Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
25
Shevardnadze um varnir sameinaðs Þýskalands:
Gæti tilheyrt tveimur
hernaðarbandalögum
Brussel. Reuter.
SAMEINAÐ Þýskaland ætti að geta tilheyrt bæði Varsjárbandalaginu
og Atlantshafsbandalaginu (NATO) sem gætu tekið upp varanleg
tengsl. Þessi viðhorf koma fi-am í grein eftir Edúard Shevardnadze,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sem birtist í tímaritinu NATO’s Sixte-
ea Nations sem gefið er út í Brussel. Talsmaður bandariskra sljórn-
valda vísaði hugmyndum Shevardnadze á bug í gær.
Stjómvöld í Sovétnkjunum hafa „Margir sérfræðinga okkar .. eru
hingað til hafnað þeirri hugmynd
að sameinað Þýskaland verði í
NATO. Skrif Shevardnadzes þykja
benda til að Sovétmenn séu nú reiðu-
búnir að falla frá kröfu sinni um
hlutleysi sameinaðs Þýskalands.
Móðir Ter-
esa sest í
helgan stein
Páfagarði. Reuter.
MÓÐIR Teresa, sem fékk frið-
arverðlaun Nóbels fyrir fram-
lag sitt í þágu fátæks fólks,
hefiir sagt af sér störfum hjá
alþjóðlegri hjálparstofiiun,
sem hún rak. Gerði hún það
af heilsufarsástæðum en hún
verður áttræð á þessu ári.
í tilkynningu frá Páfagarði
sagði, að Jóhannes Páll II páfi
hefði fallist á afsögnina og yrði
nýr forstöðumaður hjálparstofn-
unarinnar skipaður í september.
Móðir Teresa hefur lengi verið
táknræn fyrir þá, sem vinna að
hjálparstörfum fyrir fátæka og
sjúka í þriðja heiminum, og
hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir
árið 1979. Hún hefur átt við
hjartveiki að stríða síðasta hálfa
árið og var raunar vart hugað
líf um tíma.
Reuter
Móðir Teresa
þeirrar skoðunar að tvöföld aðild
Þýskalands gæti verið hentug leið
út úr þeim erfíðleikum sem nú blasa
við,“ segir ráðherrann.
En Shevardnadze segir engu að
síður að hlutleysi eigi að vera
langtímamarkmið fyrir Þýskaland
og aðild þess að Atlantshafsbanda-
laginu einu saman sé ekki ásættan-
leg.
í greininni leggur ráðherrann til
að hemaðarbandalögin tvö verði til
staðar uns nýju evrópsku öryggis-
kerfi hafi verið komið á laggirnar.
Hann leggur til að Ráðstefnan um
öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÓSE) fái á sig formlegri mynd
með reglulegum leiðtogafundum að-
ildarríkjanna 35 og föstu starfsliði.
Þangað til að þetta gerist ættu
NATO og Varsjárbandalagið að taka
upp formleg tengsl bæði á pólitíska
og hemaðarsviðinu. Talsmenn
NATO hafa sagt að þeir vilji ekki
taka upp slík tengsl fyrr en Varsjár-
bandalagið sé orðið að pólitísku
bandalagi fullvalda ríkja. She-
vardnadze segir að nú sé sá tími
kominn. „Núna er bandalagið reist
á eðlilegu samstarfi fullvalda, jafn-
rétthárra ríkja þar sem enginn gerir
tilkall til einokunar á völdum eða
sannleikanum."
Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjastjómar, vísaði hug-
myndum Shevardnadze á bug í gær.
Hann sagði að aðild Þýskalands að
báðum hemaðarbandalögunum
jafngilti í .raun hlutleysi og væri
óviðunandi. Helmut Kohl kanslari
Vestur-Þýskalands hefur áður hafn-
aði svipuðum hugmyndum.
MiG-þota
á uppboði
London. DPA.
SOVÉSK orrustuþota af gerðinni
MiG-21 verður boðin upp hjá
Christie’s uppboðshaldaranum í
London í lok mánaðarins.
Þotan var smíðuð arið 1964 fyrir
ungverska flugherinn og er talið að
fyrir hana fáist milli 100 og 150
þúsund sterlingspund, jafnvirði
100-150 milljóna ísl. króna.
Á uppboðinu, sem fram fer
skammt frá háskólabænum Cam-
bridge, verða seldar 41 sjaldgæf
flugvél.
Reuter
Þeódorakis ráðherra
Fyrsta hægristjóm í Grikklandi frá árinu 1981 tók við völdum í gær
og er hún undir forystu Konstantíns Mitsotakis, leiðtoga Nýja lýðræðis-
flokksins. Efnahagsöngþveiti ríkir í landinu eftir margra ára óstjóm
sósíalistaflokks Andreas Papandreous og Mitsotakis hét því að nýja
stjómin myndi temja sér „aðra hætti, annað siðferði, án gerræðis og
hroka.“ Á myndinni sést tónskáldið Mikis Þeódorakis eftir að hann
hafði svarið embættiseið sem ráðherra án ráðuneytis. Þeódorakis, sem
einkum er þekktur fyrir lagið „Dans Zorba“, var áratugum saman
gallharður kommúnisti en hefur nú snúið við blaðinu og bauð sig fram
til þings fyrir flokk Mitsotakis.
Gíslar í Líbanon:
Belgíska stjóniin ræðir við
fulltrúa hryðjuverkamanna
Bresk blöð gagnrýna Frakka harölega fyrir meint gíslaviðskipti viö Gaddafi
Brussel, London, Toronto. Reuter.
MÖGULEGT er að senn verði
samið við palestínsku hryðju-
verkasamtökin Byltingarráð
Fatah í Líbanon um að sleppa
fleiri belgiskum gíslum. Tals-
maður Byltingarráðsins heldur
ROSE:
Oll Evrópa verði
eitt markaðssvæði
Bonn. dpa.
HANS-Dietrich Genscher, ut-
anríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, lagði í gær til, að komið
yrði á fót þremur stofnunum, sem
ynnu að því að gera Evrópu alla,
frá Atlantshafi til ÚralQalla, að
einu markaðssvæði. Kom þetta
íram á RÖSE-ráðstefhunni um
efnahagssamvinnu í Evrópu en
hún er haldin i Bonn.
Á fundi með efnahagssérfræð-
ingum frá 35 aðildarríkjum RÖSE,
Ráðstefnunnar um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu, hvatti Genscher til,
að sett yrði upp samevrópsk uiti-
hverfismálastofnun, stofnun, sem
fylgdist með hugsanlegum óróa- og
átakasvæðum, og í þriðja lagi stofn-
un, sem sæi um að samræma lög
og reglur innan allra RÖSE-ríkj-
anna. Kvaðst hann sjá Evrópu fyrir
sér sem eitt markaðssvæði og sagði,
að Bonnfundurinn væri upphaf
miklu nánari samvinnu í efnahags-
málum aðildarríkjanna. w s
Hans-Dietrich Genscher
Um sameiningu þýsku ríkjanna
sagði Genscher, að Þjóðveijar vildu
aðeins vera frjálsir og lifa í sátt og
samlyndi við nágranna sína og lagði
áherslu á, að fullt tillit yrði tekið
rjshagsmuna Sovétríkjanna.
þessu fram en belgíska stjórnin
segir viðræður við ráðið vera á
viðkvæmu stigi og vill ekki frek-
ar tjá sig um málið. Breskir fjöl-
miðlar hafa ráðist harkalega á
frönsk stjórnvöld fyrir að af-
henda Muammar Gaddafi, ein-
ræðisherra Líbýu, nokkrar her-
þotur gegn því að fá síðasta
franska gíslinn í Líbanon lausan
síðastliðinn þriðjudag. Gaddafi
hefur lengi stutt við bakið á
ýmsum hryðjuverkasamtökum
Palestinumanna.
Walid Khaled, talsmaður hiyðju-
verkasamtakanna, sagði frétta-
manni Reuters að tekið gæti nokk-
um tíma að semja um málið. Hann
sagði einnig að grundvallarskilyrði
væri að sleppt yrði úr haldi Pal-
estínumanninum Nasser Said sem
afplánar lífstíðardóm í belgísku
fangelsi fyrir tilræði gegn bæna-
húsi gyðinga í Antwerpen 1980.
Belgíumanninum Femand Hou-
tekin var sleppt á þriðjudag ásamt
franskri unnustu sinni og barni
þeirra og voru þau látin laus vegna
tilmæla Gaddafis. Eftir eru fjórir
belgískir gíslar í Líbanon; bróðir
og mágkona Houtekins ásamt
tveim börnum þeirra. Þeim var
rænt af snekkju á Miðjarðarhafi
árið 1987. Að sögn Khaleds starf-
aði fólkið fyrir ísraelsku leyniþjón-
ustuna, Mossad, og gat hann þess
að belgíska stjómin yrði einnig að
„takmarka starfsemi Mossads á
belgísku landssvæði.“ Gíslarnir
hafa fengið góða meðferð, að sögn
talsmannsins. „Við setjum enga
úrslitakosti, hótum ekki að taka
fólkið af lífi ef kröfum okkar verði
ekki sinnt. Við höldum þeim föngn-
Reuter
Walid Khaled, talsmaður hryðju-
verkasamtakanna Byltingarráð
Fatah.
um, það er allt og sumt.“
Stjórnvöld í Bandaríkjunum telja
Byltingarráð Fatah ein hættuleg-
ustu hryðjuverkasamtök í heimi,
þau beri ábyrgð á fjölda tilræða
og hafi drepið eða sært um 900
manns víða um heim undanfama
tvo áratugi. Leiðtogi þeirra er
Sabri al-Banna sem betur er þekkt-
ur undir nafninu Abu Nidal. Talið
er að Nidal búi nú í Líbýu.
Frakkar gagnrýndir
Breskir fjölmiðlar gagnrýna
harkalega frönsk stjórnvöld og
segja ljóst að Gaddafi hafí haft
afskipti af gislamálinu vegna þess
að Frakkar ákváðu að láta hann
hafa þijár Mirage-herþotur sem
vom til viðgerðar í Frakklandi.
Samkomulag er um það í Evrópu-
bandalaginu að selja Líbýumönn-
um ekki vopn vegna stuðnings
Gaddafis við hryðjuverkahópa og
segja bresku blöðin að Frakkar
láti eiginhagsmuni ráða. „Ógeðfellt
framferði franskra ráðamanna er
þeir smjaðra fyrir Gaddafi, skjól-
stæðingar hans hafa nú látið lausa
þijá gísla, sýnir enn einu sinni hve
hræsnin varðandi þessi mál er mik-
il í alþjóðasamskiptum," sagði The
Times. Blaðið segir að næst þegar
Bretar verði sakaðir um skort á
evrópskri samstöðu hljóti Margaret
Thatcher forsætisráðherra að
mega hrópa: Tripoli! [heiti höfuð-
borgar libýu] í eyra sérhvers
Frakka sem beri fram aðfinnslur.
Franski utanríkisráðherrann, Ro-
land Dumas, hefur hrósað Gaddafi
fyrir „göfugmannlega og mannúð-
lega framkomu" í málinu. The
Daily Mail segir ummælin valda
ógleði hjá fólki sem annars láti sér
fátt fyrir bijósti brenna og The
Independent tekur í sama streng.
Sum frönsk blöð segja ljóst að
herþotumar hafi ráðið úrslitum en
fagna niðurstöðunni; nú séu engir
franskir gíslar lengur í Libanon.
Vinstriblaðið Liberation sagði
málalokin sigur fyrir frönsku ut-
anríkisþjónustuna en hrósyrðin um
Gaddafí væru undarlega há-
stemmd.
George Bush Bandaríkjaforseti
segir að rétt sé að hæla Gaddafi
fyrir afskipti hans hafi hann átt
þátt í lausn málsins en eftir sem
áður sé mikill ágreiningur mili
Bandaríkjanna og Libýu.