Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 35

Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 35 Samruni Evrópu kann að efla menn- ingu smáþjóðanna - segir Allan Karker, lektor í Árósum „SAMEININGARÞRÓUNIN í Evrópu mun ekki hafa í för með sér sigur einnar þjóðtungu; það er eins líklegt að smáþjóðir og þjóða- brot færist fremur í aukana við að verja menningarlegt sjálfstæði sitt um leið og því er að hluta fórnað á öðrum sviðum til að tryggja friðinn," segir Daninn Allan Karker, stjórnarformaður Norrænnar málstöðvar og lektor við Árósaháskóla. Hann tekur þátt í fimm daga íslenskunámskeiði sem íslensk málncfnd heldur fyrir málrækt- arfólk frá hinum norrænu löndunum en það hófst í Reykjavík á mánudag. Er Morgunblaðið ræddi við Karker og Norðmanninn Stále Loland, forstöðumann Norrænnar málstöðvar í Ósló, kom fram að afstaða til erlendra máláhrifa væri með ýmsum hætti á Norðurlönd- unum. „Ég held ég geti fullyrt að flest- ir Norðmenn vilji ávallt nota inn- lend orð þar sem mögulegt er að koma því við, vilji takmarka fjölda erlendra tökuorða eftir föngum,“ segir Loland. „Við erum líkir ykkur að þessu leyti en þar skiptir að sjálfsögðu máli hvernig hægt er að aðlaga orðin norsku." Karker sagði Dani yfirleitt fúsir til að sætta sig við erlend áhrif og mál- þróun en benti á að málkerfi íslens- kunnar, málfræði og setningaskip- an, væru mjög ólík dönskunni. Beygingakerfið gerði að verkum að erlend orð ættu mun erfiðara með að samlagast íslensku. Þeir félagar voru spurðir hvort Morgunblaðið/KGA Allan Karker (t.v.), lektor við Árósaháskóla, og Stále Loland, framkvæmdastjóri Norrænu málneftidarinnar í Osló. fímm daga íslenskunám væri ár- angursríkt. Þeir sögðu flesta þátt- takendur hafa þokkalegan grunn til að byggja á; hann hefðu þeir fengið er þeir stunduðu háskóla- nám í norrænum fræðum. „En auðvitað skortir okkur þjálfun í nútímaíslensku. Við náum ekki tök- um á talmálinu á fimm dögum en á hinn bóginn eykst okkur skilning- ur á ýmsum atriðum sem greina að fornt mál og nútímamál. Við fáum fundargerðir íslensku mál- stöðvarinnar á frummálinu og auð- vitað viljum við helst geta skilið þær jafn vel og fundargerðir á hin- um málunum," segir Karker. Þeir töldu ljóst að almenningur í Skand- inavíu teldi oft að íslendingar væru að tala sitt eigið mál er þeir tjáðu sig á dönsku með sínu lagi, þetta væri útbreiddur misskilningur. Samruni Evrópu Er spurt var hvort samruni Evr- ópu og tækniþróun í fjölmiðlun myndu ógna þjóðtungum smá- þjóða, hvort stórþjóðirnar myndu kaffæra menningu þeirra, sagðist Loland ekki vera trúaður á það. „Þetta verður ekki eins og í Banda- ríkjunum, engin ein tunga mun ná yfírhöndinni. Reynum að ímynda okkur hvort t.d. Frakkar myndu nokkurn tíma sætta sig við að enska eða þýska yrðu „Evrópumál- ið.“ Hann benti á að Norðurlanda- ráð reyndi stöðugt að bæta hlut Sama, Grænlendinga og annarra þjóðabrota í samstarfinu. Þetta væri dæmigerð þróun í alþjóðasam- skiptum og sama yrði uppi á ten- ingnum í Evrópubandalaginu. Karker benti á að tungur þjóð- anna 12 í Evrópubandalaginu nytu nær jafnræðis í starfi þess þótt enska og franska væru mest notað- ar. Hann taldi að smáþjóðir og þjóðabrot eins og Bretónar í Frakk- landi, Katalóníumenn á Spáni, myndu eiga auðveldara en hingað til með að tryggja rétt sinn þegar landamærin heyrðu sögunni til. Hugmyndin að baki bandalaginu gerði beinlínis ráð fyrir menningar- legu sjálfstæði þótt efnahagslegur samruni væri óhjákvæmilegur, tungVr smáþjóða ættu því að verða traustari í sessi. Kvikmyndahátíðin í Cannes: Mynd Lynch fær misjafha dóma Rúmenía: Ótvíræður sigur Hiesc- us forseta Búkarest. Reuter. STAÐFEST var í gær að Ion Iliescu, leiðtogi Endurreisnar- ráðsins, hefði tryggt sér sigur í forsetakosningunum í Rúm- eníu, þegar birtar voru niður- stöður úr talningu 12,6 milljóna atkvæða af um 15 milljónum sem greidd voru. Iliescu, sem varð forseti Rúm- eníu eftir að her landsins hafði steypt einræðis- herranum ill- ræmda Nicolae Ceausescu af stóli í desember, hafði hlotið 86,03% at- kvæða en Radu Campeanu fram- bjóðandi Fijáls- lyndaflokksins 10,21% og Ion Ratiu frambjóð- andi Bændaflokksins 3,76%. Sömuleiðis hafði Endurreisnar- ráðið tryggt sér hreinan meirihluta í báðum deildum rúmenska þings- ins. Hafði það hlotið 67,52% at- kvæða og stefndi því í að flokkur- inn fengi 261 sæti af 387 í full- trúadeildinni. Ráðið hafði hlotið 68,43% atkvæða í kosningum til öldungadeildarinnar og miðað við óbreytt úrslit hlyti það 81 sæti af 119 þar. Ion Iliescu, forscti Rúmeníu. Cannes. Reuter. ÁHORFENDUR létu ýmist í ljós vanþókuun eða fógnuð þegar til- kynnt var í fyrradag að mynd leik- stjórans Davids Lynch, „Wild at Heart“, hefði verið valin besta myndin á 43. kvikmyndahátíðinni í Cannes. Dómnefnd hátíðarinnar brá ekki út af venjunni og valdi umdeilda mynd, sem verður að öllum líkindum bönnuð börnum í heimalandi leikstjórans, Banda- ríkjunum. Myndin fjallar um ábyrgðarlaus ung hjón á flótta undan lögreglu og leigumorðingjum, sem móðir ungu konunnar hefur ráðið til að myrða þau. Kynlíf og ofbeldi setja mark sitt á myndina og segist leikstjórinn búast við að erfitt verði að fá banda- ríska kvikmyndaeftirlitið til að leggja blessun sína yfir hana. Aðalleikar- arnir eru Nic- holas Cage, mæðgurnar Diane Ladd og Laura Dem, auk þess sem unnusta og barnsmóðir leikstjórans, Isabella Rosell- ini, leikur leigu- morðingja. Franski leik- arinn Gerard Depardieu hlaut verðlaun fyrir leik sinn í myndinni „Cyr- ano de Ber- gerac“ eftir Jean-Paul Rap- peneau. Myndir frá Austur-Evr- ópu o g Sov- étríkjunum voru nokkuð áberandi á há- tíðinni. Pólska leikkonan Krystyna Janda varð fyrir val- inu sem besta leikkonan fyrir leik í myndinni „Przesluc- hanie“ (Rann- sóknin) eftir pólska leik- stjórann Rys- zard Bugajski. Myndin var gerð árið 1982 en bannað var að sýna hana í Póllandi þar til nýlega þar sem hún þótti andkommúnísk. „Verðlaunin koma átta árum of seint,“ sagði Janda eftir verðlaunaaf- hendinguna. Sovétmaðurinn Pavel Loúngúíne var valinn besti leikstjórinn fyrir fyrstu mynd sína „Taxi Blues“. Hún ijallar um vináttu leigubílstjóra og saxófónleikara á tímum perestrojku. „Ég lít svo á að dómnefndin sé ekki aðeins að heiðra mig, heldur alla hina nýju og algjörlega misskildu kvikmyndagerðarmenn, sem sýna nú myndir sínar í Moskvu og _víða í Austur-Evrópu," sagði sovéski leik- stjórinn. Breski leikstjórinn Ken Loach hlaut sérstök heiðursverðlaun fyrir „Hidden Agenda", umdeilda mynd Reuter Bandaríski leikstjórinn David Lynch heldur hér á Gullna pálmanum, sem hann fékk fyrir mynd sína „Wild at Heart“. Með honum er Isabella Rossellini, einn af leikendum myndarinnar og unnusta leik- stjórans. um ástandið í Norður-írlandi. Sov- éski leikstjórinn Gleb Panfílov hlaut einnig heiðursverðlaun fyrir mynd sem byggð er á „Móðurinni", sögu sovéska rithöfundarins Maxíms Gorkíjs. Myndirnar „Tilai“ eftir Idrissa Ouedraogo, leikstjóra frá Afríku- ríkinu Burkina Faso, og „Shi No Toge“ (Banastungan) eftir japanska leikstjórann Kohei Oguri voru valdar frumlegustu myndirnar. Japanska myndin fjallar um aðdraganda hjóna- skilnaðar og valdi dómnefnd skipuð 30 blaðamönnum hana sem „mest svæfandi myndina". Lýðræðisbandalag Ungveija í Rúmeníu, sem er flokkur ung- verska minnihlutans í landinu, var óvænt orðinn næst stærsti flokkur landsins i gær. Miðað við atkvæða- hlutfall hans (7,38%) fengi flokk- urinn 29 þingmenn í fulltrúadeild- inni og 9 í öldungadeildinni. Kjörstaöír við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík þann 26. maí 1990 verða þessir: r- Alftamýrarskóli Arbæjarskóli Austurbæjarskóli Breiðagerðisskóli Breiðholtsskóli Fellaskóli Foldaskóli Langholtsskóli Laugarnesskóli Melaskóli Miðbæjarskóli Sjómannaskóli Olduselsskóli Aukþess veröa kjördeildir íElliheimilinu Grund, Hrafn- istu og í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Kjörfundur hefst laugardaginn 26. mai, kl. 9.00árdegis, og lýkur kl. 23.00. Athygli er vakin á því, að efkjörstjórn óskar, skal kjósandi sanna hver hann er með því að framvísa persónuskilríkjum eða á annan fullnœgjandi hátt. Yfirkjörstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur íAusturbœjar- skólanum ogþar hefst talning atkvœða þegar að loknum kjörfundi. Yfirkjörstjórnin íReykjavík. í V. Guúríúur Þorsteinsúóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.