Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990
57
Um hvað snýst
Grafarvogsdeilan?
eftirAlfreð
Þorsteinsson
í för skipulagsnefndar Reykja-
víkur til Bandaríkjanna á síðasta
ári, kom ótvírætt í ljós i samtölum
við skipulagsyfii’völd í stórborgum
þar vestra, að óhugsandi væri að
breyta samþykktu skipulagi með
óvæntum uppákomum eftir á. Ibú-
ar ættu að geta treyst því, að stað-
ið væri við forsendur skipulags,
enda væru miklir hagsmunir ein-
staklinga og fyrirtækja í húfi.
Skilningsleysi borgarstjórans
Þetta rifjast upp vegna umræð-
unnar um staðsetningu sorpbögg-
unarstöðvar í Reykjavík, en svo
virðist sem borgarstjórinn í
Reykjavík skilji ekki þau grundvall-
arsjónarmið, sem liggja að baki
mótmælum íbúa í Grafarvogi og
áður í Árbæjarhverfi gegn staðsetn-
ingu stöðvarinnar í nálægð íbúðar-
byggðar.
Fyrir íbúana er um það að tefla,
að þessi starfsemi truflar þeirra
„Málið verður heldur
ekkert betra fyrir borg-
arstjóra, þó að Sigurjón
Pétursson og Bjarni P.
Magnússon hafí stutt
ráðagerðir hans í þessu
máli.“
nánasta umhverfi og rýrir hugsan-
lega eignir þeirra. Hér er því ekk-
ert smámál á ferðinni og mættu
íbúar annarra íbúðarhverfa í
Reykjavík setja sig í spor þeirra,
sem fyrir þessu verða.
Fúkyrði í garð Árbæinga
Borgarstjórinn í Reykjavík hefur
af sinni alkunnu hógværð sent mér
fúkyrði á öldum ljósvakans og í
prentuðu máli fyrir þá áfstöðu mína
að berjast gegn staðsetningu sorp-
böggunarstöðvar í nálægð íbúðar-
byggðar. Sömuleiðis sendi hann
íbúum Árbæjarhverfis fúkyrði á
síðasta ári, þegar þeir risu upp og
Alfreð Þorsteinsson
mótmæltu ákvörðun hans. Líkti
hann mótmælum þeirra við för
bænda fyrr á öldinni, er þeir mót-
mæltu lagningu símastrengs til ís-
lands.
Málið verður heldur ekkert betra
fyrir borgarstjóra, þó að Siguijón
Pétursson og Bjarni P. Magnússon
hafi stutt ráðagerðir hans í þessu
máli.
Höfundur er varaborgarfulltrúi og
skipar 2. sæti á lista
framsóknarmanna íReykjavík.
Gjöld fyrir gagnaflutning
eftir Þorvarð Jónsson
Svar við greininni „SURÍS -
dijúgar upphæðir fara til Pósts
og síma“, sem birt var í Morgun-
blaðinu 13. maí 1990.
I þessari grein, sem er viðtal
blaðamanns við Pál Jensson, pró-
fessor, formann SURÍS, er gefið
í skyn bæði í fyrirsögninni og í
sjálfri greininni að Póstur og sími
taki til sín of háar upphæðir fyrir
gagnaflutning milli Islands og
annarra landa.
Sannleikurinn er sá að með til-
komu almenna gagnaflutnings-
netsins stórlækkaði þessi kostnað-
ur enda var gjaldskráin fyrir notk-
un netsins höfð eins lág og nokkur
kostur var, en miðað var við að
hún stæði undir fjárfestingu
gagnanetsins. Við opnun netsins
fékk stofnunin hrós frá notendun-
um fyrir lág gjöld, enda voru okk-
ar gjöld verulega lægri en þau
gjöld, sem giltu hjá nágrannalönd-
um okkar og er svo enn. Gjöld
fyrir gagnaflutning milli landa er
„Gjöld fyrir gagnaflutn-
ing milli landa er samið
um á milli landanna og
fær ísland venjulega
minna en helming
gjaldsins í sinn hlut.“
samið um á milli landanna og fær
ísland venjulega minna en helming
gjaldsins í sinn hlut. Gjöld fyrir
gagnaflutning eru þannig byggð
upp að greitt er gjald fyrir hveija
samtengingu, síðan er greitt gjald
fyrir hveija mínútu tengitímans
og síðan er gi’eitt gjald fyrir
gagnaflutningsmagnið mæltu í
gagnasneiðum, sem hver er 64
bæti (64x8 bitar). Sé um mikla
notkun að ræða borgar sig vissu-
lega að leigja fasta línu gegn
ákveðnu föstu mánaðargjaldi eins
og fram kemur í blaðagreininni.
Póstur og sími hefur boðið SURÍS
slíka leigulínu milli Reykjavíkur
og Stokkhólms, en leigan hefur
því miður verið háð því að heila
tallínu ásamt tilheyrandi mótöld-
um hefur þurft fyrir þetta. Nýlega
var sambandinu við Norðurlönd
breytt úr hliðrænum í stafrænar
tallínur og við það opnast mögu-
leiki á að nýta eina stafræna
tallínu fyrir nokkrar gagnaflutn-
ingslínur. Af þessum sökum hefur
Póstur og sími lækkað verulega
gjöldin fyrir leigðar gagnaflutn-
ingslínur milli Islands og hinna
Norðurlandanna og einnig gert
þau háð þeim gagnaflutnings-
hraða sem línan ber. Nordunet,
samstarfsfélagsskapur SURÍS,
hefur nú pantað leigulínu fyrir
þessa þjónustu og mun hún verða
tengd einhvern næstu daga.
Pósti og síma var nýlega boðið
á fund til SURÍS þar sem rætt
var um framhald þessa starfs og
var Pósti og síma formlega boðin
þátttaka í SURÍS. Það mál er nú
i athugun hjá stofnuninni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
tæknideildar Pósts og síma.
Engar skoðanir í ellinni?
eftir Garðar Jóhann
Guðmundsson
Enn heldur Morgunblaðið upp-
teknum vana fyrir kosningar.
Skoðanakannanir þær sem blaðið
pantar hjá Félagsvísindastofnun
Háskóla íslands eru framkvæmdar
á þann hátt, að fólkið, sem byggði
upp þjóðfélagið okkar, er ekki
spurt. Ef þú ert eldri en 75 ára,
hefur þú ekki skoðun á borgarmál-
um, hvað þá þjóðmálum.
Við kosningar til Alþingis fyrir
þrem árum var sömu aðferðum
beitt, og þá jafnvel farið niður í
70 ára aldur. Á þeim tíma mót-
mælti ég, og fleiri, þessum aðferð-
um. Mér er ekki kunnugt um að
kosningarétturinn hafi verið tek-
inn af þessu fólki, en Morgunblað-
ið vill greinilega sem minnst vita
um skoðanir þess, þetta fólk á
bara að mæta á kjörstað. Min
reynsla er sú, að þessi aldurshópur
er sá sem hefur hvað fastmótað-
astar skoðanir. En hver er ástæð-
an fyrir þessum ótta Morgunblaðs-
ins við eldri borgara þessa lands?
Getur verið að Morgunblaðið óttist
að þessi aldurshópur sé ekki hallur
undir fijálshyggjuna?
Þetta fólk, sem er eldra en 75
ára, hefur unnið hörðum höndum
Garðar Jóhann Guðmundsson
við að koma okkur yngra fólkinu
inn í 20. öldina, og það hefur því
tekist með þeim ágætum að nálg-
ast einsdæmi. En nú á þetta fólk
bara að sitja hjá, og taka þvi sem
að höndum ber, án þess að hafa
opinberar skoðanir.
Mér finnst þessi afstaða Morg-
unblaðsins ómanneskjuleg, og er
þvi ánægja að styðja framboð Nýs
vettvangs, sem gert hefur sér ferð
á flest, ef ekki öll, elliheimili borg-
„Nýr vettvangur mun
einnig gera meira fyrir
þetta fólk en Morgun-
blaðið og fylgifiskar
þess hafa gert á undan-
förnum árum.“
arinnar til þess að hlusta á skoðan-
ir þess fólks, sem er eldra en 75
ára. Nýr vettvangur mun einnig
gera meira fyrir þetta fólk en
Morgunblaðið og fylgifiskar þess
hafa gert á undanförnum árum.
Þess vegna er ég sannfærður um
að þessi aldurshópur mun greiða
götu Nýs vettvangs í komandi
borgarstjórnarkosningum.
Höfundur er í kosningastjórn Nýs
vettvangs.
Aths. ritstj.:
Skoðanakannanir Félags-
vísindastofnunar eru á ábyrgð
þeirrar stofnunar. Morgunblaðið
hefur engin afskipti af því, hvern-
ig þær eru unnar. Greinarhöfund-
ur verður því að beina athuga-
semdum sínum þangað. Gæti nú
ekki kosningastjórn Nýs vettvangs
lyft áróðri sínum á örlítið hærra
Stúdentastjarnan,
14 karat gull,hálsmen eða prjónn
Verð kr. 3.400
Skðrtpipaverzlim
LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVlK
SÍMI 13383
Vorlilboðá
BV-handtjðkkum
Góður afsláttur í maí á meðan birgðir endast.
IR.
JQ Eigum ávallt fyrirliggjandi
! hinavelþekktu BV-hand-
lyftivagna með 2500
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 16 SIMI672444 TELEFAX672580
150 Lftra
KÆLISKÁPAR
/////• RÖNNING
V/f// SUNDABORG 15. S:84§00