Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Minning:
Elliði N. Guðjónsson
framkvæmdasijóri
í gær var kvaddur hinstu kveðju
hugvitsmaðurinn og völundurinn
Eliiði Norðdahl Guðjónsson fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík. Elliði
rak eigið fyrirtæki „Elektra" í
Garðabæ, ásamt eiginkonu sinni,
Sólrúnu Valsdóttur, sem studdi
hann mjög vel við reksturinn. Var
mér ánægja að sjá hve samhent
þau voru.
Fyrirtækið Elektra hefir fram-
leitt nálægt 10.000 samnefndar
handfæravindur sem Elliði fann
sjálfur upp og hannaði til fram-
leiðslu og sölu. Vindurnar voru
drifnar hvort sem hentaði betur
með sjódælu eða rafmagnsmótor.
Elektra handfæravindur eru nú
seldar til íjölmargra landa
víðsvegar um heiminn, m.a. til
Japans, Ástralíu, Sri Lanka,
Canada, USA og margra landa í
Evrópu, auk 6-7 þúsund eintaka
á Islandi, allt án nokkurra styrkja
eða útflutningsbóta. Elliði vann
störf sín af mikilli hugkvæmni og
útsjónarsemi, ruddi brautina og
vísaði á margan hátt veginn fyrir
tækni sem nú er í uppsiglingu.
Fyrir nokkrum árum var ég,
sem þessar línur rita, staddur í
Tromsö í Noregi, þegar mér var
gengið niður að höfninni í fundar-
hléi. Hitti ég sjómann sem ég tók
tali. í verslunarglugga sem við
stóðum hjá var útstillt Elektra-
vildu sveigjanleika
Þegar
fjárfest er í vélum og tækjum skiptir vemlegu
máli að sú fjármögnunarleið sem valin er
veiti nauðsynlegan sveigjanleika, þannig að
fjárfestingin skili þeim arði sem vonast er
eftir. Kaupleiga og fjármögnunarlága Glrtnis
gefur ótrúlega mikinn sveigjanleika.
—Leigugreiðslur
geta tekið mið af væntanlegum tekjum t.d.
verið lægri á vetuma en hærri á sumrin.
-Fjármögnun
véla og tækja getur verið 2 til 7 ár og fjár-
mögnunarhlutfall fer að sjálfsögðu eftir ósk-
um hvers og eins allt upp í 100%.
-Fjármögnunarieiðir
Glitnis gefa kost á að velja það tæki sem
hagkvæmast er án tillits til eigin framlags.
Láttu ekki tækifærin framhjá þérfara.
flkkar peningar vlnna fyrlr plg
Glitnirhf
DÓJTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7,108 Reykjavi1<, sími: 91-6810 40
vinda.
Sjómaðurinn sagði: „Þetta er
besta handfæravindan sem við
höfum fengið hingað til, betri en
okkar norska.“ Eg var verulega
stoltur þegar ég heyrði Norðmann-
inn segja þetta um vindurnar hans
Elliða, því Norðmenn eru þekktir
fyrir að halda sínum hlutum fram
svo lengi sem þeir geta. Elektra-
vindan var þarna viðurkennd betri
en þær norsku.
Elliði var fæddur 15. ágúst
1923 á Sigurðarstöðum á Sléttu.
Snemma hneigðist hugur hans að
véltækni og lærði hann bifvéla-
virkjun hjá Áhaldahúsi Reykjavík-
urborgar. Samhliða áhuga á vélum
og leikni á því sviði kom í ljós að
Elliði var völundarsmiður sem
lagði gjörva hönd á allt sem hann
kom nærri.
Elliði var ráðinn yfirverkstjóri
hjá Vélasjóði ríkisins og starfaði
sem slíkur þegar mest var þar
umleikis. Ennfremur vann hann
um tíma á vélaverkstæði Sigurðar
Sveinbjörnssonar.
Elliði var þannig búinn að afla
sér mikillar reynslu og þekkingar
þegar ég réð hann fyrstan allra
til Stálvíkur hf. snemma á árinu
1962 með góðum meðmælum frá
Sigurði Sveinbjörnssyni.
Elliði hóf starf sitt með því að
grafa burtu 30-40 þús. rúmmetra
af jarðvegi sem var fyrsti áfangi
undir þau mannvirki sem í dag
mynda Skipasmíðastöðina Stálvík.
Næsti áfangi var að byggja fyrsta
húsið sem reist var úr strengja-
steypu og nú breytti Elliði skurð-
gröfunni í byggingarkrana. Ekki
hafði ég lengi unnið með Elliða
þegar mér voru ljósir fjölþættir
og góðir hæfileikar þessa ágæta
manns.
Þriðji áfanginn var að smíða
stálskip og gerðist Elliði aðalverk-
stjóri við smíði tveggja olíubáta
fyrir Skeljung hf. og Esso hf. Þeim
var báðum skilað á 6 mánuðum
og voru þó flestir starfSmennirnir
nýliðar í greininni.
Næsta verkefni var Sæhrímnir,
176 rúmlesta síldveiðiskip ogvoru
8 mánuðir frá því að stálið kom í
skipið, þangað til því var skilað
fullbúnu til síldveiða.
Elliði vann hjá Stálvík í tvö ár,
en eftir það fór hann að smíða
handfæravindurnar sínar sem fyrr
er getið.
Elliði var þríkvæntur og lætur
eftir sig sex uppkomin börn. Með
fyrstu konunni Ástu Friðleifsdótt-
ur eignaðist hann soninn Hrein
sem nú rekur eigið fyrirtæki „Haf-
spil hf.“ á Akureyri. Þau slitu sam-
vistum 1954. Seinna kvæntist El-
liði Erlu Þorsteinsdóttur og eign-
aðist með henni 5 börn, þijá syni
og tvær dætur, þau eru Trausti,
Garðar, Viðar, Sigríður og Kristín.
Garðar og Viðar reka eigið fyrir-
tæki „Ósey hf.“ í Garðabæ, sem
framleiðir spil í fiskibáta. Bræð-
urnir feta þannig í fótspor föður
síns með framtakssemi og dugn-
aði.
Vonandi eiga þeir eftir að halda
uppi merki föður síns á innlendum
markaði og erlendri grund með
því að taka upp merkið þar sem
hann féll frá, en Elliði varð bráð-
kvaddur við vinnu sína þ. 4. þ.m.
Ég átti góðan vin þar sem Ell-
iði Guðjónsson var. Mér fannst
alltaf gott að hitta hann hvort sem
við ræddum tækni eða stjómmál,
en þar áttum við góða samleið
sökum líkra skoðana á mörgum
málum. Ég er þakklátur fyrir að
hafa kynnst Elliða Guðjónssyni.
Með Elliða er fallinn sannur
maður einstaklingsframtaksins,
maður sem kom sér áfram af eig-
in dugnaði, hugvitssemi og hag-
leik.
Ég votta eftirlifandi konu hans,
Sólrúnu Valsdóttur, börnum og
vandamönnum virðingu og safnúð.
Jón Sveinsson
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans! y