Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 20

Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 Hvaða steftiu hefur for- maður lræðsluráðs? eftir Svavar Gestsson Ragnar Júlíusson formaður fræðsluráðs Reykjavíkur skrifar grein í Morgunblaðinu 17. maí sl. þar sem hann ræðst af offorsi gegn menntamálaráðuneytinu. Er það raunar ekki nýtt en greinin er opin- ber staðfesting á vinnubrögðum formannsins og er það vissulega alvarlegt mál þegar formaður eins fræðsluráðsjns tekur árásir á menntamálaráðuneytið og fræðslustjórann í Reykjavík fram yfir faglegt samstarf. Allt frá því að undirritaður kom til starfa i menntamálaráðuneytinu hefur Ragnar Júlíusson gert það sem hann hefur getað til þess að gera menntamálaráðuneytinu er- fitt fyrir í Reykjavíkurumdæmi. Verst hefur þó endurtekin atlaga hans að fræðslustjóranum í Reykjavík verið; þar hefur hver tilraunin rekið aðra til þess að veikja stöðu fræðslustjórans. Fyrst er þess að geta að stofnað hefur verið skólamálaráð í Reykjavík sem hefur enga lagalega stöðu. En mörg fleiri dæmi mætti nefna eins og Ólduselsskólamálið þar sem Ragnar lagðist gegn íbúum Öldus- elsskólahverfis og starfsmönnum Ölduselsskóla. En þessi grein er ekki skrifuð til þess að troða illsakir vegna lið- ins tíma. Greinin er skrifuð til þess að svara rangfærslum í grein Ragnars Júlíussonar. 1. RJ kvartar undan því að ákveðið hefur verið að lengja skóla- dag yngstu barnanna í haust með því að sex ára bekkurinn verður lögskyldur og kennsluvikan í 7 og 8 ára bekkjunum er lengd. Þessi íenging veldur RJ bersýnilega von- brigðum því þar með hljóðnar nið- urskurðarkórinn sem hann stjórn- aði allt sl. ár. Staðreyndin er sú að það að taka inn 6 ára árganginn sem skólaskyldan og það að lengja um leið skólaviku 7 og 8 ára barna vegur að fullu upp þann sparnað sem efnt var til á sl. ári. 2. En auk þessarar lengingar og þess kostnaðarauka sem af henni leiðir hefur verið tekin ákvörðun um marga þætti í skóla- starfi sem munu án vafa skila sér í betra skólastarfi og kosta ein út af fýrir sig meira en nam sparnað- inum sem ákveðinn var í fyrra. Ég nefni aðeins árganga- og fag- stjóm og þróunarsjóð grunnskóla sem dæmi. Það er því ljóst að þeg- ar saman kemur þá hefur sparnað- urinn sem ákveðinn var í fyrra skilað sér aftur — tvöfalt! 3. í grein sinni kvartar RJ sér- staklega yfír því að menntamála- ráðherra gerði tillögu um það á sl. þingi að Reykjavíkurborg yrði skipt upp I skólahverfi. Þessi til- laga menntamálaráðherra og ríkis- stjórnarinnar í heild byggðist reyndar á tillögu sem þingmenn úr öllum flokkum, líka Sjálfstæðis- flokknum, fluttu á alþingi í hitteð- fyrra. Rökin fyrir tillögunni era þau að með því að hafa skólahverf- in með mest 10 þúsund íbúum sé auðveldara fyrir aðstandendur, foreldra, að fylgjast með skóla- starfinu. En það er einmitt það sem er eitur í beinum íhaldsins eins og hundruð dæma sanna. 4. RJ gagnrýnir það einnig sér- staklega að í grunnskólaframvarp- inu er gert ráð fyrir því að grann- skólar verði ekki stærri en svo að þar verði 650 börn. Er Ragnar Júlíusson með þessu að lýsa það eðlilegt ástand sem er í Seljaskóla að börnin þar séu á annað þúsund? Eða hvað? Vill formaður fræðslu- ráðs Reykjavíkur ekki hafa fram- farastefnu í skólamálum? Á allt að vera eins og það er? Hefur borg- arstjórnaríhaldið fundið hina end- anlegu fullkomnu skólaskipan? 5. Ragnar Júlíusson gagnrýnir það stefnumið frumvarpsins að koma skuli á einsetnum skóla á tíu árum. Samkvæmt gildandi lögum eiga sveitarfélögin að kosta bygg- ingar skóla. Þau hafa varið til þess 350 millj.kr. á ári, t.d. sl. ár en þá voru heildarframlög til skóla- bygginga grunnskóla um 700 millj.kr. á vegum ríkis og sveitarfé- laga. Með þeim ijármunum er hægt að ná einsetningu á styttra tímabili en á 10 árum þannig að hér er ekki gert ráð fyrir því að íþyngja sveitarfélögunum frá því sem verið hefur. Er formaður fræðsluráðs Reykjavíkur að lýsa því yfir að ekki verði haldið áfram með framkvæmdir í grunnskólum í Reykjavík svo sem verið hefur? Er hann að bjóða það að það muni hægja á grunnskólaframkvæmd- um í Reykjavík á komandi árum? Hver er stefna formannsins? íslensk skólastefha Undanfarin misseri hefur verið unnið markvisst að mótun íslenskr- ar skólastefnu í menntamálaráðu- neytinu í samstarfi við samtök þau sem hlut eiga að máli og fjölmarg- ar stofnanir. Ekki verður gerð grein fyrir þeirri stefnumótun í heild hér en minnt á eftirfarandi: 1. Fyrir liggja frumvörp til leik- skólalaga sem gera ráð fyrir því að leikskólinn verði hluti af hinu almenna uppeldiskerfi landsins með beinum tengslum við grann- skólann og undirbúning fyrir hann. Þessar tillögur sýna einnig fram á það hvernig unnt er að fjármagna átak í dagvistarmálum þannig að leikskólarými tvöfaldist í landinu á tilteknu árabili uns þvi marki er Svavar Gestsson „Undanfarin misseri hefiir verið unnið mark- visst að mótun íslenskr- ar skólastefhu í menntamálaráðuneyt- inu í samstarfi við sam- tök þau sem hlut eiga að máli og fjölmargar stofiianir.“ náð að 80% barna geti átt aðgang að leikskólum. 2. Fyrir liggur ný aðalnámskrá grunnskóla og frumvarp til grunn- skólalaga og teknar hafa verið ákvarðanir í málefnum grunnskól- ans sem breyta þegar miklu um skólastarf. Skiptir þar mestu lög- festing 10 ára skólaskyldu og leng- in skólatíma yngstu barnanna strax í haust. Á sl. ári var unnin könnun um forgangsverkefni í skólamálum sem er mikilvægur leiðarvísir fyrir yfirvöld menntamála á komandi árum um það sem skólasamfélagið telur mikilvægast. 4. Framhaldsskólinn hefur breyst verulega. Hann á nú að vera fyrir alla. Ótal breytingar hafa þegar átt sér stað í framhalds- skólunum og unnið er að víðtækum breytingum á námsframboði sem skapar framhaldsskólanum for- sendur til þess að uppfylla þessar lagaskyldur. 5. Háskólastefna ráðuneytisins hefur breyst í grundvallaratriðum. Sjálfstæði háskólans hefur verið aukið, nýtt stjórnkerfi Háskóla ís- lands hefur verið staðfest, sjávar- útvegsbraut Háskólans á Akureyri er farin af stað og Kennaraháskól- inn undirbýr nú fjögurra ára kenn- aranám sem hefst haustið 1991. 6. Fullorðinsfræðsla og endur- menntun er að breytast í veruleg- um mæli. Sjóðir kennarasamtak- anna munu skipta miklu máli í því sambandi en um þá var samið á sl. ári. 7. Grandvallarstefnan er: Vald- dreifing, lýðræði og þróun og þessa sér alls staðar stað í þeim ákvörð- unum sem teknar hafa verið. Dæmi um það síðastnefnda eru þróunar- sjóðir á öllum skólastigunum þrem- ur — leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla — en þessir sjóðir voru ekki til þegar breytt var um áherslur í menntamálaráðuneytinu haustið 1988. Þessi breytta stefna liggur fyrir í meginatriðum og ætlunin er að kynna hana í heild í haust. En framkvæmdin ræðst af mörgu. Hún ræðst auðvitað af fjármunum. Okkur hefur tekist þrátt fyrir erfið- leika í efnahagsmálum að auka við þessa ijármuni. En stefnan ræðst líka af því hvernig unnið er að framkvæmd hennar og það lofar því miður ekki góðu sem birtist í grein formanns fræðsluráðs á dög- unum. En sem betur fer eiga Reyk- víkingar kost á því á laugardaginn kemur að stilla betur saman strengina í fræðslumálum ríkis og borgar. Höfundur er menntamálaráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins í Reykja vík. Gagnkvæm virðing kynslóðanna eftir Kristínu A. Ólafsdóttur Það skemmtilegasta við kosn- ingabaráttu er að hitta fjöldann allan af fólki sem að öðru jöfnu verður ekki á vegi manns. Hressileg samtöl og athyglisverðar reynslu- sögur eru okkur frambjóðendum ómetanlegur sjóður fyrir komandi tíð. Tvö mannamót í síðustu viku eru mér einkar hugleikin, fundur með Félagi eldri borgara og hátíð Nýs vettvangs með fullorðnum Reyk- víkingum, sem haldin var í Glæsibæ. Krafturinn og lífsgleðin sem fólkið býr yfir er mikil og verð- ur að fá að njóta sín, ekki síst með og fyrir okkur sem yngri erum. Við sem vorum svo heppin að hafa afa og ömmu búandi í foreldrahúsum vitum hvaða andleg auðæfí felast í því. Samneyti allra aldurshópa Nýr vettvangur setur fram hug- myndir um hvemig má búa svo í haginn að samneyti allra aldurs- hópa verði sjálfsagðara en nú er raunin. Við sjáum fyrir okkur sam- komustað í hverju hverfí, hverfis- hús, þar sem allar kynslóðir ættu erindi til þess að njóta félagsskapar annarra hverfísbúa. Einangrun og einsemd era fylgifískar þéttbýlis, það er gjarnan styttra á milli manna í litlum samfélögum. Kosti „þorps- ins“, má kalla fram með því að leggja ríkari áherslu á það sem sameinar fólk sem íbúa sama hverf- is. Margt barnið myndi áreiðanlega fínna „afa og ömmu“ í hverfíshús- inu og þeir eldri myndu sjálfsagt þiggja félagsskap og aðstoð ef þörf væri á hjá yngri nágrönnum. Við á Nýjum vettvangi viljum endurskoða þá stefnu að byggja fjölda íbúða fyrir gamalt fólk sem einangrað fyrirbæri. Hvernig væri að yngri kynslóðir fengju tækifæri til þess að búa í fjölbýli innan um þær þjónustuíbúðir sem eldra fólkið hefur? T.d. námsmenn eða annað ungt fólk sem er að hefja búskap. Hér er ég að tala um Ieigu- og hlut- deildaríbúðir og minni á nýsam- þykkt lög sem eiga að auðvelda fólki að komast í húsnæði á viðráð- anlegu verði, hvort sem er í gegnum samtök eins og t.d. Búseta eða með atbeina sveitarfélagsins. 2.000 nýjar íbúðir Nýr vettvangur hefur ákveðið að á næsta kjörtímabili verði félagsleg- um íbúðum í borginni fjölgað um 2.000, fái hann til þess styrk kjós- enda. Þess munu bæði eldri og yngri Reykvíkingar njóta. í þessu sam- hengi er nauðsynlegt að hafa í huga að eldra fólk þarfnast samneytis við annarra kynslóða fólk og við sem yngri erum þörfnumst sam- neytisins við gamla fólkið jafnvel enn meira. Stefna Nýs vettvangs er að fólk geti búið á eigin heimili eins lengi og það vill og treystir sér til. Þá verður líka heimaþjónustan að styrkjast frá því sem nú er. Því er nauðsynlegt að bæta verulega kjör þeirra sem sinna henni, en heimilis- hjálpin í Reykjavík hefur verið I vandræðum með að fá nógu margt starfsfólk. Það er auðvitað engin hemja að Reykjavíkurborg hafí kommist upp með það að launa sitt starfsfólk mun verr en önnur sveit- arfélög í landinu. Brýnasta þörfin Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hefur brugðist þeim úr hópi elstu Reykvíkinganna sem búa í ótryggu eða óhentugu hús- næði og þeim sem eru orðnir það. famir að heilsu að þeir þurfa á hjúkrunarvist að halda. í september sl. vora á svokölluðum neyðarlistum 450 aldraðir Reykvíkingar sem þurfa húsnæði, hvort sem er trygg leiguíbúð, þjónustuíbúð eða vist- heimili. Söluíbúðirnar, sem Sjálf- stæðismenn hælast af, geta ekki allir keypt, jafnvel þótt þeir leggi á móti aleiguna, enda kosta þær minnstu um 6 milljónir króna. Það er eitthvað bogið við það að Reykjavíkuríbúðirnar skuli vera mun dýrari en þær sem byggðar eru í öðram sveitarfélögum. Ein skýringin er án vafa sú að borgar- stjórnarmeirihlutinn neitar að bjóða út þessar framkvæmdir, tillögu um slíkt felldu Sjálfstæðismenn fyrir nokkru. Tvö verktakafyrirtæki sitja ein við þennan „kjötketil". Á öllu kjörtímabilinu hefur ekki ein ein- Kristín Á. Ólafsdóttir „Nýr vettvangur setur fram hugmyndir um hvernig má búa svo í haginn að samneyti allra aldurshópa verði sjálfsagðara en nú er raunin. Við sjáum fyrir okkur samkomustað í hverju hverfí, hverfis- hús, þar sem allar kyn- slóðir ættu erindi til þess að njóta félags- skapar annarra hverfis- búa.“ asta ný sérhönnuð leiguíbúð fyrir gamalt fólk verið tekin í notkun á vegum borgarinnar. Á neyðarlista ellimáladeildar borgarinnar (í brýnum forgangi) voru í september 150 manns sem þurfa að komast á hjúkrunarheim- ili, en ætla má að hátt í 200 Reyk- víkinga vanti nú slíkt úrræði, því sumir liggja rúmfastir á almennum deildum sjúkrahúsanna. Fram að aldamótum má búast við að 200 manns í viðbót komist í þörf fyrir hjúkrunarpláss. B-álma Borgarspít- alans getur sinnt hluta af þessari þjónustu, en enn er eftir að ganga frá 3 hæðum hennar sem verða fyrir 80 manns. Álman hefur verið í byggingu í 13 ár, og ef sami hægagangurinn á áfram að líðast verður verkið tilbúið uppúr 2020! Þarna hefur ríkið dregið lappirnar, en meirihlutinn í borgarstjórn hefur ítrekað fellt tillögur um að borgin fari framúr lögboðnum framlögum til þess að tryggja þessa bráðnauð- synlegu aðstöðu. Sjálfstæðismenn hafa líka neitað að setja nema brot af þeim fjárhæðum sem minnihlut- inn hefur lagt til að færi I byggingu hjúkrunarheimila. Þeir sem lögðu undirstöðuna Á öllu kjörtímabilinu hafa Sjálf- stæðismenn varið jafn miklu fé til framkvæmda I þágu aldraðra og kostað hefur að byggja veitingahús- ið á Öskjuhlíð, eða tæpan milljarð á núvirði. Þetta þykir okkur á Nýj- um vettvangi vera lítil virðing við þá kynslóð sem byggði upp Hita- veitu Reykjavíkur sem og aðra und- irstöðu borgarlífsins sem við, næstu kynslóðir, byggjum á í dag. Nýr vettvangur ætlar að sinna málefnum elstu Reykvíkinganna með það að leiðarljósi að hver ein- staklingur njóti virðingar og örygg- is, fái þá þjónustu sem þörf er á og hafí möguleika á að gefa og þiggja í samneyti við yngri kynslóð- ir sem og jafnaldra. Höfundur er borgarfulltrúi og 2. maður & H-lista Nýs vettvangs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.