Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Sérstakt verkefiii í tilefiii
afmælis forseta íslands
I TILEFNI sextugsafmælis forseta Íslands, Vigdísar Finnbogasóttur,
hefiir stjórn Útflutningsráðs íslands ákveðið að hrinda í framkvæmd
sérstöku verkefni í nafni forsetans til að kanna markaðsmöguleika
islenskrar þekkingar á sviði heilbrigðisþjónustu erlendis.
I fréttatilkynningu frá Útflutn-
ingsráði segir: Stjórn Útflutnings-
ráðs íslands vill koma á framfæri
sérstökum þökkum sínum og
íslenskra útflytjenda til Vigdísar
Finnbogadóttur forseta íslands,
fyrir það frábæra starf, sem hún
hefur unnið að kynningu á íslandi
og íslenskum afurðum erlendis á
undanfömum árum. Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands vekur
hvarvetna mikla athygli erlendis
hvar sem hún kemur og hefur með
framkomu sinni tekist að festa ís-
land í hugum fjölda útlendinga. Á
þeim kynningum, sem Útflutnings-
ráð hefur haldið í tengslum við ferð-
ir forsta íslands erlendis, hafa fjöl-
margir viðskiptavinir íslenskra fyr-
irtækja fengið tækifæri til að hitta
forsetann. Þetta starf forsetans
hefur í mörgum tilfellum treyst
núverandi viðskiptasambönd og í
öðrum tilvikum leitt til stofnunar
nýrra. Hvar sem forseti íslands
hefur ferðast hefur athygli fjölmiðla
beinst að henni og Island hefur
fengið jákvæða umfjöllun í þeim.
Fyrir smáþjóð eins og ísland er
mjög mikilvægt að koma sjónarmið-
um sínum á framfæri, en það er
jafnframt ljóst að í hörðum heimi
fjölmiðlanna þar sem samkeppni er
mikil er bæði erfltt og dýrt að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri.
Ferðir forseta íslands erlendis hafa
gegnt mikilvægu hlutverki í þessum
efnum og er árangur þeirra til að
auka þekkingu útlendinga á íslandi
ómetanlegur. Stjórnin vill hvetja
Vigdísi Finnbogadóttur til að halda
áfram þessu mikilvæga starfi og
er það von ráðsins, að það megi
eiga árangursríkt samstarf við for-
setann á komandi árum sem og
hingað til.“
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Víða var gripið til varúðarráðstafana í gær vegna hvassviðrisins sem gekk yfir landið. Á Reykjavíkurflug-
velli var óttast að litlar flugvélar tækjust fyrirvaralaUst á loft og því var brugðið á það ráð að leggja
bensínbílum, vörubílum og öðrum þungum fyrirtækjum áveðurs við þær.
Flugtak óheimilt
VEÐURHORFUR í DAG, 12. APRÍL
YFIRLIT í GÆR: Skammt norður af Tjörnesi er 952 mb lægð, sem
hreyfist allhratt norðaustur. Önnur lægð, um 963 mb djúp, um 500
km vestsuðvestur af Reykjanesi á leið austur.
SPÁ: Hæg norövestan- og norðanátt og frost um allt land. Smáél
á Noröausturlandi en annars þurrt að mestu.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg vestlæg átt. Léttskýjað á Norður-
og Austurlandi en þykknar upp á vestanverðu landinu, þegar líður
á daginn. Frost 2-8 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél
á Suður- og Vesturlandi en annars þurrt að mestu. Hiti +2 til +3 stig.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus
Heiðskfrt ▼ stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * V El
•Ql Léttskýjað / / / / / / / Rigning Þoka
'Qch. Hálfskýjað / / / * / * > Þokumóða Súld
£Ék Skýjað / * / * Slydda / * / 00 Mistur
4 Skafrenningur
j ^ Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA ÚM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +1 alskýjað
Reykjavlk 2 þokumóða
Bergen 7 skúrás. klst.
Helsinki 6 léttskýjað
Kaupmannah. 9 skýjað
Narssarssuaq +7 snjókoma
Nuuk vantar
Osló 9 skýjað
Stokkhólmur 4 rigning
Þórshöfn 9 skúrás. klst.
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 10 hálfskýjað
Barcelona 16 heiðskirt
Berlfn 10 skúrás. klst.
Chicago 2 snjóél
Feneyjar 16 léttskýjað
Frankfurt 10 hálfskýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 7 skúr á s. klst.
Las Palmas 19 skýjað
London 13 skýjað
Los Angeles 13 helðskfrt
Lúxemborg ■ 9 skýjað
Madríd 15 skýjað
Malaga 17 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal 0 snjókoma
NewYork 14 rignlngás.klst.
Orlando 21 rigning
ParfB 12 skýjað
Róm 16 léttskýjað
Vln 9 alskýjað
Washlngton 13 skýjað
Winnlpeg +8 skýjað
Átta riðutilfelli hafa greinst á
Austurlandi á rúmu ári:
Samþykkt að veita 206
milljónum til heildamiður-
skurðar 13.300 íjár í haust
BÚNAÐARSAMBAND Austurlands hefur farið þess á leit við ríkis-
stjórnina að kannaður verði möguleikinn á því að skera niður allt fé
á svæðinu á milli Jökulsár á Brú og Lagarfljóts næsta haust, en þar
hafa átta riðuveikitilfelli komið upp síðastliðna 15 mánuði. Ríkissljórn-
in hefúr samþykkt að veita 206 mifljónum króna til þessa verkefnis,
en alls er um að ræða um 13.300
Aðalsteinn Jónsson bóndi á
Klausturseli, formaður búnaðarsam-
bands Austurlands, sagði að fundir
yrðu haldnir með bændum næstkom-
andi laugardag, þar sem könnuð yrði
afstaða þeirra til heildarniðurskurðar
á svæðinu. „Stjóm búnaðarsam-
bandsins kaus að fá fyrst úr því skor-
ið hvort ijármagn fengist til niður-
skurðarins, en það liggur ekki fyrir
hvort bændur á svæðinu eru einhuga
sammála þessari aðgerð."
Að sögn Aðalsteins felur sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar í sér um 190
milljóna króna framlag vegna förg-
unarbóta og bóta vegna afurðatjóns
í tvö ár, en að meðtöldum kostnaði
vegna flutnings líflamba og öðrum
tengdum kostnaði yrði alls um 206
milljónir að ræða. Á móti kæmi síðan
um 100 milljóna króna sparnaður á
ári í útflutningsuppbótum.
„Ef ekki verður farið út í heildar-
niðurskurð á svæðinu liggur fyrir að
lóga þarf rúmlega 1.300 fjár á fjórum
bæjum nú í apríl. Búið er að stað-
festa þrjú riðutilfelli á þessu svæði
frá áramótum’ af fimm tilfellum sem
greinst hafa á landinu öllu, en á
síðustu 15 mánuðum hafa verið stað-
fest átta tilfelli sem tengjast 11 býl-
um á svæðinu. Þetta virðist því vera
virkasta riðusvæðið á landinu í dag,
en á tímabilinu 1986-1989 var slátr-
að þar um 8.800 kindum vegna riðu-
veiki."
Aðalsteinn sagði það væri skoðun
Qár á 55 bæjum.
margra, og þá sérstaklega yngri
bænda, að meiri líkur væri á því að
fjárbúskapur yrði stundaður á svæð-
inu í framtíðinni ef um heildarniður-
skurð yrði að ræða. „Við erum ekki
að tala um að leggja niður sauðfjár-
búskap héma, heldur erum við þvert
á móti að tala um að efla hann með
því að hreinsa svæðið af riðuveiki í
eitt skipti fyrir öll.“
Skákmótlð í Lyon:
Margeir með
4 '/2 vinning
MARGEIR Pétursson hefúr
Qóra og hálfan vinning eltir
fimm umferðir á opnu ská-
kóti Lyon í Frakklandi. Hann
deilir efsta sætinu með ísra-
elsmanninum Roman.
Margeir vann í gær alþjóð-
lega meistarann Sances frá
Argentínu og Karl Þorsteins
vann Minciolli. Lárus Jóhannes-
son tapaði fyrir Santo Roman.
Að loknum fímm umferðum
hafði Karl ijóra vinninga eins
og fimm aðrir skákmenn en
Lárus hafði þijá vinninga.
Þróunarfélag mið-
borgarinnar stofiiað
BORGARYFIRVÖLD hafa ákveð-
ið í samvinnu við ríkisstjórnina,
að stofna Þróunarfélag miðbæjar-
ins. Stoftifúndurinn verður hald-
inn mánudaginn 28. apríl á Hótel
Borg og hefst hann kl. 18.15.
Á fundinum mun Davíð Oddsson
borgarstjóri gera grein fyrir tilgangi
og markmiði félagsins og Guðmund-
ur Benediktsson ráðuneytisstjóri,
forsætisráðuneytisins flytur ávarp,
sem fulltrúi forsætisráðherra. Enn-
’ fremur flytja ávörp fulltrúar banka-
stofnanna, kaupmanna, veitingahúsa
og hafnarstjómar.
Að sögn Þorvaldar S. Þorvaldsson-
ar forstöðumanns borgarskipulags-
ins, er félaginu ætlað að standa að
þróun og uppbyggingu ( miðborg-
inni. Allir þeir sem áhuga hafa eru
velkomnir á fundinn.