Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 39

Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 39
OWr XH-AM rr 21j; MORGUNBLAÐIÐ FOLK I í ÍuNNUDAGUR 11. MÁáz 'ítóo 99 SSŒ HAFA EKKI LAGT UPP LAUPANA Sjúkraþjálfun Reykjavíkur á Selja- vegi 2 tók til starfa í sumarbyijun 1988 og hefur sinnt alhliða sjúkraþjálf- un og íþróttasjúkraþjálfun fyrir íbúa Vesturbæjar og Seltjamarness. Það er því ekki fótur fyrir því sem haft er eftir sjúkraþjálfurum í nýrri stöð nokk- ur hundruð metra frá okkur, að „hér sé enginn fyrir“ og að „það sé engin svona þjónusta fyrir í Vesturbænum“. Kemur það fram í viðtali við þá sjúkra- þjálfara í Morgunblaðinu í febrúar,“ segir Gauti Grétarsson. Gauti sagði enn fremur, að eftir umræddar yfirlýsingar hefðu bæði læknar og viðskiptavinir þeirra hringt og spurt hvort að Sjúkraþjálfun Reykjavíkur hefði lagt upp laupana, en það væri öðru nær. Nokkrir leikenda í Vagnadansi. Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Emilía Sjúkraþjálfararnir á Sjúkraþjálfun Reykjavíkur, f.v. Þorgeir Óskarsson, Sif Friðleifsdóttir, Gauti Grétarsson og Niels Hermannsson. LEIKLIST ullkomleg-a leyfilegt að hlæja! Leikhópurinn Fantasía sýnir um þessar mundir leikverkið Vagnadans sem samið er af leikhópnum sjálfum. Að sögn eins aðstandenda hópsins, Jóns Stefáns- sonar, er þetta verk ólíkt dæmigerðum leikritum leiklistarhópa. „Þetta er þögull hreyfileikur og oft og tíðum fyndinn. Samt er það svo skrítið, að vegna þagnarinnar á sviðinu er engu líkara en að áhorfendur séu feimnir að láta í sér heyra er hlátur- taugarnar eru kitlaðar. Við höfum reynt að koma því á framfæri, að það er full- komlega leyfilegt að hlæja,“ segir Jón. Þrátt fyrir hláturtregðu hefur verkinu verið vel tekið og Jón sagði enn vera möguleika á því að sjá verkið í leikhúsi Frú Emilíu í Skeifunni. Síðasta sýning á verki þessu er 15. mars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.