Morgunblaðið - 20.03.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
47
Þýski flugmaðurinn um björgunina:
Skólabókardæmi um hvem-
ig standa á að björgun úr sjó
„ÞAÐ var frábærlega staðið að björguninni. Þetta var skólabókar-
dæmi,“ sagði Jolian Krauss, þýski flugmaðurinn, sem bjargað var
af þyrlu Landhelgisgæslunnar á fóstudagskvöld eftir að flugvél hans
skall vélarvana á sjóinn norðvestur af Reykjavík. Flugmaðurinn
hentist á mælarborð vélarinnar og nefbrotnaði er vélin skall á hafið
og hefur dvalist á Borgarspítala síðan. Meiðslin telur hann hins veg-
ar smávægileg miðað við hvað hefði getað orðið. Johann Krauss er
frá Munchen í Bæjaralandi og var að ferja vélina, sem var af gerð-
inni Cessna 404, frá Bandaríkjunum til Þýskalands. Hann segir elds-
neytisskort ekki vera orsök óhappsins heldur hefðu hreyflar vélarinn-
ar bilað, fyrst sá vinstri og síðan sá hægri.
„Ég átti eftir um 150 mílur til
Reykjavíkur þegar drapst á vinstri
hreyfli vélarinnar. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir tókst mér ekki að
koma honum í gang á ný og þurfti
ég að fljúga töluvert lengi á einum
hreyfli. Loftmótstaðan var því mun
meiri en ella og ég þurfti að auka
aflið á hægra hreyfli og lækka flug-
ið. Þegar ég átti eftir um 25 mílur
til Reykjavíkur, eða um fjögurra
mínútna flug, þá gaf hægri hreyfill-
inn sig líka.“
Þegar Krauss var «purður af
hverju hann hefði ekki lent á Rifi
á Snæfellsnesi eins og honum stóð
til boða sagði hann að það hefði
verið mjög óæskilegt vegna þess
hve völlurinn væri lítill. Hann hefði
af öryggisástæðum helst þurft á
stærri braut að halda og þar sem
ekkert virtist bjáta á með hægri
hreyfilinn og eldsneytið átti að
nægja til að minnsta kosti 45
mínútria flugs til viðbótar hefði
hann tekið ákvörðun um að halda
áfram til Reykjavíkur.
„Þetta gerðist allt ótrúlega hratt.
Hreyfillinn gekk vel en svo gaf
hann sig allt í einu. Það eina sem
ég hugsaði um var að reyna að
lenda eins mjúkt og kostur væri á
á sjónum. Eg var einungis með
mittisól, enga axlaról, og kastaðist
því á mælarborðið þegar vélin skall
á vatninu."
Krauss sagðist ekki muna glöggt
eftir þessum sekúndum. Hann hefði
Nær eldsneytislausri vél lent í Keflavík:
Vél Flugmálastj órnar fór 8
sinnum á móti vélum í fyrra
fengið mjög þungt högg á andlitið
en samt haldið meðvitund. Hann
hefði losað ólina hlaupið aftur í
vél, opnað hurðina og þá hefði þyrl-
an þegar verið fyrir ofan. „Björgun-
in gekk vægast sagt frábærlega.
AÍlt var fullkomlega skipulagt.
Þetta var skólabækardæmi um
hvernig standa á að svona björgun.
Ég ber mjög mikla virðingu fyrir
áhöfn þyrlunnar og iækni sem stóðu
fullkomlega að þessu. Það sama á
við um fólkið á Borgarspítalanum.
Ég vil koma innilegum þökkum á
framfæri til alls þessa fólks.“
Johan Krauss var að ferja flug-
vélina frá Oklahoma í Bandaríkjun-
um til Bremen í Þýskalandi og seg-
ist hafa töluverða reynslu af feiju-
flugi af þessu tagi. Þegar slysið
átti sér stað var hann á leið frá
Syðra-Straumsfirði á Grænlandi til
Reykjavíkur en það væri undir
venjulegum kringustæðum um fjög-
ur og hálfs tíma flug. Eldsneyti
hefði verið á vélinni fyrir mun
lengra flug. Hann sagði veður hafa
verið slæmt á leiðinni og hefði hann
oftar en einu sinni þurft að fljúga
Morgunblaðið/Þorkell
Johann Krauss á Borgarspítalan-
um í gær. Hann skall á mæla-
borði vélarinnar og nefbrotnaði
er hún brotlenti á sjónum en tel-
ur sig samt hafa sloppið vel.
framhjá óveðursskýjum. „Ef ein-
hver ísing hefði komið upp því til
viðbótar hefði ég ekki átt neina
möguleika." Hann sagði ísingu hins
vegar ekki hafa verið orsök óhapps-
ins en vildi á þessu stigi ekki vera
með vangaveltur um orsakirnar.
Vélin hefyli verið um tíu ára gömul
en vinstri hreyfillinn frekar nýleg^
ur. Hann hefði hins vegar fengið
það staðfest að þessi hreyfilstegund
væri mjög viðkvæm.
FLUGMAÐUR Cessna 340 vélar,
á leið frá Bandaríkjunum, til-
kynnti að hann ætti i vanda
skammt út af landinu á sunnu-
dagskvöld og óttaðist að verða
eldsneytislaus. Hann lenti vél
sinni í Keflavík heilu og höldnu.
Þetta er í þriðja skiptið á íjórum
dögum sem flugmenn lítilla véla
lenda í erfiðleikum við ísland. Á
síðasta ári fór flugvél Flugmála-
stjórnar átta sinnum til móts við
vélar í erfiðleikum.
Flugmaðurinn, sem var við annan
mann í vélinni, tilkynnti að erfiðlega
gengi að skipta af aðaleldsneytis-
tanki vélarinnar yfir á varatank og
hann óttaðist því að verða eldsneyt-
islaus. Flugvél Flugmálastjórnar fór
Fjórða umferð verður tefld í
kvöld í sölum Taflfélags
Reykjavíkur og Skáksambandsins
í Faxafeni 12; og eru skákáhuga-
menn hvattir til að missa ekki af
þessu skemmtilega móti.
Úrslit í 1. umferð:
1. Sergei Dolmatov — Harines
Hlífar Stefánsson 'A— 'A, 2. Þröst-
ur Þórhallsson — Lev Polugaevsky
0-1, 3. Azmajparashvili — Rikard
Winsnes 1-0, 4. Sigurður Daði Sig-
fússon — Alexey Dreev 0-1, 5.
Rafael Vaganjan — Eric Tangbom
1-0, 6. Oliver Brendel — Yasser
Seirawan í bið, 7. Andrei Sokolov
— Karl Burger 1-0; 8. Oliver Bew-
ersdorff — Helgi Olafsson 0-1, 9.
Vladimir Tuykmamov — Cesar
Becx 1-0, 10. Demis Hassapis —
Nick deFirmian 0-1, 11. Walter
Browne — Tómas Björnsson 1-0,
12. Jón G. Viðarsson — Margeir
Pétursson 0-1, 13. Aleksander
Wojkiewicz — Steffen Lamm 1-0,
14. Halldór G. Einarsson — Yuri
Rasúvaév 1-0, 15. Joel Benjamin
— Susan Arkell 1-0, 16. Dan Han-
son — Ferdinand Hellers 0-1, 17.
Alexander Ivanov — Ásgeir Þór
Ámason 1-0, 18. Davíð Olafsson
— Efim Geller 1-0, 19. Sergei
Makarichev — Áskell Örn Kárason
1-0, 20. Arnar Þorsteinsson —
Gata Kamsky 'A-'/z, 21. Richard
Wessman — Þröstur Árnason 1-0,
22. Snorri G. Bergsson — Jón L.
Ámason 0-1, 23. Tomas Wedberg
— Guðmundur Gíslason 1-0, 24.
Rúnar Sigurpálsson *- Friso Nij-
boer 0-1, 25. Jonatan Tisdall —
Ólafur Kristjánsson '/z- '/2, 26. Stef-
án Briem — Erling Mortensen 0-1,
27. Jonathan Levitt — Bragi Hall-
dórsson 1-0, 288. Kristján Guð-
mundsson — Keith Arkell 1-0, 29.
James C. Howell - Jes Winter
1-0, 30. Héðinn Steingrímsson —
David Bronstein 'A-'A, 31. Karl
Þorsteins — Árni Á. Árnason 1-0,
32. Lárus Jóhannesson - Carstein
Höi Vi-'A, 33. Benjamin Finegold
— Bogi Pálsson 1-0, 34. Arnbjörn
Gunnarsson — Tomas Ernst 'A- ’A,
35. Einar Gausel — Ólafur B. Þórs-
son 1-0, 36. Helgi Áss Grétarsson
— Richard Polaczek í bið.
Úrslit í 2. umferð:
1. Lev Polugaevsky — Sergei
Makarichev 1-0, 2. Richard Wess-
man — Azmajparashvili 0-1, 3.
Alexey Dreev — Tomas Wedberg
1-0, 4. Jón L. Árnason — Rafael
Vaganjan 1-0, 5. Friso Nijboer —
Anadrei Sokolov V2-V2, 6. Helgi
Ólafsson — Jonathan Levitt 1-0,
7. Erling Mortensen — Vladimir
Tukmamov 0-1, 8. Nick deFirmian
— James C. Howell V2-V2, 9. Karl
Þorsteins — Walter Browne 1-0,
10. Benjamin Finegold — Aleksand-
er Wojkiewicz 'U-'U, 11. Einar
Gausel — Joel Benjamin í bið, 12.
Ferdinand Hellers — Halldór G.
Einarsson 1-0, 13. Davíð Ólafsson
— Alexander Ivanov 0-1, 14. Yass-
er Seirawan — Kristján Guðmunds-
son 1-0, 15. Ólafur Kristjánsson —
Sergei Dolmatov 0-1, 16. Margeir
Pétursson — Oliver Brendel 1-0,
17. Gata Kamsky — Jón G. Viðars-
son 1-0,18. Hannes Hlífar Stefáns-
son — Jonatan Tisdall 1-0, 19.
David Bronstein — Arnar Þorsteins-
son 1-0, 20. Carstein Höi — Héðinn
Steingrímsson 1-0, 21. Tomas
Ernst — Lárus Jóhannesson 'h- 'k,
22. Richard Polaczek — Arinbjörn
Gunnarsson 1-0, 23. Yuri Rasúvaév
— Helgi Áss Grétarsson 1-0, 24.
Efím Geller — Dan Hanson 1-0,
25. Keith Arkelþ — Ásgeir Þór
Árnason 1-0, 26. Áskell Örn Kára-
son — Þröstur Þórhallson 0-1, 27.
Rikard Winsnes — Þröstur Árnason
0-1, 28. Guðmundur Gíslason —
Sigurður Daði Sigfússon 1-0, 29.
Eric Tangborn — Snorri G. Bergs-
, son 1-0, 30. Karl Burger — Rúnar
sigurpálsson 0-1, 31. Bragi Hall-
dórsson — Oliver Bewersdorff 0-1,
32. Cesar Becx — Stefán Briem
0-1, 33. Jes Winter — Demis
Hassapis ’/z-'A, 34. Tómas Björns-
son — Árni Á. Árnason 1-0, 35.
Steffen Lamm — Bogi Pálsson
'A-'/z, 36. Susan Arkell — Ólafur
B. Þórsson 1-0.
á móti vélinni og fylgdi henni inn
til lendingar á Keflavíkurflugvelli.
Þá fór þyrla Landhelgisgæslurinar,
TF-SIF, í loftið klukkan 22.24.
Fimm mínútum síðar lenti flugvélin
á Keflavíkurflugvelli, en þá var
eldsneyti á aðaltanki nær þrotið og
ekki hafði tekist að skipta yfir á
varatankinn.
Haukur Hauksson, varaflug-
málastjóri, sagði að á síðasta ári
hefði flugvél Flugmálastjórnar farið
átta sinnum til móts við litlar flug-
vélar í vanda. Hann sagði að atvik-
in hefðu varla verið miklu fleiri, þar
sem sjaldgæft væri að vél Flug-
málastjómar væri ekki kölluð til.
Það hefði þó gerst, til dæmis þegar
unnið hefði verið að viðhaldi á vél-
inni.
Haukur Hauksson sagði að talið
væri að hreyfilbilun hefði valdið því
að vél nauðlenti á Faxaflóa á föstu-
dag. Hin atvikin tvö, á fimmtudag
og sunnudag, væru ekki fullrann-
sökuð og óvíst hvað hefði valdið
erfiðleikum flugmannanna þá.
Eftir að veiða um 110
þúsund tonn af loðnu
LOÐNUSKIPIN hafa verið að veiðum við Suðausturland að undanf-
örnu og síðdegis í gær, mánudag, áttu þau eftir að veiða um lj^.
þúsund tonn af loðnukvóta sínum. Rannsóknaskipið Bjarni Sæmunds-
son leitaði að loðnu fyrir skömmu djúpt út af Faxaflóa, í Víkurál og
á Kópanesgrunni en fann einungis mjög lítið magn af henni við
Víkurál, að sögn Páls Reynissonar leiðangursstjóra.
Þessi skip tilkynntu um loðnuafla
í gær: ísleifur 250 tonn til FIVE,
Rauðsey 450 til SFA og Björg Jóns-
dóttir 350 til Neskaupstaðar.
Eftirtalin skip tilkynntu aum
loðnuafla á sunnudag: Sighvatur
Bjamason 450 tonn til FIVE, Pétur_
Jónsson 330 til Faxamjöls hf.,
Sunnuberg 600 til Grindavíkur, Jón
Finnsson 850 til FIVE, Kap 230 til
FIVE, Vikurberg 560 til Neskaup-
staðar, Hákon 980 til Raufarhafnar
og Bergur 500 til Neskaupstaðar.
Þessi skip tiikynntu um loðnuafla
á laugardag: Guðmundur 750 til
FES, Hilmir 750 til Seyðisfjarðar,
Örn 500 til Þórshafnar, Hólmaborg
800 til Eskifjarðar, Guðmundur 150
til FES, Guðrún Þorkelsdóttir 250
til Eskifjarðar, Þórður Jónasson
300 til Seyðisfjarðar, Súlan 350 til
Seyðisfjarðar, Þórshamar 350 til
Neskaupstaðar, Húnaröst 500 til
Þórshafnar, Börkur 500 til Nes-
kaupstaðar, Erling 250 til Reyðar-
fjarðar, Júpíter 600 til Neskaup-
staðar, Dagfari 200 til Njarðar hf.,
Fífill 340 til Faxamjöls hf. og Gígja
500 til FES. *•
Nemendafélag Stýrimannaskólans:
Fullyrða að staðfesting sé
fengin á mikilvægi flotgalla
NEMENDAFÉLAG Stýrimannaskólans í Reykjavík hefúr beðið Morg-
unblaðið að birta eftirfarandi athugasemdir vegna ummæla Marðar
Árnasonar, upplýsingafulltrúa Qármálaráðherra, í Morgunblaðinu
13. mars síðastliðinn.
„Mánudaginn 12. mars fóru nem-
endur Stýrimannaskólans í
Reykjavík á fund forseta Sameinaðs
Alþings þar sem þeir afhentu bréf
til allra þingmanna. Við fórum þess
á leit við þingmenn að þeir beittu
sér fyrir afnámi virðisaukaskatts á
flotgöllum þeim sem sjómenn nota
við vinnu sína. Vinnugallar okkar
eru ekki rekstrarvara útgerðar,
jafnvel þótt þeir geti orðið okkur
til lífs á neyðarstundu.
Það er fulltrúum fjármálaráðu-
neytis og upplýsingafulltrúa fjár-
málaráðherra til lítils sóma að geta
ekki gert greinarmun á lögskipuð-
um björgunarbúningum og vinnu-
flotgöllum sem sjómenn verða að
leggja sér til sjálfir og er eins og
áður sagði ekki rekstrawara út-
gerðar. Því er það að við ítrekum
beiðni okkar um niðurfellingu virð-
isaukaskatts af vinn.uflotgöllum, en
afþökkum alla kennslu í skattsvik-
um.
í Morgunblaðinu þann 13. mars
er haft eftir Merði Árnasyni að er-
indi okkar beindist ekki í rétta átt.
Þessu vísum við á bug, erindi okkar
beinist einmitf í rétta átt. Hitt er
annað hvort athygli ráðamanna og
þeirra undirsáta beinist í rétta átt.
Mörður Árnason segir orðrétt:
„Eins og staðan er teljum við mál-
sókn sjómanna byggða á ákveðnum
misskilningi á eðli málsins." Mis-
skilningurinn felst ekki í sjónarmið-
um sjómanna heldur Marðar. Við
vitum að flotgallar þessir eru ekki
iögbundnir, við vitum líka að þeir
eru ekki án virðisaukaskatts. Það
er einmitt málið.
Fjármálaráðherra taldi sig þurfa
staðfestingu frá Siglingamálastofn-
un eins og kemur fram í þingskjali
594 frá síðasta ári. Við sjómenn
fullyrðum að staðfesting sé fengin
á mikilvægi og öryggi því sem þess-
ir flotgallar veitá. Við sjómenn full-
yrðum líka með fullri virðingu fyrir
Siglingamálastofnun að engin gefflT
betur staðfest þessa flotgalla en
einmitt þeir sjómenn sem hafa
bjargast í þeim.“
■ / TILEFNI af hugmyndasýn-
ingu Birgittu Jónsdóttur verður efnt
til fjölbreyttrar dagskrár í Lista-
mannahúsinu á efri hæð Hafnar-
strætis 4 kl. 20.30 í kvöld. Myndlist-
armaðurinn Cheo Cruz frá Kól-
umbíu og Gunnar munu framkalla
með blandaðri tækni gjörninginn
Vulkano. Sigurður Sigurðsson og
Pálmi J. Sigurhjartarson spila blus'
og Gunnar Grímsson býr til hljóð-
gervlahávaða. Tímaritið Rómur
verður kynnt með slíðrumyndum.
Margrét Hugrún og Sigrún Jóns-
dóttir sýna öratriði. Birgitta Jóns-
dóttir spinnur orð við tónaflóð
Gunnars Grímssonar. Mike Pollock,
Pjetur Hafstein, Margrét Lóa
G. Rósa lesa úr eigin hugverkum."
Aðgangur er ókeypis.