Morgunblaðið - 20.03.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
21
Jarðskjálftar skóku Reykja-
nes og höfuðborgarsvæðið
Lítið eignatjón og
engin slys á fólki
SKJÁLFTAHRINA hófst í Sveiflu-
hálsi vestan við Kleifarvatn á
fimmta tímanum aðfaranótt laug-
ardags og hefur staðið síðan.
Sterkasti skjálftinn var klukkan
10.46 í gærmorgun, 4,7 stig á
Richterkvarða, og honum fylgdu
nokkrir veikari á bilinu 3,2 til 4,0
á Richter. í skjálftahnnunni hafa
tíu kippir fundist á höfuðborgar-
svæðinu og í sterkasta skjálftanum
sem skók höfuðborgina er talið
að minniháttar sprungur hafi
komið í hús og eitthvað var um
að smáhlutir féllu niður úr hillum
eða færðust úr stað. Ekkert tjón
var þó tilkynnt til lögreglu eða
þeirra tryggingafélaga sem haft
var samband við í gær og ekki var
vitað um slys á fólki. Stærsti kipp-
urinn fannst allt vestur í Búðardal
og austur í Austur-Landeyjar.
Upptök jarðskjálftanna eru í
Sveifluhálsi, vestan við Kleifarvatn.
Fyrsti skjálftinn varð klukkan 4.18
aðfaranótt laugardags. Alls hafa tíu
skjálftar fundist og hundruð smærri
hafa orðið. Að sögn Barða Þorkels-
sonar, jarðfræðings á Veðurstofu
íslands, er ástæða skjálftanna sú að
þama núast tvær plötur saman og
við það myndast spenna sem losna
þarf úr læðingi og er það að gerast
nú. Jarðskjálftar eru nokkuð tíðir
þarna og verða því fremur veikir.
1968 og 1973 urðu síðast nokkuð
stórir skjálftar á þessu svæði.
Skjálftinn 1968 átt upptök sín í
Brennisteinsfjöllum austan við Kleif-
arvatn og var um 6 stig og 1973
varð jarðskjálfti vestan við Kleifar-
vatn, nálægt Grindavík, og var hann
um 5 stig. Fundust báðir þessir
skjálftar á höfuðborgarsvæðinu og
skemmdir urðu á fasteignum í ná-
grenni við upptök þeirra.
Barði sagði að engin ástæða væri
til að tengja jarðskjálfta á þessum
slóðum Suðurlandsskjálftanum,
þetta svæði væri annars eðlis. Þá
JARÐSKJÁLFTi
^suekur suðvesturhorni
Snarpasti kippurinn í jarð-
skjálftahrinunni í Sveifluhálsi í
gær var 4,7 stig á Richter. Hans
varð mjög vel vart á Höfuð-
borgarsvæðinu og á Reykja-
nesi. Skjálftans varð einnig
vart allt til Búðardals í norðri
ogLandeyjaíaustri
Talið er að jarðskjáiftarnir
hafi átt upptök sín við
vatnið suðvestanvert.
væri ekki ástæða til að óttast eld-
gos, engin eldvirkni hefði verið á
Reykjanesskaganum frá því á 12.
eða 13. öld.
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur flaug síðdegis í gær með
þyrlu Landhelgisgæslunnar yfir upp-
takasvæði jarðskjálftanna. Sagðist
hann hafa séð lítið eitt gijóthrun í
hlíðum Sveifluháls. Jörðin hefði
greinilega hristst hressilega en þó
ekki sprungið.
Ragnar sagði að búast mætti við
að jarðskjálftahrinan stæði í einn til
tvo daga til viðbótar og væri ekki
ólíklegt að kippir svipaðir þeim sem
urðu í gær yrðu á þeim tíma. Al-
mannavarnir ríkisins sendu frá sér
fréttatilkynningu í gær þar sem fólk
er hvatt til að kynna sér vel leið-
beiningar Almannavarna um við-
brögð gegn jarðskjálftum, á blaðsíðu
860 í símaskránni, þó ekki væri til-
efni til að óttast stóra jarðskjálfta.
Ennfremur segir að Almannavarnir
muni fylgjast náið með framvindu
mála.
Stærsti jarðskjálftakippurinn í
gærmorgun fannst um allt Suðvest-
urland. Hann fannst vestur í Helga-
fellssveit á Snæfellsnesi og í Búðar-
dal og austur á Hvolsvelli og í Aust-
ur-Landeyjum. Kippurinn fannst vel
í kaupstöðunum á Reykjanesskagan-
um.
„Ég sat í stól heima og fannst
eins og ekið væri a húsið, hélt að
ruslabíllinn hefði keyrt á það og hljóp
út að glugga," sagði Hálfdán Ólafs-
son, húsvörður Hallgrímskirkju og
íbúi við Eskihlíð, um skjálftann sem
varð 14 mínútur fyrir 11 í gærmorg-
Skoðanakönnun SKÁIS:
56,6% fylgi Sjálfstæðisflokks
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 56,6% atkvæða yrði gengið til alþingis-
kosninga nú, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar SKÁÍS, sem
Stöð 2 greindi frá í gærkvöldi. Fylgistap yrði mikið hjá öllúm stjórnar-
flokkunum og þingsætum þeirra fækkaði um helming.
Óákveðnir af ríflega 700 manna
úrtaki könnunarinnar voru um 28%.
Samkvæmt könnuninni fengi Sjálf-
stæðisflokkur stuðning 56,6% þeirra,
sem afstöðu tóku, en hann fékk
27,2% í þingkosningunum 1987. Al-
þýðuflokkurinn fengi 8,2% (15,2%),
Alþýðubandalagið 8,2% (13,4%),
Framsóknarflokkurinn 13,7%
(18,9%), Kvennalistinn 11,6%
(10,1%). Framsóknarflokkurinn hef-
ur sjaldan staðið lægra í skoðana-
könnunum en nú. Borgaraflokkur,
Frj álslyndi hægriflokkurinn og Sam-
tök um jafnrétti og félagshyggju
fengju engan þingmann kjörinn sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinnar.
Þessar kosningatölur myndu gefa
Sjálfstæðisflokknum 38 þingsæti og
þar með meirihluta á þingi, en flokk-
urinn hefur nú 18 þingmenn. Al-
þýðuflokkur fengi fimm þingmenn
en hefur nú tíu, Alþýðubandalagið
fengi fimm þingmenn miðað við átta,
Framsóknarflokkurinn átta en hefur
þrettán og Kvennalistinn myndi bæta
við sig einu sæti og fá sjö þingmenn.
MORSE CONTROL
Stjórntæki fyrir vélar og gíra, spil o.fl. Mikið úrval fyrirliggjandi. Flestar lengdir og
sverleikar af börkum. Stýrisvélar og stýri fyrir allar vélategundir og bátagerðir.
Hagstætt verð -
leitið upplýsinga.
LASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
Morgunblaðið/RAX
Skriður féllu í hlíðum Sveifluháls í gærmorgun, eins og sést á þess-
ari mynd sem tekin var í austurhlíðum hálsins.
un. Starfsmenn ístaks voru uppi í
byggingarkrana við ráðhúsbygging-
una við Reykjavíkurtjörn. Einn þeirra
sagði að kraninn hefði farið að hrist-
ast en strákarnir látið lítið yfir þessu,
enda oft meiri hristingur á tækjunum
þegar kraninn væri að vinna.
Ekkert fólk var. í námunda við
upptök skjálftanna. Næstu hús eru
í Krísuvík en þar var enginn í gær-
morgun. Þegar skemmdir voru kann-
aðar síðdegis í gær komu í ljós nýjar
sprungur á skólahúsnæði Krísuvíkur-
samtakanna en ekki stórvægilegar
skemmdir, að sögn Snorra Weldings,
framkvæmdastjóra samtakanna.
Myndir skekktust á veggjum í vinnu-
stofu Sveins Björnssonar listmálara
í bústjórabústaðnum, stytta féll í
gólfið og eyðilagðist og eldavél færð-
ist til, að sögn Sveins.
Næstu byggðir eru í Grindavík,
Selvogi, Vatnsleysuströnd og Hafn-
arfirði. ísólfur Guðmundsson, bóndi
í ísólfsskála austan við Grindavík,
sagði að skjálftinn hefði ekki fundist
þar á bæ. I stóra skjálftanum 1973
hristist allt og skalf, gijót kastaðist
til í ijallinu eins og jarðýtu hefði
verið beitt á það og skarð kom í
veginn til Grindavíkur þannig að
hann varð ófær, að sögn Isólfs. Þor-
steinn Hjaltason, fólkvangsvörður í
Bláfjöllum, sagði: „Þetta var sér-
kennileg reynsla. Við sátum inni í
skíðaskálanum og vorum að spjalla
saman þegar við heyrðum hvin og
síðan fóru mennirnir sem sátu á
móti mér að vagga og jafn skrítinn
svipur kom á þá og mig því þeir sáu
mig hreyfast á sama hátt. Það heyrð-
ust brestir í húsinu.“
ALLT AÐ VERÐA UPPPANTAÐ
FYRIR FERMINGARTÖKURNAR
VERTU EKKIOF SEINN
Myndatökur frá kr. 7.500.-
Ljósmyndastofurnar:
Barna og Fjölskylduljósmyndir
Reykjavík
sími: 12644
Mynd Hafnarfirði,
sími: 54207
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími: 43020
Öllum okkar tökum fylgja tvær
prufustækkanir 20x25 cm.
Vinningstölur laugardaginn
17. mars ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 2 1.158.402
O Z. 4 af 5^0 3 134.253
3. 4af5 101 6.878
4. 3af 5 3.427 473
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.035.212 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002