Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Heim úr skólanum glöð
Umsjón: SAMFOK. Guðni Olgeirsson
Svefiibarna
Sofðu unga ástin mín,
úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
í þessari alkunnu vögguvísu
Jóhanns Sigurjónssonar er gef-
ið í skyn að sveftiinn sé góður
fyrir ungar sálir um dimmar
nætur. Þessi visa hefur verið
kyrjuð við rúmgafl ungra Is-
lendinga i nokkrar kynslóðir
og alltaf á boðskapur hennar
sama erindi til okkar þótt
barnagullin séu að vísu öðruv-
ísi i nútímanum.
Það eru ekki ný sannindi að
böm þurfi nægan svefn til vaxtar
og þroska. Það er hins vegar
ekki alltaf auðvelt að koma böm-
um í rúmið á kvöldin þótt foreldr-
ar leggi mikið á sig til að það
megi takast og beiti jafnvel for-
tölum. Börn eru yfirleitt forvitin
og vilja fylgjast með því sem
gerist á heimilum. Kvöldin eru á
mörgum heimilum eini tími dags-
ins sem fjölskyldan getur verið
saman, vinnutími er langur, bæði
pabbi og mamma vinna úti og
þá er eðlilegt að börn vilji njóta
samvista við sína nánustu og
segja frá atburðum dagsins.
Örlítil dæmisaga
í fyrstu kennslustund dagsins
ætlaði kennarinn að biðja 9 ára
nemendur að vinna skemmtilegt
verkefni sem krafðist þess að
bömin væru virk, færu í leiki og
töluðu saman. Minna varð úr en
til stóð því börnin vildu helst sitja
við borðið og fást við eyðufylling-
arverkefni sem lítið þurfti að
hugsa um. Ástæðan var augljós,
börnin vom upp til hópa dauð-
þreytt og grútsyfjuð. Við nánari
eftirgrennslan komst kennarinn
að því að börnin höfðu almennt
ekki farið að sofa fyrr en eftir
ki. 11 kvöldið áður. Þau höfðu
fæst sofið 8 tíma um nóttina.
Þess vegna þurftu börnin að hvíla
sig í skólanum og höfðu ekki þrek
til að læra.
Ráða má af þessari sögu að
skólatíminn hafi nýst börnunum
mjög illa vegna þreytu og slapp-
leika. Það er umhugsunarefni því
skóladagurinn er yfirleitt mjög
stuttur hjá okkur. Að vísu er það
hollt fyrir börn að hvílast og taka
lífínu með ró en það er fráleitt
að klípa af stuttum skóladegi í
þeim tilgangi. Börnin verða að
koma útsofin og hvíld í skólann,
annars geta þau lítið lært.
Sveftivenjur barna
Helgi Kristbjarnarson læknir
gerði grein fyrir könnun sem gerð
var á vegum geðdeildar Land-
spítalans um svefnvenjur
íslenskra bama í blaðinu Með
fólki, 1. tbl. 1988. í ljós kom að
meðalsvefntími var nokkuð
breytilegur en í heild reyndist
hópurinn fylgja eftirfarandi
reglu:
Svefntími 2ja ára barna var
12 klst. og svefntíminn styttist
síðan um 15 mín. fyrir hvert ald-
ursár þannig að 6 ára barn svaf
11 klst., 10 ára barn 10 klst.
o.s.frv. Svefntími er vissulega
breytilegur milli einstaklinga en
sjaldgæft er að frávikið frá þess-
ari reglu sé að jafnaði meira en
tvær klukkustundir.
I þessari sömu könnun greindi
Helgi einnig frá því að í saman-
burði við rannsóknir erlendis virð-
ast íslensk böm hafa nokkuð heil-
brigðar svefnvenjur, minna sé um
martraðir og ýmsa vanlíðan en
fram kemur í erlendum könnun-
um.
Við hljótum að vera ánægð
með niðurstöður þessarar könn-
unar og fagna því að íslensk börn
hafi heilbrigðar svefnvenjur. Hins
vegar verða foreldrar að gæta
þess að börn nái að hvílast á
heimilum og fái nægan nætur-
svefn. Það nær ekki nokkurri átt
að 9 ára böm sem þurfa að vakna
í skólann fyrir allar aldir fari að
sofa um lágnættið.
Reynið að fá þau til að sofna
með góðu, róa þau, tala við þau,
lesa fyrir þau yngri, syngja með
þeim vögguvísur, fara með bænir
o.s.frv.
Gangi ykkur vel.
Ég skal vaka og vera góð,
vininum mínum smáa
meðan óttan rennur ijóð
og roðar kambinn bláa
og harpa syngur hörpuljóð
á hörpulaufið gráa.
Halldór Laxness
Veist þú:
r hvað bamið þitt sefur að
jafnaði margar klukku-
stundir á sólarhring?
■ hvenær bekkjarfélagar
barnsins þíns fara að sofa?
■ hvort barnið þitt er syfjað í
skólanum?
■ að þýðingarlaust er að nota
valdbeitingu við að svæfa
börn?
r hvort baminu’þínu líður illa
í svefni, fær martraðir, er
spennt o.þ.h.?
Hefur þú liugleitt?:
að til þess að börn geti náð
árangri í námi þurfa þau að
geta einbeitt sér að hverju við-
fangsefni. Til þess að svo megi
verða þurfa börnin a.m.k. næg-
an nætursvefn, staðgóða nær-
ingu, hlýju og öryggi á heimili
og heilbrigða hreyfmgn. Börnin
okkar eiga skilið að við búum
þeim sem bestar aðstæður til
að læra.
Gagnslaust gæða-
mat við HÍ?
eftir Robert Cook
Það var heldur kaldhæðnisleg
uppgötvun þegar ég kom til íslands
í janúar til að hefja störf sem kenn-
ari við Háskólann að eitt leiðinleg-
asta einkenni háskólalífs í Banda-
ríkjunum, sem ég hélt að ég hefði
sagt skilið við, var í rauninni komið
til landsins rétt á undan mér. Ég á
við nýtt gæðamat sem tekið var upp
í Háskóla íslands sl. haust og rætt
var um í grein „Eggin gefa hænun-
um einkunnir" í Morgunblaðinu
11,3. 1990. Þetta kerfi er nákvæm-
lega hið sama og ég átti að venjast
í Bandaríkjunum, eyðublöð með blá-
um rákum til að gera spurninguna
áberandi og hringur sem nemendur
eiga að fylla inn í með blýanti (nr.
2); þeir velja einn hring af fimm
fyrir hveija spurningu á mælikvarð-
anum frá -^2 til +2. Auk þess gefa
þeir kennslunni og námskeiðinu ein-
kunnir á bilinu 0-10. Eyðublöðin eru
síðan sett inn í tölvu sem spýtir út
úr sér tölfræðilegu mati á kennaran-
um-
Eftir að hafa kennt í þijátíu ár
við ameríska háskóla, átt sæti í
ýmsum dómnefndum og verið deild-
arforseti þar sem nauðsynlegt var
að leggja mat á kennslu, hef ég
komist að þeirri niðurstöðu að mat
af þessu tagi sé ekki bara óheppilegt
og gagnslaust heldur geti einnig
haft skaðlegar afleiðingar.
Kerfið er óhentugt. Kennsla er
of flókin og viðkvæm listgrein til
þess að hægt sé að vega hana og
meta á þann hátt að nemendur fylli
inn í nokkrar eyður þegar fáeinar
mínútur eru eftir af síðasta tímanum
í lok annar. Það væri eins hægt að
biðja nokkra tónlistarunnendur um
að gefa tónlist eftir Bach og Mahler
einkunn á skalanum 1 til 10 eins
og oft er talað um til gamans. Það
er of auðvelt að fylla þetta eyðublað
út, það tekur lítinn tíma og krefst
sennilega lítillar umhugsunar hjá
nemendum. En engu að síður hafa
tölurnar sem nemendur gefa — góð-
ir nemendur og lélegir, þeir sem
leggja hart að sér og þeir sem slá
slöku við, þeir sem mæta í tíma
reglulega og þeir sem mæta örsjald-
an — allar sama vægi og breytast
í tclur sem verða (á þessari talna-
öld) teknar sem alvarlegur og
óvefengjanlegur dómur. Það hefur
ekki enn verið ákveðið hveijir fá
aðgang að þessum tölum en það er
óhjákvæmilegt að þessar einkunnir
verði skrásettar og geymdar og not-
aðar af þeim sem eiga að leggja
mat á kennarann í sambandi við
styrk, stöðuhækkun eða launahækk-
un. Afdrifaríkar niðurstöður ættu
ekki að byggjast á ómerkilegri at-
hugun.
Háskólakennsla er ekki aðeins
listgrein, hún er einnig of fjölbreytt
til þess að hægt sé að leggja á hana
einfaldan mælikvarða. Eyðublaðið
sem ætlað er í tölvu getur ekki ver-
ið annað en „procrustean". (Prókr-
ustes átti tvö rúm sem urðu að passa
öllum gestum — ef maður var of
stuttur var teygt úr honum en ef
hann var of langur var höggvið af
honum.) Fjöldi nemenda eða eðli
námskeiðsins skiptir engu máli, sér-
stök stefna eða aðferðir sem kennar-
inn ætlar sér að nota skipta engu
máli — mælikvarðinn er alltaf sömu
15 spurningarnar („Æfingatímar í
námskeiðinu eru of fáir/of margir?"
liður 14 til dæmis) og að auki tvær
heildareinkunnir. Ohjákvæmilegt er
að einkunnir í stórum, ópersónuleg-
um skyldunámskeiðum verða, að
öðru jöfnu, lægri en í fámennum,
hlýlegum valnámskeiðum. Auðvitað
ðr það öruggt að kennari í fyrir-
myndarveröld „hvetur til spurninga
og svarar spurningum" (liður 6) en
í mjög fjölmennu námskeiði eða í
námskeiði þar sem nemendur eru
óframfærnir getur verið að þetta sé
ekki hægt. Á sama hátt getur verið
að það sé ekki viðeigandi í sérstökum
námskeiðum, t.d. málþjálfun, að
kennari „bendi á ítarefni" (liður 8)
Robert Cook
„Kennsla er of flókin
og viðkvæm listgrein til
þess að hægt sé að vega
hana og meta á þann
hátt að nemendur fylli
inn í nokkrar eyður
þegar fáeinar mínútur
eru eftir af síðasta
tímanum í lok annar.
Það væri eins hægt að
biðja nokkra tónlistar-
unnendur um að gefa
tónlist eftir Bach og
Mahler einkunn á skal-
anum 1 til 10 eins og
oft er talað um til gam-
ans.“
og samt fær kennarinn sem gerir
það ekki 0 í hringinn, jafnvel -4-2.
Kerfi sem er svona gallað getur
ekki gefið góða raun. Sem aðferð
til að leggja mat á kennara er það
óhæft og ósanngjarnt. Þegar við í
dómnefndum þurftum að dæma
kennslu litum við ekki á einkunnir
heldur fórum beint í tíma til að
hlusta á kennarann. (Háskólayfir-
völd hins vegar geymdu og notuðu
einkunnir.) Sem tæki til að leiðbeina
kennara hvernig hann geti bætt sig
í kennslu eru tölulegar niðurstöður
könnunarinnar ófullnægjandi. Þó
bjartsýnir menn í Háskóla íslands
haldi að þetta gæðamat leiði til betri
kennslu, er ekkert sem sannar að
tölvustýrð skoðanakönnun sem þessi
geti orðið til þess.
Sem aðferð til að
leiðbeina nemend-
um um hvaða nám-
skeið þeir skuli
velja, er ólíklegt að
röð af tölum komi
að gagni sem not-
hæf ábending. Sem
„viðvörunarmerki"
um óhæfa kennara
eru þær óþarfar,
vegna þess að í
litlu samfélagi eins
og háskóla berast
kjaftasögur fljót-
lega og allir vita
hvaða kennarar
eru góðir og hveijir
eru slæmir.
Ef þetta sem ég
segi er satt, hvern-
ig stendur þá á því
að verið er að flytja
inn þetta tölvu-
stýrða einkunna-
kerfi?
í fyrsta lagi er
ástæðan einskonar
þörf fyrir sanngirni
og löngun til að
efla nemendur. (To
„empower", þ.e. að
„efla“ nemandann
er mikið tískuorð í
bandarískum háskólum nú á dögum,
og það er oft einskonar blekking.
Þessi eyðublöð minna mig á blöð í
hótelherbergjum sem gestir fylla út
— tilgangurinn er ekki í þágu hótels-
ins heldur undir því yfirskini að láta
gestunum finnast þeir skipta máli.)
Fyrst kennarar gefa nemendum
einkunnir, því skyldu nemendur ekki
líka gefa kennurum einkunnir? Þessi
röksemdafærsla er því miður gölluð.
Kennarar gefa einkunnir í tölum og
líta á þær sem illa nauðsyn, en óhjá-
kvæmilega vegna þess að nemendur
þarf að meta þannig að hægt sé að
bera þá saman. Það er hins vegar
engin ástæða til að meta kennara
hvern gegn öðrum. Það sem er í
raun einna ógeðfelldast við þetta
nýja kerfi er samkeppnin sem fylgir
milli kennara.
Önnur ástæða þess að svona
kannanir eru til er að þær svala
þorsta okkar nútímamanna fyrir töl-
fræðilegar niðurstöður, þörf okkar
fyrir að geta gengið að öllu vísu
eftir að það hefur verið nákvæmlega
flokkað. Það kemur ekki á óvart að
kerfið sem nú hefur verið tekið upp
í HÍ kemur frá Bandaríkjunum, þar
sem stjórn háskóla hefur á síðustu
árum æ meira verið í höndum sér-
menntaðra atvinnuforstjóra sem
kenna ekki en fá tvöfalt hærra kaup
en prófessorar og reka háskóla eins
og fyrirtæki. (Þetta hefur sem betur
fer ekki gerst á íslandi.) Slíkt fólk
lifir í heimi tölvugagna, tölfræðirita
og línurita, og slíkar kannanir eru
vatn á myllu þess.
Kerfið er ekki eingöngu óheppi-
legt og gagnslaust, heldur getur líka
haft skaðlegar afleiðingar. Bestu
kennararnir munu að sjálfsögðu
leiða þetta allt hjá sér, en það eru
aðrir sem taka eftir því — ekki að-
eins hvaða einkunn þeir fá sjálfir
heldur einnig hvaða einkunn sam-
kennarar þeirra fá. Kennarar fara
ósjálfrátt að tala um einkunnirnar
og bera sig saman og finnst þeir
vera í samkeppni hver við annan.
sumir þeirra munu gera það sem
þeir geta til þess að verða „hærri“,
einkum og sérílagi ef þá grunar að
tekjur þeirra, líkur á stöðuhækkun,
styrkir sem þeir eiga kost á o.s.frv.
byggist á góðri útkomu í gæðamat-
inu. í stóru námskeiði þar sem kraf-
ist er mikillar vinnu, einkum ef um
skyldunámskeið er að ræða, er
líklegt að gæðamatið sýni að vinnu-
álag sé of mikið. Kennarinn gæti
þá ákveðið að draga úr kröfunum,
ekki endilega af því að það væri
rétt að gera það heldur til þess að
hann fengi hærri einkunn næsta
Könnun á kcnnslu og námskeiðum.
Þróunamefnd stúdenta/ Kennslumálanefnd H.í.
Markmið þcssarai könnunar cr að bæia
kcnnsluhælli við H.l. Vinsamlcgasi svarið þvi
spumingunum sanivi-Áusamlcga með því að fylla
úl í viðkomandi hringi.
Hinsiök hlöð l’ara ckki uin Itcndur kcnnara cn
unnið vcrður úr könnuninni á vcgum kcnnslumála-
ncfndar
a lölu i livcm dálk!
1. Er kcnnslan (sainræmi við upphaflcg markmið? 0 nlKck © © © © fullkomlcga
2. Nýlasi kennslúgilgii þcr í námskciðinu? © © © © ©
3. Undirbúningur kcnnara cr: © © © © ©
4. Áhugi kcnnárans á cfninu cn "a iiuii © © © ©
5. Hvcmig kemur kcnnari cfninu til skila? © illj © © © "© vc!
ö. Kcnnari hvclur lil spuminga og svarar spurningum: © © © © ©
7. Viðmói kcnnara við ncmcndur cr: © iRl.imlcVI © © © ©
8. Bcndir kcnnari á úarclni? © © ©
9. Skipulag námskciðsins cr aö þínu mali. © © © © "©
10. Miðað viðciningaljölda í uámskciðinu vai r vinnuálag ©" © © ® ©
11. Vckur iuímskciðið áhuga þinn á frckara nái ini? '©' © © ©"©"'
12. Mundir |m mæln nivð þcssi’ nánisk. við afl nn ncmciyltu rs? O © ©'©""
13. Fyrirlcsirar í námskciðinu cru: <4 fiir © © ©' ©
14. Æflngalímar i námskciöinu cm: © © © O "©’“
15. Nolar þú aðallcga við námið (cflir lorgangsrcið. I = Mcsl).
Kcnnsluhickur i
Tímaglósur
Aöcins cina lölu i hvcmdálk! Alhcndi
^Annað
(íefðu kcnnslunni cinkunn: ©00ÖO0©©©©0
kkr <*'I**V
(>efðu námskeiðinu einkunn: ®©©0©(j)©0©©©
alu ICIcjii mjog goil
Athugasemdlr:_______________________ ________
A pj