Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRIL 1990
19
M-hátíð á Vesturlandi:
Bókmennta- og tón-
listarvaka á Hvanneyri
Hvannatúni í Andakíl.
LIÐUR í M-hátíð á Vesturlandi var bókmennta- og tónlistarvaka
á Hvanneyri og var fjallað um borgfirsku skáldin, Jón Helgason
prófessor frá Rauðsgili og Halldór Helgason frá Ásbjarnarstöðum,
og fræðimanninn Kristleif Þorsteinsson frá Stóra-Kroppi.
Þorsteinn Þorsteinsson frá
Húsafelli kynntist Jóni Helgasyni
(f. 1899, d. 1986) náið í Kaup-
mannahöfn og sagði frá ætt hans
og ævi, Páll Bergþórsson frá
Fljótstungu gerði Halldóri Helga-
syni (f. 1874, d. 1961) góð skil
og Andrés Jónsson í Deildartungu
rifjaði upp kynni sín af Kristleifi
á Stóra-Kroppi (f. 1861, d. 1952).
Til að kynna skáldin og Krist-
leif nánar lásu Björn Þorsteinsson,
Inger Traustadóttir, Kristín Hall-
dórsdóttir og Sigurður Guðmunds-
son úr verkum þeirra. Snorri
Hjálmarsson á Syðstu-Fossum og
Ingþór Friðriksson, Borgarnesi,
sungu einsöng við undirleik Ingi-
bjargar Þorsteinsdóttur, Borgar-
nesi. Hún stjórnaði og söng einnig
nokkur lög með sönghópi úr Bor-
garnesi.
Kristín Halldórsdóttir, Borgar-
nesi, kynnti atriðin en í undirbún-
ingsnefnd fyrir þetta atriði M-
hátíðar voru Jakob Jónsson, Var-
malæk, Kristín Halldórsdóttir og
Magnús Sigurðsson, Gilsbakka.
Gestir samkomunnar fengu fjöl-
ritaða dagskrá, ásamt Söngtextum
og ættartölu þeirra sem um var
fjallað. Kynningin þótti sérstak-
lega vel heppnuð að sögn gesta.
D.J.
Bændablaðið
og Landsbyggð-
in sameinuð
BLÖÐIN Bændablaðið og
Landsbyggðin, sem Bændasynir
hf. gefa út, hafa nú verið sam-
einuð í eitt blað, og höfúðstöðv-
ar útgáfúnnar fluttar til Eyrar-
bakka.
Bændablaðið hefur komið út um
þriggja ára skeið en Landsbyggðin
frá miðju ári 1988. Blöðin eru jafnt
helguð umfjöllun um alla lands-
hluta, en eigendur útgáfufyrirtæk-
isins eru um 300 hluthafar víðs
vegar um landið og eru flestir
þeirra bændur.
Á myndinni sjást þýskir hermenn kanna valinn eftir harða bar-
daga við Valdres í Noregi seint í apríl. En á innfelldu myndinni
eru Knud V. J. Jespersen og Berit Noklebye.
Minnst inn-
rásar Þjóð-
verja í Noreg
og Danmörku
ÞESS var minnst í Danmörku
og Noregi á mánudaginn að 50
ár voru liðin frá innrás heija
Hitlers í löndin. Sagnfræðing-
arnir Berit Naklebye frá Noregi
og Knud V.J. Jespersen frá Dan-
mörku fluttu fyrirlestra um inn-
rásina og hernámsárin í Norr-
æna húsinu á mánudagskvöld.
Þar kom fram að barátta and-
spyrnuhreyfinga hefði átt sinn
þátt í að styrkja siðferðisþrek
íbúa landanna en rannsóknir
hefðu sýnt að spellvirki, m.a. á
járnbrautum, hefðu vart haft
teljandi áhrif á stríðsrekstur
Þjóðveija.
Kristján X konungur skipaði
danska hernum að gefast upp eftir
nokkurra klukkustunda bardaga á
landamærunum. í Noregi var
ákveðið að reyna að verjast enda
aðstaða öll betri og auk þess treyst
á stuðning breskra og franskra
hermanna. Þjóðveijar höfðu þó
betur eftir tveggja mánaða baráttu
og urðu Norðmenn og Danir að
þreyja fimm ára hernám. Þúsundir
manna létu lífið, margir úr röðum
andspyrnuhreyfinga en að auki
fórst fjöldi norskra sjómanna. Við
upphaf styijaldarinnar áttu Norð-
menn fjórða stærsta kaupskipa-
flota í heimi og sigldi megnið af
honum fyrir Bandamenn öll
stríðsárin.
Svíkja út parket og
selja með afslætti
Rannsóknarlögregla ríkisins hefúr haft til rannsóknar mál manna
farið hafa milli byggingavöruverslana í Reykjavík, tekið út dýrar vör-
ur, einkum parket, og greitt fyrir með skuldabréfum að öllu leyti eða
langstærstum hluta. Síðan hafa þeir selt vörurnar með verulegum
afslætti og látið skuldabréfin falla. Þeir sem keypt hafa af þeim munu
í flestum tilfellum hafa haldið sig vera að kaupa smyglaða vöru. Að
sögn rannsóknarlögreglu hefúr verulegur hluti þess varnings sem
menn þeir, sem rannsóknin beinist að, tóku út skilað sér aftur til selj-
enda.
Morgunblaðið ræddi við forsvars-
menn þriggja byggingavöruverslana
í Reykjavík sem orðið hafa fyrir
barðinu á þessum mönnum. Þrír
menn hafa nýlega setið í gæsluvarð-
haldi vegna lögreglurannsóknarinn-
ar en Morgunblaðinu er kunnugt um
að 10 manns, flestir dæmdir saka-
menn, 20-35 ára gamlir, hafi átt
aðild að málum sem þessum í nokkr-
um byggingavöruverslunum í
Reykjavík í vetur.
Hjá einum verslunareigendanna
hafði ungur maður tekið út vörur
fyrir eina milljón króna, greitt út
300 þúsund en undirritað skuldabréf
fyrir afganginum. Hann kom í versl-
unina ásamt manni og konu sem
ábyrgðust skuldabréfið. Hjá þessari
verslun eins og hinum tveimur var
athugað hvort fólkið væri á vanskila-
skrám en svo reyndist ekki vera.
Þegar ekki var greitt af skuldabréf-
unum var farið að athuga málið og
kom þá í ljós að menn þessir höfðu
keypt sér notaðan húsbíl og notað
vörurnar til að greiða kaupverðið.
í annarri verslun sviku sex ungir
menn á þremur vikum út 5-600
þúsund króna virði af parketi. Þeir
komu tveir og tveir saman og
greiddu að öllu leyti með skuldabréf-
um. Ekki var komið að gjalddaga
þegar haft var samband við verslun-
areigandann og honum sagt að
maðkur kynni að vera í mysunni.
Þá kom í ljós að parketið höfðu
mennirnir selt sem smyglað með um
það bil helmings afslætti. Þessi
verslun hefur fengið hluta vörunnar
til baka.
I þriðju verslunina komu þrír ung-
ir menn, sögðust vera að gera upp
íbúð fyrir mann sem væri væntan-
legur til landsins eftir 10 daga og
vildu fá að taka parket út á reikn-
ing. Samið var um að látinn skyldi
af hendi víxill sem greiðast átti eft-
ir tíu daga. Mennirnir, sem gáfu upp
rétt nöfn og heimilisföng, fundust
ekki á vanskilaskrám. Víxillinn var
aldrei greiddur og við eftirgrennslan
fannst parketið á gólfi í íbúð fólks
sem átt hafði viðskipti við mennina
og greitt fyrir með notuðum bíl.
Lagt var hald á bílinn og kaupend-
urnir, sem héldu vöruna smyglaða,
og verslunareigandinn náðu sam-
komulagi sem fól í sér að greitt var
heildsöluverð fyrir parketið.
Ein þessara verslana varð fyrir
hundruð þúsunda tjóni skömmu fyr-
ir áramót þegar maður hringdi þang-
að skömmu fyrir lokun, bað um
ákveðinn sölumann og kynnti sig
sem starfsmann ákveðinnar bygg-
ingaverslunar úti á landi sem þarna
hefur verið í föstum viðskiptum.
Hann sagðist þurfa 100 fermetra
af parketi og að sendiferðabíll mundi
sækja það samdægurs þar sem bytja
ætti að leggja það á gólf daginn
eftir. Varan var afgreidd og verslun-
inni úti á iandi sendur reikningur-
inn. Þar könnuðust menn ekki við
úttektina og þegar málið var kannað
kom í ljós að sendiferðabílstjórinn,
sem var grandalaus um málavöxtu,
hafði afhent parketið við Hafnar-
fjarðarhöfn ókunnum manni sem
sagðist vera að setja það um borð í
strandferðaskip. Þar um borð hefur
parketið aldrei farið og svikarinn er
ófundinn.
Eskifjörður:
Nýr bátur bæt-
ist í flotann
Eskifirði.
NÝR bátur hefur bæst í fiota
Eskfirðinga. Það er Guðmundur
Þór SU 121, tæplega 10 tonna
bátur, byggður hjá Samtaki í
Hafiiarfirði.
Nýi báturinn leysir af hólmi sam-
nefndan 11 tonna bát sem búið er
að úrelda. Guðmundur Þór er með
115 tonna kvóta. Skipstjóri og út-
gerðarmaður er Gylfi Þór Eiðsson.
Báturinn hefur hafið róðra og er
róið með línu. Gylfi mun verka afl-
ann af bátnum sjálfum.
Sýning Huldu í Ás-
mundarsal og Mokka
HULDA Halldórsdóttir hefur
opnað sýningu á verkum sinum
í Mokka við Skólavörðustíg og
í dag, fimmtudag, opnar hún
sýningu í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Sýningin í Ásmundarsal er opin
frá klukkan 14-20 alla daga, en
henni lýkur 22. apríl. Sýningin á
Mokka stendur til 1. maí. Allar
myndir Huldu eru unnar úr acryl
og olíu.
Þú getur lækkað
fargjaldið þitt
Innlegg í ferðasjóðinn
1000 krónur
Handhafi þessa seðils sparar sér 1000 krónur
ef hann staðfestir ferð til Costa del Sol,
Mallorka eða Algarve í Portúgal fyrir 1. maí.
Hver einstaklingur getur skilað einum miða
þannig að fimm manna fjölskylda sparar sér
fimm þúsund krónur o.s. frv.
Ekki skiptir máli hvenær sumars ferðirnar
eru farnar.
Fylgist með auglýsingum okkar á
næstunni til að fá fleiri miða.
URVAL-UTSYN
Örugg þjóniuita um allan heim
Álfabakka 16, sími 60 30 60 og Pósthússtræti 13, sími 26900.
i
- haj