Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 27

Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990 27 - segir rithöfiindurinn Gabriel Garcia Marques Ástandinu á þingi líkt við grátbroslegan gamanleik Jerúsalem. Reuter. SHIMON Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins í Israel, mistókst í gær að mynda nýja stjórn í landinu en Chaim Herzog forseti heftir framlengt umboð hans enn um hálfan mánuð. Nokkrum mínútum áður en Peres ætlaði að leita traustsyfirlýsingar þingsins hlúpust undan merkjum tveir þingmenn trúmálaflokka, sem höfðu heitið honum stuðningi, og er þessi niðurstaða mikið áfall fyrir líkurnar á firiðarviðræðum við Palestínumenn. njóta, og einstökum þingmönnum, sem hlaupa sitt á hvað, úrslitavald í málum þings og þjóðar. Síðastlið- inn laugardag komu 150.000 manns saman í Tel Aviv til að krefj- ast nýrra kosningalaga og var þar um að ræða ein fjölmennustu mót- mæli í sögu Ísraelsríkis. Vestur-þýska tímaritið DerSpieg- el heldur því fram að Bandaríkja- menn gætu gert Kastró skráveifu með því að afnema viðskiptabann á Kúbu sem í þijátíu ár hefur verið honum afsökun fyrir efnahagserfið- leikum. International Herald Tri- bune segir að eina kraftaverkið sem Kastró hafi orsakað á þijátíu árum sé sykurskortur á Kúbu en sykur hefur lengi verið aðalframleiðsluvara landsins. Með því að aflétta við- skiptabanni gætu Bandaríkjamenn einnig gert Kastró erfiðara fyrir að ala á hatri á Bandaríkjunum, að sögn Der Spiegel. VIÐLEITNI Bandaríkjanna til að vekja óánægju Kúbumanna með leið- toga sinn, Fídel Kastró, t.d. með því að sjónvarpa áróðri til eyjarinn- ar, er dæmd til að mistakast, segir kólombíski rithöfundurinn Gabriel Garcia Marques í viðtali sem birtist í dagbiöðunum Miami Herald og EI Tiempo. Marques, sem er góður vinur Kastrós, segir að slíkar til- raunir stappi einungis stálinu í Kúbuleiðtogann. lagður. Einangrun landsins fer vax- andi vegna þessa. Samskipti stjórn- valda á Kúbu við hefðbundna banda- menn sína eru á margan hátt orðin stirðari. Þegar Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi kom til Kúbu fyrir ári gaf hann Kastró til kynna að eftir fimm ár yrði sovésk efnahagsaðstoð felld niður. „Hvers vegna erum við að fjármagna lögregluríki sem er komið að fótum fram“ var spurt í vikublaðinu Moskvu-fréttum fyrir skemmstu. Enda er nú svo komið að sum sovésk dagblöð eru bönnuð. í mars skrifuðu Pólveijar, Búlgarar, Tékkar og Ungveijar undir skýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem mann- réttindabrot á Kúbu eru harðlega gagnrýnd. Og í lok janúar var frétta- ritari Prag-útvarpsins rekinn úr landi vegna þess að hann spáði Kastró sömu örlögum og Ceausescu. „En hvers vegna rís þjóðin ekki upp eins og Rúmenar gerðu?“ spyr Rene Vazques Diaz, útlægur kúb- verskur rithöfundur, nýlega í grein í spánska dagblaðinu EI Pais. Svarið felst meðal annars í því að Kúba er mesta lögregluríki Rómönsku Ameríku. 100.000 manna öryggis- lögregla fylgist með hveiju fótmáli manna og hveiju óvarlegu orði. Israel: Peres mistókst stjórnar- myndun á síðustu stundu Fídel Kastró. Marques segist hlynntur lýðræðis- umbótum á Kúbu en það hafí ekki verið snjallt af Bandaríkjamönnum að reyna að flýta falli Kastrós með því að hefja rekstur sjónvarpsstöðv- arinnar TV Marti sem sjónvarpar til Kúbu. „Það eru mistök að halda að hægt sé að kæfa Fídel. Þá á hann nefnilega einskis annars úrkosti en að streitast á móti.“ Sendingamar hófust í lok mars. Þungamiðjan í dagskránni er umfjöllun um breyt- ingamar í Austur-Evrópu. Kúbversk stjómvöld hafa truflað sjónvarps- sendingamar. Nú þegar hvert landið á fætur öðru hefur hrist af sér ok kommúnis- mans verður engra breytinga vart á Kúbu. Kastró segir að fyrr farist Kúba en þar verði sósíalisminn af- Rúmenía: Biðja Mikjál að fresta för Búkarest Reuter. RÍKISSTJÓRN Rúmeníu fór þess á leit við Mikjál, fyrrum konung landsins, í gær, að hann frestaði fyrstu heim- sókn sinni til Rúmeníu frá því að honum var velt úr sessi fyrir 42 árum. Til stóð að einvaldurinn fyrrverandi kæmi til landsins í dag og stæði við fram yfir páska. í yfirlýs- ingu sem stjómin sendi frá sér sagði að farið væri fram á að Mikjáll fre- staði ferð sinni fram yfir kosning- amar sem haldnar verða i landinu 20. maí næstkomandi þar sem „koma hans til landsins á þessum tíma kynni að auka á spennuna í landinu og stofna öryggi hans í hættu“. Enn fremur sagði í yfirlýs- ingunni að margir stjórnmála- menn hefðu verið andvígir heimsókninni þar eð hún gæti vakið reiði og orðið tilefni til mótmælaaðgerða. Mikjál Þýðir ekki að reyna að flýta falli Kastrós Þingmennimir tveir, sem skiptu um skoðun á síðustu stundu, rabb- íamir Avraham Verdiger og Eliezer Mizrahi, gáfu þá skýringu, að þeir gætu ekki stutt stjóm, sem nyti atbeina arabískra þingmanna, sem aftur styddu PLO, frelsissamtök Palestínumanna. Verdiger lét raun- ar ekki þar við sitja, heldur sagði af sér þingmennsku og Mizrahi sagði sig úr flokki sínum, eina trú- málaflokknum á þingi, sem stutt hefur Verkamannaflokkinn. Kveðst hann nú ætla að beijast gegn hugs- anlegri ríkisstjóm Peresar. Yitzhak Shamir, leiðtogi Likud- flokksins, krafðist strax stjómar- myndunarumboðsins þar sem hann hefði nú vísan stuðning 60 þing- manna á móti 59 Verkamanna- flokksins en Herzog forseti ákvað að gefa Peres enn hálfan mánuð. Stjómmálaskýrendur telja hins veg- ar, að útkoman í gær hafi ef til vill bundið enda á forystuhlutverk Peresar og veðja á, að Yitzhak Rabin, fyrmm vamarmálaráðherra, taki við því af honum. Erlendir fréttamenn segja, að ástandinu í Knesset, ísraelska þing- inu, megi helst líkja við grátbrosleg- an gamanleik eða knattspyrnu- keppni þar sem áhangendurnir öskra og skiptast á svívirðingum hver um annan. Er almenningi far- ið að ofbjóða og kennir um hlutfalls- kosningafyrirkomulaginu, sem veitt hefur smáflokkum, sem lítils fylgis Neyddur tíl að sitja fyrir Þessi mynd var tekin í Bogota, höfuðborg Kólumbíu, síðastliðinn þriðju- dag og sýnir leynilögreglumenn neyða Gustavo Mesa, sem játað hefur á sig morð, til að sitja fyrir hjá fréttaljósmyndumm. Mesa játaði að hafa myrt blaðamann í fyrra og er grunaður um að hafa tekið þátt í morðinu á forsetaframbjóðandanum Bemardo Jaramillo. NNH NORDISKA NAMNDEN FÖR HANDIKAPPFRAGOR Pohjoismainen vammaisasiain lautakunta The Nordic Committee on Disabilrty NNH er samstarfsstofnun Norrænu ráðherranefndarinnar, þ.e.a.s. ríkis- stjórna hinna fimm Norðurlanda. Skrifstofa NNH er í Stokkhólmi (Vállingby) og hefur fimm starfsmenn. Samkvæmt ákvörðun Norrænu ráðherranefndarinnar er nú unnið að skipu- lagi nýrrar stofnunar, sem heyra mun undir NNH. Sú stofnun mun vinna að þróun hjálpartækja fyrir fatlaða á Norðurlöndum. Stofnunin mun hafa aðsetur í Tammerfors í Finnlandi þar til 31. des. 1992 og fer starfið fram í nánu samráði við Rannsóknastofnun tækniiðnaðarins sem finnska ríkið rekur. Við stofnunina munu starfa tveir menn auk forstöðumanns og aðstoðarmanns. Með tilvísun til þessa óskar NNH eftir því að ráða sem fyrst FORSTÖÐUMANN (VERKSAMHETSLEDARE) þróunarstofnunarinnar. Viðkomandi mun starfa íTammerfors til 31. des. 1892, en eftir þann tíma verður tekin ákvörðun um hvort rekstrinum verður haldið áfram. Ríkisstarfs- menn eiga rétt á leyfi frá núverandi starfi. Starfinu fylgja nokkur feröalög, einkum innan Norðurlanda. Fyrir aðra starfsmenn en þá, sem koma frá Finnlandi, gilda sérstakar reglur um styrki vegna flutninga og launauppbætur. Helstu verkefni: Helsta markmiðið með rekstri stofnunarinnar er að efla samnorræna þróun ýmissa háþróaðra hjálpartækja fyrir fatlaða. Stofnuninni er ætlað að samræma það starf, sem fram fer á þessu sviði, og vinna að því að unnt verði að hanna slíkan búnað handa fötluðum á Norðurlöndum. í stjórn stofnunar- innar sitja fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum auk framkvæmdastjóra (kanslichef) NNH. For- stöðumaðurinn hefur á hinn bóginn umsjón með rekstrinum frá degi til dags. Krafist er viðeigandi menntunar og reynslu af stjórnunarstörfum. Þá þarf viðkomandi að vera lipur í samstarfi, jafnframt því að geta starfað sjálfstætt. Hann þarf að geta tjáð sig, jafnt í ræðu sem riti, á norsku, dönsku eða sænsku, og þess er krafist að umsækjendur hafi gott vald á finnsku eða ensku. Reynsla af stjórn sérhæfðra verkefna kemur sér vel. Upplýsingar: Kanslichef Finn Petrén, fram- kvæmdastjóri, í síma +46-8-620 18 91. I boði er ákjósanleg starfaðstaða og góð laun. Umsóknir ásamt prófskírteinum og öðru því, sem að gagni kann að koma við mat áumsækj- endum, ber að senda NNH fyrir 25. apríl 1990. Heimilisfang: NNH, Box 510, S-162 15 Váll- ingby, Sverige.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.