Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR KIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Hver réðst á hvem?
Opið bréf til Skúla Unnars Sveinssonar
Á ferli mínum sem íþróttamaður
hefur undirritaður lært að láta allt
umtal og blaðaskrif um sig og sína
frammistöðu, sem vind um eyru
þjóta. Þessar línur eru því hvorki
settar á blað til að afsaka frammi-
stöðu mína eða gerðir. Mig langar
einungis að benda á hversu íþrótta-
blaðamenn, í þessu tilviki Skúli
Unnar Sveinsson, geta verið úr
sambandi við það sem þeir skrifa
og þar með gæði skrifa þeirra með
afbrigðum léleg.
Reyndar virðast umfjallanir um
íþróttaviðburði oft einkennast
meira af því að vera meira skrifað-
ar af skyldurækni en áhuga, eða
með það að markmiði að skila les-
endum vandaðri frásögn. En þar
með er ekki allt sagt, því afrakstur-
inn af þessum óvönduðu vinnu-
brögðum eru oft afbakanir, rang-
túlkanir og órökstuddar fullyrðing-
ar, sem við íþróttamenn verðum
síðan að sitja undir — sekir jafnt
sem saklausir.
Eins og ég sagði hér að ofan,
hefur mér lærst að kæra mig koll-
óttan; en Skúli, „nú tók steininn
úr“. Þú segir orðrétt í frásögn af
leik Vals og FH síðastliðinn laugar-
dag:
„Valsmenn voru ekki ánægðir
með dómgæsluna og eftir leikinn
gerðu Brynjar Harðarson og Jón
Kristjánsson sig seka um framkomu
sem vonandi á ekki eftir að sjást
meira af í handboltanum hér á
landi. Þeir hreinlega réðust að öðr-
Brynjar Harðarson.
um dómara leiksins og ef þeir hefðu
ekki verið dregnir í burtu er ekki
ljóst hvað hefði gerst.“
Það er sagt að Mogginn ljúgi
aldrei — en Skúli, nú lýgur þú.og
Mogginn. Rangtúlkunin og ósann-
indin eru í þetta skipti of gróf til
að hægt sé að sitja undir þeim
óátalið. Vissulega vorum við reiðir,
sárir og svekktir. En hvers vegna?
Jú, vegna þess að við vorum að
tapa sem keppnisíþróttamenn leik
sem kostar okkur að öllum líkindum
Islandsmeistaratitilinn. Titil sem við
vorum búnir að leggja ómælda
vinnu í að fá að hampa. Við vorum
að tapa leik sem við ætluðum að
gera upp við FH — ekki dómarana.
En þeir gerðu sig seka um svo alvar-
leg mistök á lokamínútunum (sem
sanna má með skoðun á sjónvarps-
upptöku frá leiknum) að þeir tóku
að sér aðalhlutverkin og þar með
var það ekki lengur okkar frammi-
staða sem var afgerandi heldur
þeirra. Sá íþróttamaður sem gengur
með bros á vör til búningsherbergja
að slíku uppgjöri loknu á ekki heima
í keppnisíþróttum.
En Skúli, hver réðst á hvern?
Sást þú það sem fram fór? Eða
sástu eitthvað og léstu afganginn
liggja milli hluta? Eftir leikinn
fannst mér ég ætti ótöluð orð við
Rögnvald dómara. Ég segi orð, því
þótt mér geti orðið heitt í hamsi,
hef ég lært að stjórna skapsmunum
mínum og legg það ekki í vana
minn að deila við dómara (í vetur
hef ég aldrei fengið tiltal, gult spjald
eða brottvikningu fyrir mótmæli við
dómara). En hvað skyldi Rögn-
valdur dómari hafa gert þegar ég
einungis í orðum túlkaði vonbrigði
mín með frammistöðu hans? Jú,
hann reif í skyrtu mína með báðum
höndum og kastaði mér frá sér (að
þessu atviki er fjöldi vitna).
Að nærstaddir áhorfendur töldu
það síðan skyldu sína að forða mér
frá því að gera eitthvað sem ég
hugsanlega myndi gera, er auðvitað
engin sönnun þess að ég hafi geng-
ið í skrokk Rögnvaldar dómara.
Þetta minnir mig reyndar á þegar
fólk hefur með valdi viljað taka af
mér bíllykla fyrir utan skemmti-
staði svo ég keyrði nú ekki fullur
— en ég hef ekki neytt áfengis
síðustu 11 árin.
Dómarar gera mistök eins og við
leikmenn — það er hluti leiksins.
Þessi mistök eiga sér oftast stað
vegna þess hraða og þeirrar spennu
sem leikurinn inniheldur. Það gefst
sjaldnast tími til að hugsa málin
og ákveða sig síðan. Dómur er dóm-
ur og honum verður ekki breytt og
ég ætla ekki að brigsla dómurum
leiksins um að þeir hafi ekki dæmt
eftir bestu samvisku. Hinu er ekki
að neita að mistök þeirra í þessum
leik voru augljós og afdrifarík. Við-
brögð Rögnvaldar eftir leikinn sýna
einnig að hann var í lélegu jafn-
vægi og dómgreind hans af því
mörkuð.
Þegar blaðamenn hinsvegar í ró
og næði eiga að fella dóm um kapp-
leik og það sem þar hefur farið
fram, eiga leikmenn og lesendur
blaðsins kröfu á að það sé gert af
meiri nákvæmni og réttvísi en ofan
er lýst. Það er óafsakanlegt, Skúli,
að setja á prent fullyrðingar á borð
viðþær sem þú gerir í grein þinni.
Eg hef trú á að félaga mínum,
Jóni Kristjánssyni, hafí orðið svipað
innanbijósts og mér þegar hann las
ofannefnda grein. Þeir sem þekkja
persónuleika Jóns, gera sér kannski
hvað best grein fyrir mótsagna-
kennd þeirra orða sem þú, Skúli,
lætur um okkur falla. Á ferli mínum
bæði hér heima og í Svíþjóð hef ég
ekki kynnst öðru eins prúðmenni
og Jóni Kristjánssyni.
Með þökk fyrir birtinguna og
með von um vandaðri fréttaflutning
á íþróttasíðunum.
Bryiyar Harðarson.
Wterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fllt0y0mMafoifo
TVÖFUDUR
POTTUR!
Nú er til mikils að vinna í íslenskum Getraunum. 1
í síðustu viku kom enginn seðill fram með 12 réttum. '')
Þess vegna er tvöfaldur pottur /
- og tvöföld ástæða til að vera með! '
Hjáokkurkostarröðinaðeins 10kr. \
Láttu nú ekkert stöðva þig. /\