Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 28

Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 Við sjáum fyrir okkur sameiginleg- an vinnumarkað á Utflarðarsvæðinu - segir Oskar Sigurbjörnsson forseti bæjarsljórnar ÓlafsQarðar Göngin gegnum Múlann eru stærsti sigurinn, sem vannst á kjörtímabilinu. Það var harðsótt mál og að því vegið úr ýmsum áttum fram til síðustu stundar, þangað til Matthías Á. Mathiesen heimilaði útboð á vordögum 1988, en eftir það varð ekki aftur snúið. Við sjáum nú fram á, að göngin verði tekin í notkun í haust og að þessi harði vetur verði hinn síðasti af því tagi. Héðan í frá hugsa menn öðru vísi til búsetu hér í Ólafsfirði. Menn þurfa ekki lengur að stofna lífi og limum í hættu í daglegum ferðum frá staðnum og geta sett sér fastar áætlanir. Við sjáum fram á stór- an, sameiginlegan vinnumarkað á Útfjarðarsvæðinu, þar sem menn geta sótt vinnu á báða bóga. Aukin menningarsamskipti og hvers konar samvinna og samnýt- ing á báða bóga hlýtur að koma til greina t.d. varðandi íþróttaað- stöðu, skólahald og þjónustu svo að nokkuð sé nefnt. Forsendan er, að það verði jafnræði milli þessara byggðarlaga. Við munum ekki sætta okkur við, að sú þjón- usta, sem við höfum, hverfi inn- fyrir. Þess vegna munum við fara okkur hægt til að byija með, meðan við erum að átta okkur á, hvemig við getum best nýtt okkur breyttar aðstæður, sagði Óskar Sigubjömsson forseti bæjar- stjómar Ólafsfjarðar í viðtali við Morgunblaðið, en hann skipar efsta sætið á lista Sjálfstæðis- flokksins. Þar em einungis tveir listar í boði, listi Sjálfstæðis- flokksins og sameiginlegur listi vinstri flokkanna. Bjartsýni í stað svartsýni Er Óskar var spurður, hver staðan væri í lok kjörtímabilsins, sagði hann, að í stórum dráttum hefðu þau mál náðst fram, sem meirihlutinn hefði einsett sér að ná fram. Þegar við tókum við, sagði hann, var svartsýni ríkjandi og íbúum hafði fækkað úr rúm- lega 1.200 í 1.140. Það endur- speglaði ástandið, sem þá var. En nú hefur orðið uppsveifla, sem um munar. 1987 fjölgaði um 2,17%, íbúafjöldi stóð í stað á árinu 1988 vegna erfiðleika í at- vinnumálum, en á sl. ári fjölgaði um 1%, sem er næstmest á Norð- urlandi, svo að við erum nú að ná sömu íbúatölu og mest var og bjartsýni hefur aukist. Við höfum lengi búið við árs- tíðabundið atvinnuleysi og það fór versnandi með minnkandi kvóta, hélt Óskar áfram. Við höfðum flestum byggðarlögum fremur treyst á bolfisk. Þess vegna fórum við út í vinnslu á loðnu og rækju til þess að fylla upp í skörðin og það hefur tekist. Það var augljóst að með minnkandi kvóta var óraunhæft að hér störfuðu tvö frystihús á hálfum afköstum. Heimamenn áttu frumkvæði að því, að hér var gripið til róttækra ráðstafana, sem kostaði mikla undirbúningsvinnu og eflaust fómir hjá ýmsum. Við gátum lagt fram raunhæft rekstrardæmi, sem búið var að vinna eftir í þrjá mánuði, þegar samningar tókust við sjóðina. Fyrir frumkvæði heimamanna voru frystihúsin sameinuð og aukið eigið fé lagt fram. Hlutur bæjarsjóðs var 21 millj. kr. og 10 millj. kr. voru lagð- ar fram af einstaklingum og fyrir- tækjum í bænum. Hér er gjör- breytt atvinnuástand, þótt enn séu óleyst atriði varðandi Útgerðarfé- lag Ólafsfjarðar. En við erum að vinna að lausn þeirra mála, eftir að rekstur frystihússins er kominn á skrið. Annar rekstur hér er og hefur verið mjög blómlegur, atvinna er mjög mikil og staðurinn í upp- gangi. Héðan eru gerðir út tveir frystitogarar, sem eru mjög mikil- vægir fyrir staðinn og eiga ríkan þátt í þeirri tekjuaukningu, sem orðið hefur hjá bæjarfélaginu. Nú á þessu augnabliki er rífandi at- vinna og mér sýnist að það verði gott um vinnu fyrir unglinga og skólafólk í sumar. Miklar hafnarframkvæmdir Höfnin er lífæð Ólafsfjarðar. Óskar sagði, að hún hefði verið í niðurníðslu, — en við höfum verið að byggja hana upp, sagði hann. Framkvæmdir hafa verið miklar öll árin. Smábátahöfn hefur verið byggð, yfir 40 þús. rúmmetra dýpkunarframkvæmdir og gagn- ger endumýjun orðið á tréköntum innan hafnarinnar, sem voru meira og minna ónýtir. Ný grjót- náma með efni sem dugar hefur verið opnuð og gijótgarður við Vesturgarð endurbýggður og starfsmannamál endurskoðuð. I fyrra var gerð líkanprófun í Hafn- armálastofnun og í samræmi við niðurstöður hennar hefur verið unnið upp framtíðarskipulag fyrir nútíma fiski- og vöruhöfn, sem ráðgert er að kosti 200-300 millj. kr., en þa er höfnin líka orðin góð. 1. áfangi verður unninn í sumar fyrir 30-35 millj. kr. Umhverfis- og menningarmál Við höfum fyllilega staðist áætlanir í æskulýðs- og íþrótta- málum, sagði Óskar ennfremur. Við höfum haldið áfram uppbygg- ingu skólahúsnæðis og haldið lengra inn í menningarmálin, þótt Óskar Sigurbjörnsson skipar efsta sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins. þar sé margt óunnið. Við nálg- umst það mjög að koma safna- og bókasafnsmálum í gott horf. Við höfum líkast til fengið hús- næði í Sparisjóðnum fyrir byggða- og náttúrugripasafn og er vinna við innréttingar hafin. Við settum fram djarfa framkvæmdaáætlun fyrir sl. sumar og átti hún þátt í að vinna bug á atvinnuleysinu, byggður var upphitaður grasvöll- ur og hafín bygging íþróttahúss, svo að verktakar og iðnaðarmenn hafa haft næg verkefni. Við höfð- um hrundið í framkvæmd svoköll- uðu fegrunarátaki, þar sem unnið verður út frá miðbænum og mun það ná til gróðurbletta og grænna svæða staðarins á næstu árum J eftir því sem bolmagn leyfir. Eftir að aurskriðurnar féllu, opnuðust augu okkar fyrir því, að við yrðum að vinna enn betur að umhverfis- málum. Hafin var uppgræðsla og ræktun fjallshlíðarinnar og enn stærra átak verður gert í vor. Svæðið verður tryggilegar girt en áður og 20 til 30 þús. tijáplöntur gróðursettar í firðinum. Mál, sem hefur blundað hér lengi kom upp á yfirborðið í flóð- unum. Bærinn liggur lágt og þess vegna er það gamalt vandamál, hvernig við getum losnað við frá- rennslið. Nu hyggjumst við bæta úr því með því að veita fé til undir- búnings og hönnunar. Það verður byggð dælustöð til að dæla frá- rennslinu til hafs og leysa þannig á sama tíma ýmis mengunarmál á hafnarsvæðinu. Hugmyndin er sú, að sandvarnargarður við Vest- urhöfn muni bera aðalskolpleiðslu bæjarins til hafs, þannig að full- nægt verði ákvæðum reglugerðar um mengunarvamir. Okkur hefur miðað bærilega Við þeirri' spurningu, hvernig kosningarnar legðust í hann, sagðist Óskar vona, að þær færu vel fyrir meirihlutann. Eg tel, að málefnastaðan sé góð, sagði hann. En þrátt fyrir það erum við í þeirri stöðu að vera einir á móti hinum flokkunum öllum og eigum strangt til tekið við ofurefli að etja. Sú pínlega staða gæti komið upp, að við yrðum að lúta í lægra haldi þrátt fyrir bærilega stöðu mála. Þar sem hér eru aðeins tvær fylkingar í boði, rýfur stuðningur- inn við þær öll flokkspólitísk mörk og við verðum að treysta á stuðn- ing fólks, sem er ekki sjálfstæðis- fólk, — listi okkar er ekki aðeins fyrir flokksbundna sjálfstæðis- menn. Fólk verður að gera það upp við sig, hvort það vill áfram- haldandi uppbyggingu, sem hver og einn, sem vill sjá, getur séð að hefur átt sér stað. Eftir aðeins fjögur ár hefur ekki gefist tími til að ljúka öllum verkum, sem við vildum ljúka, — það er langt í frá. En okkur hefur miðað bæri- lega. Ég hef trú á því að við endur- heimtum okkar fyrri styrk segir Þorvaldur Vestmann Magnússon efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Húsavík Kosningamar snúast fyrst og fremst um það hvaða leiðir eigi að fara til að auka fjölbreytni í atvinnuháttum, þannig að fólki gefist fleiri tækifæri til starfsvals. Með því móti getum við dregið úr þeim niðursveiflum, sem verða, þegar illa árar í undirstöðugrein- um okkar. Við viljum marka at- vinnumálastefnu til langs tíma, sem hefur þessi meginmarkmið, sagði Þorvaldur Vestmann Magn- ússon, forseti bæjarstjómar Húsavíkur, í viðtali við Morgun- blaðið, en hann skipar efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Fyrirtæki í eigu einstaklinga Vandamál dagsins í dag eru fyrst og fremst þau, að hér hefur orðið verulegur samdráttur í afla, sem við verðum að endurheimta. Þess vegna var ákveðið á íjöl- mennum fundi um næstsíðustu helgi að skipa undirbúningsnefnd til að vinna að stofnun almenn- ingshlutafélags, sem hefði það verkefni að festa kaup á skipi eða gera aðrar ráðstafanir til að tryggja okkur aukið hráefni og vaxandi umsvif og veltu í bæjarfé- laginu. Bátaflotinn hefur verið rekinn með verulegum halla, sem er mikið áhyggjuefni. Þess vegna hefur bæjarstjóm Húsavíkur sam- þykkt ályktun til stjómvalda, þar sem áréttuð er nauðsyn þess, að ráðstafanir verði gerðar til þess að bæta rekstrarstöðu bátaút- gerðarinnar með samsvarandi hætti og gert hefur verið fyrir aðrar greinar sjávarútvegsins. Það er athyglisvert, að hér á Húsavík hafa upp á síðkastið sprottið upp fyrirtæki í eigu ein- staklinga, sem rekin eru með miklum dugnaði og virðast eiga góða vaxtarmöguleika. Það sýnir að tal svokallaðra félagshyggju- flokka um að hér þrífist enginn rekstur nema hann sé í „félags- legu formi“ á ekki við nokkur rök að styðjast. Það er hægt að reka iðnfyrirtæki með góðum árangri, þótt þau séu ekki staðsett í mesta þéttbýli, ef þau eru í góðum tengslum við markaðinn. Flutn- ingskostnaður á fjölmörgúm vöru- tegundum skiptir í raun engu máli, en á hinn bóginn er mikið hagræði að ömggu vinnuafli. Þær athuganir, sem gerðar hafa verið, benda til þess, að við getum verið samkeppnisfær í framleiðslunni, en skortir þekkingu og samband við markaðinn. Framhaldsskólinn Fyrir atbeina Sverris Her- mannssonar náðist það fram árið 1987, að framhaldsskóli var stofn- aður hér á Húsavík. Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar vorum við Sjálfstæðismenn einir flokka með tillögxir um, að þetta skref yrði stigið. Umræðan hafði fyrst og fremst beinst að einhvers konar samstarfi og samvinnu við Akur- eyri og í rauninni virtust menn ekki þora að segja það hreint út, að hér ætti að byggja upp fram- haldsskóla með stúdentspróf að lokamarki. Ég held að það sé enginn vafi á því, að skoðanir okkar sjálfstæðismanna hafa reynst réttar. Skólinn hefur þró- ast í mjög jákvæða átt og aðsókn verið meiri en við þorðum að vona. í dag er ekki ágreiningur um mikilvægi framhaldsskólans á Húsavík. Nú í vor hefjast framkvæmdir við 1. áfanga viðbyggingar við grunnskólann, sem að er stefnt að verði undir einu þaki, en fram- haldsskólinn fái gagnfræðaskóla- húsið til afnota. Við höfum að vísu lent í erfiðleikum við að ganga frá þeim samningum, sem þegar var búið að gera um málið við fjármála- og menntamálaráðu- neyti. Vonandi næst niðurstaða á næstu dögum, þrátt fyrir þá tregðu sem virðist vera í málinu í þessum tveim ráðuneytum. Þorvaldur Vestmann Magnús- son er forseti bæjarstjórnar Húsavíkur. Haftiar framkvæmdir og umhverfismál Fjárhagsstaða bæjarins stend- ur nokkuð traustum fótum. Við höfum beitt aðhaldi á kjörtímabil- inu og það er farið að skila góðum árangri. Við viljum setja okkur það mark, að í lok næsta kjörtíma- bils verði greiðslubyrði bæjarsjóðs a.m.k. þriðjungi minni en hún er í dag. Það er fijótvirkasta leiðin til þess að auka ráðstöfunarfé okkar og mun skila sér í meiri framkvæmðum og umsvifum bæj- arins. Við leggjum áherslu á að ljúka við þann áfanga, sem nú er verið að vinna að við hafnargarðinn. Á hinn bóginn teljum við nauðsyn- legt að endurskoða þá fram- kvæmdaröð, sem nú liggur fyrir. Það er orðið mjög brýnt að dýpka höfnina og draga úr óróa og öldu- gangi innan hafnarinnar. Loks verður að fara í aðgerðir til að draga úr mengun í höfninni með því að koma öllu frárennsli út fyrir hafnarsvæðið og á því verki að geta lokið á næsta ári. Á hafn- arsvæðinu fer fram meðhöndlun matvæla í stórum stíl og við get- um ekki tekið þá áhættu að lenda í erfiðleikum með útflutningsvör- ur okkar vegna ófullnægjandi frá- gangs holræsakerfisins. Jafn- framt verður að sjálfsögðu að gera þær kröfur til allra á hafnar- svæðinu, að umhverfi allt verði fært í viðunandi horf. Umhverfismálin hafa verið í brennidepli hér á Húsavík undan- farin misseri — það hefur verið ákveðin vakning í þeim efnum meðal almennings í bænum. Hér hafa verið stofnuð samtök, sem kalla sig Húsgull. Þau hafa unnið mjög gott og þarft starf. Ákvörð- un hefur verið tekin um að gera átak til friðunar og uppgræðslu alls bæjarlandsins og voru fyrstu skrefin í þá átt stigin í fyrra, þeg- ar byijað var að girða' bæjar- landið. Þessu verki verðum við að halda áfram. Þegar Þorvaldur var spurður að lokum, hvernig kosningarnar legðust í hann, sagði hann, að þær legðust vel í sig. — Öll vinna og undirbúningur hefur verið miklu léttari en fyrir síðustu kosningar. Ég hef trú á því, að við endur- heimtum okkar fyrri styrk og fáum tvo menn í bæjarstjórn Húsavíkur, sagði Þorvaldur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.