Morgunblaðið - 12.04.1990, Page 9
oeei JÍH4A .21 HUOAaUTMMH aiaAJSMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Því ekki að leggja grunninn að
framtíðarsparnaði fermingarbarnanna í
ár og færa þeim að gjöf verðbréf
í fallegri gjafamöppu.
★ Einingabréfin okkar eru þannig uppbyggð, að hægt er að
kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er, allt niður í 1.000
krónur.
★ Gengi eða verð hverrar einingar hækkar síðan daglega og
þar með verðbréfaeignin.
★ Það eina sem þarf við kaupin er nafn, kennitala og heimilis-
fang fermingarbarnsins.
★ Sala og innlausn Einingabréfa fer fram hjá Kaupþingi hf. í
Reykjavík, Kaupþingi Norðurlands hf. á Akureyri og hjá
sparisjóðum um land allt.
Allar frekari upplýsingar um Einingabréf og önnur verðbréf
gefa ráðgjafar Kaupþings hf. í síma 68-90-80.
EININGABRÉF 2 ERU
EIGNARSKATTSFRJÁLS
Á SAMA HÁTT OG
SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS
Einingabréfasjóður 2 er eingöngu ávaxtaður með kaupum
á spariskírteinum ríkissjóðs, húsbréfum og öðrum verð-
bréfum með ábyrgð ríkissjóðs. Skv. lögum, sem sam-
þykkt voru á Alþingi 22. desember sl., er mönnum heim-
ilt að draga frá eignum sínum hlutdeildarskírteini verð-
bréfasjóða, sem eingöngu er myndaður af slíkum verð-
bréfum.
Sölugengi verðbréfa 12. apríl 1990:
EININGABRÉF 1...........4.805
EININGABRÉF 2...........2.631
EININGABRÉF 3...........3.164
SKAMMTÍMABRÉF ..........1.633
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki,
Kringlunni 5, 103 Reykjavík,
sími 91-689080
I
SORG OG GLEÐI
eftir sr. HJÁLMAR
JÓNSSON
Framundan eru stórar stundir
í kirkjuárinu. Þar eru stóru
stundir kristindómsins og þeirra
sem játa trú á Krist. í huganum
má ganga leiðina með Kristi,
leitast við að setja sig í spor
hans, lærisveinanna og annarra
sem koma við sögu. Okkur kem-
ur líka sagan við. Hún hefur
gildi í lífi þeirra, sem vilja skoða
hana og sjá merkinguna bak við
atburðina, sem eru riíjaðir upp
árlega í textum kyn-uviku og
páskanna.
Þó er stundum spurt hvers
vegna allt sé haft svona leiðin-
legt á föstudaginn langa, hvers
vegna hann sé, þessi þunglama-
legi sellóleikur í útvarpinu og
þessar langdregnu heimilda-
rnyndir í sjónvarpi, t.d. af rústum
í Palestínu.
Því er. til að svara að enginn
á að gera sér upp þjáningu eða
láta sér leiðast af trúarástæðum.
Mér fínnst að yfirbragð kirkjunn-
ar eigi að vera glaðlegt og
frísklegt. Erindi Krists til mann-
anna er fagnaðarerindi, guð-
spjöllin eru gleðitíðindi. Gleði-
snauður kristindómur er mis-
skilningur. Hins vegar er
mannlífið ekki einskær ham-
ingja, því miður. Fæstir komast
hjá sorgum og harmi á ævileið
sinni. Sorgbitnir og hrjáðir eru
oft hart leiknir í þjóðfélagi sem
vill breiða yfir kvölina með sléttu
og brosandi yfirborði. Dauði og
þjáning eru feimnismál nema í
æsifréttum fjölmiðla, þar sem
hægt er að hafa samúð í hæfi-
legri fjarlægð. Þeir sem líða og
syrgja hafa því miður þá sögu a
segja, allt of oft, að viðmót ann-
arra breytist þegar sorgin hefur
knúið dyra. Fólk víkur stundum
úr vegi ef það mætir sorg og
syrgjendum, ekki af áhugaleysi
heldur vegna vanmáttar gagn-
vart aðstæðum, sem ekki er
hægt að breyta.
Kristur fékkst við aðstæður,
sem aðrir réðu ekki við. Hann
byrgði ekki andlit sitt fyrir því
sem aflaga fór — og fer — í
veröld manna. Því kynnast hinir
þjáðu oft og einatt, að Jesús
Kristur er sjálfur hjá þeim. Kvöl-
in, þjáningin, dauðinn veldur
ekki aðskilnaði við hann, heldur
meiri nálægð, sterkari vitund um
hann og raunverulegri huggun.
Það er mikilvægt hiutverk þeirra
sem játa trú á Krist að vera þá
til staðar í kærleikans nafni.
Sannarlega er það hluti af
gleðiboðskap kristninnar, sem er
kunngerður á föstudaginn langa.
Hann er staðfestur af atburðum
páskanna þar sem almáttugur
Guð, faðir, sker úr um verk
Krists, hjálpræðisverk hans.
Margar líkingar og dæmi, sem
tjá skulu hjálp Guðs og sáttar-
gjörð, kunna að vera framandi
og fjarlægar. Flestir þekkja þó
hvað getur verið erfitt að stiga
fyrsta skrefið til sátta þegar
ósætti hefur orðið. Margt getur
hindrað það að menn rétti fram
höndina til sátta. Þar er jafnvel
óttinn við að slegið verði á fram-
rétta sáttarhönd. Enginn vill
gera sig að minni manni með
því að verða fyrir slíku, jafnvel
ekki einu sinni gagnvart sínum
nánustu. Guð lét ekki ótta við
afleiðingar aftra sér frá að bjóða
mannkyni sættir. Þær felast í
lífi og starfi, dauða og upprisu
Jesú Krists. Hann er framrétt
sáttarhönd Guðs, sem lætur ekki
hindra sig í því að auðga, bæta
og blessa lífíð til allrar frambúð-
ar.
í trúnni á Krist er alltaf eitt-
hvað framundan, alltaf til ein-
hvers að hlakka.