Morgunblaðið - 20.03.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.03.1990, Blaðsíða 15
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990 15 Staðreyndir um félags- lega húsnæðiskerfið eftir Grétar J. Guðmundsson Sigurður T. Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafn- arfirði, skrifaði grein í Morgunblaðið 10. mars sl. um húsnæðisekluna í Hafnarfirði. Þar segir hann að þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir Verka- mannafélagsins Hlífar um úrbætur í húsnæðismálum, hafí yfirmenn hús- næðismála í landinu ekki látið frá sér heyra eitt einasta orð, að þeir ætli að leiðrétta það hróplega rang- læti, sem lágtekjufólk í Hafnarfirði er gert að búa við. Ástæða er til að leiðrétta ótrúlegan misskilning sem fram kemur í grein Sigurðar. Félagsmálaráðherra, sem yfir- maður húsnæðismála í landinu, hefur látið í sér heyra hvernig bæta á úr húsnæðisvanda lágtekjufólks. Það hefur félagsmálaráðherra gert með því að láta verkin tala. Aukning félagslegra íbúða Stóraukin áhersla hefur verið lögð á félagslegar íbúðabyggingar á síðastliðnum þremur árum. Til marks um það átak sem gert hefur verið í uppbyggingu félagslegra íbúða má m.a. nefna eftirfarandi: 1. Árin 1988 og 1989 hafa verið heimiluð lán til 1.237 félagslegra íbúða. Til samanburðar voru veitt 1.764 lán til félagslegra íbúða á öllu tímabilinu 1980-87, eða á átta ára tímabili. 2. Á árinu 1989 veitti Húsnæðis- stofnun ríkisins samtals 6,4 milljarða króna í byggingarlán, þar af voru um 2,3 milljarðar króna, eða rúmlega 36%, úr Byggingarsjóði verkamanna. Ef þær 525 milljónir króna sem veitt- ar voru úr Byggingarsjóði ríkisins til kaupleiguíbúða á árinu 1989 eru taldar með lánum til félagslegra íbúða, má segja að Húsnæðisstofnun ríkisins hafi lánað um 2,9 milljarða króna til félagslegra íbúða á árinu 1989 og er það um 45% af bygging- arlánum stofnunarinnar það ár. 3. Aukning byggingarlána úr Byggingarsjóði verkamanna var 31,4% að raunvirði milli áranna 1988 og 1989. Frá árinu 1986 hafa útlán úr Byggingarsjóði verkamanna til félagslegra íbúða aukist um 134% að raunvirði. Áframhald verður á þessari þróun á yfirstandandi ári. 4. Því markmiði hefur verið náð, sem sett er fram í lögum um Bygg- ingarsjóð verkamanna, að þriðjungur nýrra lána sem veitt eru á Húsnæðis- stofnun ríkisins skuli vera til félags- legra íbúða. Furðulegur málflutningur Það sætir furðu hvernig Sigurður T. Sigurðsson hagar málflutningi sínum. Á síðasta ári sótti Stjórn verkamannabústaða í Hafnarfirði um lán til að byggja 120 verkamannabú- staðaíbúðir á árinu 1990. Húsnæðis- málastjórn samþykkti að veita fjár- magn til byggingar 40 íbúða. Þetta segir Sigurður að sé niðurskurður á fjármagni til félagslegra íbúðabygg- inga í Hafnarfirði upp á rúmlega 73%. Sigurður ásakar núverandi félags- málaráðherra fyrir að sitja við að skera niður fjármagn til félagslegra íbúða í Hafnarfirði. En hverjar eru svo staðdreyndirnar? Enginn niður- skurður hefur verið á fjármagni til félagslegra íbúðabygginga og íbúða- kaupa í Hafnarfirði. Þvert á móti hefur eins miklu fjármagni aldrei verið varið til félagslegra íbúða og í tíð núverandi félagsmálaráðherra. Heimild hefur verið veitt til bygging- ar eða kaupa 218 félagslegra íbúða í Hafnarfírði á tímabilinu frá 1980 til 1989. Þar af var veitt heimild til byggingareða kaupa 127 félagslegra íbúða á tímabilinu frá 1987 til 1989. Um 60% af uppbyggingu félagslega húsnæðiskerfísins í Hafnarfirði á síðustu tíu árum hefur því átt sér stað á síðustu þremur árum, í tíð núverandi félagsmálaráðherra. Það er ekki niðurskurður á fjár- magni til félagslegra íbúða að verða ekki við öllum umsóknum. Það er „Það er ekki niðurskurður á fjármagni til félagslegra íbúða að verða ekki við öll- um umsóknum. Það er hins vegar aukning á fjármagni til félagslegra íbúða að veita heimild til byggingar eða kaupa fleiri íbúða frá einu ári til annars.“ hins vegar aukning á fjármagni ti! félagslegra íbúða að veita heimild til byggingar eða kaupa fleiri íbúða frá einu ári til annars. Úthlutun lána Félagsmálaráðherra úthlutar ekki lánum Húsnæðisstofnunar ríkisins, það gerir húsnæðismálastjórn. Fé- lagsmálaráðherra sér um að tryggja Húsnæðisstofnun ríkisins fjármagn til að stofnunin geti afgreitt lánsum- sóknir. Þegar umsóknir um lán til félagslegra íbúða eru afgreiddar þarf húsnæðismálastjórn að taka tillit til landsins í heild. Lánum er úthlutað með tilliti til umsókna, þarfa á hveij- um stað og þess fjármagns sem til úthlutunar er. Miklar breytingar Miklar breytingar hafa verið gerð- Grétar J. Guðmundsson ar á húsnæðiskerfinu á síðastliðnum tveimur árum. Þar má nefna kaup- leiguíbúðir og húsbréfakerfið. Jafn- framt eru í undirbúningi enn frekari breytingar á félagslega húsnæði- skerfínu, en frumvarp um það liggur nú fyrir Alþingi. Bættar húsnæðisaðstæður lág- tekjufólks hafa verið forgagnsverk- efni núverandi félagsmálaráðherra. Lækkun húsnæðiskostnaðar er líklega einhver besta kjarabót sem lágtekjufólk getur fengið. Þess vegna hefur félagsmálaráðherra lagt þá áherslu á húsnæðismálin sem raun ber vitni. Ef Sigurður T. Sigurðsson vill bæta úr húsnæðisvanda lágtekju- fólks á hann að aðstoða félagsmála- ráðherra við að koma þeim endurbót- um á félagslega húsnæðiskerfinu í gegn sem í undirbúningi er, en ekki beija hausnum við steininn og skella fram röngum fullyrðingum um þær miklu framfarir sem orðið hafa í þessum málaflokki á síðastliðnum þremur árum. Höfiindur er aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. , Vikulegt dagflug til Mallorca í sumar 30 s' IMIIfflMlllllllllllllllll íífó daga ferð 22. apríl 38.000* Verð frá * staðgreiðsluvcrð 2 fullorönir og 2 börn 2ja-I6 ára. - ...., eða * staðgreiösluvcrð 2 í íbúð. 3 'ja vikna ferðir 22. maí / 12. júní / 3. júlí / 4. sept. Verð frá * staðgreiðsluvcrð 2 fullorðnir og 2 born 2ja~U ára. 66.100* *: staðgrciðsluvcrð 2 i stldíói. BROTTFARARD. TIL MAUORCA í SUMAR 09.04 22.04 22.05 05.06 12.06 19.06 26.06 03.07 10.07 17.07 24.07 31.07 07.08 14.08 21.08 28.08 04.09 11.09 18.09 25.09 02.10 23.10 Miðað við gæði. Gerðu kröfur um gott og öruggt sumarleyfi — það gera okkar farþegar SIMI28388 LMiiíiriiiáH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.