Morgunblaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
27
- segir rithöfiindurinn Gabriel Garcia Marques
Ástandinu á þingi líkt við grátbroslegan gamanleik
Jerúsalem. Reuter.
SHIMON Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins í Israel, mistókst í
gær að mynda nýja stjórn í landinu en Chaim Herzog forseti heftir
framlengt umboð hans enn um hálfan mánuð. Nokkrum mínútum
áður en Peres ætlaði að leita traustsyfirlýsingar þingsins hlúpust
undan merkjum tveir þingmenn trúmálaflokka, sem höfðu heitið
honum stuðningi, og er þessi niðurstaða mikið áfall fyrir líkurnar á
firiðarviðræðum við Palestínumenn.
njóta, og einstökum þingmönnum,
sem hlaupa sitt á hvað, úrslitavald
í málum þings og þjóðar. Síðastlið-
inn laugardag komu 150.000
manns saman í Tel Aviv til að krefj-
ast nýrra kosningalaga og var þar
um að ræða ein fjölmennustu mót-
mæli í sögu Ísraelsríkis.
Vestur-þýska tímaritið DerSpieg-
el heldur því fram að Bandaríkja-
menn gætu gert Kastró skráveifu
með því að afnema viðskiptabann á
Kúbu sem í þijátíu ár hefur verið
honum afsökun fyrir efnahagserfið-
leikum. International Herald Tri-
bune segir að eina kraftaverkið sem
Kastró hafi orsakað á þijátíu árum
sé sykurskortur á Kúbu en sykur
hefur lengi verið aðalframleiðsluvara
landsins. Með því að aflétta við-
skiptabanni gætu Bandaríkjamenn
einnig gert Kastró erfiðara fyrir að
ala á hatri á Bandaríkjunum, að
sögn Der Spiegel.
VIÐLEITNI Bandaríkjanna til að vekja óánægju Kúbumanna með leið-
toga sinn, Fídel Kastró, t.d. með því að sjónvarpa áróðri til eyjarinn-
ar, er dæmd til að mistakast, segir kólombíski rithöfundurinn Gabriel
Garcia Marques í viðtali sem birtist í dagbiöðunum Miami Herald og
EI Tiempo. Marques, sem er góður vinur Kastrós, segir að slíkar til-
raunir stappi einungis stálinu í Kúbuleiðtogann.
lagður. Einangrun landsins fer vax-
andi vegna þessa. Samskipti stjórn-
valda á Kúbu við hefðbundna banda-
menn sína eru á margan hátt orðin
stirðari. Þegar Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétleiðtogi kom til Kúbu fyrir ári
gaf hann Kastró til kynna að eftir
fimm ár yrði sovésk efnahagsaðstoð
felld niður. „Hvers vegna erum við
að fjármagna lögregluríki sem er
komið að fótum fram“ var spurt í
vikublaðinu Moskvu-fréttum fyrir
skemmstu. Enda er nú svo komið
að sum sovésk dagblöð eru bönnuð.
í mars skrifuðu Pólveijar, Búlgarar,
Tékkar og Ungveijar undir skýrslu
Sameinuðu þjóðanna þar sem mann-
réttindabrot á Kúbu eru harðlega
gagnrýnd. Og í lok janúar var frétta-
ritari Prag-útvarpsins rekinn úr
landi vegna þess að hann spáði
Kastró sömu örlögum og Ceausescu.
„En hvers vegna rís þjóðin ekki
upp eins og Rúmenar gerðu?“ spyr
Rene Vazques Diaz, útlægur kúb-
verskur rithöfundur, nýlega í grein
í spánska dagblaðinu EI Pais. Svarið
felst meðal annars í því að Kúba er
mesta lögregluríki Rómönsku
Ameríku. 100.000 manna öryggis-
lögregla fylgist með hveiju fótmáli
manna og hveiju óvarlegu orði.
Israel:
Peres mistókst stjórnar-
myndun á síðustu stundu
Fídel Kastró.
Marques segist hlynntur lýðræðis-
umbótum á Kúbu en það hafí ekki
verið snjallt af Bandaríkjamönnum
að reyna að flýta falli Kastrós með
því að hefja rekstur sjónvarpsstöðv-
arinnar TV Marti sem sjónvarpar til
Kúbu. „Það eru mistök að halda að
hægt sé að kæfa Fídel. Þá á hann
nefnilega einskis annars úrkosti en
að streitast á móti.“ Sendingamar
hófust í lok mars. Þungamiðjan í
dagskránni er umfjöllun um breyt-
ingamar í Austur-Evrópu. Kúbversk
stjómvöld hafa truflað sjónvarps-
sendingamar.
Nú þegar hvert landið á fætur
öðru hefur hrist af sér ok kommúnis-
mans verður engra breytinga vart á
Kúbu. Kastró segir að fyrr farist
Kúba en þar verði sósíalisminn af-
Rúmenía:
Biðja Mikjál
að fresta för
Búkarest Reuter.
RÍKISSTJÓRN Rúmeníu fór
þess á leit við Mikjál, fyrrum
konung landsins, í gær, að
hann frestaði fyrstu heim-
sókn sinni til Rúmeníu frá
því að honum var velt úr
sessi fyrir 42 árum. Til stóð
að einvaldurinn fyrrverandi
kæmi til landsins í dag og
stæði við fram yfir páska.
í yfirlýs-
ingu sem
stjómin sendi
frá sér sagði
að farið væri
fram á að
Mikjáll fre-
staði ferð
sinni fram
yfir kosning-
amar sem
haldnar verða i landinu 20. maí
næstkomandi þar sem „koma
hans til landsins á þessum tíma
kynni að auka á spennuna í
landinu og stofna öryggi hans
í hættu“.
Enn fremur sagði í yfirlýs-
ingunni að margir stjórnmála-
menn hefðu verið andvígir
heimsókninni þar eð hún gæti
vakið reiði og orðið tilefni til
mótmælaaðgerða.
Mikjál
Þýðir ekki að reyna
að flýta falli Kastrós
Þingmennimir tveir, sem skiptu
um skoðun á síðustu stundu, rabb-
íamir Avraham Verdiger og Eliezer
Mizrahi, gáfu þá skýringu, að þeir
gætu ekki stutt stjóm, sem nyti
atbeina arabískra þingmanna, sem
aftur styddu PLO, frelsissamtök
Palestínumanna. Verdiger lét raun-
ar ekki þar við sitja, heldur sagði
af sér þingmennsku og Mizrahi
sagði sig úr flokki sínum, eina trú-
málaflokknum á þingi, sem stutt
hefur Verkamannaflokkinn. Kveðst
hann nú ætla að beijast gegn hugs-
anlegri ríkisstjóm Peresar.
Yitzhak Shamir, leiðtogi Likud-
flokksins, krafðist strax stjómar-
myndunarumboðsins þar sem hann
hefði nú vísan stuðning 60 þing-
manna á móti 59 Verkamanna-
flokksins en Herzog forseti ákvað
að gefa Peres enn hálfan mánuð.
Stjómmálaskýrendur telja hins veg-
ar, að útkoman í gær hafi ef til
vill bundið enda á forystuhlutverk
Peresar og veðja á, að Yitzhak
Rabin, fyrmm vamarmálaráðherra,
taki við því af honum.
Erlendir fréttamenn segja, að
ástandinu í Knesset, ísraelska þing-
inu, megi helst líkja við grátbrosleg-
an gamanleik eða knattspyrnu-
keppni þar sem áhangendurnir
öskra og skiptast á svívirðingum
hver um annan. Er almenningi far-
ið að ofbjóða og kennir um hlutfalls-
kosningafyrirkomulaginu, sem veitt
hefur smáflokkum, sem lítils fylgis
Neyddur tíl að sitja fyrir
Þessi mynd var tekin í Bogota, höfuðborg Kólumbíu, síðastliðinn þriðju-
dag og sýnir leynilögreglumenn neyða Gustavo Mesa, sem játað hefur
á sig morð, til að sitja fyrir hjá fréttaljósmyndumm. Mesa játaði að
hafa myrt blaðamann í fyrra og er grunaður um að hafa tekið þátt
í morðinu á forsetaframbjóðandanum Bemardo Jaramillo.
NNH
NORDISKA NAMNDEN FÖR HANDIKAPPFRAGOR
Pohjoismainen vammaisasiain lautakunta
The Nordic Committee on Disabilrty
NNH er samstarfsstofnun Norrænu ráðherranefndarinnar, þ.e.a.s. ríkis-
stjórna hinna fimm Norðurlanda. Skrifstofa NNH er í Stokkhólmi (Vállingby)
og hefur fimm starfsmenn.
Samkvæmt ákvörðun Norrænu ráðherranefndarinnar er nú unnið að skipu-
lagi nýrrar stofnunar, sem heyra mun undir NNH. Sú stofnun mun vinna að
þróun hjálpartækja fyrir fatlaða á Norðurlöndum. Stofnunin mun hafa aðsetur
í Tammerfors í Finnlandi þar til 31. des. 1992 og fer starfið fram í nánu
samráði við Rannsóknastofnun tækniiðnaðarins sem finnska ríkið rekur. Við
stofnunina munu starfa tveir menn auk forstöðumanns og aðstoðarmanns.
Með tilvísun til þessa óskar NNH eftir því að ráða sem fyrst
FORSTÖÐUMANN
(VERKSAMHETSLEDARE)
þróunarstofnunarinnar. Viðkomandi mun
starfa íTammerfors til 31. des. 1892, en eftir
þann tíma verður tekin ákvörðun um hvort
rekstrinum verður haldið áfram. Ríkisstarfs-
menn eiga rétt á leyfi frá núverandi starfi.
Starfinu fylgja nokkur feröalög, einkum innan
Norðurlanda. Fyrir aðra starfsmenn en þá,
sem koma frá Finnlandi, gilda sérstakar reglur
um styrki vegna flutninga og launauppbætur.
Helstu verkefni: Helsta markmiðið með rekstri
stofnunarinnar er að efla samnorræna þróun
ýmissa háþróaðra hjálpartækja fyrir fatlaða.
Stofnuninni er ætlað að samræma það starf,
sem fram fer á þessu sviði, og vinna að því
að unnt verði að hanna slíkan búnað handa
fötluðum á Norðurlöndum. í stjórn stofnunar-
innar sitja fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum
auk framkvæmdastjóra (kanslichef) NNH. For-
stöðumaðurinn hefur á hinn bóginn umsjón
með rekstrinum frá degi til dags.
Krafist er viðeigandi menntunar og reynslu
af stjórnunarstörfum. Þá þarf viðkomandi að
vera lipur í samstarfi, jafnframt því að geta
starfað sjálfstætt. Hann þarf að geta tjáð sig,
jafnt í ræðu sem riti, á norsku, dönsku eða
sænsku, og þess er krafist að umsækjendur
hafi gott vald á finnsku eða ensku. Reynsla
af stjórn sérhæfðra verkefna kemur sér vel.
Upplýsingar: Kanslichef Finn Petrén, fram-
kvæmdastjóri, í síma +46-8-620 18 91.
I boði er ákjósanleg starfaðstaða og góð laun.
Umsóknir ásamt prófskírteinum og öðru því,
sem að gagni kann að koma við mat áumsækj-
endum, ber að senda NNH fyrir 25. apríl 1990.
Heimilisfang: NNH, Box 510, S-162 15 Váll-
ingby, Sverige.