Morgunblaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
115.tbl. 78.árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Neyðarástand fyrir-
sjáanlegt í Litháen
Verkfall breiðist út í Eistlandi
Keuter
Fyrstímark
Fyrsta skútan í einni erfiðustu siglingakeppni
sem um getur kom í mark í Southampton í
Englandi í gær. 16 manna áhöfn Steinlager
2, 120 feta skútu frá Nýja Sjálandi, hafði þá
lagt 33.000 mílur að baki á níu mánaða sigl-
ingu í kringum hnöttinn. Þetta er í fimmta
skipti sem slík keppni er haldin og var þessi
sú sögulegasta því þrír þátttakendur létust í
keppninni. A stóru myndinni sést Peter Blake,
skipstjóri á Steinlager 2, fagna sigri í sínum
flokki ásamt fjölskyldu sinni.
Óeirðir Palestínumanna
breiðast út til Jórdaníu
Gyðingar í ísrael byrjuðu í gær að fagna degi Jerúsalems sem er í
dag. 23. maí 1967 náðu ísraelar austurhluta borgarinnar á sitt vald.
Palestínumenn vilja að Jerúsalem verði höfúðborg ríkis þeirra og
er búist við að komi til átaka í dag vegna hátíðahalda gyðinga og
ólgunnar meðal Palestínumanna.
Moskvu, Kolitla-Jarve í Eistlandi. Reuter.
RÚSSNESKIR verkamenn í norð-
austurhluta Eistlands gengu í gær
til liðs við verkfallsmenn sem
lögðu niður vinnu á mánudag til
að leggja áhcrslu á þá kröfu sína
að Sovétstjórnin brjóti á bak aftur
sjálfstæðisbaráttu Eistlendinga.
Mjög er nú tekið að þrengja að
Litháum vegna efnahagsþvingana
Sovétmanna og sagði litháískur
Talar 22
tungumál
Edinborg. Daily Telegraph.
SKOSKUR kennari kemst að
öllum líkindum í heims-
metabækurnar eftir að hafa
sannað fyrir alþjóðlegri dóm-
nefnd að hann getur talað 22
tungumál reiprennandi - þar
á meðal íslcnsku.
Maðurinn heitir Derick Hern-
ing og er 57 ára gamall tungu-
málakennari í framhaldsskóla í
Leirvík á Hjaltiandi. Hann tók
þátt í keppni, sem haldin var í
Brussel á dögunum, vann þar
titilinn „Málamaður Evrópu" og
fékk að auki 4.000 punda verð-
laun (400.000 ísl. kr.) og stóra
bronsstyttu.
Herning hóf sjálfsnám í
tungumálum þegar hann ólst
upp í Skotlandi. Hann lauk námi
í frönsku og þýsku við Edinborg-
arháskóla og lærði rússnesku er
hann gegndi herþjónustu. Það
var þó ekki fyrr en hann flutti
til Hjaltlands fyrir 23 árum að
málalistinn tók að iengjast fyrir
alvöru.
Tungumálin sem Herning
kann auk enskunnar eru: norska
(nýnorska, bókmál), færeyska,
sænska, íslenska, danska, holl-
enska, vestur-frísneska, afrík-
anska (mál Búa í Suður-Afríku),
þýska, írska, skoska, franska,
spænska, ítalska, portúgalska,
gríska, serbókróatíska, rúm-
enska, búlgarska, rússneska og
tékkneska.
embættismaður í gær að verk-
smiðjum og orkufyrirtækjum yrði
að líkindum lokað á fostudag auk
þess seni við blasti að heitt vatn
yrði ekki fáanlegt til heimilisnota.
Verkfallsmenn í Eistlandi segja
að þeir muni ekki láta af aðgerðum
sínum fyrr en þing landsins viður-
kenni yfirlýsingu Míkhaíls S. Gorb-
atsjovs, leiðtoga sovéskra kommún-
ista, frá því í síðustu viku þess efnis
að sjálfstæðisyfiriýsing Eistlendinga
skoðist dauð og ómerk. Aðfluttir
Rússar eru í meirihluta í iðnaðarhér-
uðunum í norðausturhluta Eistlands.
Verkföll hófust í 22 verksmiðjum í
höfuðborginni, Tallinn, á mánudag
og samþykktu verkamennirnir í gær
að halda þeim aðgerðum áfram.
Alexander Ambryazyaviskus, fé-
lagi í nefnd þeirri sem stjórnvöld í
Litháen hafa skipað til að veijast
efnahagsþvingunum Sovétstjórnar-
innar, sagði í símaviðtali við Reut-
ers-fréttastofuna frá höfuðborginni,
Vilnius, að ástandið í iandinu færi
dagversnandi. Olíubirgðir væru á
þrotum í landinu og af þeim sökum
yrði flestum mikilvægustu verk-
smiðjum og fyrirtækjum _ lokað á
föstudag að öllu óbreyttu. Óstaðfest-
ar fréttir hafa borist um að olíuskip
með 80.000 tonn af olíu sé nú .kom-
ið frá Rotterdam til Litháens en sov-
ésk yfirvöld hafi hafnað því að skip-
ið fengi að leggjast að bryggju.
Jerúsalem. Reuter.
MIKLAR óeirðir voru meðal Pal-
estínumanna í flóttamannabúð-
um í Jórdaníu í gær og féllu tveir
unglingar í átökum við lögreglu.
Mótmælin tengjast óróanum sem
verið hefur undanfarna þijá daga
í hernámi Israels í kjölfar fjölda-
morða geðsjúks manns á Pal-
estínumönnum á sunnudags-
morgun. Leiðtogar araba hafa
brugðist mjög harkalega við
morðunum og mannfallinu sem
fylgt hefur. Yitzak Shamir, for-
sætisráðherra Israels, lét svo
ummælt í gær að viðbrögð araba
við morðunum væru allt of hast-
arleg. Bandaríkjasljórn hefur
skorað á Israela að halda aftur
af hernum í viðureign við Pa-
lestínumenn.
Sovétmenn fordæmdu í gær
framgöngu ísraelshers og kröfðust
alþjóðlegra aðgerða til að stöðva
ofbeldið. Mannréttindasamtökin
Amnesty International sökuðu Isra-
elsstjórn um að ýta undir valdbeit-
ingu hersins gagnvart Palestínu-
mönnum.
ísraelsher felldi í gær tvo unga
Palestínumenn sem höfðu mótmæli
í frammi á Gaza-svæðinu. Samtals
hafa 15 Palestínumenn fallið og
rúmlega 800 særst í kjölfar þess
að geðsjúkur ísraeli felldi sjö manns
skammt frá Tel Aviv á sunnudags-
morgun. Er þetta mesta manntjón
á svo stuttum tíma síðan intifada,
uppreisn Palestínumanna, hófst á
vesturbakka Jórdan og Gaza-svæð-
inu í desember 1987.
ísraelska lögreglan beitti einnig
táragasi gegn 200 manns sem fóru
í friðsamlega göngu í Austur-Jerú-
salem til að færa ræðismanni
Bandaríkjanna mótmælabréf. í
göngunni voru nokkrir kirkjunnar
menn og arabískir þingmenn sem
í samtölum við fréttamönn fóru
hörðum orðum um háttalag lögregl-
unnar og sögðu hana hafa handtek-
ið fjölda manns að ástæðulausu.
Óformlegur fundur var í Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna í gær að
beiðni arabaríkja þar sem ástandið
fyrir botni Miðjarðarhafs var rætt.
Utanríkisráðherrar Arababanda-
lagsins hittust í Bagdað, höfuðborg
íraks, í gær til að undirbúa leiðtoga-
fund bandalagsins í næstu viku.
Hann hefur verið boðaður til að
ræða leiðir til að mæta straumi
sovéskra gyðinga til ísraels.
Formaður hermálanefiidar NATO:
Engin ógn að austan
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaósins.
VIGLEIK Eide, hershöfðingi, formaður hermálanefndar Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), sagði á blaðamannafundi í Brussel í gær að
Vestur-Evrópu stæði ekki lengur ógn af Varsjárbandalaginu en þó
væri ljóst að sovéski herinn yrði um langa hríð mjög öflugur þrátt
fyrr einhliða niðurskurð Sovétríkjanna á vígbúnaði sínum. Á fundi
hermálanefhdar NATO sem lauk í gær var samþykkt að mæla með
því við varnarmálaráðherra bandalagsins að hernaðaráætlanir þess
verði endurskoðaðar í ljósi breyttra aðstæðna í Evrópu.
Vigleik Eide sagði að líkur væru
á því að varnarmálaráðherrar aðild-
arríkjanna samþykktu á fundi sem
lýkur í dag að falla frá þeirri stefnu
að aðildarríkin auki árlega framlög
sín til varnarmála um 3%. Eide sagði
að hermálanefndin hefði orðið að
leggja til við fund varnarmálaráð-
herranna að varnarviðbúnaður
NATO í Mið-Evrópu yrði tekinn til
endurskoðunar í ljósi breyttra að-
stæðna á þeim slóðum.
Vegna fjaiveru Frakka, en þeir
sækja ekki fundi varnarmálaráð-
herra NATO, verður umræðum um
samningana um takmörkun hefð-
bundins vígbúnaðar í Evrópu frestað
þar til á fundi utanríkisráðherra
NATO í Skotlandi í byrjun júní.