Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990 n DANFOSS VHT HVAD ÞÚ VILT! Mikil útbreiösla DANFOSS ofnhitastilla a fslandi sýnir aö þeir eru í senn nákvæmir og öruggir. Æ fleiri gera nú sömu kröfur tii baðblöndun- artækja og velja hitastilltan búnaö frá DANFOSS. Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu Þú stillir á þægilegasta hitann í hverju her- bergi og DANFOSS varðveitir hann nákvæm- lega. Og í baðinu ertu alltaf öruggur með rétta hitann á rennandi vatni, ekki sfst fyrir litla fólkið þitt. Aukin vellíðan, lœgri orkukostnaður. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, SlMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJONUSTA - LAGER Alþjóðleg ráðstefna um hollustu omega-3 fitusýra í fískmeti: Niðurstöðurnar gætu skipt miklu máli varð- andi eftirspurn eftir fiski - segir dr. Sigmundur Guðbjarnason há- skólarektor sem flutti erindi á ráðstefnunni VÍSINDAMENN frá 25 löndum tóku nýlega þátt í alþjóðlegri ráð- stefnu, sem haldin var í Washington í Bandaríkjunum, um hollustu omega-3 fítusýra í fískmeti, en aðild að ráðstefnunni áttu meðal annars allar helstu heilbrigðisstofnanir og rannsóknarstofnanir í heilbrigðismálum í Bandaríkjunum. í ályktun sem gefin var út að lokinni ráðstefnunni segir að sýnt hafi verið fram á heilsufræðilega nauðsyn omega-3 fitusýra. Því hvefji vísindamennirnir til þess, að öll fæða innihaldi þær. Dagleg neysla á 0,5-1,0 grammi af omega-3 fitusýrum gæti minnkað líkurnar á dauðsföllum miðaldra Bandaríkja- manna af völdum hjarta- og kransæðasjúkdóma um 40%, auk þess sem nýjar niðurstöður bendi til þess að þær geti dregið úr dauðsföll- um af völdum krabbameins. Dr. Sigmundur Guðbjarnason háskóla- rektor var einn framsögumanna á ráðstefhunni, en hann flutti er- indi um rannsóknir sem hann hefur unnið að ásamt Eddu Benedikts- dóttur og Elínu Guðmundsdóttur um jafiivægi á milli omega-3 og omega-6 fitusýra í hjartavöðva i tengslum við mataræði, streitu og öldrun. Fiskneysla dregur úr hættu á hjarta- og æðasjúkdómum Sigmundur Guðbjarnason sagði í samtali við Morgunblaðið að á ráð- stefnunni í Washington hefði meðal annars verið fjallað um áhrif fisk- metis og þá ekki síður lýsis á blóð- frumur, blóðflögur og það kerfi sem stjórnar blóðstorknun, og jafnframt hvernig omega-3 fitusýrur geta dregið úr hættunni á myndun blóð- tappa. „Þessar fitusýrur virðast einnig hafa hagstæð áhrif á aðrar blóð- frumur og frumurnar sem þekja æðarnar að innan, og geta dregið úr hættunni á myndun æðakölkunn- ar og æðaþrengsla. Þá hafa menn einnig getað sýnt fram á að fisk- neysla dregur úr hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og úr dánartíðni af völdum þeirra sjúkdóma. Bæði hefur þetta verið rannsakað með því að láta hópa manna neyta svo og svo mikils af fiski, og einnig hafa verið gerðar kannanir eins og ég var að kynna á ráðstefnunni, þar sem borin er saman fiskneysla þjóða annars vegar og dánartíðni af völd- um hjarta- og æðasjúkdóma hins vegar. Það sýnir sig að eftir því sem þjóðirnar neyta meira af fiski þeim mun lægri er dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Þá er einn- ig vaxandi áhugi á rannsóknum þar sem omega-3 fitusýrur eru notaðar við liðagigt, allskyns húðsjúkdómum og krabbameini. Omega-3 fitusýrur eru í fiskholdi í mismiklu magni eftir því hver fisk-' tegundin er, og meira er af þeim í feitum fiski en mögrum. Það er þó ekki einungis þessi fita í fiskinum sem er áhugaverð, heldur þykir eggjahvítan í fiskinum mjög góð. Hefur hún til dæmis verið rannsök- uð með hliðsjón af kólesteróli í blóði og æskilegum snefilefnum, þannig að fiskurinn sem slíkur virðist hafa mjög æskilega eiginleika sem fæða. Ég tel að það sé mjög líklegt að langlífi íslendinga sé ekki vegna þess að lífið hafi verið auðvelt hér á landi, heldur vegna þess að fiskur- inn hefur verið svo ríkur þáttur í Magnaður kraftur -felst í þessu litla hylki Það er hreint ótrúlegt hvað hægt er að byggja upp mikinn líkamlegan styrk á skömmum tíma ef rétt er á haldið. Ein undirstaðan og sú mikilvægasta er að tryggja rétt bætiefni. Magnamín bætiefnabelgirnir eru örugg, auðveld og hagkvæm leið. t»eir eru gerðir fyrir íslenskar fæðuvenjur til þess að tryggja íslendingum nákvæmlega þau efni sem þeir þarfnast. Taktu góða Magnamíniotu - með morgunmatnum og nældu þér í kraft fyrir vorið. Magnamín með morgunmatnum - magnar kraftinn. :*• beigirnir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.