Morgunblaðið - 20.03.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
37
IngileifEyleifs-
dóttir - Minning
Fædd 26. janúar 1928
Dáin 12. mars 1990
Vina mín er farin yfir móðuna
miklu, aftur vorar og sólin skín, þá
mun ég ávallt minnast hennar.
Já, einhvern tíma munu allir
menn deyja, mér fannst eins og eitt-
hvað brysti innra með mér, þegar
Einar sonur hennar Ingu vinkonu
hringdi til mín og sagði, „mamma
dó í dag“. Þó að ég hafi vitað um
alvarleg veikindi Ingu undanfarin
tvö ár, þá er það nú þannig að
maður er ekki viðbúinn dauðanum.
Við Inga kynntumst fyrst með
bréfaskriftum gegnum barnablaðið
Æskuna. Þegar Inga var 10 ára
kom hún í heimsókn tii mín með
Guðmundi bróður sínum, sem nú er
látinn. Þau komu á mótorbát til
Sandgerðis frá Akranesi og ég man
hvað mér fannst hún dugleg að fara
svona langt með bát. Eftir þessi
kynni rofnuðu ekki þau tryggðar-
bönd sem þá mynduðust.
Inga átti alla sína ævi heima á
Akranesi, og heimsóttum við alltaf
hvor aðra, og eftir að við giftum
okkur voru makar okkar ávallt með
í heimsóknunum. Oft var glatt á
hjalla hjá okkur, sérstaklega þegar
hún var með synina litla og ekki
var Inga að æðrast yfir því þótt
stundum blési á móti. Þá hló bara
Inga mín og sagði ,já, svona er
lífið“.
Ég þakka henni fyrir öll þau góðu
ár sem við áttum saman.
Elsku Einar, synir, tengdadætur
og barnabörn, ég votta ykkur öllum
samúð mína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skal.
(V. Briem)
Dísa Þorgils
Hinn 12. mars síðastliðinn lést í
sjúkrahúsinu á Akranesi svilkona
mín, Ingileif Eyleifsdóttir, eftir
langvarandi og þjáningarfull veik-
indi, aðeins 63 ára að aldri. Inga,
en svo var hún jafnan nefnd, var
borinn og barnfæddur Akurnesing-
ur, dóttir sæmdarhjónanna Eyleifs
ísakssonar skipstjóra og konu hans
Sigríðar Sigmundsdóttur. Ung að
aldri gekk Inga í hjónaband með
Einari Kristjánssyni skipstjóra frá
Akureyri, miklum dugnaðar- og at-
orkumanni og eignaðist með honum
5 mannvænlega syni sem allir hafa
eignast sitt heimili og fjölskyldu.
Fyrir hjónabandið eignaðist Inga
son sem að mestu leyti ólst upp hjá
foreldrum hennar.
Barnabörn Ingu eru 12 og voru
þau henni mikill gleðigjafi og ævin-
lega miklir aufúsugestir á hennar
fallega heimili. Kunnu þau vel að
meta ástúð og umhyggju ömmu
sinnar og hændust því mjög að
henni.
Snemma á búskaparárum sínum
byggðu Einar og Inga sér veglegt
hús við Vesturgötu á Akranesi og
var heimili þeirra alla tíð rómað
fyrir gestrisni og myndarskap. Inga
hafði yndi af blómum og öllum
gróðri og einnig var hún mikil hann-
yrðakona og prýddi heimili sitt með
fögrum munum sem hún hafði unn-
ið af smekkvísi og vandvirkni í stop-
ulum frístundum sínum.
Eins og fyrr getur var Inga sjó-
mannsdóttir og var gift sjómanni.
Sjálf vann hún við fiskvinnslu með
heimilisstörfum og barnauppeldi af
miklum dugnaði svo að orð fór af
hjá samstarfsfólki hennar og hús-
bændum.
Inga var dul kona og flíkaði ekki
tilfinningum sínum en að sama
skapi var hún ákaflega tryggur vin-
ur vina sinna og gerði sér far um
að sýna það í verki. Persónulega
langar mig, sem þessar línur rita,
að þakka Ingu af alhug elskusemi
og einlæga vináttu við mig og fjöl-
skyldu mína um áratugaskeið, sem
aldrei féll skuggi á. Ég minnist fjöl-
margra stunda sem við Inga nutum
saman til skiptis á heimilum okkar
á Akranesi og í Reykjavík, stunda
sem ég geymi þakklátum huga um
ókomna tíð.
Ég og fjölskylda mín öll sendum
með virðingu og söknuði samúðar-
Guðrún Óskars-
dóttir - Minning
Fædd 11. október 1916
Dáin 9. marz 1990
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Móðursystir mín, Guðrún
Óskarsdóttir, lést að morgni 9.
marz sl Ekki er ætlun mín að
skrifa langa grein í minningu
hennar, einungis langar mig að
þakka henni fyrir margra ára
umönnun við mig og dætur mínar
Ijórar og barnabarn. Ég var ekki
há í loftinu þegar mér var ljóst að
það besta sem hægt var að fá, var
að fara heim með Gunnu frænku
og eyða degi eða helgi hjá henni,
alltaf var gert eitthvað spennandi.
Já, það var alltaf nóg hjá henni
að gera. Bömin elskaði hún og
öllum vildi hún gott gera og oft
var gert meira en hægt var, þótt
maður hafi ekki séð það fyrr en á
fullorðinsaldri. Ömmuhlutverkið
bættist við þegar móðir mín, Þuríð-
ur Óskarsdóttir, lést árið 1972, og
stóð Gunna frænka með okkur eins
og klettur í þeirri sorg. Hjartans
þakkir langar mig að færa til
Bjargar Elísdóttur mágkonu henn-
ar fyrir alla þá hlýju og umhyggju
sem hún ávallt sýndi Guðrúnu
bæði í orði og verki, veit ég að það
var gagnkvæmt. Að leiðarlokum
er komið, með þessum fátæklegu
orðum kveð ég frænku, þakka fyr-
ir allt það sem hún hefur gefið
mér og mínum á sinni lífsleið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir ailt og allt. '
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Petra Jónsdóttir
„Gott er sjúkum að sofna
meðan sólin er aftamjóð
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð."
(Davíð Stefánsson)
Nú er hún Gunna frænka mín
og nafna dáin. Það kemur flestum
að óvörum þegar ástvinir deyja,
söknuðurinn er sár og tómarúmið
mikið. Þetta á líka við þótt viðkom-
andi eigi að baki sjúkdóm og þján-
ingar og besta lausnin sé að fá að
sofna svefninum langa. Ljósið á
lífskertinu slokknar en minningin
um góða frænku þá allra bestu lif-
kveðjur til allra ástvina Ingileifar.
Blessuð sé minning mætrar konu.
Hjördís Magnúsdóttir
Okkur langar í fáeinum orðum
að minnast tengdamóður okkar,
Ingileifar Eyleifsdóttur, sem lést í
Sjúkrahúsi Akraness 12. marz
síðastliðinn.
Langri og erfiðri baráttu er lokið
og langþráð hvíld fengin.
Dauðinn er alltaf erfiður og erfitt
að sjá á bak þeim sem manni þykir
vænt um. En dauðinn getur líka
verið lausn, sérstaklega þeim sem
Iengi hafa barist við erfiðan sjúkdóm
og engin von er um bata.
Ingileif fæddist á Akranesi 26.
janúar 1928. Foreldrar hennar voru
hjónin Sigríður Sigmundsdóttir og
Eyleifur Isaksson frá Lögbergi. Þau ■
eru nú bæði látin. Sigríður og Eyleif-
ur eignuðust 8 börn, 2 dætur og 6
syni. 5 af systkinum Ingileifar
kveðja hana í dag, en tveir bræðr-
anna eru látnir.
Þann 12. apríl 1952 giftist Ingi-
leif eftirlifandi eiginmanni sínum,
Einari Kristjánssyni. Þau hafa búið
sinn búskap hér á Akranesi og
lengst af á Vesturgötu 161. Einar
og Ingileif eignuðust 5 syni. Þeir
eru:
Eymar, f. 26. des. 1950. Kona
hans er Geirfríður Benediktsdóttir
og eiga þau tvo syni. Þau búa á
Akranesi. Marteinn Kristján, f. 31.
október 1952. Hann býr á Siglu-
firði. Kristján, f. 31. maí 1955.
Kona hans er Ingibjörg Ingólfs-
ir. Systur mínar og sonur minn
kveðja og þökkum henni fyrir allt
sem hún var okkur. Guð blessi
hana og varðveiti minningu henn-
ar.
Sylvía Guðrún Eggertsdóttir
dóttir og eiga þau tvær dætur.
Kristján á einnig tvær dætur frá
fyrra hjónabandi. Einar Vignir, f.
13. des. 1958. Kona hans er Sigríð-
ur Ólafsdóttir og eiga þau tvær
dætur. Þau búa á Akranesi. Viggó
Jón, f. 12. febrúar 1965. Kona hans
er Hafdís Óskarsdóttir og eiga þau
eina dóttur. Þau búa á Siglufirði.
Áður hafði Ingileif eignast son,
Eyleif, f. 31. maí 1947. Faðir hans
var Hafsteinn Hannesson sem nú
er látinn. Eyleifur ólst upp hjá móð-
urforeldrum sínum, þeim Sigríði og
Eyleifi. Kona Eyleifs er Sigrún
Gísladóttir og eiga þau þtjú börn.
Þau búa á Akranesi.
Ingileif bjó manni sínum og son-
um failegt heimili, sem hún annað-
ist af kostgæfni auk þess að vinna
jafnan utan heimilisins, en í mörg
ár vann hún við fiskvinnslu. Báðum
þessum þátturn reyndi hún að skila
eins vel og hún gat þó oft yrði vinnu-
dagurinn langur.
Fyrir allmörgum árum fór svo að
bera á þeim sjúkdómi sem nú hefur
lagt hana að velli langt um aldur
fram. Fyrir 5 árum varð hún svo
að hætta að vinna og starfsgeta
hennar innan heimilis skertist líka
verulega og síðan má segja að hafi
hallað undan fæti jafnt og þétt.
í október 1988 lagðist hún svo-
inn á Vífilsstaðaspítala og dvaldist
þar samfellt í 10 mánuði. En hún
gafst ekki upp. Hún ætlaði sér að
komast aftur heim. Þangað leitaði
hugurinn alltaf og fram á síðustu
stundu var hún að gera áætlanir
varðandi framtíðina, áætlanir sem
allar stefndu að því að hag manns
hennar væri sem best borgið. í júlí
1989 var hún svo flutt á Sjúkrahús
Akranes's. Þar var hún komin nær
sínum nánustu og gat betur fylgst
með sínu fólki. Og heim náði hún
að komast, að vísu aðeins í skamm-
an tíma, en takmarkinu hafði' hún
náð. Síðustu tvo mánuðina dvaldi
hún svo samfellt á sjúkrahúsi. En
þrátt fyrir mörg áföll bar hún höfuð-
ið hátt og sjúkdómi sínum og örlög-
um tók hún með reisn.
Læknum og starfsfólki á Vífils-
staðaspítala og Sjúkrahúsi Akra-
ness eru færðar þakkir fyrir ein-
stæða hlýju og umönnun, en allt var
gert til að henni mætti líða sem best.
Einari og öðrum aðstandendum
vottum við samúð okkar og kveðjum
Ingileif að lokum með þessum orð-
um:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Sigrún Gísladóttir,
Sigríður Ólafsdóttir.
Blómastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími '31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
Múlalundur
SlMI: 62 84 50
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók. |
I
I
TÖKUM
UPP
DÓSIR
^gjjs
- að sjálfsögðu!