Morgunblaðið - 20.03.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
Viðurkenning Dana
á Litháen látin nægja
Samráð við NATO-ríki og lithásk
stjórnvöld vegna frekari yfirlýsinga
VIÐURKENNING danskra sljórnvalda á sjálfstæði Litháens frá 1921
gildir einnig fyrir Islendinga út frá þjóðréttarlegu sjónarmiði, að sögn
Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, og þarf samkvæmt
þjóðarétti ekki að ítreka hana sérstaklega. Ekki hefur hins vegar
verið ákveðið, hvort íslenzka ríkisstjórnin ítrekar þessa afstöðu með
einum eða öðrum hætti, sem myndi þá fyrst og fremst þjóna pólitisk-
um tilgangi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins munu stjórn-
völd ætla að hafa samráð við aðrar aðildarþjóðir Atlantshafsbandalags-
ins og einnig við stjómvöld í Litháen eftir óopinberum leiðum.
„Á þeim tíma sem Eystrasaltsrík-
in fengu sjálfstæði upp úr fyrra
stríði fóru Danir með utanríkismál
okkar íslendinga samkvæmt sam-
bandslagasáttmála. Þeirra afstaða í
þessum málum var sú að þeir viður-
kenndu þessi þrjú lönd með formleg-
um hætti og breyttu því ekki í upp-
hafí heimsstyijaldar er þau voru inn-
limuð í Sovétrikin," sagði utanríkis-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið.
„Innlimunin í Sovétríkin var aldrei
viðurkennd, og þar gegnir öðru
Fimmtán
ára stúlka
lést í um-
ferðarslysi
UNG stúlka, Rakel Bára Dav-
íðsdóttir, lést þegar bifreið,
sem hún var farþegi í, valt
við Stokkseyri á sunnudag.
Vegfarandi, sem kom á slys-
stað, tilkynnti lögreglunni á
Selfossi um slysið klukkan 13
á sunnudag. Bifreiðin hafði olt-
ið á veginum milli Hraunsár
og Stokkseyrar, á leið til Eyrar-
bakka. Að sögn lögreglunnar
eru tildrög slyssins ekki ljós.
Ökumaðurinn, ung stúlka,
hlaut lítils háttar meiðsli og var
flutt í sjúkrahúsið á Selfossi.
Rakel Bára Davíðsdóttir var
fimmtán ára, fædd 2. septem-
ber 1974. Hún var til heimilis
í Eyjaseli 6 á Stokkseyri.
Rakel Bára Davíðsdóttir
máli en til dæmis um Svía, sem við-
urkenndu innlimunina.“
Jón Baldvin sagði að hins vegar
væru menn að velta því fyrir sér
hvort íslenzka lýðveldið, sem hefði
verið stofnað eftir þessa atburði,
ætti að árétta viðurkenninguna sér-
staklega. „Það er í athugun og ger-
ist ekki án vandlegrar athugunar
og samráðs, meðal annars við full-
trúa Eystrasaltsríkjanna,“‘ sagði
hann.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagðist telja viður-
kenningu Dana fyrir okkar hönd
nægja, en eftir væri að ræða þetta
mál nánar í ríkisstjórninni.
Steingrímur sagði að með yfirlýs-
ingu Alþingis hefðu íslendingar orð-
ið á undan öðrum þjóðum að óska
Litháum til hamingju. Forsætisráð-
herra sagði að fylgzt yrði með því,
sem aðrar þjóðir gerðu í málinu.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagðist telja
eðlilegt að ísland viðurkenndi sjálf-
stæði Litháens formlega. „Það má
vera að hægt sé að skjóta sér á bak
við það að ákvörðun Dana á sínum
tíma gildi, en mér fyndist vera miklu
meiri reisn yfir því ef sú ákvörðun
yrði formlega staðfest af okkur sem
sjálfstæðu og fullvalda ríki, og ég
vona að ríkisstjómin sjái sóma sinn
í að taka þá afstöðu," sagði Þor-
steinn.
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagði í gær
að hann væri nýkominn til landsins
og hefði ekki kynnt sér málið. Því
vildi hann ekki tjá sig um það að
svo stöddu.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa aðildarþjóðir Atlants-
hafsbandalagsins samráð sín á rnilli
um viðbrögð við sjálfstæðisyfirlýs-
ingu Litháens. A leiðtogafundi
bandalagsins síðastliðið vor var
ákveðið að taka jákvæða afstöðu til
umbótastefnu Gorbatsjovs í Sov-
étríkjunum og leggja umbótum lið,
ásamt því að nota þíðuna milli aust-
urs og vesturs til að reyna að ná
árangri í afvopnunarmálum. Þar var
jafnframt ákveðið að forðast það að
nota veika stöðu Sovétríkjanna til
íhlutunar í innanríkismál, til þess
að gefa íhaldsöflum innan þeirra
ekki ástæðu til að bregðast hart við.
Þetta mun meðal annars vera ástæð-
an fyrir varfæmum viðbrögðum
NATO-ríkja við sjálfstæðisyfirlýs-
ingu Litháa, til dæmis hafa Banda-
ríkjaménn ekki gefíð út formlega
yfirlýsingu um að sjálfstæði ríkisins
sé viðurkennt.
Morgunblaðinu er kunnugt um að
íslendingar hafi skýrt Atlantshafs-
bandalaginu frá afstöðu sinni til Lit-
háens og að fylgzt verði með því
hvort önnur NATO-ríki samræmi
afstöðu sína. Samkvæmt heimildum
blaðsins er stjómvöldum á Vesturl-
öndum, að íslandi meðtöldu, um-
hugað að hugsanlegar yfirlýsingar
þjóni hagsmunum Litháa en ekki
verði litið á þær sem ógnun við Sov-
étríkin, sem haft gæti slæmar afleið-
ingar. Samráð er því haft við hin
nýju stjórnvöld í Litháen, en það er
nokkrum vandkvæðum bundið þar
sem vestræn ríki hafa engin stjórn-
málatengsl eða sendiráð í ríkinu. Því
mun verða farin sú leið að notast
við óformleg sambönd, sem tekur
nokkum tíma.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Diana Bjarnadóttir og sonurinn Árni Heimir Ingvarsson með
bílstólinn.
Slapp ómeiddur á ótró-
legan hátt úr árekstri
Selfossi.
„ÞAÐ er búið að skemma mömmubíl“ var það fyrsta sem Árni
Heimir Ingvarsson, rúmlega tveggja ára, sagði eftir að hafa slopp-
ið á ótrúlegan hátt ómeiddur úr árekstri. Hann kastaðist upp úr
bílstól, afltur úr bíl móður sinnar og lenti i snjóruðningi uppi á
gangstétt. Sjónarvottur sá drenginn þeytast aftur úr bílnum og
fara kollhnís í ruðningnum á gangstéttinni. Áreksturinn varð
síðastliðinn föstudag á mótum Eyrarvegar og Kirkjuvegar á Sel-
fossi er Subarubifreið var ekið á Fiat Uno sem Árni Heimir var í.
„Ég leit aftur í bílinn eftir viðstöðu í stað þess að fara kannski
áreksturinn af því að ég heyrði
barnsgrát en þá var enginn í stóln-
um og bíllinn opinn að aftan. Þeg-
ar ég leit út um hliðarrúðuna þá
lá hann þar í snjónum á gangstétt-
inni, skammt frá bílnum," sagði
Díana Bjarnadóttir, móðir Árna
Heimis. „Ég þakka auðvitað
Guði fyrir að hlerinn opnaðist að
aftan og að hann fór þar út án
gegnum rúðuna," sagði Díana.
„Eg stökk út úr bílnum og greip
hann þar sem hann lá. Hann vældi
svolítið en sagði svo að það væri
búið að skemma bílinn minn. Ég
er auðvitað yfir mig ánægð núna
en það var ofsalegt áfall að sjá
hann ekki í stólnum í aftursætinu."
— Sig. Jóns.
Tæpast samstarí við Kristmu
það sem eftir er kjörtímabils
- segir Signrjón Pétursson oddviti Alþýðubandalags í borgar-
stjórn um framboð Kristínar Ólafsdóttur fyrir Nýjan vettvang
búast við að henni verði settir form-
KRISTlN Á. Ólafsdóttir, borgarfúlltrúi Alþýðubandalagsins
Reykjavík, segist ekki hafa í hyggju að segja sig úr flokknum og seg-
ist munu starfa áfram sem borgarfúlltrúi flokksins fram að kosningum
í vor, þrátt fyrir að hún hafi lýst því yfír að hún muni taka þátt í
prófkjöri „Samtaka um nýjan vettvang", sem hyggst, í samvinnu við
Alþýðuflokkinn, efíia til próflqörs fyrir kosningarnar þann 7. og 8.
apríl næstkomandi. Auk Kristínar lýstu Ólína Þorðvarðardóttir og
Hrafn Jökulsson yfír á stofíifúndi Nýs vettvangs á laugardag að þau
gæfú kost á sér í prófkjörinu en framboðsfrestur hefúr verið ákveðinn
til 31. mars.
Siguijón Pétursson, oddviti Al-
þýðubandalagsins í borgarstjóm,
segist ekki sjá fyrir sér að aðrir
borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins
muni eiga mikið samstarf við
Kristínu, verðandi andstæðing
floliksins í kosningum, það sem eftir
lifi kjörtímabilsins en segist ekki
Vatnsútflutningur Smjörlíkis/Sólar hf:
Fyrirtæki með um 230 millj-
óna króna hlutafé stofinað
Smjörlíki/Sól hf. hefúr stofíiað fyrirtæki með tæplega 230 milljóna
króna hlutafé og er tilgangur fyrirtækisins að flytja út íslenskt vatn,
tappað á plastdósir, og framleiða gosdrykkinn Selzer fyrir Bretlands-
markað. Kanadískt fyrirtæki mun væntanlega kaupa um 45,5% hlut
í fyrirtækinu.
Fyrirtækið heitir Islenskt berg-
vatn hf. Davíð Scheving Thorsteins-
son, stjómarformaður fyrirtækis-
ins, sagðist undanfarið hafa unnið
að því að flytja íslenskt vatn á
Bandaríkjamarkað. Ýmsir aðilar
hefðu sýnt málinu mikinn áhuga,
þar á meðal kanadískt fyrirtæki
sem nefnist „Great Icelandic Water
Holdings“ og stæðu yfir viðræður
um að það keypti stóran hlut í ís-
lensku bergvatni hf.
Hugmyndin er að tappa íslensku
vatni á plastdósir sem Sól hf. fram-
leiðir og bæta í það kolsýru. Sól
hf. framleiðir nú ávaxtadrykkinn
Selzer og tappar á þessar dósir fyr-
ir breska fyrirtækið Selzer Drinks
co. Davíð Scheving sagði að á þessu
ári yrðu framleiddar um 5 milljónir
dósa af Selzer, sem væri tæplega
helmingur framleiðslugetu verk-
' smiðjunnar.
legir úrslitakostir. „En það er óhjá-
kvæmilegt að við, þessir borgarfull-
trúar sem eram enn í Alþýðubanda-
laginu og ætlum að styðja það
áfram, ræðum með hvaða hætti við
störfum við þessar aðstæður og býst
við að samstarf verði heldur lítið,“
sagði Siguijón.
Stefanía Traustadóttir, formaður
Alþýðubandalagsfélags Reykjavík-
ur, sagði, spurð álits á því að félag-
ar í ABR stæðu að öðra framboði
en G-listanum, að hveijum sem er
væri heimilt að ganga í pólitísk sam-
tök og hveijum sem er væri heimilt
að skipta um skoðun og ganga úr
þeim samtökum aftur ef þeim fynd-
ist þau ekki þjóna þeim tilgangi sem
ætlast væri til. Það ætti raunar að
vera fyrsta skrefíð að segja sig úr
stjómmálasamtökum geti félags-
menn ekki hugsað sér að styðja
þau. Stefanía sagði rangt að fram-
boðsmál Alþýðubandalagsins
stefndu í vandræði enda þótt í gær
hefðu borist fréttir af því Gunnar
H. Gunnarsson og Amór Pétursson,
sem gefið höfðu kost á sér í forvali
því sem Alþýðubandalagið hyggst
efna til fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar, hafi dregið framboð sitt til
baka. Stefanía sagði að kjömefnd
félagsins hefði aðeins tekið til starfa
um síðustu mánaðamót og ljóst væri
að listi Alþýðubandalagsins mundi
verða tilbúinn fyrir lok tilskilins
frests samkvæmt lögum flokksins
og landsins. Samkvæmt samþykkt
flokksins munu tólf manns verða í
kjöri í forvali sem haldið verður og
ætlunin er að verði bindandi fyrir
fímm efstu sæti en kjörnefnd mun
að öðra leyti stilla upp lista.
Aðspurð hvort með þessu væri
Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur
formlega klofnað sagðist Stefanía
ekki sjá annað en að yfirlýsing henn-
ar í kjölfar síðasta landsfundar
flokksins í þá vera, að staðfest væra
merki djúpstæðs klofnings innan
félagsins væri jafnsönn í dag og þá,
en hvorki meira né minna.
Karl Þorsteins
með fiillt hús
KARL Þorsteisns, Polugajevsky
og Azmajparasvílíj eru efstir og
jafnir með þijá vinninga hver að
loknum þremur umferðum á
Reykjavikurskákmótinu. Helgi
Ólafsson og Jón L. Árnason hafa
hlotið tvo og hálfan vinning.
í þriðju umferð, sem tefld 'var í
gærkvöldi, vann Karl Margeir, Helgi
gerði jafntefli við Wedberg, Jón L.
gerði jafntefli við Túkmakof, Pól-
ugajevskíj vann Ivanof og Azmaj-
prasvílíj vann Hellers. Þröstur Þór-
hallsson tapaði fyrir Dreev en Þröst-
ur Ámason gerði jafntefli við Mort-
ensen. Halloúi' Gréti.r Einarsson
gerði iafntefli við Geiler og síðast
þegar "fréttist hafði Hannes Hlífar
góða jafnteflismöguleika í heldur
verri stöðu gegn Vaganjan.
Sjá skákþátt á bls. 46 og 47.