Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 9
oeei JÍH4A .21 HUOAaUTMMH aiaAJSMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990 Því ekki að leggja grunninn að framtíðarsparnaði fermingarbarnanna í ár og færa þeim að gjöf verðbréf í fallegri gjafamöppu. ★ Einingabréfin okkar eru þannig uppbyggð, að hægt er að kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er, allt niður í 1.000 krónur. ★ Gengi eða verð hverrar einingar hækkar síðan daglega og þar með verðbréfaeignin. ★ Það eina sem þarf við kaupin er nafn, kennitala og heimilis- fang fermingarbarnsins. ★ Sala og innlausn Einingabréfa fer fram hjá Kaupþingi hf. í Reykjavík, Kaupþingi Norðurlands hf. á Akureyri og hjá sparisjóðum um land allt. Allar frekari upplýsingar um Einingabréf og önnur verðbréf gefa ráðgjafar Kaupþings hf. í síma 68-90-80. EININGABRÉF 2 ERU EIGNARSKATTSFRJÁLS Á SAMA HÁTT OG SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS Einingabréfasjóður 2 er eingöngu ávaxtaður með kaupum á spariskírteinum ríkissjóðs, húsbréfum og öðrum verð- bréfum með ábyrgð ríkissjóðs. Skv. lögum, sem sam- þykkt voru á Alþingi 22. desember sl., er mönnum heim- ilt að draga frá eignum sínum hlutdeildarskírteini verð- bréfasjóða, sem eingöngu er myndaður af slíkum verð- bréfum. Sölugengi verðbréfa 12. apríl 1990: EININGABRÉF 1...........4.805 EININGABRÉF 2...........2.631 EININGABRÉF 3...........3.164 SKAMMTÍMABRÉF ..........1.633 KAUPÞING HF Löggilt verðbréfafyrirtœki, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, sími 91-689080 I SORG OG GLEÐI eftir sr. HJÁLMAR JÓNSSON Framundan eru stórar stundir í kirkjuárinu. Þar eru stóru stundir kristindómsins og þeirra sem játa trú á Krist. í huganum má ganga leiðina með Kristi, leitast við að setja sig í spor hans, lærisveinanna og annarra sem koma við sögu. Okkur kem- ur líka sagan við. Hún hefur gildi í lífi þeirra, sem vilja skoða hana og sjá merkinguna bak við atburðina, sem eru riíjaðir upp árlega í textum kyn-uviku og páskanna. Þó er stundum spurt hvers vegna allt sé haft svona leiðin- legt á föstudaginn langa, hvers vegna hann sé, þessi þunglama- legi sellóleikur í útvarpinu og þessar langdregnu heimilda- rnyndir í sjónvarpi, t.d. af rústum í Palestínu. Því er. til að svara að enginn á að gera sér upp þjáningu eða láta sér leiðast af trúarástæðum. Mér fínnst að yfirbragð kirkjunn- ar eigi að vera glaðlegt og frísklegt. Erindi Krists til mann- anna er fagnaðarerindi, guð- spjöllin eru gleðitíðindi. Gleði- snauður kristindómur er mis- skilningur. Hins vegar er mannlífið ekki einskær ham- ingja, því miður. Fæstir komast hjá sorgum og harmi á ævileið sinni. Sorgbitnir og hrjáðir eru oft hart leiknir í þjóðfélagi sem vill breiða yfir kvölina með sléttu og brosandi yfirborði. Dauði og þjáning eru feimnismál nema í æsifréttum fjölmiðla, þar sem hægt er að hafa samúð í hæfi- legri fjarlægð. Þeir sem líða og syrgja hafa því miður þá sögu a segja, allt of oft, að viðmót ann- arra breytist þegar sorgin hefur knúið dyra. Fólk víkur stundum úr vegi ef það mætir sorg og syrgjendum, ekki af áhugaleysi heldur vegna vanmáttar gagn- vart aðstæðum, sem ekki er hægt að breyta. Kristur fékkst við aðstæður, sem aðrir réðu ekki við. Hann byrgði ekki andlit sitt fyrir því sem aflaga fór — og fer — í veröld manna. Því kynnast hinir þjáðu oft og einatt, að Jesús Kristur er sjálfur hjá þeim. Kvöl- in, þjáningin, dauðinn veldur ekki aðskilnaði við hann, heldur meiri nálægð, sterkari vitund um hann og raunverulegri huggun. Það er mikilvægt hiutverk þeirra sem játa trú á Krist að vera þá til staðar í kærleikans nafni. Sannarlega er það hluti af gleðiboðskap kristninnar, sem er kunngerður á föstudaginn langa. Hann er staðfestur af atburðum páskanna þar sem almáttugur Guð, faðir, sker úr um verk Krists, hjálpræðisverk hans. Margar líkingar og dæmi, sem tjá skulu hjálp Guðs og sáttar- gjörð, kunna að vera framandi og fjarlægar. Flestir þekkja þó hvað getur verið erfitt að stiga fyrsta skrefið til sátta þegar ósætti hefur orðið. Margt getur hindrað það að menn rétti fram höndina til sátta. Þar er jafnvel óttinn við að slegið verði á fram- rétta sáttarhönd. Enginn vill gera sig að minni manni með því að verða fyrir slíku, jafnvel ekki einu sinni gagnvart sínum nánustu. Guð lét ekki ótta við afleiðingar aftra sér frá að bjóða mannkyni sættir. Þær felast í lífi og starfi, dauða og upprisu Jesú Krists. Hann er framrétt sáttarhönd Guðs, sem lætur ekki hindra sig í því að auðga, bæta og blessa lífíð til allrar frambúð- ar. í trúnni á Krist er alltaf eitt- hvað framundan, alltaf til ein- hvers að hlakka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.