Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 62

Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 + Móðir okkar, SIGURJÓNA SOFFÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, Freyjugötu 17B, frá Saltvfk á Kjalarnesi, andaðist á Borgarspítalanum 21. maí. Hulda Ragna Magnúsdóttir, systur, tengdadóttir, börn og barnabörn. Maðurinn minn, SKJÖLDUR EYFJÖRÐ STEFÁNSSON, lést á Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudagsins 20. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd barna, barnabarna og fósturbarna, Guðlaug Magnúsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, ÁSTA JENNÝ SIGURÐARDÓTTIR, Bústaðavegi 75, andaðist á Borgarspítalanum 22. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Sveinn H. M. Ólafsson + Móðir okkar og tengdamóðir GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR, andaðist í Landspítalanum 21. maí. Guðrún Egilsdóttir, Björn Björnsson Sigurður Egilsson, Guðbjörg Valdimarsdóttir. + Ástkær móðir, amma og langamma, GÍSLÍNA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR frá Baldurshaga, Vestmannaeyjum, andaðist 21. maí á Sólvangi, Hafnarfirði. Sesselja Andrésdóttir, Arndfs Friðriksdóttir, Ingimundur Helgason, Andrés Haukur Friðriksson, Helga Pétursdóttir og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON fyrrverandi verkstjóri, Langholtsvegi 96, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 21. maí. Ástríður Guðmundsdóttir og börn. + Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA DAGBJÖRT ÞÓRARINSDÓTTIR, Hátúni 47, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 25. maí kl. 15.00. Andrew Þorvaldsson, Sigrún Andrewsdóttir, Grétar Áss Sigurðsson, Kristín Andrewsdóttir, Kristján Jóhannsson, Hulda Hjálmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, INGVELDUR STEFÁNSDÓTTIR frá Kleifum í Gilsfirði, sem andaðist 16. maí sl., verður jarðsungin miðvikudaginn 23. maí kl. 13.30 frá Bústaðakirkju. Stefán Guðbergsson, Sigríður Hjartar, Hjörtur Stefánsson, Bergur Stefánsson, Hlynur Stefánsson. Baldvin L. Sigurðsson frá Hælíivík - Minning Hinn 12. þ.m. lést á Vífilsstaða- spítala Baldvin Lúðvík Sigurðsson og hafði hann dvalið þar síðustu þrjá mánuði. Þar með var lokið miklu veikindastríði sem segja má að staðið hafi síðustu 20 árin. Baldvin fæddist 26. janúar 1928 í Hælavík á Hornströndum, sonur hjónanna Stefaníu Halldóru Guð- mundsdóttur og Sigurðar Sigurðs- sonar, sem þar bjuggu. Þau hjónin áttu þrettán börn, sjö dætur og sex syni og eru nú fimm bræðranna látnir. Baldvin ólst upp á þeim tímum er unglingar áttu ekki margra kosta völ, þó svo að hugur stæði til náms; því að lífsbaráttan var hörð og óvægin. Enda ungur að árum er hann tók hverja þá vinnu er til féll, til sjós eða lands og þótti hvarvetna hinn besti starfskraftur. Árið 1952 hóf hann sambúð með Halldóru Guðmundsdóttur. Átti hún þá fyrir soninn Sævar Jensson sem Baldvin gekk í föðurstað. Árið 1956 gengu þau svo í hjónaband. Þau Halldóra og Baldvin eignuð- ust sjö börn og eru þau; Anna María, nemi í Háskóla íslands, gift Hrafni Karlssyni, vélvirkja, og eiga þau þrjú börn. Garðar, bókmennta- fræðingur, kvæntur Kristínu Við- arsdóttur, kennara, og eiga þau eitt barn. Baldvin, sjómaður, kvæntur Bjarneyju Ingvarsdóttur og eiga þau tvö börn og eru búsett á Reyðarfirði. Hafþór sem á tvö börn, Stefán, Arnór og Þórir. Arnór hefur alist upp hjá föður- systur sinni Sigurborgu og hennar manni, Jóhanni Björgvinssyni, í Grænuhlíð við Reyðarfjörð. Þau hjón Halldóra og Baldvin urðu fyrir þeirri þungu sorg að missa tvo af sonum sínum af slys- förum með aðeins fimm vikna milli- bili; Sævar sem tók út af bát sem hann var á og drukknaði og Þórir yngsta barn þeirra aðeins 17 ára er fórst í bílslysi. Varð þétta þungt áfall, ekki bara þeim hjónum heldur einnig öllum nánustu ættingjum. En lífíð heldur áfram þó vinir og Haraldur Runólfs- son bóndi — Minning Fæddur 27. apríl 1902 Dáinn 16. mars 1990 Við systkinin vorum fyrir nokkru viðstödd greftrun Haraldar bónda Runólfssonar í Hólum á Rangárvöll- um. Sú athöfn fór fram við bæjar- tóftir gamla Næfurholts, þar sem stórfjölskylda þeirra Næfurholts- systkina hefur helgað sér fjöl- skýldugrafreit. Við höfum aldrei verið við eins fallega, sterka og ein- falda athöfn. Þar lagðist allt á eitt, einstakt staðarval sem almættið klæddi hvítri skikkju og kórónaði síðan með heiðskírum himni yfir fjallasal þeirra Næfurholtssystkina. Athöfnin sjálf var sterk í einfald- leik sínum, allt var hreint og tært eins og snjóbreiðan sem huldi jörð- ina. Aðeins nánustu skyldmenni, vinir og nágrannar voru viðstödd. Tveir frændur hins látna sungu nokkur falleg ættjarðariög og sálma og ungur kvenprestur, Halldóra Þorvarðardóttir, jarðsetti. Að síðustu kom kveðja til líkmanna frá Haraldi bónda, en hann hafði mælt svo fyrir að líkmenn skyldu skála yfir moldum sínum og var það gert. Við erum svo lánsöm að afasyst- ir okkar, Guðný heitin Guðnadóttir, reisti sér lítið sumarhús, Birkilaut, í landi Næfurholts og Hóla árið 1944. Það varð til þess að við og margt skyldfólk okkar kynntumst Haraldi og konu hans Guðrúnu Laufeyju Ofeigsdóttur og systkin- um hennar í Næfurholti. Þau kynni sem frænka okkar heitin skóp við þetta heiðursfólk hefur verið okkur öllum til mikillar gæfu. Haraldur var fæddur 27. apríl 1902 í Mykjunesi í Holtum í Rang- árvallasýslu. Foreldrar hans voru hjónin Runólfur Einarsson bóndi og Sigríður Magnúsdóttir. Haraldur réðist ungur sem vinnumaður að Næfurholti, en þar bjuggu þá hjón- in Ófeigur Ófeigsson og Elín Guð- brandsdóttir. Eftir lát Ófeigs bónda gerðist Haraldur bústjóri Elínar og var það um margra ára skeið. Þau Ófeigur og Elín áttu fímm börn og er Guðrún Laufey þeirra elst, þá Ófeigur, síðan tvíburarnir Jónína og Geir og yngst var Ragnheiður, en hún er nú látin. Þau Haraldur og Guðrún felldu hugi saman og gengu í hjónaband 1929. Þau eignuðust sjö börn. Þau eru: Ófeigur sem dó í bernsku, Sverrir bóndi í Sefsundi kvæntur Svölu Guðmundsdóttur, Elín Björk sem var gift Gunnari Klemenssyni bónda í Svínhaga, sem nú er látinn, en seinni maður hennar er Magnús Klemensson á Hellu, Klara Hall- gerður gift Heiðmundi Klemenssyni bónda á Kaldbak, Sigríður Erla gift Klemensi Erlingssyni búsett á Sel- fossi, Ester Helga ógift og býr í Hólum, Guðrún Auður sem býr í Hólum með manni sínum Kristjáni Gíslasyni. Haraldur og Guðrún reistu nýbýl- ið Hóla í landi Næfurholts árið 1943 og hafa búið þar síðan. Þau hafa alla tíð lifað í ástríku hjónabandi og samheldni fjölskyldunnar verið mikil, enda börn þeirra flest búið í Hólum eða á nærliggjandi bæjum. Haraldur var dugmikill bóndi en fékkst einnig við ýmis önnur störf. Framan af ævinni fór hann á ver- tíðir og þótti afbragðs róðramaður, einnig var Haraldur mikil refa- skytta og mörgum ferðamanninum hefur hann leiðbeint yfir stórfljót og öræfi landsins. Hestamaður var hann ágætur og átti oft marga og góða hesta. Það var einmitt á hestum sem við kynntumst Haraldi fyrst, en hann feijaði okkur oft frá Skarði eða Leirubakka á Landi yfir Ytri- Rangá í Hraunteig, en í jaðri hans stóð sumarhús Guðnýjar frænku + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs sonar, bróður, unnusta og barnabarns, MAGNÚSAR JÓNS MAGNÚSSONAR, Brúarholti 5, Ólafsvík. Hrönn Héðinsdóttir, Héðinn Magnússon, Hafþór Magnússon, Guðrún Sigurbjörg Óskar Jacobsen, Guðrún Magnúsdóttir, Vigfús Elvan Friðriksson, Sæbjörn Elvan Vigfússon, Vigfús Elvan Vigfússon, Hafrún Elvan Vigfúsdóttir, Guðmundsdóttir, Héðinn Hermóðsson, Hólmfríður Jónsdóttir. nánir ættingjar hverfi á braut en minningar sem aldrei gleymast eru þó huggun í erli dagsins og þannig er við fráfall Baldvins. Við systkin- in og aðrir venslamenn stöldrum við og yljum okkur við minningam- ar frá æskudögum og samveru- stundum á hátíðis- og tyllidögum og ég sendi Halldóru, börnum og bamabörnum innilegustu samúðar- kveðjur og þakka allar liðnar stund- ir. Guðrún Rósa Sigurðardóttir okkar. Haraldur var mjög rismikill, hann var fríður maður og grannur, hafði léttar hreyfíngar og augnaráðið var allt í senn, hvasst og undur blítt, en fyrst og fremst fjörmikið undan loðnum augabrúnum. Sögumaður var hann ágætur og það var mjög gaman að hlusta á Guðnýju frænku okkar og Harald taka tal saman, því bæði voru margfróð og kjarnyrt og létu ýmislegt fjúka. Haraldur var mannblendinn og hafði unun af að taka vel á móti gestum og fórst það einkar vel með dyggri aðstoð Guðrúnar konu sinnar, en flatkökur og ijómapönnukökur hennar eru óviðjafnanlegar. Haraldur var mikill ættjarðarvin- ur og hann elskaði sveitina sína öðru fremur. Það undrast heldur enginn sem þekkir til á Rangárvöll- um og Landmannaafrétti, en þar átti Haraldur ótalin spor við smala- mennsku, veiðiskap og tófuleit. Nábýli við Heklu ægifagra og mis- kunnarlausa hlýtur einnig að hafa djúpstæð áhrif á fólk, en aldrei heyrði ég Harald eða nokkurt Næf- urholtssystkina kvarta undan því, þrátt fyrir ýmsar búsifjar sem þau hafa hlotið af nálægðinni við fjalla- drottninguna. Ef til vill hefur Einar Benediktsson haft þetta landssvæði í huga er hann orti hið fallega kvæði Fjallaloft, en fyrsta erindi þess er svona: Um jörð og hjörð er heiður friðarbjarmi. Hér hallast byggðin örugg Qalls að barmi, og býlin hvíla sæl og sumarheit í sólgljá undir léctum jökulhvarmi. Hér má sjá íslenskt yfirbragð á sveit, við eyðisvæðin há og mikilleit. Okkur systkinin langar að þakka Haraldi, Guðrúnu og Næfurholts- systkinunum öllum, þá miklu bless- un að fá að njóta landsins þeirra með þeim og samvistanna við þau sjálf, það hefur gefið okkur mikið. Legstaður Haraldar Runólfsson- ar gnæfir yfir sveitinni hans í miðju túni gamla Næfurholts, þar hvílir íslenskur bóndi. Friður sé með honum. Hildur, Soffia og Páll.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.