Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
33
Sumaráætlun Flugleiða:
Ferðum flölgað -samstarf
við fyrirtæki úti á landi
SUMARAÆTLUN innanlandsdeildar Flugleiða gekk í gildi síðastlið-
inn mánudag og hefur starfsemin aldrei verið umfangsmeiri. AUs
er boðið upp á 160 þúsund sæti i flugi til tólf staða innanlands auk
Færeyja og Grænlands. Innanlandsáætlunin var kynnt fulltrúum Qöl-
miðlanna með nýstárlegum hætti þegar Flugleiðir bauð þeim til
Hafiiar í Hornafirði í síðustu viku en þaðan hélt hópurinn upp á
Vatnajökul á vegum Jöklaferða hf.
Flugleiðir leggja nú meiri áherslu
en áður á eins til tveggja daga skoð-
unarferðir út á land. Ferðirnar eru
seldar í samvinnu við heimamenn á
hverjum stað sem sjá um allt skipu-
lag skoðunarferða.
Um þrjátíu manna hópur hélt í
slíka ferð í síðustu viku á Vatnajök-
ul. Ekið var í rútu upp brattar hlíðar
Skálafellsjökuls, upp að jökulrótum
þar sem skipt var um farartæki og
haldið á vélsleðum upp á jökulinn
sjálfan. Það voru Jöklaferðir hf.
sem hófu að skipuleggja slíkar ferð-
ir 1985 og var það talið vonlaust
fyrirtæki á sínum tíma. Tryggvi
Árnason, hjá Jöklaferðum, sem
stjórnaði leiðangrinum, sagði að
2.000 manns hefðu bókað sig í
jöklaferðir í sumar en auk ferða á
jökulinn er farið í bátsferð um Jök-
ulsárlón. Fyrirtækið ætlar að
byggja hótel á Þormóðshnútum í
hlíðum Miðfellseggjar í sumar og
bjóða upp á eins til fjögurra daga
ferðir um jökulinn á vélsleðum eða
snjóbílum. Þá hafa forsvarsmenn
fyrirtækisins uppi hugmyndir um
að reisa kláf sem flytti ferðamenn
af jöklinum en kostnaður við slíkan
kláf er talinn nema um 14 milljón-
um króna.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að Jöklaferðir hf.
væri dæmi framtak heimamanna
sem hefði borið ávöxt. Aukin eftir-
spurn í ferðir á Vatnajökul hefði
gert Flugleiðum kleift að ijölga
ferðum til Hafnar í Hornafirði. Þar
hefur daglega verið haldi uppi flugi
en í sumar verður auk þess haldið
uppi ferðum tvisar á dag tvisvar í
viku. „Fyrirtæki í ferðaþjónustu úti
á landi hjálpa okkur að fjölga ferð-
um á smærri staði en það er Flug-
leiðum og heimamönnum til góðs.
Sumar þessar ferðir hafa lengi ver-
ið vinsælar meðal erlendra ferða-
manna og má þar t.d. nefna Mý-
vatnsferð. Frá Sáuðárkróki er farið
í Drangey og hafa helmingi fleiri
bókað sig þangað en á sama tíma
í fyrra. Frá Húsavík er farið í þjóð-
garðinn í Jökulsárgljúfrum og frá
Egilsstöðum er farið í spennandi
dagsferð um Hérað og niður á Seyð-
isfjörð," sagði Einar Sigurðsson.
Siglt um Jökulsárlón.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Símaskráin komin út í
157 þúsund eintökum
SÍMASKRÁIN 1990 er komin út og verður aflient símnotendum á
póst- og símstöðvum um land allt næstu daga gegn framvísun sérs-
takra afhendingarseðla, sem póstlagðir hafa verið, og er afhending
þegar hafin.
Upplag símaskrárinnar að þessu
sinni er um 157 þúsund eintök.
Brot skrárinnar er óbreytt frá því
sem verið hefur undanfarin ár en
blaðsíðutalið eykst um 40 síður frá
því í fyrra og er nú 904 síður. I
skrána fóru um 280 tonn af pappír.
Sama útlit er á skránni nú og í
fyrra. Mynd af Lagarfljóti og Snæ-
felli prýðir forsíðuna að þessu sinni.
Sú nýung var tekin upp í fyrra
að bjóða skrána innbundna í hörð
spjöld með plasthúð og reyndist það
mun vinsælla en reiknað hafði verið
með í upphafi.
Verður þetta endurtekið nú og
byrjað með mun stærra upplag af
skránni innbundinni en þá var gert.
Aukagjald fyrir að fá símaskrána
innbundna er kr. 175.
Skrá yfir farsíma, bæði sjálfvirka
og handvirka, samtals um 9.000
eru nú á bls 751-785 eða fyrir aft-
an almennu símaskrána og skrá um
bæi í sveitum, sem hafa síma, en
þeir eru 6.000 talsins.
Nýja símaskráin tekur gildi frá
og með 1. júni nk.
Með aðalskránni eru gefnar út
sérstakar svæðaskrár eins og und-
anfarin ár og verða þær til sölu á
póst- og símstöðvum um leið og
afhending símaskrárinnar fer fram.
Símnotendum er bent á að kynna
sér símaskrána sem fyrst eftir að
þeir hafa fengið hana í hendur til
að auðvelda sér notkun hennar og
þá sérstaklega er mikið liggur við.
I því sambandi er vakin athygli
á skrá yfir öryggis- og neyðarsíma
á kápusíðu og síðu 1, svo og kaflan-
um frá Almannavörnum ríkisins á
bls. 893-904.
Skrá um ný og breytt símanúmer
á 91-svæðinu á meðan prentun stóð
yfir er á bls 37-40.
Ný götu- og númeraskrá yfir
höfuðborgarsvæðið er einnig komin
út og verður til sölu á afgreiðslu-
stöðum stofnunarinnar. Verð henn-
ar er kr. 1.200. Slík skrá kom síðast
út fyrir tveimur árum.
Ritstjóri símaskrárinnar er Agúst
Geirsson símstjóri í Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Dvalartíma
í Kjarvals-
stofu í París
úthlutað
NÝLEGA var dvalartíma í
listamannaíbúðinni Kjarvals-
stofii í Cité International í
París úthlutað fyrir tímabilið
frá 1. ágúst 1990 til 30. júlí
1991. Fjölmargar umsóknir
bárust.
Þeir sem munu dvelja í þess-
ari listamannaíbúð Islendinga
eru: Atli Heimir Svein’sson, tón-
skáld, í ágúst og september
1990. Thor Vilhjálmsson, rit-
höfundur, í október og nóvem-
ber 1990. Guðjón Bjarnason,
myndlistarmaður, í desember
1990 og janúar 1991. Pétur B.
Luthersson, hönnuður, í febrúar
og mars 1991. Hafsteinn Aust-
mann, myndlistarmaður, í apríl
og maí 1991. Kjartan Ólason,
myndlistarmaður, í júní og júlí
1991.
Listamannaíbúðin er í eigu
Reykjavíkurborgar (60%),
íslenska ríkisins (30%) og
Seðlabanka íslands (10%).
Úthlutunarnefnd skipa nú:
Elín Pálmadóttir, Herdís Þor-
valdsdóttir og Ragnheiður Jóns-
dóttir.
Gary McBretney sellóleikari, Selma Guðmundsdóttir píanóleik-
ari, Valur Pálsson kontrabassaleikari, Rut Ingólfsdóttir fiðluleik-
ari og Sarah Buckley lágfiðluleikari. Þau flytja Silungakvintett-
inn á VestQörðum næstu daga.
Kammersveit Reykjavíkur:
Silung-akvintett-
inn á Vestfjörðum
KAMMERSVEIT Reykjavíkur er þessa dagana í tónleikaferð
um landið. Nýlokið er velheppnaðri ferð um Austurland þar
sem haldnir voru þrennir tónleikar. Um næstu helgi njun
Kammersveitin heimsækja Vestfirði.
Á efnisskrá í Vestfjarðaferð-
inni verður Píanókvartett í g-
moll eftir W.A. Mozart, „TengsT*
eftir Hjálmar H. Ragnarsson við
ljóð Stefáns Harðar Grímssonar,
sem verður flutt á ísafirði, en
sönglög eftir Eyþór Stefánsson,
Árna Thorsteinsson o.fl.'á öðrum
tónleikum ferðarinnar, og að lok-
um verður fluttur hinn þekkti
og vinsæli „Silungakvintett" eft-
ir F. Schubert.
Einsöngvari í ferðinni verður
Jóhanna V. Þórhallsdóttir en
hljóðfæraleikarar verða Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari,
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari,
Hlíf Siguijónsdóttir fiðluleikari,
Sarah Buckley lágfiðluleikari,
Gary McBretney sellóleikari og
Valur Pálsson kontrabassaleik-
ari.
Tónleikarnir verða sem hér
segir: Á ísafirði, fimmtudaginn
24. maí, uppstigningardag, kl.
21 í sal frímúrara, föstudaginn
25. maí kl. 20.30 í félagsheimil-
inu, Þingeyri, laugardaginn 26.
maí kl. 16 í Matsal Hjálms, Flat-
eyri og sunnudaginn 27. maí kl.
16 í félagsheimilinu, Bolung-
arvík.
Félag íslenskra tónlistar-
manna veitti Kammersveitinni
styrk til ferðarinnar.
(Fréttatilkynning.)
Lánskjaravísitalan:
Verðbólgan
mælist 6 %
LANSKJARAVISITALAN fyrir
júnímánuð verður 2.887 stig, og
er það 0,49% hækkun frá maívísi-
tölunni, samkvæmt útreikningi
Seðlabanka íslands.
Umreiknað til árshækkunar sam-
svarar þessi hækkun vísitölunnar
6% verðbólgu. Hækkun hennar
síðustu þrjá mánuði samsvarar 6,2%
verðbólgu og 12,5% ef litið er til
sex mánaða. Lánskjaravísitalan
hefur hækkað um 16,6% á síðustu
tólf mánuðum.
y
M
/PZ&æ? .
/ / %\
^(oY'n
STÚDENTASTJARNAN
HÁLSMEN MEÐ KEÐJU KR. 2.980,-
♦^Jcn cgOsksp
LAUGAVEGI 70 SÍMI 24910
VIÐ LEGGJUM HEIMINN AD F0TUM ÞER
rtprn
EVROPA
Amsterdam
kr. 24.650,-
París
kr. 28.720,-
Búdapest
kr. 44.330,-
New York
kr. 47.380,-
San Fransisco
kr. 57.910,-
Chicago
kr. 61.280,-
ASIA
Bangkok
kr. 81.510,-
Dehli
kr. 74.630,-
Tokyo
kr. 95.780,-
AUSTURSTRÆTI 17, 2. HÆÐ
SÍMI: 62 22 OO
Á EIGIN VEGUM EN FARSEÐLUM FRÁ VERÖLD
Royai Duich Aítiínc* Thc worlti’s favountc airlinc. ~jkPr ////S4S FLUGLEIÐIR MtS'