Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
verðdæmi
a, tjögurra manna
tirnabmnu -ig,
ryi. Vikuverð
,3> fjögurra n.anna
timabilinu A
a herbergia.
Faborg á t»
f,l 28. júb- v
toðsíendur meöíram alln
Dantnörku..
'07íír
R-itvJÍLa;vintvn uPp á
Pað angar allt og sýður af
ánægju þegar sumarið nær
hámarki í Danmörku.
Komið og fínnið það sjálf.
Víðáttmiklar strendur.
Grænir skógar og engi. Og
allskonar skemmtigarðar s.s.
Tivoli, Fárup Sommerland,
finna í elsta konungsríki
veraldar. Og hjá Danland
býr maður með allt innan
seilingar. Rétt við bestu
baðstrendur Danmerkur.
Komið á staðinn og njótið
sumarsins.
Við hlökkum til þess að
geta boðið ykkur allt það
sem sannarlega getur talist
danskt. Hringið og fáið
sendan bækling og verðlista.
íf DANMARKS TURISTRÁD
NORRÆNA FKROASKRIKSIOFAN,
SMYRII. IJNE - ÍSIANI)
Laugavegur 3 Fjarðargata 8
RcykjaviTc Seyðisfjörður
S.: 91-626362 S.: 97-21111
Danland
Bretland:
Hægt að akveða
kynferði fósturs
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frí-
mannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
LÆKNAR við Hammersmith-sjúkrahúsið í London hafa uppgötvað
aðferð til að ákveða kynferði fósturs, að því er segir í frétt The
Sunday Times sl. sunnudag.
Áður en langt um líður fæðast
tvö börn, sem eru árangur þessarar
aðferðar. Aðferðin er sú, að fijóvga
egg á tilraunastofu og þegar það
er þriggja daga gamalt fjarlægja
eina frumu og nota hana til að
komast að raun um, hvors kyns hið
frjóvgaða egg verður. Ef kynferðið
er það, sem sótzt var eftir, er fóstr-
inu komið fyrir í legi móður og vex
þar eðlilega heppnist aðgerðin vel.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
vísindamönnum tekst að sýna fram
á, að þeir geti örugglega ákvarðað
kynferði fósturs. Mikilvægi aðferð-
arinnar felst í því, að hún gerir
mögulegt að draga úr tíðni erfða-
sjúkdóma. Ýmsir arfgengir sjúk-
dómar berast einungis eftir kven-
legg eða karllegg. Þegar vitað er,
að foreldrar hýsa gallaða erfðavísa
er hægt að ganga úr skugga um
hvort barnið muni þjást af sjúk-
dómnum með því að komast að
kynferði þess strax í móðurkviði.
Andmælendur segja, að þetta sé
upphafið að því, að búa til börn
eftir forskrift. Samtök gegn fóstur-
eyðingum segja, að þessi aðferð sé
engin lækning gegn arfgengum
sjúkdómum, hún lækni með því að
drepa sjúklinginn.
Martin Bobrow, prófessor í
barnalækningum við Guy’s-sjúkra-
húsið í London, sagði, að andmæl-
endur þessarar aðferðar væru ekki
stuðningsmenn lífsins, heldur væru
þeir stuðningsmenn þjáningar og
færri kosta í mannlífinu.
Síðar í þessum mánuði mun neðri
málstofa brezka þingsins greiða
atkvæði um nýja löggjöf um fóst-
urtilraunir. í frumvarpi til laga, sem
liggur fyrir málstofunni er gert ráð
fyrir að slíkar tilraunir verði heimil-
aðar á fóstrum allt að 14 daga
gömlum.
Frumvarpið var samþykkt fyrr á
árinu í lávarðadeildinni með veru-
legum meirihluta. Þingmenn hafa
fijálsar hendur um, hvernig þeir
greiða atkvæði; flokkarnir taka
ekki afstöðu. Talið er líklegt, að
frumvarpið verði samþykkt, en and-
stæðingar þess halda uppi sterkum
áróðri gegn því. Verði það fellt
bannar það sjálfkrafa allar aðgerðir
á borð við þær sem læknarnir á
Hammersmith-sjúkrahúsinu hafa
beitt til að ákvarða kynferði fósturs.
Gleðilega páska
Opnunartími um páskana:
skírdagur, 12/4 - opið kl. 9-21
föstudagurinn langi, 13/4 - lokað
laugardagur, 14/4 - opið kl. 9-21
páskadagur, 15/4 - lokað
annar páskadagur, 16/4 - opið kl. 9-21
- ÞAR SEM VORIÐ BYRJAR
Reuter
Afvopna kontra-liða
Hermenn frá Venesúela koma til Onuca í Hondúras í þeim tilgangi
að liðsinna kontra-skæruliðum frá Nicaragua að leggja niður vopn.
Er það gert í tengslum við forsetaskipti í Nicaragua síðar í þessum
mánuði.