinar hvað skemmtileg-
astar aflestrar.
Bókin er myndarlega útgefin eins
og er við hæfi og mikið af myndum
sem eru að vísu allmisjafnar.
Þ.ÞORQRlMSSON&CO
[3000000.
gólfflísar — kverklistar
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Veljið Hako þegar
tími, árangur og
gæði
18,
Kópavogi, sími 91-641988
BILLIARD
ERÆÐI
Ókeypis kennsla
fyrir dömur
Borgartúni 32,
sími 624533.
Lauflétt textílverk
List og höwnurt
Bragi Ásgeirsson
í hinu litla en vistlega listhorni
klæðaverzlunar Sævars Karls Óla-
sonar kynnir textíllistakonan
Málfríður Aðalsteinsdóttir nokk-
ur verka sinna. Málfríður er skóluð
í Hand- og listiðnaðarskóla ríkisins
í Ósló (Statens Handverks- og
Kunstindustriskole), og útskrifað-
ist þaðan með diplómgráðu árið
1987.
Málfríður hefur tekið þátt í ýms-
um sýningum víða í Noregi og einni
í Múnchen í Þýskalandi, „Jugend
Gestaltet" (æskan skapar) 1988,
en þetta mun hennar frumraun hér
á landi.
Það eru ijögur klæði á konur,
sem Málfríður sýnir ásamt þrem
sjölum og er allt unnið í 100% silki.
Virkar þetta helst sem óvænt en
skemmtilegt framhald herradeiidar
verslunarinnar og fer vel á því.
Þetta eru laufléttar og töfrandi
flíkur og vel hannaðar af höfundi
sínum, form einföld og litir mettað-
ir og djúpir, nálægir sem flarræn-
ir. Fer ekki hjá því, að helst þurfi
konur vel hannaðar af guði til að
bera þær og mætti því segja, að
hér sé á ferð klæðnaður fyrir glæsi-
konur.
Það er nú einmitt aðal listiðnað-
ar að lyfta sálinni upp, hærra upp
í geði skoðandans og koma honum
í gott- skap.
Silkið er lauflétt fyrir augað og
áferð þess minnir á regnboga him-
insins eða norðuljósin, eitthvað nær
áþreifanlegt og sem sýnist í næsta
nágrenni, en er þó óhöndlanlegt.
Og þó að þessar flíkur virðist hann-
aðar fyrir vissa tegund kvenfólks,
þá eru þær einmitt með öllu lausar
við allt skraut og prjál, og þannig
eru þetta ei heldur föt fyrir skart-
gjarnar og ofmálaðar konur yfir-
borðsins — nei hér er á ferð glæsi-
leiki hreinleikans og iátleysisins,
sem eins og kallar á samsvörun
sína.
Það er hverri þjóð ómældur hag-
ur af því að lyfta undir allt skaj)-
andi á sviði hönnunar, og við Is-
lendingar þurfum að eignast gilda
og svipsterka innlenda hönnun á
sviði klæðagerðar — allrar tegund-
ar klæðagerðar og ekki þá einu,
sem snýr að hagnýtingu ullarinnar,
heldur sem flestra þekkjanlegra
efna.
Ljóst er að með Málfríði Aðal-
steinsdóttur hafa íslendingar eign-
ast enn eitt efni í afburða klæða-
hönnuð.
HITABLÁSARAR
á lækkudu verdi
Rafmagnshitablásarar
Steinolíuhitablásarar
Fallar hf.
VINNUPALLAR - STIGAR - VÉLAR - VERKFÆRI
DALVEGI 16, FÍFUHVAMMI, KÓPAVOGI, SÍMI 641020
/ boði eru meðal annars stakir stólar
og margt fleira með miklum afslœtti.
Komlð og Iftlð Inn hjá okkur.