Morgunblaðið - 23.05.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
19
Kópavogur og Seltjarnarnes:
Ohagstæður samanburð-
ur fyrir félagsmálabæinn
eftirBirnu
Friðriksdóttur
Bæjarstjómarkosningar eru
skammt undan og nú er hart barist
um atkvæði kjósenda. A-flokkarnir
hafa mynda hér meirihluta síðastlið-
in 12 ár og biðja nú bæjarbúa að
meta verkin. Ef skoðaðar eru
stefnuskrár flokkanna, má sjá að
áhugamálin skarast á mörgum svið-
um. Öll viljum við góðan bæ og
gott mannlíf. Stjómun og rekstur
bæjarins miðar að þessu og málið
snýst um það hvemig mönnum ferst
þetta úr hendi.
Mikið hefur verið deilt um fjár-
hagsstöðuna. Á kosningaári em það
furðuleg vinnubrögð af hálfu meiri-
hlutans, að hafa ekki haft tiltækar
upplýsingar fyrir bæjarfulltrúa og
frambjóðendur um fjárhagsstöðu
bæjarins. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa látlaust í rúma tvo
Suðurland:
mánuði reynt að fá upplýsingar sem
nauðsynlegar eru til þess að reikna
út stöðuna. Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra virðist hafa haft
greiðari aðgang að bókhaldi bæjar-
ins en bæjarfulltrúar minnihlutans.
Nu loksins, nokkrum dögum fyrir
kosningar, liggja reikningar bæjar-
sjóðs fyrir og síðan hefur komið í
ljós að enn geta menn verið að
þrátta um skuldastöðuna. Á kosn-
ingafundi sem sjónvarpað var frá
Félagsheimili Kópavogs þ. 20. maí
leyfði Guðmundur Oddsson sér eina
ferðina enn að bera saman skuldir
og /íe/Wartekjur. Ekki nóg með það,
hann bar saman skuldir ársins 1989
og áætlaðar heildartekjur ársins
1990! Hann er ekkert einn um það,
þeir gera þetta meirihlutafulltrúam-
ir. Þeir bera líka saman skuldir og
óseljanlegar og óveðhæfar eignir
bæjarins. En samkvæmt upplýsing-
um frá félagsmálaráðuneytinu er
nettóskuld hveiju sinni: skuldir, að
frádregnum kröfum, sem hlutfall
af sameiginlegum tekjum þess árs.
Ég fer hér með fram á að félags-
málaráðuneytið upplýsi þjóðina og
fulltrúa meirihlutans í Kópavogi
sérstaklega um þetta.
Kosningabaráttan hefur mjög
einkennst af orðaskaki og árásum
á forystumenn flokkanna. Við kon-
urnar höfum sloppið þokkalega,
enda lítið gefið höggstað á okkur.
Þó fór svo á dögunum, að undir-
rituð leyfði sér að kroppa ofurlítið
í goðsögnina um félagsmálabæinn
Kópavog. Bomar vom saman tölur
um fjölda leikskólaplássa og vernd-
aðra þjónustuíbúða fyrir aldraða í
Kópavogi annars vegar og á Selt-
jarnarnesi hins vegar. Miðað við
fólksijölda var þetta óhagstæður
samanburður fyrir félagsmálabæinn
Kópavog. Þetta var afgreitt sem
hreinasta bull. Guðmundur Odds-
son, efsti maður á lista Alþýðu-
flokks, sagðí á kosningafundi sem
útvarpað var úr Félagsheimili Kópa-
vogs, að ég vissi ekkert um hvað
ég væri að tala, þessar tölur væri
ekkert að marka, af því að Kópavog-
ur sé með svo mörg heilsdagspláss
— ef þeim væri skipt í hálfsdags-
pláss yrði útkoman allt önnur. Ef
sú aðferð er notuð, er skipting
plássa eftirfarandi.
8-9 tíma pláss: Seltjamames 46x2 = 92
4-5 tíma pláss: Seltjamarnes 148
Samtals: 240
Vegna tilrauna með breytingar á
þremur heimilum er erfitt að gera
nákvæma uppskiptingu á heils- og
hálfsdagsplássum í Kópavogi, þar
sem þeim er fækkað og 6 tíma
plássum bætt inn. Verið er að þróa
þetta fyrirkomulag og ljóst að nýt-
Birna Friðriksdóttir
„Til þess að standa Sel-
tir ningum j afiifætis
þyrfti þessi tala að vera
960 og bætt nýting þar-
afleiðandi að jafngilda
105 plássum. Hún gerir
það ekki.“
ing á klukkustundum er meiri. Dag-
vistarfulitrúi upplýsti hins vegar á
fundi félagsmálaráðs fyrir skömmu,
að plássun hefði í heildina ekki
fjölgað. Fyrir þá breytingu, var
skiptingin eftirfarandi.
7,5-8-91. pláss: Kópavogur211x2=422
4-5 tíma pláss: Kópavogur 433
Samtals: 855
Til þess að standa Seltimingum
jafnfætis þyrfti þessi tala að vera
960 og bætt nýting þarafleiðandi
að jafngilda 105 plássum. Hún ger-
ir það ekki.
Vegna sérstöðu þeirra tek ég
skóladagheimilin sérstaklega.
Skóladagheimili:
Seltjarnames 25 íbúar 4 þús.
Kópavogur40 Ibúarl6þús.
Guðmundur minn, þessi aðferð
dugar ekki heldur.
Það var ekki ætlan mín að gera
úttekt og samanburð á félagslegri
þjónustu í Kópavogi annars vegar
og öðrum sveitarfélögum hins veg-
ar. Ég var eingöngu að benda á
að allir þjónustuþættir eru ekki
betri í Kópavogi en alls staðar þar
sem sjálfstæðismenn eru í meiri-
hluta, eins og þeim A-flokkamönn-
um er svo tamt að segja.
Hins vegar samþykkti meirihluti
félagsmálaráðs og bæjarráðs fyrir
tveimur árum eða svo, að fela fé-
lagsmálastjóra að gera kostnaðar-
samanburð á félagslegri þjónustu í
Kópavogi og öðrum sambærilegum
sveitarfélögum. Sá samanburður
hefur enn ekki litið dagsins ljós og
þykir mér það athyglisvert. Er
hugsanlegt að útkoman sé ekki eins
„hagstæð" fyrir Kópavog og talið
var?
Það þarf engan að undra þótt
A-flokkafólk hafi reiðst yfir grein
minni í Morgunblaðinu á dögunum.
Það hefur verið fullyrt svo oft, að
í þessum málum sé allt betra í
Kópavogi en þar sem sjálfstæðis-
menn stjórna, og hefur eflaust trú-
að því.
Ég vil ítreka það sem ég tók fram
í fyrri grein, að í Kópavogi er margt
vel gert og sumt betur en annars
staðar, en ætla ekkert að tíunda
það frekar hér. Enda hafa A-flokk-
arnir gert það sjálfir, svo þar verð-
ur ekki bætt um betur.
Á laugardaginn kemur munum
við kjósa nýja bæjarstjórn. Hér í
Kópavogi býr venjulegt fólk, með
venjulegar væntingar til síns um-
hverfis. Kópavogsbúar eiga rétt á
því, ekki síður en aðrir, að frum-
þörfum þeirra sé sinnt, þeim sé
skapað snyrtilegt og aðlaðandi
umhverfi. Hvort kjósendur í Kópa-
vogi hafa miklar áhyggjur af fjár-
málum bæjarins veit ég ekki. En
viljum við hafa von um annað verk-
lag í Kópavogi, þá ráðlegg ég okk-
ur öllum að gefa A-flokkunum frí!
Höfiindur skipar 3. sæti ú
framboðslista Sjálfstæðisflokks í
Kópavogi.
Kosið tíl Búnaðarþings
KOSNINGAR til Búnaðarþings
fara frani á vegum hreppabúnað-
arfélaganna á Suðurlandi í
tengslum við sveitasljórnakosn-
ingarnar 26. maí næstkomandi.
Tveir framboðslistar komu fram,
en það eru B-listi framsóknar-
manna og D-listi sjálfstæðis-
manna.
Kosnir eru fimm fulltrúar á Bún-
aðarþing, og höfðu framsóknar-
menn þijá, en sjálfstæðismenn tvo.
Á lista framsóknarmanna skipa
eftirtaldir fimm efstu sætin: 1. Jón
Hólm Stefánsson, Gljúfri, 2. Páll
Siguijónsson, Galtalæk, 3. Einar
Þorsteinsson, Sólheimajáleigu, 4.
Halla Aðalsteinsdóttir, Hvolsholti
og 5. Pálmi Sigfússon, Læk.
Eftirtaldir skipa fimm efstu sæt-
in á lista sjálfstæðismanna: 1. Her-
mann Siguijónsson, Raftholti, 2.
Jón Ólafsson, Eystra-Geldingaholti,
3. Jóhannes Kristjánsson, Höfða-
brekku, 4. Helgi Ivarsson, Hólum
og 5. Eggert Pálsson, Kirkjulæk.
JÓNS MÍMS
Miöaverö kr. 1500.-
Frítt fyrir 10 ára í fylgd meö fullorðnum