Morgunblaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990 31 Þau eru ánægð með árangurinn. Sigríður Gísladóttir, Ólafur H. Sverrisson, sveitarstjóri, Sigríður Þórð- ardóttir og Kristján Guðmundsson, oddviti. þær framkvæmdir sem höfðu tekið langan tíma, svo sem byggingu íþróttahúss, sem var tekið í notkun síðastliðið haust, skrifstofuhúsnæði fyrir hreppinn, sem tekið var í notk- un á dögunum, framkvæmdir við höfnina, eflingu vatnsveitu o.fl. „Fólk er mjög ánægt með að íþróttahúsið sé loksins tilbúið og er það mikið notað frá morgni til kvölds,“ sagði Kristján. Atvinnumál standa vel í Grundar- firði og vildu þau þakka það miklum dugnaði atvinnurekenda þar í gegn- um tíðina. Atvinnulífið einskorðast að miklu leyti við sjósókn og fisk- verkun. Aðspurð um skólamálin sögðust þau ætla að leggja mikla áherslu á að stofna framhaldsdeild við grunn- skólann í tengslum við Fjölbrautar- skólann á Akranesi. Þá mun far- skóli Vesturlands taka til starfa á næstunni. Sigríður Gísladóttir sagði að því miður ættu þau við sama vanda að etja og önnur lítil byggða- lög því að þeir nemendur sem færu í framhaldsnám kæmu sjaldnast til baka. „Það hefur líka orðið til þess að nokkuð er um að fólk sem kom- ið er yfir miðjan aldur flytjist í burtu á eftir börnunum sínum,“ sagði hún. En þrátt fyrir það er margt ungt fólks í Grundarfírði og fjöldi barna og hefur ekki verið hægt að anna eftirspurn eftir leikskólaplássi. Stefnt að því að auka það. Læknir var ekki búsettur fyrr en í júlí 1986 í Grundarfirði. Heilbrigð- isþjónusta breyttist mikið við það. Þar er heilsugæslustöð en hún er til húsa í lítilli íbúð. Er ætlunin að þrýsta á stjórnvöld um byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar sem allra fyrst. Ólafur sagði að ríkisvaldið veitti engu fé til Grundarfjarðar á þessu ári. Heimahjúkrun er öflug og einnig er rekið dvalarheimili fyr- ir aldraða, Fellaskjól, sem sjálf- stæðismenn vilja styðja við bakið á. Sigríður Þórðardóttir sagði að eitt af brýnustu verkefnunum fram- undan væri fegrun umhverfisins. „Það er alls staðar hreyfing í þá átt og við viljum ekki dragast aftur út.“ Hún sagðist halda að ef það væri einhvers metið að sveitarfélag væri vel rekið og peningarnir væru notaðir til að byggja upp, en ekki bara til að borga fjármagnskostnað, ætti þessi meirihluti að halda velli. Þau sögðu að félags- og menn- ingarlíf væri gott í Grundarfirði og fólkið stolt af sínu byggðarlagi og metnaðarfullt fyrir þe^s hönd. Það væri bæði jákvætt og harðduglegt og samstaðan mikil. Sem dæmi má nefna mikla þátttöku íbúanna í alls kyns söfnunum og sæi þess víða merki, s.s. orgelið í kirkjunni, skíða- lyftan, nýr sjómannaminnisvarði og fleira. Þeir Ásgeir Valdimarsson og Árni Halldórsson skipa 2. og 3. sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir þessar kosningar. Þeir eru báðir kunnugir málefnum Grundarfjarðar og hefur Árni setið í skólanefnd og Ásgeir í hafnarnefnd hreppsins. Ólafur sagði að meirihluti hrepps- nefndar hafi reynt að skipta með sér verkum eftir málaflokkum, bæði eftir þekkingu og áhugamálum hvers og eins. Kristján sagði að þó svo að inn kæmu nýir menn yrði haldið áfram á sömu braut. „Fjármálin verða áfram aðalatriðið og verður lögð áhersla á að tapa ekki þessari góðu stjórn niður. Öðru vísi skapast ekki möguleikar á að framkvæma í byggðarlaginu," sagði hann að lok- um. JÓHANN HELGASON OG BJARNI SVEINBJÖRNSSON LEIKA HUGLJÚF LÖG FRÍTTÁ BORGARKRÁNA TIL KL. 24 GAMLA BORGARROKKIÐ VERÐU í HÁ VEGUM HAFT DANSAÐ TIL KL, 03 BORÐAPANTANIR í S í M A 11440 VORFAGNAÐUR SJÁLFSTÆDISMANNA FIMM TUDA GINN 24. MAÍ Félög sjálfstæðismanna íHáaleitis-, Smáíbáða-, Bústaða- og Fossvogshverfum efna tilfjölskylduhátíðarkl. 15.00 á uppstigningardag, fimmtudaginn 24. maí. Hátíðin verður haldin á Háaleitisbraut 68, á opnu svæði milli Austurvers og Grensáskirkju. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík taka þátt íþessum vorfagnaði. Kynnir: Grímur Sœmundsen, lœknir. DAGSKRÁ: 1. Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur undir stjórn Sœbjörns Jónssonar hefur leik kl. 15.00. 2. Hátíðin sett: Þórarinn Sveinsson, lœknir. 3. Barnakór skólanna syngur undir stjórn Þorvaldar Björnssonar, tónmenntakennara. 4. Avarp: Árni Sigfússon, borgarfulltrúi. 5. Pylsu- og Pepsíveisla hefst kl. 15.30 og stendur til kl. 16.00. Brugðið á leik. 6. Emmess ís-kynning 7. Söngfélag Félags eldri borgara boðar komu vorsins með söng undir stjórn Kristínar Pétursdóttur, tón- menntakennara. 8. Hátíðarslit: Guðmundur Jónsson, vélfrœðingur. Léttsveitin leikur milli atriða. Allir velkomnir!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.