Morgunblaðið - 20.03.1990, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
fclk í
fréttum
MYNDLIST
Birgitta sýnir hugamyndir
Nýlega opnaði kornung lista-
kona, Birgitta Jónsdóttir,
sýningu á verkum sínum í Lista-
mannahúsinu við Hverfisgötu. Var
sitthvað á dagskrá við upphaf þess-
arar fyrstu sýningar sem efnt er til
í þessu húsi um nokkurt skeið.
Meðal annars var kynnt nýtt tíma-
rit með menningarlegu efni, tímari-
tið Rómur, sem Charles Egill Hirt
ritstýrir og gefur út.
Sýning Birgittu ber yfirskriftina
Hugamyndir þar eð myndmál lista-
konunnar er sagt sprottið beint úr
djúpum undirmeðvitundarinnar
fremur en frá beinni upplifun. Birg-
itta hóf dagskrána sjálf á því að
flytja ljóð eftir sig sem ber heitið
Hugamyndir eins og sýningin og
var leikið undir á munnhörpu. Þá
lásu ungir höfundar verk sín og
Guðrún Helga Ingadóttir söng við
gítarundirleik. Rómur var þá kynnt-
ur og síðan voru sýndar skyggnur
af verkum Birgittu og Gunnar
Grímsson lék tölvutónverk undir á Birgitta tekur á móti afa sínum Árna Jónssyni við upphaf sýningar-
meðan. innar.
TVIFARAR
Karlmaður
einna
líkastur
Monu Lísu
Úrslitahópurinn.
Eigi alls fyrir Jöngu efndi breskt
pennaframleiðslufyrirtæki til
samkeppni um hver væri líkust
Monu Lísu, en auglýsingaherferð
fýrirtækisins átti að byggjast á hinu
fræga málverki af þeirri konu.
Verðlaun voru aðlaðandi og þátt-
takendur fjölmargir. Voru allir
klæddir samkvæmt Monu Lísu tísku
og síðan hóf dómnefndin störf.
Hópurinn var á skömmum tíma
skorinn niður í sex keppendur og
einn þeirra, Julia Preston sem
stendur i rammanum, bar sigurorð
af öðrum keppendum. í öðru sæti
varð sá keppandi sem stendur
lengst til hægri, Paul Fordham, já
Paul heitir hann, nefnilega karl-
maður!
^112. Samtök sveitarfélaga /
á höfuðborgarsvæðinu
Kostnaður vegna þéttbýlismyndunar
Opinn fundur verður haldinn á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu um kostnað vegna þéttbýlismyndunar.
Fundurinn verður haldinn f A-sal Hótels Sögu miðvikudaginn 21. mars og
hefst hann kl. 20.30.
Unglingar til út-
landa á vegnm CISV
ALÞJÓÐLEG unglingaskipti, CISV, hafa starfað hérlendis í allmörg
ár og senda í sumar tuttugu unglinga með fararstjórum til Eng
lands og Hollands. Unglingar frá þessum löndum heimsækja íslands í vor
og sumar.
CISV tengist m.a. Sameinuðu þjóðunum og starfar í mörgum löndum.
Héðan halda tíu unglingar með fararstjóra til Hollands í sumar og jafn
stór hópur fer til Englands. Unglingarnir, sem eru 12 til 15 ára gamlir,
dveljast ytra í hálfan mánuð. Þeir búa hjá fjöiskyldum og fara í útilegur
og ferðálög, segir í fréttatilkynningu.
Úlfar með Gjölninn
Morgunblaðið/Emilía
FISKMETI
Gjölnir á borðum
/^Jjölnir er ekki algengur matur
VX á borðum hér á landi frekar
en annars staðar, þrátt fyrir að
talið sé að töluvert sé af þessum
fiski í hafinu við landið. Helsta
vandamál við veiðar á honum er
hversu djúpt heimkynni hans eru,
eða á um 300 faðma dýpi.
Gjölnirinn á myndinni var hins
vegar svo „heppinn“ að flækjast
í trollið hjá skipveijum á togaran-
um Sveini Jónssyni um 120 mílur
suðvestur af Reykjanesi. Úlfar
Eysteinsson matreiðslumeistari á
veitingastaðnum Þrem frökkum
matreiddi gjölninn, og mun hann
hafa líkað vel.
Krakkar á vegum CISV unglingaskiptanna.
COSPER
Efni fundarins
1. Greint frá efni skýrsiunnar „Kostnaður þétt-
býlismyndunar"
Ársæll Guðmundsson hagfr. og höf. skýrslunnar.
2. Landsbyggðin og þéttbýlið
Valtýr Sigurbjarnarson frámkvæmdastj. útib.
Byggðast. Akureyrar.
3. Sjónarmið þéttbýlisins
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi og for-
maður Skipulagsnefndar Reykjavíkur.
4. Álmennar umræður
Fundarstjóri verður Lilja Hallgrímsdóttir, formaður
Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.