Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 70

Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 70
70 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990 + ÍÞRÚmR FOLK ■ SIGURÐUR Hjörleifsson, sem var aðstoðarmaður Lazlo Nemeths þjálfara íslandsmeistara KR í körfuknattleik í vetur átti í viðræð- um við forráðamenn Snæfells í Stykkishólmi um helgina. „Það hefði verið gaman að fara á fornar slóðir og taka við þjálfun Snæ- feils,“ sagði Sigurður við Morgun- blaðið, en hann bjó í Stykkishólmi í 15 ár. „Samningar tókust því miður ekki en ég vona að liðinu gangi vel næsta vetur,“ sagði Sig- urður. Snæfell vann sig upp í úr- valsdeildina nú í vor. ■ RUUD Gullitt verður í byijun- arliði AC Mílanó gegn Benfica í úrslitaleik Evrópukeppni meistara- liða í dag í Vínarborg. Það var tilkynnt í gær, en leikmaðurinn hefur átt við þrálát meiðsli að stríða lengi. Leikurinn verður í beinni út- sendingu ríkissjónvarpsins. ■ DAVID Linigan, miðvörður Norwich er að öllum líkindum á leiðinni til Arsenal sem ætlar að borga 1,25 milljónir sterlingspunda fyrir hann. ■ GRAEME Sou- ness stjóri Glasgow Rangers kaupir líklega miðvallar- leikmanninn Gary Mcallister frá Leicester á 1,2 milljónir punda. ■ MAGIC Johnson var í gær kjörinn besti leikmaður NBA-deild- arinnar. Þetta er í þriðja sinn sem Johnson nær þessum eftirsótta titli og er það kannski nokkur sárabót eftir slæmt gengi Los Angeles Lakers í úrslitakeppninni. ■ PORTLAND Trail Blazers, sem sló Los Angeles Lakers út í 2. umferð í NBA-deildinni, byrjaði vel gegn Phoenix Suns í fyrsta leiknum í úrslitum Vesturdeildar- innar. Portland sigraði 100:98 í æsispennandi leik en það var Kevin Duckworth sem gerði sigurkörf- una 17 sekúndum fyrir leikslok. Clyde Drexsler var stigahæstur í liði Portland með 20 stig en Tom Chambers gerði 28 stig fyrir gest- FráBob Hennessy íEnglandi Frá Gunnari Valgeirssyni í Bandaríkjunum ■ BOB Weiss var í gær ráðinn þjálfari Atlanta. Hann var aðstoð- arþjálfari Orlando Magic í fyrra var áður hjá San Antonio "Spurs. ■ PAT Riley segist ekki ætla að hætta hjá Lakers þrátt fyrir að Ijölmiðlar hafi gert því skóna að hann sé á förum. „Við unnum flesta leiki í deildinni en gekk ekki vel í úrslitakeppninni. Þetta getur gerst hjá hvaða liði sem er og við því er ekkert að gera,“ sagði Riley. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Útlendingar í herbúð- ir Víkings og Fram GuðmundurGuðmundsson endurráðinn þjálfari Víkings Guðmundur Guðmundsson, landsliðsmaður í handknatt- leik, var í gær endurráðinn þjálfari Víkings. Hann tók við þjálfun liðs- ins á miðju síðasta keppnistímabili eftir að Júgóslavinn Slavko Bambir var látinn hætta. Guðmundur held- ur áfram að leika með liðinu. Ljóst er að erlendur leikmaður verður bæði í herbúðum Víkinga og Framara næsta vetur. Víkingar eru með augastað á Júgóslava en ætla einnig að skoða víðar og Júgó- slavi og Tékki eru inni í myndinni hjá Frömurum. Það verða því að minnsta kosti þrír útlendingar með íslenskum liðum næsta vetur því 2. deildarlið Hauka hefur þegar gengið samningi við tékkneska landsliðsmanninn Peter Baumruk. Þess má og geta að Víkingar ætla í æfingabúðir í haust, annað hvort til Vestur Þýskalands eða Svíþjóðar, til að undirbúa sig fyrir íslandsmótið. Guðmundur Guðmundsson. KNATTSPYRNA / 1. DEILD Morgunblaöið/Einar Falur Kjartan fylgist með félögum sínum í Hafnarfirði á sunnudaginn. Kjartan handar- brotinn Kjartan Einarsson, framherji KA, er ekki fingurbrotinn eins og talið var í fyrstu heldur handar- brotinn. Það kom í ljós við nánari rannsókn. Hann fylgdist með félög- um sínum af bekknum er þeir mættu FH í fyrsta leik mótsins Hafnarfirði á sunnudaginn, og enn er óvíst hvort hann getur verið með gegn Valsmönnum á föstudaginn. Kjartan meiddist í leiknum gegn Fram í meistarakeppninni í fyrri viku og er með hægri hendina í gifsi. Rúnar í fjögurra leikja keppnisbann Rúnar Kristinsson, landsliðs- maður í KR, var í gær úr- skurðaður í fjögurra leikja bann af aganefnd KSI, en hann var sem kunnugt er rekinn af velli í fyrsta leik KR á íslanasmótinu í ár; gegn Víkingi á laugardaginn var, fyrir að slá til og sparka í Aðalstein Aðalsteinsson. Þetta mun vera lengsta bann sem leikmaður í 1. deild hefur veríð úrskurðaður í. * Rúnar missir því af leiknum gegn Stjörnunni í Garðabæ á morgun, auk KR-ÍBV 2. júní, Þór-KR 6. júní og KR-Fram 12. júní. I úrskurði sínum styðst aga- nefnd við 3. grein starfsreglna fyrir nefndina, þar sem segir: „Hafi dómari vísað leikmanni af leikvelli fyrir ofsalega framkomu eða alvarlega grófan leik, skal refsa viðkomandi með leikbanni í allt að 6 leikjum. Ef um ítrekun er að ræða, skal refsingin vera minnst 6 leikja bann.“ Leikur KA og Vals verður í Reykjavík Leikur íslandsmeistara KA og Vals í 2. umferð 1. deildarkeppninnar, sem átti að vera á Akureyri á föstudagskvöldið, hefur verið færður á Valsvöllinn og hefst kl. 20. „Við getum því miður ekki boðið upp á neitt nema malarvöll ennþá og viljum helst ekki spila nema við topp að- stæður. Við óskuðum því eftir því að þetta yrði heimaleikur Vals og það var samþykkt," sagði Stefán Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar KA, við Morgunblaðið. Fjórir fyrstu leikir meistaranna í deildinni verða því á útivelli. Þriðji leikur þeirra verður gegn Akurnesingum á Skaganum laugardaginn 2. júní og sá fjórði gegn Fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 7. júní. 2. umferð 1. deildarinnar hefst á morgun með þremur leikjum; Fram og ÍA ríða á vaðið á Laugardalsvelli kl. 16.00 og kl. 20.00 eru tveir leikir á dagskrá: Stjarnan og KR mætast í Garðabæ og IBV og Þór í Vest- mannaeyjum. Á föstudag leika svo Víkingar og FH, auk Vals og KA. GETRAUNIR 100 milljóna HM-seðill! Fyrsta sinn í sögu happdrættis í heiminum sem keppt er um sameigin- legan vinnigspott í mörgum gjaldmiðlum STÓRT skref var stigið hjá íslenskum getraunum í gær er fyrsta seðlinum í sameiginlegri HM-getraun ísiands, Svíþjóð- ar og Danmerkur var rennt ígegn af Sveini Björnssyni, for- seta íþróttasambands íslands. Þetta er í fyrsta sinn í sögu happdrættis í heiminum sem keppt er um sameiginlegan vinn- ingspott í mörgum gjaldmiðlum. slenskár getraunir í samvinnu við „tippara“ í Svíþjóð og Dan- ^rnörku hafa opnað sameiginlegan vinnigspott fyrir heimsmeistara- keppnina á Italíu. Að sögn Há- kons Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Islenskra get- rauna, má búast við að potturinn fari yfir 100 milljónir íslenskra króna. Þátttakendur í hveiju landi fyrir sig borga seðilinn í eigin »mynt. Næstu þijár vikurnar verð- ur því tippað allt frá Kiruna í norðri til Borgundarhólms í suðri og frá Stokkhólmi í austri til Pat- reksfjarðar í vestri. íslendingar eru fyrstir til að opna þennan sameiginlegan HM- vinningspott, en Svíar og Danir opna sölukerfi sitt í næstu viku. Sala á HM-seðlinum verður í gangi hér á landi í þijár vikur, eða til kl. 14.55 laugardaginn 9. júní. Daginn áður, föstudaginn 8. júní, mun liggja fyrir hver heild- arvinningsupphæðin er í Svíþjóð og Danmörku þar sem sölu lýkur á miðvikudegi og fimmtudegi í sömu viku. Þessi seðill er sá fyrsti sem fer í gegnum hið fullkomna sölukerfi Islenskrar getrspár þar sem notað er þráðlaust farsíma- samband en ekki hefðbundið símasamband. Hugmyndin að samstarfi um norrænan stórpott fyrir HM 1990 kviknaði hjá danska getraunafyr- irtækinu Dansk Tipstjeneste og var kynnt á fundi forráðamanna norrænu getraunafyrirtækjanna í Stokkhólmi fyrir ári síðan. Hug- myndinni var vel tekið af hálfu Islands, Danmerkur og Svíþjóðar. Norðmenn vildu ekki samstarf og Finnar urðu að hætta við þátttöku í byijun þessa árs vegna ósveigj- anlegra reglna um happdrætti þar í landi. Á HM-seðlinum eru 13 leikir, en hingað til hafa getraunaseðlar Islenskra getrauna verið með 12 leikjum. Þrír vinningsflokkar eru í boði, en þeir hafa venjulega ver- ið tveir, fyrir 12 og 11 rétta. Greitt verður nú fyrir 13 rétta að sjálfsögðu, en þar verður sameig- inlegur vinnigspottur með Dönum og Svíum. Ennfremur verður greitt fyrir 12 og 11 rétta leiki. Hver röð kostar 20 krónur. Ríkissjónvarpið mun sýna 36 leiki frá HM á Italíu í beinni út- sendingu. Þess má geta að sjón- varpið sýnir níu leiki beint af þeim 13 sem eru á fyrri HM-seðlinum. URSUT Vináttuleikir í knatt- spyrnu London, Englandi. England-Úruguay...................1:2 John Bames (51.) - Santiago Ostolaza (27.), Jose Perdomo (62.) ■Mark Barnes var eitt hið glæsilegasta sem gert hefur verið á Wembley, að mati Ray Clemence, fyrrum landsliðsmarkvarðar Englands, sem var á meðal þula breska sjónvarpsins. Barnes fékk háa sendingu að vítateig, tók boltann á bijóstið og um skaut síðan um leið og boltinn snerti völlinn, óveij- andi skoti efst í markið. Tel Aviv, ísrael. Israel-Argentína..................1:2 Diego Maradona (35.), Claudio Caniggia (67.) - Tal Banim (37.) Poznan, PóUandi. Leeh Poznan-Kólumbía..............1:1 GOLF Arneson-skjöidurinn Hin árlega keppni um Arneson skjöldinn fer fram í Grafarholti á morgun, fimmtu- dag. Ræst verður út kl. 9.00. Leikinn verð- ur 18 holu höggleikur með forgjöf. ■Á sunnudaginn verður fyrsta opna mótið í Grafarholti, Lacoste-mótið. Það er einnig 18 holu höggleikur með forgjöf. BIKARKEPPNIN Fylkismenn í 2. umferð Fylkismenn komust í 2. umferð bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi er þeir sigruðu Grindvíkinga 2:1 á heimavelli sínum í Árbæ. Guðmund- ur Baldursson kom heimamönnum á bragðið með laglegu marki um miðjan fyrri hálfleik. Skoraði með skoti frá vítateig, og Kristinn Tóm- asson bætti öðru marki við snemma í síðari hálfleik með skoti við víta- teigslínu. Grindvíkingar sóttu í sig veðrið eftir mark Kristins en náðu þó aðeins að skora einu sinni. Þar var Einar Daníelsson að verki. +

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.