Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 30

Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 Frá Stykkishólmshöfii. Nú förum við að njóta arðsins af fj árfestingnnum -segir Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkishólmi, efsti maður á D-lista ÞEGAR ekið er um Stykkishólm blasa við margar nýjar bygging- ar svo sem skólahús, íþróttahús, viðbygging við sjúkrahúsið þar sem heilsugæslustöðin er til húsa og ný ferjuhöfn. Það er greini- legt að þar hefúr mikið verið framkvæmt á liðnum árum. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri segir að vegna þess séu engar brýnar stór- framkvæmdir á döfínni og bæjarbúar geti nú farið að njóta arðs- ins af þessum Qárfestingum. „Við erum á uppleið, það er enginn vafi,“ sagði liann. Morgunblaðið/ÁH. Sturla Þórðarson bæjarsljóri í Stykkishólmi. Stykkishólmur stendur á göml- um merg enda á hann fjögurra alda langa sögu sem verslunarstað- ur. Við höfnina standa mörg gömul hús og hefur verið unnið að því á undanfömum árum að gera þau upp. Nú hefur Stykkishólmsbær keypt eignarlóð og hús Kaupfélags Stykkishólms af Sambandi íslenskra samvinnufélaga og er fyrirhugað að gamla kaupfélagshú- sið verði ráðhús bæjarins í framt- íðnni. Blaðamaður fór með bæjarstjór- anum í ökuferð um bæinn og eitt af því fyrsta sem Sturla vildi skoða var nýja feijuhöfnin í Súgandisey með tilheyrandi mannvirkjum. „Þetta mannvirki hefur valdið okkur miklum höfuðverk. Það kost- aði mikið og bærinn hefur orðið að leggja út fyrir því. Það var gert ráð fyrir að ríkið greiddi 75% kostn- aðarins beint og bærinn fengi síðan 15% úr hafnabótasjóði og afgang- inn úr byggðarsjóðir eins og gert var á Btjánslæk. Okkur fínnst óeðlilegt að ekki sé hafður sami háttur á hér. Framkvæmdin var umdeild og erfíð en nú heyrast engar óánægju- raddir. Þetta var eitt stærsta verk- efni bæjarins á síðasta kjörtímabili ásamt aðstöðu fyrir farþegabáta Eyjaferða sem sigla út í Breiða- fjarðareyjar. Ég býst við að 15 - 20.000 farþegar fari með þessum bátum út í eyjar í sumar,“ sagði Sturla. D-listinn hefur verið í meirihiuta í bæjarstjórn frá 1974. Listann skipa sjálfstæðismenn og óháðir borgarar, þ.e. fólk sem ekki er í neinu stjórmpálafélagi. „Okkur fínnst þetta gefast sérstaklega vel. Við fáum þarna fjöldann til að starfa með okkur og þetta styrki sjálfstæðismenn mikið.“ Hið nýja íþróttahús í Stykkishólmi barst í tal. Sturla sagði að þegar nýja skólahúsið var byggt hafi bærinn haft dapra reynslu af sam- skiptum við ríkisvaldið. Hann sagði að bærinn ætti enn inni tæpar 10 milljónir króna hjá ríkinu vegna byggingarinnar. Því var brugðið á það ráð víð undirbúning á byggingu íþróttahússins að gera samning við menntamála- og fjármálaráðherra um framkvæmdir og að ríkið greiddi 30% byggingarkostnaðar með föstum árlegum greiðslum. Á grundvelli hans var gerður lána- samningur við Búnaðarbankann og lánaði hann til framkvæmdarinnar á móti framlagi ríkisins. En við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1990 kom í ljós að ríkissjóður stæði ekki við skuldbindingarnar og hefur því samningnum verið rift óformlega. Vísað var á jöfnunarsjóð sveitarfé- laga sem hafnar því að greiða hluta ríkisins. „Við vonumst enn til að hægt verði að taka húsið í notkun í haust, m.a. vegna þéss að Körfu- knattleiksdeild Snæfells er komin í úrvalsdeild og þarf að geta keppt á heimavelli. En þetta samningsrof setur okkur í töluverðan vanda því við vorum samningsbundin við verktakana. Þess má geta að í samningnum var ákvæði um að hann ætti að endurskoða ef að- stæður breyttust. Því hefur hins vegar verið hafnað." Ibúar í Stykkishólmi eru um 1280. Þeim fækkaði nokkuð á síðasta ári en íbúafjöldi hafði þá staðið í stað í þijú ár. Sturla segist sjá batamerki nú og fólki hefur Qölgað aftur frá síðustu áramótum. Hann sagði að skelfískvinnslan hefði gengið betur nú og það skipti miklu máli. Atvinna hefur verið sæmileg í Stykkishólmi en tekjurn- ar of lágar. Nú leggur D-listinn mikla áherslu á að efla atvinnulífið í bænum og styrkja sjávarútveginn. Bæjarstjómin og atvinnumála- nefnd hafa unnið að undirbúningi að stofnun hlutafélags um rekstur togara, þótt ekki sé ætlunin að bærinn eigi hlut í honum. Sturla sagði að ef þetta tækist gerbreytti það atvinnulífinu á staðnum. En þótt sjávarútvegurinn væri undirstaða undir afkomu bæj- arbúa væru iðnaður og þjónusta stór hluti af atvinnulífinu. Margir vinna til dæmis við ferðamanna- þjónustu og er lögð síaukin áhersla á hana. Á þessu kjörtímabili voru tekin í notkun endurhæfingadeild; legu- deild og heilsugæslustöð og leggja sjálfstæðismenn og óðháðir áherslu á að nýta þessar nýbyggingar sem best. I Stykkishólmi er dvalarheim- ili aldraðra, en auk þess er boðið upp á heimaþjónustu og heima- hjúkrun. Engir biðlistar eru eftir þessari þjónustu. Auk grunnskólans er rekin fram- haldsdeild í tengslum við Fjölbraut- arskóla Vesturlands. Yfir 50 nem- endur bætast því í hóp bæjarbúa á veturna og er það lyftistöng fyrir staðinn að sögn Sturlu. Líkur eru á að nemendur úr nágrannabyggð- um sæki framhaldsdeildina. Stefnt er að því að hægt verði að ljúka stúdentsprófí á einhveijum braut- um. Sturla sagði að vel hefði gengið að fá menntað fólk til starfa, bæði við sjúkrahúsið og skóla. Þó nokk- ur ásókn væri í kennarastörf. „Það hefur verið lítil andstaða við okkar tillögum í bæjarstjórn- inni. Við höfum reynt að setja málin þannig fram að um þau ná- ist breið samstaða. En frambjóð- endur H-listans, sem nú býður fram á móti D-listanum, hafa gagnrýnt þetta og svo virðist sem þessi sam- einaði hópur sé á móti þeirri sam- stöðu sem hefur ríkt. Við erum á uppleið, það er eng- irm vafí. Og við erum mun bjart- sýnni en áður þrátt fyrir þá erfið- leika sem við höfum átt við að etja. Þátttaka bæjarbúa í félagsstarfi er ótrúlega mikil og góður andi ríkir hér í Hólminum. Hér er gott mannlíf og mikil náttúrufegurð. Hér er enginn spenna og ró og kyrrð í kringum eyjarnar." Sturla sagði að eignastaða Stykkishólmsbæjar væri góð. Mikið hefur verið byggt og framkvæmt á undanförnum árum og því eru engar brýnar stórframkvæmdir á næstunni nema að ljúka íbúðum aldraðra. „Nú fer fjárfestingin að skila sér og við förum að njóta arðsins," sagði hann. „Afborgunar- þunginn er töluverður á þessu ári og róðurinn því þungur. En síðan minnka greiðslubyrðin ár frá ári og að liðnum tveimur árum verður mjög auðvelt að reka þetta sveitar- félag. En þrátt fyrir að róðurinn sé þungur í bili leggur forysta D- listans í bæjarstjórn áherslu á að halda þeim sterka meirihluta sem verið hefur. Við lítum svo á að framhaldið byggist á góðu sam- starfi. Glundroði og ósamlyndi gæti stefnt í voða þeim góða ár- angri sem við höfum náð,“ sagði hann. Árangiirinn er einfaldlega glæsilegnr -segja fiilltrúar meirihluta sjálfstæðis- manna í Grundarfirði GRUNDARFJÖRÐUR skai-taði sínu fegursta þennan maídag sem blaðamaður Morgunblaðsins hafði mælt sér mót við fulltrúa meiri- hluta sjálfstæðismanna í hreppsnefiid Eyrarsveitar. Þrátt fyrir að snjórinn næði enn langt niður í hlíðar fjallanna var vorlegt um að litast. Það var létt yfir þeim hreppsnefndarfulltrúum og svéitarstjór- anum, enda ánægð með árangur síðustu Qögurra ára. Fjárhagur Eyrarveitar var mjög bágur í upphafí kjörtímabilsins, en nú hefúr tekist að snúa því dæmi við. „Það sem hefur einkennt þetta kjörtímabil er ákaflega góð sam- staða meirihluta hreppsnefndarinn- ar,“ sagði Sigríður Þórðardóttir sem skipaði efsta sæti D-listans í Grund- arfírði í síðustu kosningum. Hún var oddviti hálft kjörtímabilið en þá tók Kristján Guðmundsson við. Hann skipar nú efsta sæti fram- boðslistans. Sigríður sagði að íjárhagsstaða sveitarfélagsins hafi verið mjög slæm þegar þessi meirihluti tók við af Alþýðubandalagi og Framsókn fyrir fjórum árum og var ástandið þannig að reksturinn skilaði engum hagnaði. Umfang hans hafði aukist mikið og ekki gætt aðhalds og því fór allur skattpeningurinn í rekstur- inn. „Eitt aðalmarkmið okkar fyrir síðustu kosningar var því að koma fjárhagnum á réttan kjöl. Með því að beita aðhaldi og spamaði og brejda rekstrinum á ýmsan hátt hefur það tekist,“ sagði hún. Þau Sigríður, Kristján, Sigríður Gísladóttir og Ólafur H. Sverrisson sveitarstjóri sögðust vera ánægð með árangurinn og telja hann ein- faldlega glæsilegan. I Eyrarsveit búa 820 manns og hefur íbúum Grundarfjarðar farið íjölgandi und- anfarin ár. Þau segjast hafa byijað á því að gera tillögur um bættan rekstur og efnahag hreppsins. Þar var tekið á öllum hugsanlegum þáttum sem vörðuðu reksturinn. Markmiðið var að hann skilaði að minnsta kosti 20% hagnaði. Árangurinn lét ekki á sér standa því strax árið 1987 skilaði reksturinn yfír 30% hagnaði og hefur gert æ síðan. Ólafur sveitarstjóri sagði að á grundvelli tiilagnanna sem sam- þykktar voru í upphafí kjörtímabils- ins hafi verið gerðar nákvæmar fjárhagsáætlanir fyrir hvert ár. Eft- ir þessum áætlunum hefur svo ver- ið farið í einu og öllu. Hreppurinn fékk hagstæð lán í upphafí kjörtímabilsins. Einnig var sótt um sérstakt framlag úr jöfnun- arsjóði sveitarfélaga haustið 1986. Því var hafnað á þeirri forsendu að það ætti að takast að koma fjár- málum hreppsins á réttan kjöl á fimm til sex árum. „í raun tókst okkur þetta á tveimur árum,“ sagði hann. Hann tók sem dæmi að skuld- ir í hlutfalli af sameiginlegum tekj- um voru 191% árið 1986, 133% 1987, 87% 1988 og 71% 1989. „Ég held að það hafi skipt sköp- um að við réðumst strax gegn vand- anum,“ sagði Sigríður Þórðardóttir. „Fólk þurfti sinn .tíma að venjast þessu mikla aðhaldi í fjármálum, en nú gengur það að því vísu að ekki er hægt að fá peninga frá hreppnum nema verkefnið sé á fjár- hagsáætlun.“ Lögð var áhersla á að ljúka við Ásgeir Valdimarsson og Árni Halldórsson skipa 2. og 3. sæti á lista sjálfstæðismanna í Grundarfirði. , t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.