Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 18
er
18
Oftfil TÍOTA Sf' ínTOAmJTMWfFf PfiyA',TFVrTT>íTOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Aðalfundur
Rauða kross íslands
Aðalfundur Rauða kross íslands verður haldinn
á Hvolsvelli 12.-13. maí nk.
Fundurinn verður settur í félagsheimilinu Hvoli
kl. 10.00 f.h. laugardaginn 12. maí.
Dagskrá samkvæmt 16. gr. laga RKÍ.
Stjórn Rauða kross íslands
Rauði Krosslslands
„ Vorboðinn“ verkaður
Rauðmaginn er af mörgum kallaður
vorboðinn, enda gengur hann á hrygn-
ingarstöðvarnar á grunnsævi nálægt
upphafi gamla vormánaðarins, hörpu.
Rauðmaginn var einnig fyrr á tímum
kærkomið nýmeti eftir brimsaltan bút-
ung á útmánuðum og í kjölfar hans
kemur svo grásleppan, sem einnig þyk-
ir lostæti vel sigin. Það hýrnar því yfir
mönnum, þegar Björn Guðjónsson,
trillukarl við Ægissíðu, byrjar að verka
vorboðann, en á þriðjudag kom hann
úr öðrum róðri vorsins með um 200
rauðmaga. Vinir Bjöms þrír, Snorri,
Siggi og Pálmi fylgjast spenntir með
og væntanlega fá þeir í soðið með sér
heim.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Bjóðist þér þessir tveir
á svipuðu verði
- hvom velurðu?
Dýrafita var afar eftirsótt á íslandi,
- og raunar lífsnauðsyn, fram eftir öllum öldum.
Af neyslu hennar hlutum við
meira að segja auknefni: Mörlandar.
í MJÚKÍS (sem og öllum öðrum ís
frá Kjörís) er engin dýrafita.
Margir kaupa hann af þeirri ástæðu,
en þó flestir bara vegna bragðsins.
...bam vegna bmgðsins.
Hveragerði:
Hans Christ-
iansen sýnir
HANS Christiansen, myndlista-
maður, heldur 21. einkasýningu
sína á vatnslita- og pasteímynd-
um í Safnaðarheimili Hveragerð-
iskirkju um páskana.
Hann sýnir rúmlega 30 myndir
gerðar á þessu ári og síðastliðnu ári.
Sýningin verður opin á skírdag,
12. apríl, kl. 20-22 og síðan dag-
lega kl. 14-20 og lýkur henni að
kvöldi annars í páskum, 16. apríl.
Morgunblaðið/RAX
Hans Christiansen á vinnustofu
sinni.
Umhleypinga-
samt í Mýrdal
frá áramótum
Mýrdalshreppi.
TÍÐARFAR liefur verið mjög
umhleypingasamt hér frá ára-
mótum. Fyrsti snjór eftir nýárið
kom á þrettándakvöld og má
heita að truflanir á samgöngum
hafí verið nokkuð stöðugar
síðan, þó hér haf! aldrei lokast
vegir heilan sólarhring samfellt.
Snjór hefur aldrei komið mikill
í einu og alltaf fokið fljótlega til
í fannstæði og eru nú mjög víða
þykkir skaflar í giljum og laut-
um.
Síðan póstbíll fór að ganga dag-
lega alla virka daga frá Reykjavík
til Víkur hefur hann alltaf komist
þar til í vetur er hann varð að
snúa við undir Eyjafjöllum í
tvígang vegna ófærðar. Utkjálka-
vegir hér hafa verið erfiðir
langtímum saman í vetur. Ófærð
hefur oft hamlað umferð í Reynis-
hverfi en í Heiðardalinn hefur ver-
ið að mestu leyti lokað nú um
tveggja mánaða skeið. Hefur
mjólk verið flutt þaðan á dráttar-
vélum á aðalveg í veg fyrir mjólk-
urbíl þann tíma. Nú er verið að ,
opna að Heiði með jarðýtu. Á laug-
ardag brá til hláku og sjatnaði
snjór strax mjög mikið þar sem ,
hann var svo laus í sér frá bylnum
sl. fimmtudag.
Þegar þetta er skrifað er hér |
sól og blíðuveður, vorfuglakliður
og mikið flug af grágæs sem er
að koma til sumardvalar.
- Sigþór j