Morgunblaðið - 20.03.1990, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
UMBROTIN I SOVETRIKJUNUM
Miklar heræfingar
í Litháen valda ótta
Stjómin biður um viðurkenningu annarra þjóða á sjálfstæðinu
ast að verða við þessari ósk,“ sagði
í yfirlýsingu stjórnarinnar sem
send var erlendum fréttastofum í
Moskvu. Áður hafði forseti Lithá-
ens, Vytautas Landsbergis, gefið
í skyn að ekki yrði látið undan
áðurnefndum kröfum Gorbatsjovs
sem einnig hefur lagt til að þjóðar-
atkvæði verði haldið um sjálfstæð-
ið. Landsbergis sagði að Litháar
hefðu margt annað að gera en
efna til þjóðaratkvæðis og benti á
að þjóðin hefði þegar sýnt ótvíræð-
an vilja sinn i frjálsum kosningum.
Kommúnistar, sem biðu ósigur
í kosningunum nýverið fyrir þjóð-
arheyfingunni Sajudis, hafa tekið
sæti í stjórn landsins. Þingið kaus
Kazimii'u Prunskene, sem er hátt-
sett í kommúnistaflokknum og í
fararbroddi umbóta- og sjálfstæð-
issinna í flokknum, í embætti for-
sætisráðherra og hlaut hún þorra
atkvæða. Um 30.000 manns af
rússneskum ættum efndu til mót-
mæla í Vilnius á sunnudag til að
mótmæla sjálfstæðisyfirlýsing-
unni en mun fleiri söfnuðust sam-
an á laugardag til að fagna sjálf-
stæðinu.
Reuter
Þúsundir Letta veifa fána landsins á útifundi í höfúðborginni Riga
á sunnudag. Sjálfstæðissinnar unnu mikinn sigur í kosningum til
þinga Lettlands og Eistlands og fengu meirihluta þegar í fyrri um-
ferð kosninganna. Síðar verður kosið milli tveggja efstu manna þar
sem enginn hlaut hreinan meirihluta, einnig í þeim kjördæmum þar
sem þátttaka var of lítil.
Moskvu. Reuter og Daily Telegraph.
RAUÐI herinn hélt umfangsmiklar heræfingar í Litháen á sunnu-
dag, daginn áður en þriggja daga firestur er Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti hafði sett landsmönnum til að draga til baka sjálfstæð-
isyfirlýsinguna rann út. Forsetinn sagði á sunnudag að ekki væri
um neina úrslitakosti að ræða en útskýrði mál sitt ekki frekar.
Liháenskir embættismenn sögðu að herflugvélar hefðu flogið yfir
allar helstu borgir landsins, þ. á m. höfúðborgina Vilnius, og víða
voru skriðdrekar notaðir við æfingarnar. Fregnir bárust af liðs-
flutningum Rauða hersins til Litháens frá Sovétríkjunum m.a. til
þorpa í grennd við Vilnius.
Á laugardag bað ný ríkisstjóm
Litháens lýðræðisríki um allan
heim að viðurkenna sjálfstæði
landsins frá Sovétríkjunum sem
lýst var yfir einhliða 11. mars með
því að staðfesta sjálfstæðisyfírlýs-
inguna frá 1918.
„Það yrði mikilvægt tákn um
stjórnmálalegan og siðferðislegan
stuðning ef viðurkennd yrðu lög
og aðrar ákvarðanir sem gerðar
voru 11. mars 1990 ogjafnframt
viðurkennd ný ríkisstjórn Lithá-
ens. Við biðjum ykkur vinsamleg-
Lög sett um markaðskerfi og
hlutafélög fyrir mitt sumar
Verðmyndunarkerfið stokkað upp og kverkatak ríkiseinokunar afiiumið
Moskvu. Reuter.
MIKHAÍL Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, ætlar að setja lög
um róttækar umbætur í efina-
hagslífinu fyrir 1. júlí næstkom-
andi með það fyrir augum að
koma á markaðskerfi í landinu.
Var þetta haft eftir sovéskum
hagfræðingum í gær, sem sögðu,
að meðal annars yrði verðmynd-
unarkerfið stokkað upp og búið
í haginn fyrir stofnun hlutafé-
laga.
„Teningunum er kastað. Mark-
miðið er að losa kverkatak ríkisein-
okunarinnar á efnahagslífinu,“
sagði einn hagfræðinganna.
„Ástandið er slæmt og versnar stöð-
ugt og því megum við engan tíma
missa.“
Interfax, fréttabréf Moskvuút-
varpsins, sem oft hefur flutt fyrstu
fréttir um fyrirætlanir stjórnvalda,
sagði fyrir nokkrum dögum, að
Leoníd Abalkín aðstoðarforsætis-
ráðherra væri aðalhöfundur efna-
hagstillagnanna og ennfremur, að
hann og samstarfsmenn hans hefðu
verið sammála um, að efnahagsum-
bæturnar í Póllandi væru fyrir-
myndin fyrir Sovétmenn.
í reynd hafa Finnar hins vegar
viðurkennt tilvist sovétlýðveldanna
Eistlands, Lettlands og Litháens.
Urho Kekkonen fyrrum forseti
veitti þessa viðurkenningu á sjö-
unda áratugnum þegar hann heim-
sótti Tallinn, höfuðborg Eistlands.
Þessi stefna finnsku ríkisstjóm-
arinnar er ekki frábrugðin stefnu
margra annarra ríkja, en sjálfstæð-
isyfirlýsing Litháa hefur samt vakið
í ræðu, sem
Gorbatsjov flutti
í síðustu viku
eftir að hann
hafði verið kjör-
inn í hið nýja
forsetaembætti,
boðaði hann rót-
tækar breyting-
ar á efnahagslíf-
inu og Níkolaj
Petrakov, einn helsti efnahags-
ráðgjafi hans, staðfesti það um
helgina þegar hann sagði í viðtali
við Interfax, að erlend fyrirtæki
ættu að geta eignast hlut í sovésk-
um fyrirtækjum. Sagði hann, að
opna yrði sovéska hagkerfið til að
það gæti lagað sig að og orðið þátt-
takandi í hinni alþjóðlegu verka-
skiptingu. Þá vildi Petrakov ekki
útiloka, að Sovétmenn þægju er-
lenda aðstoð í líkingu við Marshall-
aðstoðina eftir stríð.
Interfax sagði, að hópur 60 sér-
fræðinga með Abalkín í broddi fylk-
ingar hefði komist að þeirri niður-
stöðu, að hálfkákið hingað til hefði
gert illt verra og Petrakov sakaði
stjórnina um að fylgja „brjálaðri
fjárfestingarstefnu" með því að
ausa fé í risavaxin iðnaðarævintýri,
umræðu um þau skilyrði sem Finnar
telja nægileg fyrir því að veita við-
urkenningu. Fyrir skömmu ákvað
stjórnin að viðurkenna sjálfstæði
Namibíu um leið og landið gerist
sjálfstætt ríki 21. mars nk. Að þvf
best er vitað höfðu Namibíumenn
ekki leitað til finnsku ríkisstjórnar-
innar í þessum efnum og var staða
þeirra þess vegna sú sama og staða
Litháa.
sem ekki væri unnt að ljúka, og
með því að missa stjórn á launamál-
unum. Erlendir stjórnarerindrekar
í Moskvu telja, að þessum skeytum
sé aðallega beint að Níkolaj Ryzh-
kov forsætisráðherra og muni stutt
í að hann fari frá.
í ræðu sinni í síðustu viku sagði
Gorbatsjov, að það væri „efnahags-
legá, stjórnmálalega og sálfræði-
lega“ flókið mál að koma á mark-
aðskerfi í Sovétríkjunum og átti þá
augljóslega við ótta margra við
„afturhvarfið til kapítalismans".
Um þetta og áhrif kommúnismans
JEGOR Lígatsjov, einn helsti
frammámaður afturhaldsmanna
í sovéska kommúnistaflokknum,
gerði á föstudag harða hríð að
Míkhaíl Gorbatsjov forseta.
Lígatsjov sagði að umbótastefha
leiðtogans væri að koma Sov-
étríkjunum á kné og splundra
sósíalísku samfélagi í landinu.
Þessi ummæli komu fram í ræðu
Lígatsjovs á miðstjórnarfúndi
kommúnista sem birt var í
flokksmálgagninu Prövdu á
sunnudag ásamt öðrum ræðum
á fundinum.
„Helsta ástæða þess að ástand-
ið er svo alvarlegt í landinu er að
flokknum hefur hnignað hvað
snertir hugmyndafræði og skipu-
lag,“ sagði Lígatsjov. Hann taldi
nýtt forsetaembætti með stór-
auknum völdum, sem Gorbatsjov
hefur tekið við, ekki geta leyst
vandann, það gætu aðeins flokkur-
inn og sovétin í sameiningu. Sovét-
in, héraðsráðin, áttu upphaflega
að vera þær stofnanir sem mótuðu
stefnuna eftir að bolsévikar rændu
völdum í landinu 1917. „Það er
sagt að breytingarnar í Austur-
Evrópu geri kleift að skapa eitt
menningarsamfélag,“ sagði
Lígatsjov. „Það getur verið. En
á hina rússnesku þjóðarsál hefur
nokkuð verið fjallað í sovéskum fjöl-
miðlum að undanförnu, meðal ann-
ars í Moskvusjónvarpinu, sem hafði
viðtal við gamla konu, sem bjó við
sárustu fátækt í þorpi á lands-
byggðinni.
„Byltingin gaf okkur nýtt líf,“
sagði gamla konan um leið og hún
öslaði forina inn í húskofa, sem virt-
ist að hruni kominn, og nældi sér
í matarbita úr niðursuðudós. „Ef
kapitalistamir koma aftur taka þeir
allt þetta frá mér.“
nú er allt annað
að gerast. Ég
styð að sjálf-
sögðu samvinnu
ólíkra landa en
hún má ekki
verða á kostnað
sósíalismans,
ekki verða til að
styrkja kapítal-
ismann. Allt stefnir í þessa átt.
Atlantshafsbandalagið (NATO)
styrkir stöðu sína og samfélag
sósíalistaríkja er að hrynja.“
Lígatsjov sagði að Gorbatsjov
hefði átt sinn þátt í hruni kommún-
istastjórna í Á-Evrópu með því að
styðja ekki við bakið á þeim. Einn-
ig áform Þjóðveija, einkum mögu-
lega aðild alls landsins að NATO,
og taldi ljóst að baráttan á al-
þjóðavettvangi stæði enn milli só-
síalisma og kapítalisma.
Lígatsjov, sem á sæti í valda-
mestu stofnun landsins, stjórn-
málaráðinu, sagði breytingarnar í
A-Evrópu fela í sér afturhvarf til
kapítalismans og rétt væri að við-
urkenna opinskátt að þetta væri
ósigur fyrir sosíalismann. Hins
vegar væri hann sjálfur bjartsýnis-
maður og teldi að í sögulegu tilliti
væri þetta aðeins tímabundið áfall.
Litháum leikur forvitni á að vita
hver viðbrögð ríkja á Vesturlönd-
um við sjálfstæðisyfírlýsingunni
hafa orðið. Svo virðist sem litlar
fréttir hafi borist til Litháens um
viðbrögð við sjálfstæðisyfirlýsing-
unni.„Hefur Margaret Thatcher
[forsætisráðherra Bretlands] veitt
okkur viðurkenningu,“ spurðu
vegfarendur í Vilnu, höfuðborg
Litháens, blaðamann breska blaðs-
ins Daily Télegraph, sem fór til
Litháens til að kynna sér ástandið
þar. „Styður Bush Bandaríkjafor-
seti okkur?“ spurðu aðrir.
Hann sagðist andvígur þeim sem
vildu innleiða einkaeign í Sov-
étríkjunum og breyta flokknum í
jafnaðarmannaflokk.
Ráðist á Lígatsjov
Umbótasinnar á miðstjómar-
fundinum deildu mjög á Lígatsjov
sem er 69 ára gamall og hefur
yfirumsjón landbúnaðarmála á
sinni könnu. Talsmaður umbóta-
sinna, Viktor Míshín, sagði
Lígastjov hafa gegnt mikilvægu
hlutverki er horfið var frá stöðnun
Brezhnev-tímans en nú væri hann
orðinn holdtekja afturhaldssem-
innar. „Getur stjórnmálamaðurinn
Lígatsjov tekið róttækum breyt-
ingum héðan af? Ég hygg að það
geti hann aðeins með því að losa
sig við sjálfan persónuleikann.“
Míshín kvaðst ekki heimta afsögn
en bað Lígatsjov um að draga sig
í hlé af fúsum og fijálsum vilja
til að treysta framtíð flokksins.
Lígatsjov vísaði kröfunum á
bug. „Þegar kommúnisti hverfur
úr hárri stöðu vegna hrópa lýð-
skrumara eða hópa jafngildir það
úrsögn úr flokknum. Þeir vilja
bara bijóta okkur niður, siðferðis-
lega jafnt sem sálfræðilega,“ sagði
hann.
Finnar viðurkenna ekki
sjálfstætt ríki Litháa
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaösins.
FINNSKA ríkisstjórnin ætlar ekki að viðurkenna sjálfstæði Lithá-
ens. Að minnsta kosti ekki fyrr en Litháar hafa fengið viðurkenn-
ingu frá Moskvu. Ríkisstjórnin gefúr þá skýringu í þessu máli að
stefna Finnlands hafi verið að viðurkenna sjálfstæði ríkis þegar
nýtt ríki biður formlega um viðurkenningu; Litháar hafi ekki gert
þetta. Hins vegar bendir stjórnin einnig á það að Finnar hafi aldrei
formlega viðurkennt innlimun Eystrasaltsríkjanna þriggja í Sovétrík-
in.
Gorbatsjov .
Lígatsjov segir umbóta-
steftiuna knésetja landið
Moskvu. Reuter.