Morgunblaðið - 11.03.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
33
FERÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
Kinnsla
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
¥ ÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 = 1713128'/2 = S.P.
□ GIMLI 599012037 = 1
I.O.O.F. 3 = 1713128 = 0 =
□ MÍMIR 59903127 - 1
Fjallaskíðanámskeið
verður haldið á vegum íslenska
Alpaklúbbsins í Botnssúlum
helgina 17. og 18. mars. Skrán-
ing er hjá Arnóri Guðbjartssyni
i síma 36594 eða 82922.
Einnig er hægt að skrá sig í
félagsheimilinu, Grensásvegi 5,
14. mars kl. 20.30.
Islenski alpaklúbburinn.
Krossinn
Auðbrekku 2,200 Kópavogur
Almenn samkoma í dag kl.
14.00.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Safnaðarsamkoma kl. 11.00.
Ræðumaður Sam Daniel Glad.
Sunnudagaskóli kl. 11.00.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaöur Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Dagsferðir
sunnudaginn 11. mars
Kl. 10.30. Skíðaganga um Kjós-
arskarð. Þarna er nægur snjór
og gott gönguskíðaland. Verð
1.000,- kr.
Kl. 13.00: Stórstraumsfjöru-
ferð: Hvalfjörður - Hvammsvík-
urhólmi. Létt rölt um fjölbreytta
strönd. I fjöruferðum ber alltaf
eitthvað nýtt fyrir augu. Tilvalin
fjölskylduferð. í Hvammsvíkur-
hólma er best að komast á stór-
straumsfjöru. Verð 1.000,- kr.,
frítt f. börn m. fullorðnum.
Kl. 13.00: Skíðagöngunámskeið
og skíðaganga. Missið ekki af
þriðja síðasta skíðagöngunám-
skeiðinu í vetur. Leiðbeinandi
Halldór Matthíasson. Tilvalið fyr-
ir byrjendur og þá sem vilja
hressa upp á gönguskíðatækn-
ina. Verð kr. 1.000,-.
Kl. 13.00: Skíðaganga á Mos-
fellsheiði. Verð 1.000,- kr.
Gönguferðir og skíðagöngur
Ferðafélagsins eru fyrir alla.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin.
Mánud. 12. mars kl. 20.
Kvöldganga og blysför í Viðey.
Létt ganga á fullu tungli. Litið inn
í Viðeyjarkirkju og síðan haldið
austur á Sundbakka (minjar um
þorp) og víðar. Verð kr. 500,-,
blys kr. 100.,-. Tilvalin fjölskyldu-
ferð. Brottförfrá Viðeyjarbryggju
í Sundahöfn.
Missið ekki af vetrarfagnaðin-
um í Risinu, Klúbbnum, Borg-
artúni 32, laugardaginn 17.
mars. Pantið tímanlega.
Munið páskaferðirnar: 1. Snæ-
fellsnes-Snæfellsjökul! 3 og 5
dagar. 2. Þórsmörk 3 og 5 dag-
ar. 3. Landmannalaugar,
gönguskíðaferð.
Hagstæð sértilboð á Árbókum
F.Í.: A. 50% staðgreiðsluafslátt-
ur. B. Með raðgreiðslum í allt
að 12 mánuði og 25% afslætti.
C. Tilboð til nýrra félaga á þrem-
ur Árbókum um Snæfellsnes og
Breiðafjarðareyjar á kr. 3.000,-.
Árbækurnar ættu að vera til á
hverju heimili!
Ferðafélag íslands.
Útivist
Sunnudagur 11. mars
Þórsmerkurgangan 5. ferð
Nú erum við komin til byggða.
Gengin gamla þjóðleiðin frá
Reykjum í Ölfusi að hinni fornu
lögferju hjá Laugardælum. Ferj-
að yfir ána á gamla vaðinu með
aðstoð slysavarnard. Tryggva.
Staðfróðir Árnesingar fylgdar-
menn. Brottför kl. 10.30 frá BSÍ,
bensínsölu.
Eftirmiðdagsferð sameinast
morgungöngunni við Kögunar-
hól. Brottför kl. 13 frá BSÍ,
bensínsölu. Verð kr. 800,- í báð-
ar ferðirnar. Stansað við Árbæj-
arsafn.
Gönguskíðaferð
Genginn léttur hringur i nágrenni
Jósefsdals. Farið kl. 13 frá BSÍ,
bensínsölu. Stansað við Ábæjar-
safn. Verð kr. 800,-.
Um næstu helgi
Húsafell - Þingvellir
Gönguskíðaferð. Fyrstu nóttina
verður gist í húsi, síðari nóttina
í tjaldi. Spennandi ferð fyrir
frískt fólk. Undirbúningsfundur
miðvikud. 14. mars á skrifstofu
Útivistar, Grófinni 1, kl. 20.
Helgarferð að Húsafelli
Gist í góðu húsi, sundlaug á
staðnum. Tilvalið að taka
cjönguskíðin með.
í Útivistarferð eru allir velkomnir.
Árshátíð Útivistar
verður laugard. 24. mars að
Efstalandi, Ölfusi. Fordrykkur (
hlöðunni. Ljúffengur matur.
Óvæntar uppákomur. Stöðin
mætir á staðinn. Hrókarnir leika
fyrir dansi. Miðar á skrifstofu,
Grófinni 1, sími/simsvari 14606.
Sjáumst!
Útivist.
fítmhjólp
í dag kl. 16.00 er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Mikill almennur söngur.
Barnagæsla. Vitnisburður.
Ræðumaður verður Óli Ágústs-
son. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FREEPORTKLÚBBURINN
Freeportklúbburinn
Fundur verður haldinn í félags-
heimili Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 15. mars kl. 20.00.
Kvöldverður (hlaðborð).
Skemmtiatriði.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
til Baldurs Ágústssonar, sími
686915 fyrir miðvikudag.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S. 11798 19533
Aðalfundur
Ferðafélagsins
Aðalfundur Ferðafélags íslands
verður haldinn í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a, miðvikudaginn 14.
mars og hefst hann stundvíslega
kl. 20.30. Venjuleg aðalfundar-
störf. Ath. Félagsmenn sýni
ársskírteini frá árinu 1989 við
innganginn.
Stjórn Ferðafélags (slands.
Hjálpræóis-
herinn
Kirkjustræti 'í
í dag kl. 14.00: Sunnudagaskóli.
Öll börn eru velkomin.
Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma.
Flokksstjórahjónin á Akureyri,
Janice og Norman H. Dennis,
stjórna og tala.
Mánudag kl. 16.00 verður Heim-
ilasamband fyrir konur og kl.
20.00 unglingafundur.
Miðvikudag kl. 20.30: Hjálpar-
flokkur (hjá Pálínu í Víkurbakka
12). Verið velkomin á Her.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Vetrarfagnaður F.í.
Vetrarfagnaður F.í. verður hald-
inn í góðum salarkynnum í Ris-
inu, Klúbbnum, Borgartúni 32,
laugardaginn 17. mars. Dag-
skráin hefst með fordrykk kl.
19.30 og borðhald hefst kl.
20.00. Það verða sannarlega
„söguleg" skemmtiatriði í um-
sjón skemmtinefndar F.j. Enginn
ætti að missa af yetrarfagnaðin-
um. Hljómsveit leikur fyrir dansi
fram á nótt. Frábær skemmtun
fyrir alla aldurshópa. Miðar á
skrifstofunni. Pantið tímanlega.
Ferðafélag íslands..
J/ VEGURINN
v Krístið samfélag
Þarabakka3
Samkoma og barnakirkja kl.
11.00. Einar Gautur talar. Kvöld-
samkoma kl. 20.30. Björn Ingi
talar. Verið hjartanlega velkomin.
Vegurinn.
/ffl\ SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðsvika í
Reykjavík
Samkomuvikan hefst í kvöld á
Amtmannsstíg 2b kl. 20.30.
Jesús og lærisveinarnir. Upp-
hafsorð: Lilja S. Kristjánsdóttir.
Ræðumaður: Skúli Svavarsson.
Efni: Heimastarf kristniboðs-
sambandsins.
Mánudaginn 12. mars verður
kristniboðssamkóma í Selja-
kirkju og hefst hún kl. 20.30.
Jesús og Barabas.
Upphafsorð: Gísli Friðgeirsson.
Ræðumaðúr: Jónas Gíslason.
Efni: Samúel Ólafsson.
Allir velkomnir.
m Útivist
Tunglskinsganga í Engey
mánudag 12. mars
Fjörubál. Brottför kl. 20 frá Gróf-
arbryggju (þar sem Akraborgin
leggur að). Verð kr. 500.
Sjáumst.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Sunnudagaskóli kl. 16.00.
Allir krakkar velkomnir.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Barnagæsla. Allir hjartanlega
velkomnir.
Skipholti 50B, 2. hæð
Samkoma í dag kl. 11.00.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Allir velkomnir.
Uppbygging stofhlínukerfis á Snæfellsnesi.
------Byggöalíno
------- 66 kV lína
------- Áformuö lina
I-----J Aöveitustöö
Ásgeir Olafsson.
Miklar endurbætur á raf-
orkukerfinu á Snæfellsnesi
Stykkishólmi.
Á UNDANFORNUM mánuðum hafa Rafmagnsveitur ríkisins haft mik-
il umsvif í framkvæmdum hér á Snæfellsnesi til styrkingar og bóta á
kerfinu og eins kaup á nýjum tækjum o.fl.
Fréttaritari Morgunblaðsins heim-
sótti aðalstöðvarnar á svæðinu,
en þær eru í Stykkishólmi, og ræddi
þar við Ásgeir Ólafsson, svæðisraf-
veitustjóra á Vesturlandi, en svæðið
er frá Hvalfirði í Gilsfjarðarbotn, og
spurði frétta af framkvæmdum.
„Nú er að ljúka framkvæmdum
sem hófust síðastliðið sumar þ.e.
uppsetningu díselvéla í Ólafsvík og
aukningu varaafls í Grundarfirði og
Stykkishólmi, ásamt, styrkingu há-
spennukerfis á Rifi og Grundarfirði,"
sagði Ásgeir. „Það helsta sem gerst
hefur er að á Rifi var aukin flutnings-
geta frá spennistöð í Hraðfrystihús-
-Jnu og upp á Háarif þar sem sett
var upp smáspennistöð og loftlínur
felldar niður. En í ár er fyrirhugað
að leggja háspennustreng frá spenni-
stöð við Ennisbraut í Olafsvík og í
spennistöðina í Hraðfrystihúsinu við
höfnina. Munu þessar framkvæmdir
auka mjög rekstraröryggi notenda
utan Ennis, en eins og þeir best vita
hafa orðið tíðar útleysingar vegna
seltu og þess að háspennulínan yfir
Ennið hefur laskast, þá helst vegna
ísingar.
í Ólafsvík er verið að leggja
síðustu hönd á verulega aukningu
varaafls í Rafstöðinni úr 2270 kw í
3490 kw eða um 53%. Þetta leiðir
til þess að ef til keyrslu kemur á
díselvélum vegna bilunar í línukerf-
inu, þá er hægt að skipta Olafsvík
í tvö svæði og Hellissandi og Rifi sem
þriðja svæði til skömmtunar. En til
að svo megi verða, er nauðsyn á
góðu samkomulagi við notendur um
að draga sem mest úr notkun.
í Grundarfirði hefir varaafl verið
aukið úr 800 kw í 1100 kw eða um
37% sem auðveldar mjög díselkeyrslu
í tvö svæði og keyra inn á þau til
skiptis. Auk þess hefir verið sett upp
ný spennistöð á opið svæði við Borg-
arbraut, en þar var áður bráða-
birgðaspennistöð.
I Stykkishólmi hefir verið sett upp
við Rafstöðina, færanleg díselvél í
gám 800 kw, tengd kerfinu og þar
með er varaafl alls 2300 kw og hef-
ir aukist um 53%.“
Ásgeir sagði ennfremur: „Auðvit-
að er það vonin að ekki þurfi að
grípa til díselvéla til raforkufram-
leiðslu, en eins og kunnugt er þá er
raforkuflutningur fyrir Snæfellsnes
eftir einni 66 kw háspennulínu frá
Vatnshömrum í Borgarfirði, að
Vegamótum og þaðan til Ólafsvíkur
og frá Vegamótum yfir fjallið að
Vogaskeiði við Stykkishólm og þaðan
til Grundarfjarðar,
Undirbúningur er hafinn á bygg-
ingu háspennulínu frá Glerárskógum
í Dölum að Vogaskeiði til Stykkis-
hólms og hefjast mælingar í sumar.
Eftir 5-6 ár hefjast framkvæmdir og
fer það talvert eftir aukinni notkun
og ástandi eldri lína.“
Þannig sagðist Ásgeiri frá og
framþróun þessara mála hér eins og
annars staðar hefir verið mjög hröð
á seinustu árum. Tækninni fleygir
fram og þjónustan betri með hveiju
árinu sem líður.
- Árni
Útflutningsnefiid FÍS:
Mikilvægt að afiiema
nú þegar einokun á
saltfiskútflutningi
Útflutningsnefnd Félags íslenskra stórkaupmanna telur mikilvægt
að aftiema nú þegar einokun á saltfískútflutningi frá íslandi, segir
í fréttatilkynningu frá Félagi íslenskra stórkaupmanna. Nefiidin tel-
ur að skýrt sé af lögum um Ríkismat sjávarafurða að þau heimili
ekki setningu reglugerðar, sem ætlað sé að stýra útflutningi íslend-
inga á fiskafurðum, svo og að reglugerðin mismuni flutningsaðilum.
Ifréttatilkynningunni segir einn-
ig: „Mjög fáir íslendingar vilja
styðja valdboðsstefnu í viðskiptum.
Markaðsstefna hefur verið tekin
upp á flestum sviðum utanríkis-
verslunar. Hún leiðir til æskilegrar
og hagkvæmrar þróunar og bættra
lífskjara. Þá er því mótmælt að
stjórnvöld banni þjóðhagslega hag-
kvæma útflutningsverslun og
þvingi þannig niður hráefnisverð.
Útflutningsbann á ferskum fiski
vegna meintrar gæðaiýrnunar, sem
sett var með reglugerð, sem tekur
gildi 8. mars, er hrein viðskipta-
þvingun. Á meðan lítið liggur fyrir
um gæðarýrnun á ferskum fiski við
flutning verður ekki séð að grund-
völlur sé fyrir reglugerð um útflutn-
ingsbann.
Reglugerðin og greinargerðin
með henni byggir eingöngu á því
að hætt sé við því að fiskurinn
skemmist. Engin gögn liggja fyrir
um að svo hafi verið þann tíma sem
útflutningur hefur staðið yfir. Þvert
á móti liggur fyrir fjöldi yfirlýsinga
frá erlendum kaupendum um mikil
gæði fisksins. Fyrirliggjandi niður-
stöður Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins staðfesta geymsluþol
ísaðra fiskflaka í 11-12 daga við
núll gráður á Celsíus.“
Álver rísi við Reyðar-
fiörð vegna stöðnunar
ALMENNUR fúndur um atvinnumál, sem haldinn var á Reyðarfirði
fyrir skömmu, samþykkti að beina því til iðnaðarráðherra að vegna
mikils atvinnuleysis og slöðnunar á Austurlandi verði næsta álver skil-
yrðislaust reist við lteyðarfjörð.
undurinn bendir á fjögur atriði,
máli sínu til stuðnings, svo sem
orkuöflun, hafnarskilyrði, nálægð við
Evrópumarkaði og fyrri fyrirheit um
uppbyggingu stóriðju við Reyðar-
Qörð.
Þá samþykkti fundurinn einnig
ályktun, þar sem vakin er athygli
hreppsnefndar Reyðarfjarðarhrepps
á atvinnuleysi, sem þar sé töluvert
og bendi margt til að rnuni aukast
þegar líði á árið. Á þessu verði að
taka sem fyrst.
Loks samþykkti fundurinn að
beina því til atvinnumálanefndar
Reyðarfjarðarhrepps að nefndin
komi saman sem fyrst til að ræða
um atvinnuleysið þar, vaxandi at-
vinnuleysi eftir að loðnubræðslu ljúki
og möguleika á atvinnu fyrir skóla-
börn í vor.