Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 38
^38
KARLAR
„Óska eftir
einkaritara"
Kæra Helga,
Mikið gleður það mig að þú
treystir mér, þessari „ókunnu konu",
til þcss að meðhöndla skyrturnar og
klútana hans Sigmars vinar míns.
Eg hef nú rétt lokið
við að stífa krag-
ana og ermalíning-
arnar með sér-
stöku stífelsi sem á
að duga í nokkra
þvotta. Svo reyndi
ég að ná rauðvíns-
blettunum úr með
sérstöku spreyi.
Það eyðir rauðvíns-
blettunum en að
visu ósonlaginu lika. Maður verður
nú alltaf að velja og hafna. Merkilegt
hvað karlmenn hætta seint að sulla
sig út. Klútarnir liggja nú í bleyti í
sérstökum legi sem afrafmagnar ef-
nið og einnig alla náttúru i kring.
Kemur sér vel. Mikið máttu nú ann-
ars vera þakklát fyrir hann Sigmar
þinn.
Það eru fáir sem feta í fótspor
,. hans. Það lá við að manni vöknaði
um augu þegar hann. eins og hendi
væri veifað, reiddi fram hvern plokk-
fiskréttinn af öðrum hér í sjónvarp-
inu. Þvilíkur lúxus að hafa náð sér
í slíka stoð en alveg er ég viss um
að þú áttir það skilið. Þú hefur svo
sannarlega lagt þitt af mörkum í
„kvennabröltinu".
Þegar ég var búin að strauja fyllti
ég upp í töskuna með þessum hold-
legu blöðum. þú veist. Þau eru, að
mér virðist, helstu bókmenntir Svía.
Þau má finna í öllum matvöruversl-
unum, barnabúðum, brauðbúðum
o.s.frv. Þessi opinbera þjónusta við
. karlmenn í þessu landi er hreint
ótrúleg.
Fjölbreytnin er mikil. Ef þér of-
býður eitthvað, þá sendu þeim eitt-
hvað nýtt á peningakassann, mönn-
unum í velðarfæraversluninni sem
þú heimsóttir forðum í þættinum
þínum.
Mér fannst þú alveg drepfyndin i
sjónvarpsþættinum um nektar-
myndirnar. Það tóku margir þig al-
varlega og héldu að þú værir hneyks-
luð í alvöru. En auðvitað ertu löngu
búin að átta þig. á tilganginum. í
fyrsta lagi: Hugsaðu þér hvað þessir
skrokkar létta mikið á mönnunum
okkar . . . án þess að við þurfum að
hreyfa svo mikið sem litlafingur. Og
ef til vill láta sumir drullusokkar sér
þetta nægja og láta börnin okkar i
friði. Hér hinsvegar er fjölbrcytnin
svo mikil að drullusokkarnir eru í
hverju horni og ekkert virðist koma
á óvart. Það vlrðist vanta sálina i
suma menn og er því spurning hvort
einhverskonar dýrahæli væri of gott
fyrir þá. Jæja mér hitnar svo óþægi-
lega þegar ég hugsa um þetta við-
bjóðslegasta i fari mannanna. Hugs-
aðu þér annars hvað þessar konur á
myndunum sætta sig við; að vera á
salerni einhleypra karla eða undir
dýnunni hjá marghleypum körlum,
þ.e.a.s. giftum með þörf fyrir auka
örvun.
Mikið er ég annars sammála þér
um að þetta „kvennabrölt" dragi al-
deilis ekki úr kvenlegum dyggðum.
Það er nú öðru nær. þvi meira sem
við bröltum þvi kvenlegri verðum
við. Ég var að brölta þetta í nokkur
ár og á rúmum fjórum árum eignað-
ist ég þrjú börn. Þá fannst mannin-
um mínum nóg komið, fór með mig
til Sviþjóðar og ég hætti öllu brölti.
Strauja oftar og sætti mig við þessa
gömlu: konan undir en karlinn of-
aná.
Það var vinkona mín Elin Torfa
sem mælti með þessari aðferð, hún
hefur reynst henni og Guðmundi
Jaka vel. Svo er spurning hvað gam-
all bröltari endist lengi í hinni stöð-
unni. Það getur orðið þreytandi að
strauja, sérstaklega ef flelri fara að
senda mér tauið.
Mér líst vel á þetta með Kvenna-
bankann, það verður sennilega erfitt
að finna etnkarltara bankastjórans.
Að vísu þekki ég einn dökkhærðan,
brúneygðan, 18 ára, sólbrúnan, í
Bermúdabuxum og blelkum tennis-
bol, vöðvastæltan með góðan
rakspira. Hann gerir ekki miklar
launakröfur og situr teinréttur og
fallegur á lærl. Það þarf að vera ein-
hver sem gleður augað. og gaman
verður að sjá hverskonar mynd prýð-
ir peningaskápinn i Kvennabankan-
um. Og að lokum: Hvort finnst þér
betra að baða Slgmar á kvöldin eða
morgnana? Stefán t.d. sefur alltaf
svo vel þegar hann er baðaður á
kvöidin.
Benediktsdóttur
MOKGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM 6UNNUDA<?UR 11. MARZ 1990
VEIÐISKAPUR
Byrjendur þurfa
ekki að örvænta
Þeir íslendingar sem hafa áhuga á stangaveiði eru fjölmargir og
bendir flest til þess að þeim fjölgi jafnt og þétt. Sem alkunna er,
er þetta sport þó að mestu bundið við lítinn hluta ársins, júní til
miðs september eða svo. Nú er að vísu farið að teygja nokkuð á
þessu, þeir hörðustu byrja í apríl og veiða fram í október og lítill
en stækkandi sértrúarhópur er þar íyrir utan að bora göt á ís
og draga sæsmáar bleikjulontur upp um vakirnar milli þess sem
lífi er blásið í deyjandi fingur og tær.
Þetta með öfgana á þó einkum
við um menn sem komnir eru
nokkuð langt í veiðimennskunni.
Byijendur og þeir sem eru ekki
einu sinni það vita oft ekki hvern-
ig þeir eiga að snúa sér. Sumir
njóta kunnáttu vanra veiðimanna,
en aðrir þurfa að þæfast áfram
sjálfir og er leiðin þá frumskógur
hinn mesti þótt aukin upplýsing
hafi grisjað nokkuð þykknið í
seinni tíð. Um kennslu er þó vart
..að ræða utan að nokkur stanga-
veiðifélög eru með flugukast-
kennslu á sunnudagsmorgnum á
vetrum og hægt er að skrá sig í
fluguhnýtingarnámskeið. En
mönnum er ekki kenndur veiði-
skapur, heldur grundvallarhand-
tök. Þess vegna er Birgir Sumar-
liðason í Ferðabæ búinn að grafa
upp fullkomna stangaveiðiskóla
suður í Skotlandi og um páskana
verður boðið upp á fyrstu ferðina
þangað til þekkingarauka. Morg-
unblaðið ræddi við Birgi og spurði
hann um þessa skóla.
Veiðihúsið;Birgir, t.v., ræðir við skoska laxveiðimenn við ána Dee. Þeir höfðu ekkert fengið, en laxar
stukku til og frá um breiðuna framundan húsinu.Á efri myndinni sjást gestir gistihússins ræða málin við
arineld að degi loknum.
Ég kannaði þetta fyrst í fyrra
og taldi hugmyndina nokkuð
góða. Þegar ég svo las í viðtali
við kennara í fluguköstum í Morg-
unblaðinu að bæði Ármenn og
SVFR þurfi að vísa hundruðum
veiðimanna frá námskeiðum
sínum sannfærðist ég-um að ekki
veitti af svona valkosti, en veiði-
skóli eins og hér um ræðir er
ekki starfræktur hér á landi. Ég
hef sett mig í samband við tvo
umboðsmenn slíkra veiðiskóla í
Skotlandi og kannað aðstæður hjá
báðum. Sá skóli sem ég býð upp
á um páskana er í Tweed Valley.
Þar er rekinn skóli með tæplega
vikulöngum námskeiðum í tengsl-
um við afburða gistihús sem er
kynleg blanda af lúxus og heimil-
islegheitum ef þannig mætti að
orði komast,“ segir Birgir. En
skólinn sjálfur?
„Um hann er það að segja, að
hann er skemmtileg blanda af
fyrirlestrum og verklegri kennslu.
Verklega kennslan fer fram við
ána Tweed, sem er ein besta lax-
veiðiá Bretlandseyja og góð sil-
ungsveiðiá að auki. Einnig er
kennt við smávötn sem eru þarna
skammt undan. Það er farið í
gegn um stangaveiðina frá upp-
hafi til enda og kennararnir eru
atvinnumenn í stangaveiði. Það
sem kom mér mest á óvart fyrir
utan hversu nákvæmur og góður
skólinn er, er hve hægt er að
skella sér á þetta námskeið fyrir
lítinn pening,“ svarar Birgir.
A
„Ástæðulaust að lúra í helli
sínum allan veturinn“
Jú, þetla er nýlunda, við viljum reka fólk út úr híbýlum sínum til þess að njóta
útiveru. Það er engin ástæða til að lúra I helli sínum allan veturinn og telja dagana
þar til vor og sumar renni í hlað,“ sagði Jón G. Baldvinsson formaður Stangaveiðifé-
lagsReykjavíkur um dorgveiðikeppni sem SVFR gengst fyrir á Geitabergsvatni í
Svínadal laugardaginn 17. mars. 18. mars gætiþó orðið ofan á ef veðurguðunum
býður svo við að horfa og myndi S VFR þá tilkynna það um útvarp.
HARKANSEX
TIL HVERS AÐ
EIGA BÍL ?
Eins og menn muna gekk mikið óveður yfir
Suður- og Vesturland á þriðjudagskvöldið
og var mikill ofanbylur og skefrenningur sem
hafði það í för með sér að umferð tepptist
víðast hvar í Reykjavík, en þó alveg sérstak-
lega þar sem borgin liggur hátt og í úthverfun-
um. Þessi mynd var tekin í Suðurhlíðinni er
allt var orðið kolófært og bílar fastir þvers og
kruss. Kom þá ekki úr úr sortanum hörkutól
á reiðhjóli sem fór allra ferða sinna hvað sem
tautaði og raulaði.
Jón sagði enn fremur, að það hefði verið
ákveðið fyrir nokkrum misserum að auka
ijolbreytni í starfsemi SVFR og í því skyni
hefði til dæmis verið efnt til Grænlands-
farar síðasta sumar. Dorgveiðikeppni væri
liður í þessari nýju stefnu, „svo hefur ár-
nefndin fyrir Geitabergsvatn og Þverá verið
að stinga upp á þessu hvað eftir annað
þannig að við slógum til,“ sagði Jón. Ár-
nefndin, Gunnar Bender og Leifur Bene-
diktsson, sjá um framkvæmd mótsins ásamt
Ólafi H. Olafssyni fulltrúa stjórnar SVFR,
en Magnús Jónasson umboðsmaður Orvis á
íslandi gefur verðlaun. Veiðihús er við vatn-
ið og verður það opið meðan á keppninni
stendur.