Morgunblaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
VERÐSAMANBURÐUR A
JÓGÚRT FRÁMSOG BAULU
Leiðbeinandi smásöluverð samkvæmt útgefnum verðlistum
MS ÓSKAJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 47 BAULUJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 47
BAULU ÚRVALSJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 52
MS EÐALJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 170 g Smásöluverð kr.: 47
MS SUNNUDAGSJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk og rjóma Magn 180 g Smásöluverð kr.: 52
MS SKÓLAJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn: 150 g Smásöluverð kr.: 42 BAULU BROS Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 49 (Lækkað úr kr. 52 27/3 90) (150 g kr. 40,83)
MS LÉTTJÓGÚRT Framleidd úr léttmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 42 BAULU TRIMMJÓGÚRT Framleidd úr undanrennu Magn 180 g Smásöluverð kr.: 52
MS ÓSKAJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 500 g Smásöluverð kr.: 106 BAULUJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 500 g Smásöluverð kr.: 106
MS LÉTTJÓGÚRT (fernur) Framleidd úr léttmjólk Magn 500 g Smásöluverð kr.: 91
MS SÝRÐUR RJÓMI18% Magn 200 g Smásöluverð kr. r 133 BAULU SÝRÐUR RJÓMI 18% Magn 150 g
(150 g kr. 100 )
Smásöluverð kr.: 109
nmr
International Herald Tribune
Hamskipti
Hvatt til stofhunar jafiiaðar-
mamiaflokks í Sovétríkj unum
- og tafarlauss klofiiings í kommúnistaflokknum
Moskvu. Rcuter.
EINN af forystumönnum umbótasinna innan sovéska kommúnista-
flokksins sagði í gær, að afturhaldsöflin innan hans sætu á svikráðum
við þá og því væri nauðsynlegt að kljúfa flokkinn og stofna nýjan jafn-
aðarmannaflokk.
Ílíja Tsjúbais sagði, að árásir Jeg-
ors Lígatsjovs og bandamanna hans
á Lýðræðisvettvanginn, samtök um-
Aukin verð-
bólga í Svíþjóð
Stokkhólmi. Reuter.
AUKIN verðbólga í Svíþjóð veld-
ur stjórnvöldum þar áhyggjum.
Verðbólgan er nú 11,2% á árs-
grundvelli. í fyrra var verðbólga
6,7% i iandinu.
„Launþegar sjá nú hver verðbólg-
an er í raur. þrátt fyrir að verðstöðv-
un hafí verið í gildi,“ sagði Lillemor
Thalin, hagfræðingur hjá Svenska
Handelsbanken, þegar birtar voru
tölur um verðlagshækkanir í mars-
mánuði. Sænska ríkisstjórnin hefur
ákveðið að aflétta verðlagshömlum
frá og með deginum í dag.
bótasinna innan kommúnistaflokks-
ins, væru aðeins upphafið að um-
fangsmiklum „nornaveiðum".
„Við skorum á alla félaga í komm-
únistaflokknum að segja sig úr hon-
um, hætta að greiða flokksgjöldin
og ganga til liðs við Lýðræðisvett-
vanginn," sagði Tsjúbais í viðtali,
sem var svar við „opnu bréfi“ frá
miðstjórn flokksins en hún er að
miklu leyti skipuð harðlínumönnum.
í því er ráðist harkalega að Lýðræð-
isvettvangnum. „Við drögum þá
ályktun af bréfinu, að Lígatsjov og
harðlínumennirnir hafi tekið völdin
í flokksforystunni,“ sagði Tsjúbais.
Sovéska sjónvarpið sagði frá efni
„opna bréfsins" á þriðjudag en þar
sagði, að tímabært væri „að ákveða
hvað gera á við þá, sem hafa skipað
sér í fylkingu utan flokksins. Hvern-
ig geta þeir jafnframt verið félagar
í sovéska kommúnistaflokknum?".
Gefið var einnig í skyn, að á næsta
flokksþingi, sem verður 3. júní,
kæmi til uppgjörs á milli hópanna.
Lýðræðisvettvangurinn ætlar að
halda fund seint í næsta mánuði en
Tsjúbais sagði, að þessar árásir
neyddu umbótasinna til að bregðast
hart og skjótt við. Lýðræðisvett-
vangur er með flokksdeildir í meira
en 100 borgum og félagar taldir
vera nokkur hundruð þúsunda, þar
á meðal margir kunnustu umbóta-
sinnar í Sovétríkjunum.
Síðastliðinn sunnudag sakaði
Lígatsjov forystumenn kommúnista
um linkind við „róttæklinga" innan
kommúnistaflokksins og krafðist, að
þeir yrðu reknir strax. „í flokknum
eru öfl, sem eru andvíg sósíalisman-
um,“ sagði hann og í Hvíta-Rússl-
andi, þar sem harðlínumenn hafa
töglin og hagldirnar, hafa verið boð-
aðar hreinsanir innan flokksins.
Tsjúbais, sem er Hvítrússi, sagði,
að hann hefði raunar þegar verið
rekinn.
„Tilraunum til að breyta komm-
únistaflokknum er lokið. Honum
verður ekki breytt og við, sem áttum
okkur á því, verðum að hefjast handa
strax,“ sagði Tsjúbais.
EGYPTALAND
13 ÆVINTÝRADAGAR
BROTTFÖR ALLA SUNNUDAGA í SUMAR
KAIRÓ - LUXOR - NÍL - ASWAN O.FL.
Gisting á de luxe hótelum - Fæði - Fjöldi skoðunarferða innifaldar-
Verð aðeins kr. 98.820,-
pr. mann ítvíbýli
6 daga ferðir frá kr. 43.790,
Nákvæm ferðaáætlun
liggur frammi á skrifstofunni -
FARKC3RT I FIF
PR.GENG11.4.90.
S4S
FtRDASKMFSTOfAN
Suðurgötu 7,
sími 624040.