Morgunblaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
55
Þórsmerkurganga Útivistar
eftir Gunnar
Hjálmarsson
Á þessu ári er raðganga Utivist-
ar frá Reykjavík til Goðalands í
Þórsmörk. Gangan hófst í janúar
við skrifstofu ÍJtivistar í Grófinni 1
og gengin var gamla þjóðleiðin út
úr bænum um norðan- og austan-
vert Skólavörðuholt um Oskjuhlíð,
Bústaðaháls sunnanverðan upp að
Ártúni ofan Elliðaár og áfram að
Árbæ _þar sem fyrsta áfanganum
lauk. í næstu göngum var gömlu
þjóðleiðinni fylgt áfram austur fyrir
íjall með örlitlum frávikum þó,
vegna óveðurs.
I þessum áföngum fengu þátt-
takendur að kynnast því hvernig
forfeður okkar hafa þurft að brjót-
ast áfram þessa leið í hríðarbyl og
þungu færi. Sæluhúsin komu sér
þá oft vel og okkur fannst líka
notalegt að koma úr blindbyl inn í
Litlu kaffistofuna í Svínahrauni og
fá hressingu.
Vitað er að árið 1703 var sælu-
hús undir Húsmúla og líklegt að
þar hafi verið sæluhús um aldir
áður en það var flutt upp á Kolviðar-
hól laust fyrir miðja síðustu öld. Á
árunum 1877-1878 var síðan byggt
gestgjafahús úr steini á hólum og
var þar oft þröngt setinn bekkurinn
á meðan menn biðu af sér veður.
„ Að taka þátt í göngu-
ferð eins og Þórsmerk-
urgöngunni er holl og
góð íþrótt sem skapar
andlega og líkamlega
vellíðan og er góð vörn
gegn streitu sem dag-
legt amstur veldur.“
yfir Hellisbrúna sem er vegagerð
yfír mýrina frá Ingólfsfjalli niður
að gamla feijustaðnum við Ölfusá
gegnt Laugardælum. Þetta mun
vera ein elsta vegagerð á Suður-
landi.
Ekki var ferjandi yfir ána nú
vegna ísskara og jakaburðar í ánni.
Á því var heldur ekki brýn þörf þar
sem litlu neðar er brú sem hægt
er að fara yfir.
Þessi brú var ekki til staðar þeg-
ar Matthías Jochumsson var hér á
ferð ásamt vinnumanni sínum á
leið austur í Odda á Rangárvöllum
í janúar 1884. Hann sótti það fast
að vera feijaður yfir þrátt fyrir að
ófeijandi væri. Hann fékk því fram-
gengt en ekki var feijað aftur yfir
Úr Þórsmerkurgöngu Útivistar.
á þessum stað fyrr en á útmánuðum
það ár.
Nú er lokið átta áföngum og
gönguhópurinn kominn austur yfir
Flóann í fylgd fróðra heimamanna
að Feijunesi gegnt Sandhólaferju
við Þjórsá. Níundi áfangi sem verð-
ur farinn 27. maí hefst á því að
þátttakendur verða feijaðir yfir
Þjórsá að aldagömlum sið.
Vitað er að þarna var feija á
tíundu öld og sennilega alla tíð síðan
eða þar til brúin við Þjótanda leysti
feijumenn af hólmi. Hún var byggð
árið 1895.
Þegar austur yfir Þjórsá kemur
verður haldið áfram um lönd Odda-
veija og söguslóðir Njálu en
göngunni lýkur þann 22. september
í Básum í Goðalandi við skála Úti-
vistar með veglegri grillveislu.
Allmargir þátttakendur hafa far-
ið í alla áfangana og eru forföll
þeirra ekki tekin gild nema framvís-
að sé læknisvottorði. Nýliðar eru
samt meira en velkomnir enda 9
áfangar eftir og þrátt fyrir geysi-
mikla þátttöku í þeim ferðum sem
búnar eru er alltaf pláss fyrir fleiri.
Að taka þátt í gönguferð eins
og Þórsmerkurgöngunni er holl og
góð íþrótt sem skapar andlega og
líkamlega vellíðan og er góð vörn
gegn streitu sem daglegt amstur
veldur. Það eykur skilning á nátt-
úru landsins, veðurfari, staðháttum
og þjóðlífinu í heild. Á söguslóðum
verða liðnir atburðir raunverulegir
og við skynjum þá á jafnréttis-
grundvelli þar sem vegalengdir
verða þær sömu og forðum en tækni
og hraði nútímans órafjarri. Þessir
dagar verða síðan innistæða í
„gleðibanka“ okkar þar sem sífellt
bætist við þann höfuðstól sem ekki
er hægt að skerða en vel hægt að
lifa á vöxtunum góðu lífi.
Höfiindur er þátttaknndi í
Þórsmerkurgöngunni.
Sjötíu ára afmæli átti 16. apríl
Óli Kristjánsson á Skútustöðum í
Mývatnssveit. Foreldrar hans voru
Kristján Helgason og Soffía Jóns-
dóttir frá Klömbur í Aðaldal. Þau
bjuggu fyrst í Haganesi hér í sveit
og síðan á Skútustöðum.
Óli hefur ætíð stundað búskap
í félagi við bræður sína og frænd-
ur. A afmælisdaginn bauð hann
miklum fjö'da v>na sinna í Mý-
vatnssveit til fagnaðar á heimili
Kristjáns Yngvasonar og Sigrúnar
Jóhannsdóttur. Þar var veitt af
mikilli rausn og myndarskap og
skemmt sér við söng og gleðskap
fram á nótt.
Óla er margt til lista lagt. Á
síðustu árum hefir hann töluvert
fengist við að sauma út og gert
marga sérlega fallega hluti. Þá
hefur hann málað fjölda landslags-
mynda, sumar gullfagrar. Óhætt
er að. segja að þar hafí hann náð
ótrúlegum árangri, algerlega sjálf-
menntaður á þessari braut. Hann
segist vera búinn að láta af hendi
tugi málverka sinna. Margir hafa
enda sóst eftir þeim, ekki síst til
gjafa.
Óla eru hér með færðar bestu
árnaðaróskir frá sveitungum hans
í tilefni þessara tímamóta. Von-
andi fær hann tækifæri til að vinna
áfram að hugðarefnum sínum.
Kristján Þórhallsson
Gegnum árin gestafjöld
gengu að vísu bóli,
er ferðalúnir komu um kvöld
Kolviðar að hóli.
Nú er risin önnur öld
ekki sála á róli.
Er þreyttir gestir koma um kvöld
Kolviðar að hóli.
Hellukofinn á heiðarbrúninni of-
an Hellisskarðs var byggður fyrir
meira en 150 árum og stendur enn
enda lystilega vel hlaðinn úr hraun-
hellum. Alfaraleið lá þá um skarðið.
Við Fóelluvötn var einnig byggt
sæluhús um svipað leyti og stóð það
fram á þess'a öld.
í fimmtu göngunni var gengið
frá Reykjum í Ölfusi austur með
hlíðinni, hjá Ingólfsfjalli og áfram
A&næliskveðja:
Óli á Skútu-
stöðum
sjötugur
UIIII >
I Vr
Hrafn í borgarstjórn!
Bubbi Morthens
Halldóra Jónsdóttir
Nýr vettvangur
UNGT FOLKISOKN!